Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1990, Qupperneq 16
16
MÁNUDAGUR 14. MAÍ 1990.
Stjómmál
Spurt á Seyðisfirði:
Hverju spáir þú um
úrslit kosninganna
Davíð Gunnarsson: Það er erfitt að
segja til um það. Ég vona að Sjálf-
stæöisflokkur bæti við sig manni á
kostnað Framsóknarflokks.
Þorkell Helgason: Það er erfitt að spá
um það. Ég vona að Tindar verði sig-
urvegarar þessara kosninga.
Ingunn Sigurðardóttir: Það verður
eins og það er.
Guðjón Sigurðsson: Ég vil engu spá.
Guðrún Kjartansdóttir: Ég hef ekk-
ert hugsað út í það.
Jón Magnússon: Ég hef ekki spáð í
það. Ég á helst von á því að þetta
verði svipað.
Seyðisfjörður:
í skugga at-
vinnuleysis
Kosningarnar á Seyðisfirði
munu bera mikinn keim af at-
vinnuástandinu í bænum. Tugir
manna eru á atvinnuleysisskrá og
hafa verið í nokkurn tíma. At-
vinnuleysið er tilkomið vegna
gjaldþrots tveggja stærstu fyrir-
tækja bæjarins, Fiskvinnslunnar
og Norðursíldar, á síðasta ári. Svo
ótrúlegt sem það nú er þá er engin
fiskvinnsla á Seyðisfirði um þessar
mundir.
Framsóknarflokkur og Sjálfstæðis-
flokkur hafa verið í meirihluta
saman í 16 ár. Við kosningarnar
1986 voru fimm listar í framboði.
Nú eru þeir aðeins þrír. Minnihlu-
taflokkarnir hafa sameinast í félag-
inu Tindum.
Á Seyðisfirði, sem og öðrum sam-
bærilegum sveitafélögum, eru
mörg verkefni sem bíða. Heilsu-
gæslustöð, skólabygging og um-
hverfismál - svo fátt eitt sé nefnt.
-sme
Magnús Guðmundsson, T-lista:
Ætlum að ffella meirihlutann
„Framboð T-listans, lista jafnaðar-
og vinstrimanna á Seyðisfirði, má
rekja til samvinnu núverandi minni-
hlutaflokka í bæjarstjóm Seyðis-
fjarðar. Minnihlutann skipa tveir
fulltrúar frá A-lista, einn frá G-lista
og einn frá S-lista Alþýðubandalags
og óháðra. Að sjálfsögðu hefur póli-
tísk þróun í landinu og heiminum
hjálpað til. Sú von er tengd þessu
framboði að nú takist að fella sextán
ára gamlan meirihluta Framsóknar-
og Sjálfstæðisflokks," sagði Magnús
Guðmundsson sem skipar efsta sæti
á framboðslista T-listans.
„Helsta mál kosninganna er at-
vinnumál enda hátt í eitt hundrað
manns á atvinnuleysisskrá. T-listinn
vill að allir heimamenn sameinist í
uppbyggingu fiskverkunar í bænum.
Það er bæjarfélagið, fyrirtæki og ein-
staklingar. Um þetta hefur ekki náðst
full samstaða enn sem komið er.
Önnur helstu áhugamál T-lsitans
em að ganga frá nýju aðalskipulagi,
einkum með tilliti til undirbúnings
100 ára afmælis 1995. í framhaldi af
því er svo stórátak í umhverfismál-
um og fegrun bæjarins, bæði opinna
svæða, húsa, gatna og gangstíga.
Annars er að nægu að taka. Eftir er
að ganga frá skólpi út fyrir stór-
straum, klára sjúkrahúsbyggingu og
íþróttahús og skólabygging stendur
fyrir dyrum. Svo mætti lengi telja.
Að endingu skal ítrekað að megin-
markmið okkar er að fella meirihlut-
ann og hleypa þannig nýju lífi í bæj-
arkerfið."
-sme
Magnús Guðmundsson skipar efsta
sæti á T-lista.
Theódór Blöndal, D-lista:
Sameiginlegt átak í atvinnumálum
Theódór Blöndal skipar efsta sæti á
framboðslista Sjálfstæðisflokks.
„Helstu málin í þessum kosning-
um eru atvinnumálin. Bæjarbúar og
bæjarstjórn þurfa sameiginlega að
taka til hendinni og koma þeim mál-
um í það horf sem okkur ber. Nú er
enginn fiskur unninn á Seyðisfirði
og að sjálfsögðu er það ófremdar-
ástand. Marga vantar vinnu. Það er
afleiðing af gjaldþrotum hér á síðasta
ári. Að mati okkar sjálfstæðismanna
er þetta stærsta málið,“ sagði Theód-
ór Blöndal sem skipar efsta sæti á
framboðslista Sjálfstæðisflokks.
„Við erum aö setja í gang síðasta
áfanga heilsugæslustöðvar. Við
væntum þess að þaö klárist á næstu
tveimur árum.
í skólamálum er staðan sú að við
erum búin að taka í notkun einn
þriðja af nýjum grunnskóla. Það er
kappsmál að ljúka þeirri byggingu á
næstu árum. Árið 1995 verður Seyð-
isfjaröarkaupstaður 100 ára og það
er Stefnt að því að taka gamla skóla-
húsið, sem var reist 1907, undir ráð-
hús.
Alla útiíþróttaaðstöðu þarf að
byggja upp'upp á nýtt. Það er áhugi
á að gera nýjan íþróttavöli norðan-
vert í firðinum. Þar er um mikla
framkvæmd að ræða.
