Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1990, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1990, Síða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 1990. ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 1990. 17 Iþróttir KR á grasi? - Gunnar og Ragnar ekki með gegn Víkingi? „Ég tel aö þaö séu nokkrar líkur á því að við leikum á grasi þegar viö mætum Víkingum í fyrstu umferö 1. deildarinnar annan laugardag," sagði Pétur Pétursson, fyrirliði KR-inga í knattspymu, í samtaii við DV í gær. „Grasvöllurinn okkar hefur tekið við sér síðustu daga og ef veðráttan verður í lagi á næstunni ætti hann að verða tilbúinn í tæka tíð. Þaö yrði mjög mikilvægt að geta byrjað á grasi og vonandi verða sem flestir leikir spilaðir við slíkar aðstæður i byrjun íslandsmótsins,“ sagði Pétur. • Nokkur meiðsli hafa hrjáð KR-inga að undanfómu. Jóhann Lapas verður frá þegar íslandsmótið, hefst eins og áður hefur komið fram, en Þorsteixm Halldórsson verður væntanlega orðinn heill heilsu. Hins vegar eiga Gunnar Oddsson og Ragnar Margeirsson báöir við meiðsli að stríða, þeir léku hvorugur með KR gegn ÞróttL í Reykjavíkurmótinu á laugardag- inn og það getur bmgöið til beggja vona um hvort þeir verða orðnir leik- færir í tæka tið. -VS • KR-völiurinn - verður hann tilbúinn í tæka tíð? Sportstúfar Ægir Már Káraaan, DV, Suðumesjum; Grindvíkingar unnu stórsigur á Reynis- • I mönnum, 6-0, í Suður- nesjamótinu í knatt- spymu um helgina. Víðismenn unnu Hafhir, 3-0, en .áður hafði Víöir sigrað Reyni naumlega, 1-0. Árni Þór þjalfar í Kefiavík Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjunr Arni Þór Hallgrímsson, hinn kunni badminton- maöur úr TBR, mun næstu tvær vikumar þjálfa hjá badmintondeild UMFK í Keflavík. Að sögn Viöars Guðjóns- sonar, forráðamanns deildarinnar, em Keflvíkingar mjög þakklátír TBR og Badmintonsamþandi ís- lands fyrir stuðning við hina ungu deild, en hjá UMFK æfa nú 25-30 manns reglulega. Keppnisfólkþað- an tekur þátt í íþróttahátíð ISÍ í sumar og stefnir á að vera með á íslandsmótum næsta vetur. Þrjú geta unnið stóra bikarinn Grótta sigraði Grinda- vík, 2-4, í stóra bikar- keppninni í knattspyrau um helgina. Þá vann ÍK sigur í Njarðvlk, 1-3. Þegar tveimur leikjum er ólokið eiga þrjú hð sig- urmöguleika í keppninni, Selfoss, Grindavík og ÍK, en staöan er þannig; IK..............5 4 Grindavík.......4 3 Selfoss.........3 2 Aftureld........4 l Grótta..........5 l Njarðvfk..:.....5 o 0 1 18-9 8 0 l 12-6 6 0 1 9-7 1 2 7-9 1 3 6-12 3 3 4-13 2 4 3 Afturelding og Selfoss leika á fimmtudagskvöldið og Selfoss og Grindavík mætast síðan á sunnu- daginn. Rauða stjarnan júgósiavenskur meistari Rauöa stjarnan varð um helgina júgóslavneskur meistari 1 knatt- spyrnu. Rauða stjarnan sigraði Velez Mostar, 3-0, en á sama tíma töpuðu helstu andstæðíngar þeirra, Dinamo Zagreh, 0-3, tyrir OJimpija Lubljana. Tveimur umferðum er ólokið í l. deild og hefur Rauða sljarnan fimm stiga forystu. Liðiö vann síðast meistaratitilinn 1988. Sparta Prag öruggur meistari Sparta Prag hefur þegar unniö sig- ur i 1. deildinni í Tékkóslóvakíu en einni umferð er ólokiö í deildinni. Um helgnia var næstsíöasta um- ferðin leikin og urðu úrslit leikj- anna sem hér segir: Dukla-Sigma.............. 