Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1990, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1990, Page 11
ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 1990. 11 f Var Rolling- urinn Brian Jones myrtur? Brian Jones, eitt sinn meðlimur 1 hinni frægu hljómsveit Rolling Stones, var myrtur af öðrum rokkstjörnum og aðdáendum, segir þekktur ævisöguritari A.E. Hotchner í nýrri bók og að sjálf- sögðu er allt vitlaust út af þessari yfirlýsingu. Jones fannst látinn, tuttugu og fimm ára gamall í sundlaug á heimili sínu í Surrey í Englandi, 2 júlí 1969. Rannsókn þá leiddi í ljós að um dauða af slysförum hafi verið að ræða og hafi Jones verið undir áhrifum eiturlyfia og brennivíns. Hotchner segir annað í bók sinni, Let it Bleed: The Killing of a Rolling Stone and the Death of a Era. Hann fullyrðir að Jones hafi verið myrtur: „Eftir mikil átök á heimili hans var Jones drepinn og hent út í sundlaug af afbrýöisömum gestum," segir rit- höfundurinn. Bókín kemur ekki á markað fyrr en í nóvember. Hotchner er ekki aðeins þekkt- ur rithöfundur, heldur er hann meðeigandi Paul Newman í salat- og poppkornfyrirtækinu vel þekkta, þar sem allur ágóði fer til mannúðarmála. Hér er því um virtan mann að ræða. Brian Jones. Hvar skyldi svo Hotchner hafa fengið fyrstu upplýsingar um að dauði Jones væri ekki eins og sýndist. Jú, þeir sem þekkja til segja að upplýsingar hafi komið frá Bill Wyman, bassaleikara liljómsveitarinnar en hann hafi kostaö eigin rannsókn á dauða Jones. Efasemdir um dauðdaga Brian Jones eru ekki nýjar af nálinni. Nicholas Fitzgerald, náinn vinur hans hefur haldið því fram að eiturlyfjasalar hafi drekkt hon- um. Pat Andrews, barnsmóðir Jones segir að Jones hafi verið of góður sundmaður til að geta drukknað í sundlaug og grunar að hann hafi verið drepinn. Það sem mönnum finnst vafa- samast við tilgátu Hotchners er að hann hafi veriö drepinn af af- brýðisömu fólki. Larry Katz, þekktur rokkskríbent segir að þegar Jones hafi látist hafi hann veriö á mikilli niöurleið. Hann hafi sama sem verið rekinn úr hljómsveitinní. í byrjun var það Jones sem réði ferðinni, en hann tapaði uppgjöri innan sveitarinn- ar við Mick Jagger og átti sér aldrei viðreisnar von eftir það. Og Katz endar með að segja aö enginn hafi grætt nokkuð á því aö Brian Jones hafi látist. Eftir beiðni lögreglustjórans i Reykjavík fer fram opinbert uppboð að Borg- artúni 7, baklóð, laugardaginn 12. maí 1990 og hefst það kl. 13.30. Seld- ir verða óskilamunir, sem eru i vörslu lögreglunnar, svo sem: reiðhjól, úr, skrautmunir, fatnaður og margt fleira. Greiðsla við hamarshögg. Uppboðshaldarinn i Reykjavík. Rómantík hjá frægu fólkí KERTAÞRÆÐIR ípassandi settum Leiðarí úr stáibiöndu. Sterkur og þolir að leggjast I kröppum beygjum. Við- ~»7/ — nám aðeins 1/10 af viðnámi koiþráða. Margföld neistagaði. ^ Kápa sem deyfir truflandl rafbylgjur. FARSIMAR Eftir mikið umtal og blaðaskrif i kringum leikarana Paul Hogan og Lindu Kozlowski gengu þau loks i hjónaband á laugardaginn. Var athöfnin látlaus og aðeins nánum vinum boðið. Paul Hogan, sem þekktastur er fyrir leik sinn i Krókódíla-Dundee, hitti Lindu sína fyrst við gerð fyrri Dundee en hún lék aðalhlutverkið á móti honum. Ástin blossaði samt ekki upp fyrr en við gerð seinni myndarinnar og þegar tökum á henni var lokið yfirgaf Paul eiginkonu og börn og fór að búa með Lindu slúðurblöðum til mikillar ánægju. Fjarskipti hf Fákafeni 11 sími 678740 Verð frá 85.657, II//LASER Stefanía prinsessa af Mónakó hefur lifað fjölskrúðugu lífi og átt marga kærastana. Hún þykist nú vera búin að finna þann eina rétta og opin- beraði trúlofun sína fyrir stuttu. Sá hamingjusami er franskur og heitir Jean- Yves Le Fur. Þessi mynd af þeim var tekin á hnefaleikakeppni og er greini- legt að þau hafa meiri áhuga á hvort öðru en hnefaleikunum. 20% AFSLATTUR Verö var 124.900 XT 3 8086 10 MHz örgjörvi 640 Kb vinnsluminni 14“ einlitur skjár 40 Mb harður diskur MS-DOS 4.01 Takmarkaö magn SKEIFUNNI 5A Sviðsljós Uppboð Kvikmyndaleikarinn frægi, Glenn Ford, er orðinn 74 ára en er greinilega ekki dauður úr öllum æðum þvi hann hefur tilkynnt að hann ætli að giftast innan skamms í Los Angeles. Sú lukkulega er Karem Johnson sem vel gæti verið barnabarn hans. Mynd af hinu hamingjusama pari var tekin i síðustu viku þegar Ford var á leiðinni í viðtal i sjónvarpi. I Gunnar Ásgeirsson hf. Suöurlandsbraut 16 • Sími 680780 I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.