Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1990, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1990, Síða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 1990. Fréttir Sérfræðingar OECD: Afskipti stjórnvalda draga úr hagvexti í skýrslu Efnahags- og framfara- stofnunarinnar (OECD) um efna- hagsmál á íslandl segir meöal ann- ars að afskipti stjómvalda af at- vinnumálum hér á landi leiði til lakari lífskjara. „Sambland traustrar hagstjóm- ar, aukins hlutverks markaðarins og atvinnustefnu sem byggir í minna mæli á afskiptum stjórn- valda er besta leiðin til að bæta lífs- kjör á íslandi á komandi árum,“ segir í niðurlagi skýrslunnar. Boðskapur líkur þessum hefur verið í skýrslum OECD um ísland mörg undanfarin ár. Sérfræðingar stofnunarinnar segja nú aö þrátt fyrir að nokkuö hafi dregiö úr af- skiptum ríkisvaldsins af íjár- magnsmarkaöinum um miöbik níunda áratugarins sé enn langt í land. Þeir nefna meðal annars rík- isbanka og fjárfestingarsjóði sem reknir em með ríkisábyrgð og af stjórnum kjömum af stjómvöld- um. Þá leggja sérfræðingar OECD til varnaöarorð vegna ákvörðunar ríkisstjómarinnar um að auka vald Seðlabankans yfir vaxtaákvörðun- um viðskiptabanka og öðrum að- gerðum á fjármagnsmarkaði. Sérfræðingar OECD leggja höf- uðáherslu á afskipti stjómvalda af atvinnulífi í gegnum banka- og sjóðakerfið. Þeir fjalla síður um afskipti stjórnvalda af verðlagi og ýmsar viðskiptahömlur sem stjómvöld hafa komið á með reglu- gerðum í gegnum tíðina. Um það síðartalda fjallar Þráinn Eggerts- son hagfræðiprófessor hins vegar í álitsgerð tíl Þjóðhagsstofnunar um áhrif lögbundinna forréttinda til atvinnurekstrar og vinnu, sem lögð var fram sem svar við fyrirspurn Friðriks Sophussonar til forsætis- ráðherra um málið. Þar segir meðal annars aö mikil- vægt sé „að hefjast handa við að grisja fmmskóg íslenskra reglu- gerða en margt bendir til þess að á Islandi séu forréttíndi og viðskipta- hömlur algengari en í mörgum nálægum löndum.“ í álitsgerð sinni rekur Þráinn helstu rök með og á mótí því að veita ákveðnum hópum eða fyrir- tækjum einokun með lögbindingu, reglugerðum eða útflutningsleyf- um. Niðurstöður hans eru að „lög- bundin forréttindi, sem hamla á mótí samkeppni og veita rétthöfum vald til að einoka markaðinn, rýra almenn lífskjör. Forréttindi koma í veg fyrir að auðlindir og starfs- kraftar beinist aö þeim verkefnum sem hámarka virðisaukann í þjóð- félaginu." -gse Ný lög um notkun bílbelta í aftursæti: Meiðsl 60 prósent færri hjá not- endum bílbelta -en þeim sem ekki spenna beltin Frumvarp um breytíngar á um- ferðarlögum varð að lögum í efri deild Alþingis á laugardaginn. í lögunum er meðal annars kveðið á um skyldunotkun bílbelta í aftur- sætum. Lögin taka gildi í haust - í bifreiðum sem eru með slíkan beltabúnað. Að sögn landlæknis hefur lífs- hættulegum höfuð- og hryggjar- meiðslum vegna umferðarslysa stórlega fækkað í kjölfar skyldu- notkunar öryggisbelta í framsæt- um. Því var ofangreint frumvarp lagt fram í þeim tilgangi að tryggja öryggi farþega í aftursætí en oft verða alvarleg meiðsl á þeim sem þar sitja er slys verða. Landlæknisembættíð hefur und- ir höndum upplýsingar sem teknar voru saman yfir tíu mánaða tíma- bil. Þar kemur í ljós að heila- og mænuslys eru 60 prósent færri meðal þeirra sem nota bObelti en þeirra sem ekki nota þau. Á sama hátt eru lífshættuleg höfuð- og hryggjarslys 50 prósent færri. Samkvæmt könnun Hagvangs eru nær 90 prósent landsmanna hlynnt skyldunotkun bílbelta í aft- ursætum. „Menn tala gjarnan um frelsi og telja að lögbundin belta- notkun sé sviptíng á slíku. En höf- um það hugfast að frelsi felst í því að geta gert allt sem ekki skaðar neinn annan - því í aftursætínu sitja bömin,“ segir landlæknir. Fulltrúar Hagkaups og Félags íslenskra iönrekenda. Hagkaup og Félag íslenskra iðnrekenda standa fyrir kynningu og sölu á íslenskum vörum í öllum verslunum Hagkaups. Það eru um 70 íslensk fyrirtæki sem taka þátt í kynning- unni. íslenskir dagar standa yfir dagana 10. til 19. maí. Hér eru þeir Jón Ásbjörnsson, forstjóri Hagkaups, Víglund- ur Þorsteinsson, formaður Félags íslenskra iðnrekenda, og Ólafur Davíðsson, framkvæmdastjóri félagsins -sme DV-mynd BG Áhrif skyldunotkunar bílbelta íframsœtum Heimild: Landlæknisembættiö DVJRJ m meðferð á hestum: Einn maður hefur verið rekinn úr Félagi tamningamanna - annar fengið aminningar Siöanefnd Félags tamningamanna hafa borist kærur og ábendingar vegna Ulrar meðferðar á hestum í tengslum við keppni. Að sögn Trausta Þórs Guðmundssonar, for- manns félagsins, hafa þessar kærur beinst gegn tveimur mönnum. Siða- nefnd félagsins hefur áminnt þessa menn. Ef brot eru endurtekin er tamningamönnum vísað úr félaginu. Annar mannanna tveggja sem kærð- ir hafa verið er þannig ekki lengur félagi í Félagi tamningamanna. í DV í gær var vitnað til forystu- greinar Eiðfaxa, tímarits hesta- manna, þar sem Erling Ó. Sigurðsson tamningamaður fjallaði um svokall- aðan ótta- eða hræðsluvUja. Hann er fenginn fram með því að lúberja hestínn rétt fyrir keppni eða sýn- ingu. Hesturinn hlýðir þá af ótta við knapann. Þar segir að siðanefnd tamninga- manna, sem Erling á sæti í, muni ekki láta þetta sem vind um eyru þjóta. Kærur og ábendingar um mál sem siðanefndin telur mjög alvarleg hafi þegar verið afgreiddar og önnur séu í athugun, „Forsíðufyrirsögn DV í gær gefur ranga hugmynd um meöferð ís- lenskra knapa á hestum sínum," sagði Traustí Þór Guðmundsson. Eins og hún stóð ein og sér hafi mátt ætla að íslenskir knapar misþyrmdu hestum sínum undatekningalaust eða -lítíð. Traustí Þór sagði þetta ekki vera útbreitt vandamál. Eins og áður sagði hafa kærur og ábendingar tíl siðanefndar tamningamanna beinst gegn tveimur mönnum. Traustí sagði að aörir hestamenn á íslandi færu yfirleitt vel með sína hesta og að ís- lenskir hestamenn væru kunnir af góöri meðferð hesta á mótum erlend- is. Grein Erlings hafi verið skrifuð tíl þess að brýna fyrir ungu og óreyndu hestafólki að taka ekki þá eldri hestamenn sem fara Ola með hestínn sér tíl fyrirmyndar. -gse

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.