3-0 Vitkovice-Streda...........2-2 Brao-Sparta Prag...........2-4 Bohemians-Nitra............2-1 Cheb-Slavia Prag...........1-0 Tmava-Ostrava..............1-3 Bratisiava-Bystrica........1-1 Zovazska-Slovan Bratislava.0-2 VormótUMFA í frjálsum íþróttum Vormót UMFA í frjálsum íþróttum verður haldið á Varraávelli í Mos- feilsbæ á laugardaginn kemur kl. 14. Mótið er iiður í stigamótum FRÍ. í karlaflokki verður keppt í 100, 1500 og 5000 metra hlaupum, langstökki, hástökki og kúiuvarpi. í kvennagreinum verður keppt í 100, 800 og 3000 metra hlaupum og langstökki. Skráningar eru til þriðjudagskvölds í símum 666837 og 666647. ÍBR ______________________KRR REYKJAVÍKURMÓT MEISTARAFLOKKUR KARLA ÍR-VALUR 5. sæti kl. 20.30. Á GERVIGRASINU í LAUGARDAL • Sigurður Sveinsson skoraði mörg glæsileg mörk með Valsliðinu þegar hann lék síðast með liðinu á keppnistimabilinu 1988-1989. Hér er eitt þeirra að verða staðreynd. Sigurður hafnaði tilboði frá vestur-þýska félaginu Dormagen og hefur ákveðið að leika með Val á næsta keppnistímabili. DV-mynd Brynjar Gauti Ballesteros hafnaði í neðsta sætinu Hinn þekkti spánski kylfingur, Severiano Ballesteros, geröi ekki neinar rósir á hinu sterka Benson og Hedges móti sem fram fór í Eng- landi um síðustu helgi. Ballesteros er þekktur fyrir að verma toppsæt- in á mótum sterkustu kylfmganna en á umræddu móti varö hann að gera sér neðsta sætið aö góðu og munu vera ár og dagar frá því að það hefur gerst. Landi hans, Jose Maria Olazabal, stóð sig mun betur því hann sigraöi á mótinu á 279 höggum. Ian Woos- nam varð annar á 280 höggum og Bernhard Langer þriðji á 282 högg- um. Bailesteros lék hins vegar á 294 höggum. -SK „Við eram ekki alveg lausir við falldrauginn“ - Atli og félagar unnu í Tyrklandi Atíi Eðvaldsson og félagar hans í Genclerbirligi unnu um helgina lið Samsun- spor, 1-0, í tyrkensku 1. deildinni í knattspymu og er liðið • Atli Eðvaldsson og félagar eru enn í fallbaráttu i Tyrklandi. nú í 6. sæti með 44 stig þegar tvær umferðir eru eftir. „Þetta var mjög erfiður leikur og sigurmarkið kom þegar 10 mínútur vom eftir en þá fengum við dæmda vítaspymu. Við erum ekki alveg lausir við falldrauginn því nú falla 5 lið í 2. deild en eitt stig úr tveimur síöustu leikjunum nægir okkur til að halda sætinu,“ sagði Atli Eðvalds- son í samtali við DV. • Besiktas er í efsta sæti en á dög- unum varð liðið bikarmeistari og er með þriggja stiga forskot á Fenerbah- ce og Galatasaray er í þriðja sæti. „Ég kem heim til íslands laugar- daginn 26. maí og þá tekur alvaran við eða landsleikurinn gegn Albaníu 30. maí. Þessi leikur er mjög mikil- vægur fyrir okkur og með góöum stuðningi áhorfenda eigum við góða möguleika á að vinna leikinn," sagði Atli Eðvaldsson. Þess má geta að Atli veröur eitt ár til viðbótar í Tyrkl- andi og sagði hann í samtalinu við DV að dvöhn þar heföi verið betri enhannhefðiáttvoná. -GH Loftur áfram hjá KB - leikur ekki meö Fyiki í sumar í 2. deild Loftur Ólafsson, leikmaður með danska 1. deildar hðinu KB, gat ekki leikið meö félaginu um helgina þegar KB vann Næstved á útivelli, 0-1. Loftur meiddist í leik með KB um