Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1990, Qupperneq 25

Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1990, Qupperneq 25
ÞRIÐJUDAGUR 8. MAI 1990. 25 Spurtá Blönduósi: Hver verða úrslit kosninganna? Ólafur Þorsteinsson vélstjóri: Ætli það verði ekki óbreytt. Þó vona ég aö Sjálfstæðisflokkurinn vinni sigur til að laga ástandið. Páll Ingþór Kristinsson trésmiður: Ég held að H-listinn geti unnið sigur og fengið 4 menn. Hann vinnur þá mann af Sjálfstæðisflokknum. Blönduós: Fjárhagsvandi setur svip á kosningarnar Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: í bæjarfélagi þar sem fjármagns- kostnaður er 32% af tekjum bæjarins fer ekki hjá því að það mál verði áberandi í kosningabaráttunni, enda var það nær samdóma álit viðmæl- enda DV á Blönduósi að fjármál bæj- arins yrðu helstu kosningamál þar. Þrír listar eru í kjöri á Blönduósi eins og í kosningunum 1986 en í kosn- ingunum þar á undan höfðu tveir listar komið fram. í kosningunum 1986 fékk H-listi vinstri manna og óháðra 3 menn kjörna og vantaði 4 atkvæði til að bæta við sig 4. mannin- um á kostnaö K-lista félagshyggju- fólks. K-listinn fékk tvo menn kjörna eins og Sjálfstæðisflokkur og fulltrú- ar H- og K-lista hafa myndað meiri- hluta á Blönduósi. Af öðrum málum sem viðmælend- ur DV á Blönduósi nefndu sem mikið yrðu í umræðunni i kosningabarátt- unni þar má nefna hafnarmál, fram- kvæmdir við íþróttamiðstöð og frek- ari atvinnuuppbyggingu á staðnum. Vinstri menn og óháðir: Heiðrún Bjarkadóttir bankastarfs- maður: Óháðir fá 4 menn, Sjálfstæð- isflokkurinn 2 og kommarnir einn. Kristín Frímannsdóttir húsmóðir: Mér finnst listarnir hallærislegir, alltof margt nýtt fólk á þeim og því erfitt að spá um úrslit. Óskar Sigurfinnsson verkstjóri: Ég bý úti í sveit og hef engar áhyggjur af pólitíkinni hér. Mér hefur þó heyrst að þetta verði svipað og verið hefur. Helga Sigurðardóttir bankastarfs- maður: Ég er ekkert farin að hugsa um kosningarnar ennþá, enda list- arnir nýkomnir fram. „Stefnum að meirihluta" Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: „Helstu baráttumál H-listans í þess- um kosningum eru atvinnumálin,“ segir Vilhjálmur Pálmason sem skip- ar efsta sæti á lista vinstri manna og óháðra. „Það liggur fyrir aö hér verður að skapa ný atvinnutækifæri, m.a. vegna samdráttar í landbúnaði sem hefur áhrif hér og vegna þess að framkvæmdum við Blönduvirkjun lýkur á næsta ári og þá þarf hér fleiri atvinnutækifæri. Þegar við horfum á þessi mál megum við hins vegar ekki gleyma því að hlúa vel að því sem hér er fyrir. Það er stórt mál fyrir okkur aö far- ið verði í gerð brimvarnargarðs við höfnina, íþróttahúsiö þarf að taka í notkun á allra næstu árum og áfram mætti telja. Staða bæjarsjóðs mætti vera betri og við leggjum áherslu á að það þarf að ná niöur skuldum. Hér hefur mik- ið verið framkvæmt, slitlag lagt á allar götur, unnið við gangstéttir og áfram mætti telja.“ - Hvaða væntingar gerið þið H-lista- menn ykkur um úrslit kosninganna? „Ég er hræddur um að hér verði allt óbreytt að loknum kosningum. Við stefnum þó að því að ná hreinum meirihluta en skipting atkvæða þarf að vera hagstæð til að það takist," sagði Vilhjálmur Pálmason. Vilhjálmur Pálmason skipar efsta sæti á lista vinstrimanna og óháðra. Félagshy ggj ufólk: „Erum ekki í gjörgæslu Guðmundur Theódórsson skipar efsta sætið á iista félagshyggjufólks. Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: „Það er rétt aö fjárhagsstaða bæjar- ins er ekki góð og hún verður helsta kosningamál hér. En bærinn er þó ekki í gjörgæslu yfirvalda eins og látið hefur verið í veðri vaka" segir Guðmundur Theódórsson sem skip- ar efsta sæti á lista félagshyggjufólks. „Hér hefur mjög mikið verið fram- kvæmt á kjörtímabilinu og þar af leiðir að skuldir eru miklar eða um 100 milljónir ef fyrirtæki bæjarins eru ekki tekin með. Atvinnumálin verða einnig í brenndidepli í þessari kosningabar- áttu eins og alltaf er. Við sjáum þó verkefni framundan eins og að ljúka við byggingu íþróttamiðstöðvar og vonandi verður farið í aö fullgera hér brimvarnargarð strax á næsta ári". Eruð þið K-listmenn bjartsýnir á úr- slit kosninganna? „Það þýðir ekkert annað en að vera bjartsýnn. Við stefnum að því að halda okkar tveimur mönnum í stjórn bæjarins eins og síðast. Það munaði að vísu litlu þá, en vonandi tekst okkur að ná þessu markmiöi okkar" sagði Guðmundur Theódórs- son. Sj álfstæðisflokkur: Kominn tími til breytinga“ Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: „Það er auðvelt að svara því um hvað verður fyrst og fremst kosið hér á Blönduósi en það eru fjármál bæjar- ins sem Hafa fallið í óheppilegan far- veg, eins og alþjóð veit,“ segir Óskar Húnfjörð, efsti maður á lista Sjálf- stæðisflokks. „Við horfum fram á að þriðjungur af tekjum bæjarins fari í fjármagns- kostnað og þessu þarf að breyta. At- vinnumálin eru ofarlega á baugi hér, m.a. vegna samdráttar í landbúnaði sem hefur áhrif á þjónustugreinar hér. Ég get nefnt sem dæmi að fram- kvæmdir við brimvarnargarð geta verið einn hluti í atvinnuuppbygg- ingu en það er margt sem hægt er að gera og eitt er að styðja við bakið á þeirri atvinnustarfsemi sem hér er fyrir.“ - Eru sjálfstæðismenn bjartsýnir á úrslit kosninganna? „Við teljum kominn tíma til breyt- inga við stjórn bæjarins. Hér hefur verið vinstri meirihluti í 12 ár og hann á stóra sök á því hvernig ástandið er hér á Blönduósi. Fólk ætti að íhuga vel hvernig ástandið er og hvort það vill breytingar, og Sjálfstæðisflokkurinn er valkostur fólksins í því sambandi,“ sagði Óskar Húnfjörð. Óskar Húnfjörð skipar efsta sætið á lista Sjálfstæðisflokksins. Stjómmál KOSNINGAR 1990 Gylfi Kristjánsson BLÖNDUÓS H Úrslitin 1986 Sjálfstæðisílokkur fékk 185 at- kvæði og tvo menn kjörna í kosning- unum 1986. Flokkurinn bauð ekki fram 1982. H-listi, vinstri menn og Óháðir, fékk 279 atkvæði og þrjá menn. Hafði tvo áður. K-listi, Al- þýðubandalag og Óháðir, fékk 143 atkvæði og tvo menn. Bauð ekki fram 1982. Þessi voru kjörin í sveitastjórn .1986: Jón Sigurðsson (D), Sigríður Frið- riksdóttir (D), Sigfríður Angantýs- dóttir (H), Hilmar Kristjánsson (H), Ásrún Ólafsdóttir (H), Guðmundur Theódórsson (K) og Kristín Mogens- en (K). H-listi vinstri manna og óháðra: 1. Vilhjálmur Pálmason múrarameistari. 2. Sigrún Zophoniasdóttir skrifstofumaður. 3. Pétur Arnar Pétursson fuUtrúi. 4. Guðmundur Ingþórsson verkstjóri. 5. Hilmar Krisfjánsson bæjarfulltrúi. 6. Zophonías Zophoníasson atvinnurekandi. 7. Ásrún Ólafsdóttir bæjarfulltrúi. 8. Kári Smárason framkvæmdasfjóri. 9. Sigríður Bjarkadóttir skrifstofumaður. D-listi Sjálfstæðisflokks: 1. Óskar Ilúnfjörð framkvæmdastjóri. 2. Páll Elíasson sjómaður. 3. Einar Flygenring fjármálastjóri. 4. Svanfríður Blöndal skrifstofumaður. 5. Hjörleifur Júlíusson framkvæmdastjóri. 6. Hermann Arason iðnnemi. 7. Sigurlaug Hermannsdóttir bankamaður. 8. Guðrún Paulsdóttir skrifstofumaður. 9. Guðmundur Guömundsson verslunarmaður. 10. Ragnheiður Þorsteinsdóttir húsmóöír. 11. Eggert ísberg framkvæmdastjóri. 12. Albert Stefánsson sjúkraliði. 13. Ólafúr Þorsteinsson vélstjóri. 14. Jón Sigurðsson ráðunautur. K-listi félagshyggjufólks: 1. Guömundur Theódórsson mjólkurfræðingur. 2. Unnur Kristjánsdóttir iðnráðgjafi. 3. Grétar Guðmundsson trésmiður. 4. Stefán Berndsen deildarstj. 5. Hörður Ríkharðsson æskulýðsfulltrúi. 6. Þórhildur Þorleifsdóttir kennari. 7. Ásgeir Blöndal, skipstjóri 8. Baldur Reynisson trésmiður. 9. Ásta Rögnvaldsdóttir bókavörður. 10. Sigríður Grímsdóttir starfsstúlka. 11. Ragnhildur Húnbogadóttir gjaldkeri. 12. Ragnar Guöjónsson nemi. 13. Vignir Einarsson kennari. 14. Kristín Mogensen kennari.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.