Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1990, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1990, Qupperneq 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 1990. Fréttir__________________________________________________ Lokaniðurstaða um umhverfisráðuneytið: Mengunin strax og skipulagið síðar - takmörkuð völd í landvernd og engin í hollustuvemd Lokaafgreiðsla Alþingis á lögum um umhverfisráðuneyti felur í sér mun minni beytingar frá upphaílega frumvarpinu en málamiðlunartil- laga Steingríms Hermannssonar for- sætisráðherra frá því um páska. í henni var gert ráð fyrir að sex laga- greinar féllu út úr frumvarpinu en nú hafa mengunarþættir Hollustu- verndar og Siglingamálastofnunar aftur farið til umhverfismálaráð- herra. Eftirlit með eiturefnum er hins vegar enn úti. Peningainarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóðsbækurób. 3 Allir Sparireikningar 3jamán. uppsogn 3 6 ib 6mán.uppsögn 4-7 Ib 12mán. uppsogn 4-8 Ib 18mán. uppsógn 15 Ib Tékkareikningar, alm. 0,5-1 Allir nema ib Sértékkareikningar 3 Allir Innlan verðtryggð Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 1.5 Allir 6mán. uppsögn 2.5-3.0 Lb.Bb,- Sb Innlán með sérkjörum 2.5-3 Lb.Bb,- Sb Innlángengistryggð Bandarikjadalir 7-7,25 Sb Sterlingspund 13,6 14,25 Sb Vestur-þýsk mörk 6.75-7,25 Sb Danskarkrónur 10,5-11 Sp ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennirvíxlar(forv.) 13,0-13,75 Sb Viöskiptavíxlar(forv.) (1) kaupgengi Almennskuldabréf 14 Allir Viöskiptaskuldabréf (1) kaupgengi Allir . Hlaupareikningar(vfirdr.) 16,5-17,5 Bb Utlán verðtryggð . Skuldabréf 7.5-8.25 Lb.Bb Utlántilframleiðslu Isl. krónur 13.75-14,25 Bb SDR 10,95-11 Bb Bandarikjadalir 10,15 10,25 Bb Sterlingspund 15,85-17 Bb Vestur-þýsk mörk 10-10,25 Allir Húsnæðislán 4.0 Lífeyrissjóðslán 5-9 Dráttarvextir 26 MEÐALVEXTIR Óverðtr. maí 90 14 Verðtr. maí 90 7,9 VÍSITÖLUR Lánskjaravísitala maí 2873 stig Lánskjaravisitala apríl 2859 stig Byggingavisitala maí 541 stig Byggmgavisitala maí 169,3 stig H úsaleigu vísitala 1,8% hækkaöi 1 apríl VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa verðbréfasjóða Einingabréf 1 4.841 Einingabréf 2 2,648 Einingabréf 3 3,186 Skammtímabréf 1,644 Lifeyrisbréf Gengisbréf 2,119 Kjarabréf 4,795 Markbréf 2.552 Tekjubréf 1,962 Skyndibréf 1,438 Fjólþjóðabréf 1,270 Sjóðsbréf 1 2,333 Sjóðsbréf 2 1.748 Sjóðsbréf 3 1,630 Sjóðsbréf 4 1,381 Vaxtasjóðsbréf 1,6470 Valsjóðsbréf 1,5500 HLUTABRÉF Sóluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.: Sjóvá-Almennar hf. 500 kr. Eimskip 420 kr. Flugleiðir 145 kr. Hampiðjan 152 kr. Hlutabréfasjóður 178 kr. Eignfél. Iðnaðarb. 152 kr. Skagstrendingur hf. 320 kr. Islandsbanki hf. 163 kr. Eignfél. Verslunarb. 170 kr. Olíufélagið hf. 415 kr Grandi hf. 164 kr. Tollvörugeymslan hf. 102 kr. (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb= Búnaðarbankinn, lb = lðnaðarbank- inn, Lb= Landsbankinn, Sb = Samvinnu- bankinn, Úb= Otvegsbankinn, Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir. Nánari upplýsingar um peningamarkaö- inn birtast i DV á fimmtudögum. Eftir sem áður er verksvið ráðu- neytisins mun veigaminna en sam- kvæmt upphaflega frumvarpinu. Aðrir þættir Hollustuverndar en mengunarmál heyra áfram undir heilbrigöisráðherra og sömuleiðis geislavarnir, skipulagsmál og bygg- ingarmál fara ekki til umhverfis- ráðuneytisins fyrr en um næstu ára- mót, friöun húsa verður áfram hjá menntamálaráðuneytinu og síðast en ekki