Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1990, Page 24

Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1990, Page 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 1990. Sviðsljós Ólyginn sagði.. Zsa Zsa Gabor er enn einu sinni komin í heimsfréttirnar, nú vegna þess aö bætt hefur verið við dóm hennar sem hún fékk í vetur fyr- ir að lemja lögreglumann. Var hún dæmd í sekt, sem hún borg- aði, og að vinna 120 klukkutíma við að hjálpa fátækum og heimil- islausum. Þetta fannst Gabor greinilega fyrir neðan viröingu sína og komu margar afsakanir fyrir því að hún gæti ekki unnið slíka vinnu. Dómarinn tók ekkert mark á þessum afsökunum og ásakaði „lcikkonuna" um að reyna að plata það fólk sem sæi um hjálparstarfið og bætti 6 klukkutímum við dóm hennar. Donald Trump hefur ávallt hugsað stórt og það gerir hann svo sannarlega þegar um er að ræða smíði nýju snekkj- unnar hans, Princess II. Þetta 130 metra fley verður ein af stærstu einkasnekkjum heims og er áætl- aður kostnaður 75 milljónir doll- ara. Nú hefur það gerst að Trump hefur keypt hollenska fyrirtækið sem smíðar snekkjuna. Ástæðan er sú að fyrirtækið gat ekki stað- ið við þá dagsetningu sem samið var um að skipið yrði aíhent. Þetta þoldi Trump ekki og keypti fyrirtækið. Raquel Welch hefur verið óvanalega lítiö í fréttum enda hefur kynbomban lifað rólegu lífi að undanfomu. Það er af sem áður var þegar hún var aðalfréttamatur slúðurblaða. Þó kom nafn hennar upp í frétt- um fyrir helgi þegar hún vann mál fyrir rétti. Mál sem er búið að vera bitbein í 10 ár. Það var árið 1980 sem hún var rekin úr aðalhlutverkinu í Cannery Row og Debra Winger fengin í staðinn. Welch varð svo reið að hún kærði og heimtaöi miklar skaðabætur. Urðu úr mikil málaferli sem nú er lokið með sigri hennar. Dæmdi hæstiréttur Kalifomíu henni 5,3 milljónir dollara í skaðabætur. Ljósmyndir úr stríðinu Á laugardaginn var opnuð ljós- myndasýning í Norræna húsinu sem nefnist Hernám og stríðsár á íslandi. Er sýningin haldin í tilefni af því að fimmtíu ár eru liðin frá einhverjum mesta tímamótaatburði í íslandssög- unni. Á sýningunni eru ljósmyndir sem teknar voru á stríðsárunum á ís- landi, 1940-1945. Myndirnar sýna meðal annars umsvif hersveitanna hér á landi og samskipti almennings við hermennina. Myndirnar eru fengnar að láni hjá Ljósmyndasafni íslands, Þjóðminja- safninu og hjá einkaaðilum. Björg Árnadóttir vann að undirbúningi sýningarinnar og hún og Steinþór Sigurðsson völdu myndirnar. Mynd- ir, sem hér fylgja með, voru teknar við opnunina. Lars Áke Engblom, forstjóri Norræna hússins, tekur hér við rós í tilefni af opnun Ijósmyndasýningarinnar. Dv-myndir Hanna Hér má meðal annars sjá Herdisi Þorvaldsdóttur leikkonu virða fyrir sér Ijósmyndirnar. Isfirðingarnir öfluðu vel á handfærin og voru að vonum ánægðir með aflann. Sigurvegarinn í keppninni, Anna Dóra Unnsteinsdóttir, ásamt módeli sinu en förðunina kallaði hún Kvendjöful. Keppni í hugmyndaförðun í vetur var boðið upp á nýja val- grein í Hjallaskóla í Kópavogi sem kallast Mannrækt. Stuðst var við kennslubók frá Námsgagnastofnun, sem heitir Að verða fullorðinn, og fléttað inn 1 kennsluna almennri snyrtingu og umhirðu hárs. í Kópavogsskóla var hins vegar haldið námskeið í snyrtingu fyrir nemendur 7., 8. og 9. bekkjar. í lok námsins var haldin keppni í hug- myndaforðun milli skólanna tveggja þar sem kepptu þrjár stúlkur úr Hjallaskóla og tvær úr Kópavogs- skóla. Sigurvegari í keppninni var Anna Dóra Unnsteinsdóttir úr Kópavogs- skóla en hún kallaöi módelið sitt Kvendjöful. í öðru sæti var Ingibjörg Helgadóttir úr Hjallaskóla með módelið Konung dýranna og í þriðja sæti var Ólöf Eiríksdóttir með mód- elið Náttúrubarn. Þátttakendur í keppninni ásamt kennurum sinum. Skólakrakkar á skaki Helga Guðrún, DV, ísafirði: Nemendur í níunda bekk Grunn- skóla ísafjarðar fóru í sjóferö um daginn með skólaskipinu Mími RE 3. Þetta eru krakkar sem hafa í vetur verið að læra sjóvinnu hjá Þráni Arthúrssyni sem valfag í skólanum. Veður var stillt og fagurt þó frost væri töluvert. Skipstjórinn Þórður Örn Karlsson byijaði á að láta strákana klæðast björgunarvestum og kynnti þeim rækilega allan björgunar- og öryggis- búnað um borð. Fyrst var tekin stefnan að netum sem áhöfnin hafði lagt í Djúpinu daginn áður. Strákarn- ir skiptust á að stýra og Þórður að- stoðaði þá við að reikna út staðsetn- ingu skipsins með stuttu millibili. Þegar búið var að vitja f netin voru handfærin dregin fram og tókst svo vel að fiskur var á hverju járni á meðan aðrir bátar í kring fengu ekki bein úr sjó. Ahöfnin hampar hér fengnum, mesf þorski en einnig fékkst krabbi og fugl.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.