síðustu helgi eftir að hafa fengið spark aftan í kálfa. „Ég ætlaði mér að leika um helgina gegn Næstved en í upphituninni fyrir leikinn fann ég það mikið til í fætinum að ég treysti mér ekki til að spila. Þetta var mikilvæg- ur sigur hjá okkur enda er deildin mjög jöfn og mikil barátta á toppi og botni. Eg mun leika með liðinu út þetta keppnistímabil en óráðið er með framhaldiö. Ég var með hugmyndir um að koma heim til íslands og leika meö Fylki í 2. deildinni í sumar en ekkert verður að því að svo stöddu," sagði Loftur. -GH íþróttir „Vil Ijúka ferHnum á íslandi“ - Sigurður Sveinsson aftur í Val Sigurður Sveinsson, landsliðsmaður í handknattleik, hefur tekið þá ákvörðun að leika á nýjan leik með Val í 1. deild á næsta keppnistíma- bili. Sigurður lék með Val keppnistímabilið, 1988-89, en í vetur hefur hann leikið í Vestur- Þýskalandi með 2. deildar liðinu Dortmund og staðið sig mjög vel með liðinu. Sigurður fékk tilboð frá Dormagen eftir keppnis- vestur-þýska Uðinu tímabilið í Þýskalandi og eftir nokkra umhugsun hafnaði hann tilboði fé- lagsins. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um hve gífurlegur styrkur Sigurð- ur er fyrir Valsmenn sem á dögunum urðu bikar- meistarar og höfnuðu í 2. sæti í 1. deildar keppn- inni. „Það verður mjög gaman aö koma heim aftur qg leika að nýju með Val. Ég var orðinn frekar þreyttur á að leika erlendis og vil ljúka ferlinum hér heima og þá að sjálsögðu með Val,“ sagði Sigurður Sveinsson í samtali við DV í gærkvöldi. -GH Handboltaskóli Geirs og Viðars Guðjón fer til Bandaríkjanna - Leikur David Grissom með ÍBK? Fyrirsjáanlegar eru nokkrar breytingar á hði Keflvíkinga í körfuknatt- leik fyrir næsta keppnistimabil. Ljóst er að sterkasti leikmaður liðsins á nýafstöðnu keppnistímabili, Guðjón Skúlason, mun leika með bandarisku háskólaliöi næsta vetur. þjóst er að Sandy Anderson leikur ekki með liðinu næsta vetur en miklar líkur eru á því að David Grissom, sem lék með Reyni, Sandgerði, sl. vetur, leiki með Keflavík næsta vetur. ÆMK/-SK Úrslitakeppnin í NBA-deildinni í körfuknattleik: Einstakt afrek Knicks og Boston er úr leik - NY Knicks vann 1 Boston 1 fyrsta skipti síðan árið 1984 Boston Celtics er úr leik um banda- ríska meistaratitilinn í körfuknatt- leik. Boston tapaði á heimavelli sín- um, Boston Garden, fyrir New York Knicks, 114-121, í fimmta leik liðanna og er New York Knicks komið í átta liöa úrslit. Þetta var fyrsti sigur New York-liðsins í Boston í 26 leikjum eða allar götur frá 1984. Það sem gerir sigur New York einnig merkilegan er að Boston Celics vann fyrstu tvær viðureignir liðanna en New York Knicks næstu þrjár. Það hefur aðeins tvisvar sinn- um gerst áður að lið sem er undir, 0-2, vinni næstu þrjá og komist áfram. Wayne Pistons afrekaði þetta 1956 og Golden State Warrios í síðara skiptið 1987. New York Knicks getur þakkað Patrick Ewing að liðið er komið í átta liða úrslit. Ewing lék frábærlega gegn Boston í fyrrinótt og skoraði 31 stig, hirti átta fráköst og var með 10 stoðsendingar. Charles Oakley átti mjög góðan leik, skoraði 26 stig og hirti 17 fráköst. Maurice Cheeks skoraði 21 stig og sautján af þeim í síðari hálfleik. Ewing var í strangri