síst hefur vald umhverfisráð- herra varðandi landvernd og skóg- rækt verið skert frá upphaflega frumvarpinu. í stað þess að um- hverfisráðherra geti fyrirskipaö frið- unar- og uppgræðsluaðgerðir þarf hann nú samþykki landbúnaðarráð- herra. Ef þeir eru ósáttir kemur það í hlut forsætisráðherra að höggva á hnútinn. Umhverfisráðuneytið íslenska verður þvi mun valdaminna en syst- urráðuneyti á Norðurlöndunum. Fyrir utan þessi atriði sem fallið hafa út úr fyrsta frumvarpinu má nefna að í Finnlandi og Danmörku falla húsnæðismál undir umhverfismála- ráðuneytið eins og önnur skipulags- mál, í Svíþjóð er öll orkumál undir umhverfisráöuneytinu og víðast hvar myndi Hafrannsóknarstofnun falla undir umhverfisráðuneytið. Það síðasttalda var ein af breyting- artillögum Kvennalistans. Ef sú til- laga hefði náð fram að ganga væru veiðiheimildir sjálfsagt ákvarðaðar þannig að umhverfisráðherra úr- skurðaði um heildaraflamagn sam- kvæmt tillögum Hafrannsóknar- stofnunar og sjávarútvegsráðuneytið deildi því síðan út á milli einstakara skipa. Miðað við lögin sem samþykkt voru á laugardaginn þá heyrir nátt- úru- og dýravernd undir umhverfis- ráðuneytið. Varnir gegn ytri mengun heyra sömuleiðis undir ráðuneytið en þættir eins og vinnueftirlit og hollustumál eru utan þess. Eftir næstu áramót bætast síðan skipu- lags- og byggingarmál undir ráðu- neytið. Eins og áður ságði hefur umhverfisráðherra síðan takmark- aðar heimildir til aögerða í land- verndar- og skógræktarmálum. Auk þessa heyra Veðurstofa íslands og Landmælingar ríkisins undir um- hverfisráðuneytið. í dag eru tveir fastir starfsmenn í umhverfisráðuneytinu; Páll Líndal ráðuneytisstjóri og Ingibjörg Ólafs- dóttir ritari. Ekki hefur verið gengið frá frekari ráðningum né heldur hversu margir verða ráðnir. Auk þessara föstu starfsmanna eru þrír aðrir-starfsmenn í ráðuneytinu til styttri dvalar; Júlíus Sólnes ráð- herra, Jón Gunnarsson, aðstoðar- maður hans, og Guttormur Einars- son, starfsmaður nefndarinnar sem Júlíus skipaði á sínum tíma til að móta þessari ríkisstjórn nýja at- vinnustefnu. -gse Dómur í nauðgunarmáli: 18 mánaða fangelsi vegna nauðgunar Þrjátíu og fimm ára karlmaður hefur veriö dæmdur í 18 mánaða fangelsi vegna nauðgunar. Dómur- inn var kveöinn upp í Sakadómi Reykjavíkur í gær. Maðurinn var dæmdur fyrir aö hafa nauðgað tæp- lega þrítugri konu í íbúðarhúsi í Reykjavík 3. mars 1989. Maðurinn neitaði sakargiftum. Hann segir að hann hafi haft samfarir við konuna með hennar samþykki. Dómurinn byggir á framburði konunnar og vitnis. Auk fangelsisvistarinnar var mað- urinn dæmdur til að greiða konunni 300 þúsund krónur í miskabætur og eins var honum gert að greiða allan málskostnað. Guðjón Marteinsson sakadómari kvað upp dóminn. -sme Eyjamenn stærstir í kvótanum Ómar Garöarsson, DV, Vestmannaeyjum: Frá því 1984 til síðasta árs, 1989, hafa Vestmannaeyingar bætt hlut sinn verulega á flutningi aflamarks milli útgerðarstaöa og landshluta og hafa tekið við af Reykjavík sem stærsti útgerðarstaöur landsins. Ariö 1984 höföu Vestmannaeyingar 8,52% heildarkvótans en voru komn- ir meö 10,43% á síðasta ári. Það er aukning um sjö þúsund þorskígildi miðað við úthiutun þessa árs og svar- ar aukningin til 22% á þessum fimm árum. Árið 1984 var hlutur Eyja- manna 32,931 þorskígildi en 1989 var hann kominn í 38,252 þorskígildi. í prósentustigum er aukningin 1,93 % en 22% í magni. Það er nyög athyglisvert í þessari samantekt aö Vestmannaeyjar eru nú