Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1990, Side 8
MÁNUDAGUR 14. MAÍ 1990.
8
LIT-RIT HF.
Ljósritun í litum á pappír og glærur.
Minnkun - stækkun, stærst A3.
Skipholti 29, s. 62-62-29
CCI
KMS
fteMwrch
HAR-UÐI
(Hair Mist)
Hair Mist er úðað í hárið og er
hægt að greiða hárið í 2-3 mínútur
eftir að úðað er.
Mjög hentugt fyrir tískuhárgreiðslur.
Cfs/ £a Jtptíf
UJlií* HuM
wáfcípotsmu:-#'
<•50 ML
HÁRGREIÐSLUSTOFAN
KLAPPARSTÍG
SÍMI 13010
Utlönd
Tvennar fylkiskosningar 1 Vestur-Þýskalandi:
Jafnaðarmenn
sigurvegarar
úrslit fela í sér aö kristilegir demó-
kratar hafa nú misst meirihluta í
efri deild sambandsþingsins í Bonn.
Að talningu lokinni var ljóst aö
jafnaðarmenn höföu unnið í Neöra-
Saxlandi meö alls 44,2 prósent at-
kvæða sem er aðeins 0,1 prósenti
meira en þeir hlutu í síðustu kosn-
ingum, árið 1986. Kristilegir demó-
kratar fengu 42 prósent. Þessar nið-
urstöður nú fela í sér að jafnaðar-
menn, eða sósíaldemókratar, hafa
nægan stuöning á þingi fylkisins til
að leiða samsteypustjórn og binda
þar með enda á fjórtán ára forystu
kristilegra demókrata í fylkinu. Leið-
togi Jafnaðarmanna í Neðra-Sax-
landi, Gerhard Schröder, kvaðst í
gær munu íhuga samstarf ýmist með
Græningjum, sem fengu 5,7 prósent
atkvæða, eða Frjálsum demókrötum,
sem fengu 6 prósent atkvæða.
í Nordrhein-Westafalia fóru kosn-
ingarnar svo að jafnaðarmenn fengu
fimmtíu prósent atkvæða en kristi-
legir demókratar 36,7 prósent. Þetta
eru þriðju kosningarnar sem jafnað-
armenn sigra í Nordrhein-Westfalen.
Úrslit kosninganna í Neðra-Sax-
landi fela í sér að jafnaðarmenn hafa
nú meirihluta í efri deild þingsins í
Bonn og geta í raun þannig komið í
veg samþykkt frumvarpa ríkis-
stjórnarinnar. Ekki er ljóst hvort
þeir hyggjast nýta sér það til að
hægja á sameiningarherferð Kohls.
Litið var á þessar kosningar sem
prófstein á sameiningarstefnu kansl-
arans sem og stuðning við flokk hans
og stefnumál.
Kosningarnar í þessum tveimur
fylkjum, þar sem húa fjörutiu pró-
sent allra kosningabærra Vestur-
Þjóðverja, voru fyrstu mikilvægu
kosningarnar í Vestur-Þýskalandi
síðan Berhnarmúrinn féll í nóvemb- -
er síðastliðnum. Reuter
Flokkur kristilegra demókrata í um til þinga tveggja fylkja landsins,
Vestur-Þýskalandi, flokkur Helmuts Nordrhein-Westfalen og Neðra-Saxl-
Kohl kanslara, beið ósigur í kosning- andi sem fram fóru um helgina. Þessi
Johannes Rau, leiðtogi jafnaðarmanna i Nordrhein-Westfalen, greiöir at-
kvæði i kosningunum um helgina. Simamynd Reuter
Demjanjuk áfrýjar
Síðasta áfrýjunarbeiðni Johns
Demjanjuk, meints nasista, verður
tekin fyrir í hæstarétti í ísrael í dag
á sama tíma og ísraelar eru slegnir
óhug yfir helgispjöllum þeim sem
unnin voru í kirkjugörðum gyðinga
í Frakklandi og ísrael nýlega.
Demjanjuk var dæmdur til dauða
í apríl 1988 að loknum fimmtán mán-
aða réttarhöldum. Verjandi hans
heldur því fram aö skjólstæöingur
sinn sé ekki fangavöröur sá sem gekk
undir nafninu „ívar grimmi" í út-
rýmingarbúðunum í Treblinka í
Póllandi. Demjanjuk, sem var fluttur
frá Bandaríkjunum vegna réttar-
haldanna, neitar að hafa verið í
fangabúöunum þar sem átta hundr-
uð og fimmtíu þúsund gyðingar voru
sendir í gasklefana.
Það kom á óvart í síðustu viku að
hæstiréttur skyldi hafa fallist á að
taka málið til umfjöllunar á ný vegna
fullyrðingar veijanda um að hann
hafi fundið pólska konu sem segir
að Demjanjuk sé ekki ívar grimmi.
Talsmaður lögreglunnar í Haifa í
norðurhluta ísraels sagði í gær að
gyðingur um fertugt, sem virtist vera
andlega vanheill, hefði verið hand-
tekinn eftir að hafa hegðað sér und-
arlega nálægt kirkjugörðunum í
borginni þar sem helgispjöll hafa
verið unnin undanfama daga. Krot-
að hafði veriö á tvö hundruð og
fimmtíu legsteina gyðinga og mátti
meðal annars lesa orðin: „Hussein,
Áfrýjunarbeiðni Johns Demjanjuk,
meints nasista, verður tekin fyrir í
hæstarétti i ísrael í dag. Hann var
dæmdur til dauða 1988.
Simamynd Reuter
eyðileggðu ísrael!“ og „Arabar munu
myrða gyðinga". Talsmaðurinn
sagöi að ekki væri víst að hinn hand-
tekni bæri ábyrgð á verknaðinum en
hundruð lögreglumanna rannsaka
nú málið. Samskipti gyðinga og
araba í Haifa eru sögð góð og leið-
togar bæði kristinna og múhameðs-
trúarmanna hafa heimsótt borgina
til að fordæma verknaðinn. Þúsundir
Gyðingurinn og Nóbelsverðlauna-
hafinn Elie Wiesel og Jack Lang,
menningarmálaráöherra Frakk-
lands, í kirkjugarðinum í Carpentras
í Frakklandi þar sem grafir gyðinga
voru svívirtar í síðustu viku.
Símamynd Reuter
manna þyrptust til Haifa í gær til að
láta í ljósi reiði sína og til Carpentras
í Frakklandi komu yfir tíu þúsund
manns ásamt stjórnmálaleiðtogum
hægri og vinstri manna. Það var í
Carpentras sem grafir gyðinga voru
svívirtar á miðvikudaginn í síðustu
viku.
Reuter