gæslu í síðari hálfleik og þá losnaði um Cheeks. Larry Bird var stigahæstur Bost- on-liðsins, skoraði 31 stig, Parish skoraði 22 stig og Dennis Johnson skoraði 21 stig. New York Knicks mætir meisturunum, Detroit Pist- ons, í átta liða úrslitum. Phoenix Suns sigraði Utah Jazz, 104-102, í fimmta leik félaganna og mætir Utah liði Los Angeles Lakers í átta liða úrslitum. Tom Chambers var stigahæstur í liði Suns og skor- aði 32 stig, Kevin Johnson skoraði 26 og Eddie Johnson 22. Kevin John- son skoraði úrslitakörfuna þegar innan við ein sekúnda var til leiks- loka. Malone var stigahæstur í liði UtahJazzogskoraði26stig. -JKS Sport- stúfar Síðasti leikurinn í 2. deild ensku knattspyrnunnar var háður í gær. Oldham sótti þá Bradford heim og skildu liðin jöfn, 1-1. Lið Bradford var fyrir leikinn þegar fallið í 3. deild en lið Oldham skorti aðeins tvö stig til að kom- ast í úrslitakeppnina um eitt laust sæti í 1. deild. KB vann á útivelli Loftur Ólafsson og félagar hans í KB unnu sinn fyrsta útisigur í 1. deild dönsku knattspyrnunnar um helgina. KB heimsótti þá Næstved og sigraði, 0-1. Önnur úrslit í deildinni urðu þessi: B1903-Lyngby..........2-0 AGF-OB................0-0 Frem-Herfölge.........3-3 Ikast-Vejle...,.......1-0 Viborg-Bröndby........0-2 AaB-Silkeborg........1-1 • Silkeborg er í efsta sæti með 9 stig, Bröndby, Næstved og Frem hafa öll 8 stig. KB er um miðja deild með 6 stig. Sanchez skoraði þrjú mörk Mexíkanski leikmaðurinn Hugo Sanchez skoraði þrjú mörk í sigri Real Madrid, 5-2, á Oviedo í 1. deild spænsku knattspyrnunnar um helgina. Sanchez varð marka- hæsti leikmaöurinn í deildinni og skoraði alls 38 mörk í 38 leikjum og jafnaöi hann met sem sett var fyrir tæpum 40 árum. í Hollandi varð Brasilíumaðurinn Romaro sem leikur með PSV markahæst- ur með 23 mörk þó svo aö hann , hafl ekki leikið með síðustu 5 vik- urnar þar sem hann ökklabrotn- aði í leik með PSV. Félagi Rom- ario Wim Kieft og Harry van der Laan komu næstir með 21 mark. Heimsmeistarar Svía unnu Japani Svíar og Japanir léku til úrslita á þriggja liöa handknattleiksmóti sem fram fór í Japan um helgina. Svíar sigruðu í spennandi leik, 23-25, eftir að hafa verið einu marki undir í hálfleik, 13-12. Staffan Olsson var markahæstur í liði heimsmeist- arana með 6 mörk og Ola Lind- gren skoraði 5 mörk. Svíar og Japanir höfðu áður bæði unnið lið Bandaríkjanna. Norrköping í efsta sæti Norrköping er í efsta sæti í Alls- venskan deildinni í knattspyrnu eftir sigur á Malmö FF á heima- velli, 1-0, á sunnudaginn. Úrslit í öðrum leikjum urðu þessi: Öster-IFK Gautaborg.....2-0 Hammarby-Djurgarden.....3-0 Brage-Halmstadt.........1-1 GAIS-Örebro.............0-1 • Eftir fimm umferðir er Norrköping í efsta sæti með 12 stig, AIK 9, GAIS 8, Örebro 8. Úrslitaleikirnirá Reykjavíkurmótinu í kvöld leika Valur og ÍR til úr- slita um 5. sætið á Reykjavíkur- mótinu í knattspyrnu og hefst leikurinn kl. 20.30 á gervigras- vellinum á Laugardal. Á fimmtu- dag fer fram úrslitaleikurinn í mótinu þegar KR og Fram leika á gervigrasvellinum í Laugardal kl. 20.30. 12 síðna aukablað um íslandsmótið í knattspyrnu fylgir DV á morgun

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.