stærsti útgerðarstaöur landsins. Árið 1984 var hlutur Reykjavíkur 11,40% af heildarkvótanum en var kominn niður í 8,15% á síðasta ári og í annað sætið. í þriðja sæti er Akureyri með 6,68% og síðan ísa- fjörður í því fjórða með 4,41%. Þá er ekki síður athyglisvert hve Eyjaflotinn hefur stækkað á þessum árum. 1984 voru 53 bátar í Eyjum en voru 66 á síðasta ári. Þetta segir ekki alla söguna því bátarnir hafa stækk- að á þessum tíma og flotinn hefur hefur aldrei verið öflugri en nú. Heimilislæknar: Kosta prófessor við Háskólann Félag heimilslækna hefur boðist til að kosta prófessorsembætti í heimil- islækningum við læknadeild Há- skóla íslands í tvö ár. Eftir fengna heimild frá ráðninganefnd ríkisins hafa háskólaráð og menntamála- ráðuneytið samþykkt aö taka tilboöi heimilslæknanna. Verður embættið auglýst laust til umsóknar á næst- unni. Höfn: Slasaðist illa á vatnasleða Júlia Imsland, DV, Höfn: Ungur maöur á Höfn slasaðist á sunnudag þegar hann var að leika sér á vatnasleða hér á höfninni á HornafirðL Hann keyrði á allmik- iiii ferð á iandfestar dýpkunar- prammans Soffiu og skarst illa á hálsi. Það hefur orðið honum til líí's að kaðaliinn lenti til hliðar á hálsi hans en ekki framan á. Maðurinn hentist í sjóinn og missti meðvitund. Atvikiö átti sér stað stutt frá landi. Félagar hans gátu því vaðið eftir honum og bjargað til lands. Pilturinn var síð- an sendur strax meö sjúkraflugvél til Akureyrar þar sem ófært var til Reykjavíkur. Hann er ekki talinn í lífshættu Sandkom Ekkert nema jeppinn Sandkorner meiraogminna íbundnumálií dag.Viðbyrj- umíþingsölun- um.Þegarbúið varaðsam- :: jjykkjafrnm- varpiðumum- bverfismála- ráðimeytið á .-Vþingiadbíí- unúmogreyta _______________ afþvxflestar fj aðrir, varþessivísaortumum- hverfismálaráðherrann: Ertilvinnufólinnfer, fjandi er þjóðin heppin, þ ví til að stjórna ekkert er eftir.nemajeppinn. Baldvini Jóni hrakar Stefáni Val- ; geirssynier fleira til lista lagtenaðsegja brandaraí þingsöium í jiingveisln i j -: marsflutti imnn mikinn kvæðíibálksem liann liaföi : t hnoðaðsaman ogkallarí rauðuljósi. Þar eru ráðuneytin og ráðherramir tekn- ir fyrir hver á fætur öðrum. Við byij- umáJóniBaldvini. f siðferði bresturog brakar Baldvini Jónilirakar. Hann var á málfúndum mestur mælskari en nokkur prestur. Flutti þar öreigaóðinn alltuppáríkissjóðinn. Mokaðí flórinn i fjósí fórumárauöuljósi. Fylgjendur fai-mr úr landi frændurhans cru í bandi. f veislur er sagöur sestur sýnist það dómgreindarbrestur. Úll mál Ogþáerþað Júlíus um- hverfisráð- herrasemtek- innerfyrir: Ráöherrameg- in mála mestferum vegihála. Hagstofuhafðí ílokin heldurskárra enpokinn. Málhansöll eruíbloyti i umhverfisráðuneyti. Fyrirheit léttvæg og loöin líidega í svaöið troðin. Stól og stööutákn hefur Steingrímur ordrur gefur störfm enn virðist vanta vel gengi bílinn aö panta. Umhverfiö sýnist það sama Sólnes fékk umsamdan frama. kann og leikur Viðljúkum þessuáþvíþeg- arStefánfiallar umJónSig- urðsson, við- skipta-ogiðn- aðarráðherra. Alheims borg- arierborínn úrblaöitís- kunnarskor- inn. Við hagfræði- kenningar kenndur krati með auðvaidshendur. Frelsi ijármagnsins styður færir þvf kaupmáttinn niður. Lofar álsmiðjum öllum einnig á hæstu fjöllum. Keíluspii kanu og leikur við kommana hvergi smeykur, því múrinn var raulinn niður í mannheimi líklegur friður nema hjá krötum og kommum kynvilltum píum og hommum. Umsjón: Haukur L. Hauksson -hlh

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.