Samgöngumál eru alltaf mál mál-
anna hér á Seyöisfirði. Eins og allir
vita þurfum við að fara yfir Fjarðar-
heiði í hvert sinn sem viö förum úr
bænum. Það þarf að bora í gegnum
fjallið."
-sme
Jónas Hallgrímsson, B-lista:
Bærinn ber bess vitni
„Við höfum verið við stjórnvölinn
frá 1974 - ásamt sjálfstæðismönnum.
Bærinn ber þess glöggt vitni í upp-
byggingu," sagði Jónas Hallgrímsson
sem skipar efsta sæti á framboðslista
Framsóknarflokks.
„Hér á Seyðisfirði hefur borið
skugga á atvinnumálin. Frá áramót-
um hafa verið um 70 manns á at-
vinnuleysisskrá. Það er okkur hug-
tækast að koma atvinnumálunum í
fyrra horf. Það þarf að byggja upp
traust og gott fyrirtæki með þátttöku
margra og þar á meðal bæjarfélags-
ins.
Fjármál Seyðisfjarðarbæjar standa
á traustum grunni þrátt fyrir gríðar-
leg áföll á síðastliðnu hausti. Það
sýnir best hvað samstaðan er mikil
og stjórn kaupstaðarins góö að við
skyldum þola þetta gjaldþrot.
Það þarf að ljúka við sjúkrahús-
bygginguna. Halda áfram þeim fram-
kvæmdum, sem þegar eru hafnar,
við málefni aldraðra. Við munum
halda áfram að byggja íbúðir eftir
félagslega kerfmu og heimildir leyfa
hverju sinni. Þá ætlum við aö styðja
og styrkja íþróttalíf hér í bænum eins
og við höfum gert - en því miður af
lítilli getu.
Það þarf að nýta alla þá möguleika
sem felast í höfninni. En hún er ein
sú besta sem fyrirfinnst í heimin-
um,“ sagði Jónas Hallgrímsson.
-sme
Jónas Hallgrímsson skipar efsta
sæti á framboðslista Framsóknar-
flokks.
KOSNINGAR 1990
Haukur L Hauksson og Slgurjón Egilsson
SEYÐISFJÖRÐUR
Úrslitin 1986
Við kosningarnar 1986 fékk Al-
þýðuflokkur 119 atkvæði og tvo
menn. Hafði tvo áður. Framsóknar-
flokkur fékk 183 atkvæöi og þrjá
menn. Haföi þrjá áður. Sjálfstæðis-
flokkur fékk 147 atkvæði og tvo
menn. Hafði þrjá áöur. Alþýðu-
bandalag fékk 69 atkvæði og einn
mann. Haföi einn áður. Alþýðu-
bandalagsmenn og óháðir fengu 86
atkvæði og einn mann. Þeir höfðu
ekki boðið fram áður.
Þessi voru kjörin í bæjarstjóm
1986:
Af A-lista; Magnús Guðmundsson
og Hallsteinn Friðþjófsson. Af B-
lista; Jónas Hallgrímsson, Birgir
Hallvarðsson og Valgerður Pálsdótt-
ir. Af D-lista; Guðmundur Ingvi
Sverrisson og Arnbjörg Sveinsdóttir.
Af G-lista; Hermann V. Guðmunds-
son. Af S-lista; Þóra Guðmundsdótt-
ir.
Framboðslisti
Framsóknarflokks;
1. Jónas Hallgrímsson.
2. Sigurður Jónsson.
3. KristjanaBergþórsdóttir.
4. JóhannP.Hansson.
5. Bjarghildur Einarsdóttir.
6. Anna Karlsdóttir.
7. IngibjörgSvanbergsdóttir.
8. Jóhann Stefánsson.
9. PállÁgústsson.
10. Steinar Ó. Gunnarsson.
11. Snorri Jónsson.
12. IngibjörgH.Friðriksdóttir.
13. BorgþórJóhannsson.
14. Jóhanna Sigurjónsdóttir.
15. Gunnlaugur Friðjónsson.
16. Birgir Hallvarðsson.
17. Þórdís Bergsdóttir.
18. Hörður Hjartarson.
Framboðslisti
Sjálfstæðisflokks:
1. TheódórBlöndal.
2. Arnbjörg Sveinsdóttir.
3. Sigfinnur Mikaelsson.
4. DavíðÓmarGunnarsson.
5. María Ólafsdóttir.
6. SveinbjörnOrriJóhannsson.
7. Sveinn Valgeirsson.
8. ÓlafurÞórLeifsson.
9. Haraldur Sigmarsson.
10. NíelsEgillDanielsson.
11. Sigurbjörg Jónsdóttir.
12. Guðjón Harðarson.
13. Guðrún Vilborg Borgþórs-
dóttir.
14. HrafnhildurSigurðardóttir.
15. HilmarBjarnason.
16. IngunnÁstvaldsdóttir.
17. Þórbergur Þórarinsson.
18. Filippus Sigurðsson.
Framboðslisti Tinda, félags
jafnaðar- og vinstri manna:
1. Magnús Guðmundsson.
2. SigrúnÓlafsdóttir.
3. Margrét Gunnlaugsdóttir.
4. Hallsteinn Friðþjófsson.
5. PéturBöðvarsson.
6. HermannVestríGuðmunds-
son.
7. Jóhanna Gísladóttir.
8. ÞuríðurEinarsdóttir.
9. ÞorkellHelgason.
10. Jón Halldór Guðmundsson.
11. ÞóraBergnýGuðmundsdótt-
ir.
12. Egill Sölvason.
13. Stefán Smári Magnússon.
14. Hilmar Eyjólfsson.
15. RagnhildurBillaÁrnadóttir.
16. EinarJensHiImarsson.
17. IngibjörgHallgrímsdóttir.
18. Emil B. Emilsson.