Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1990, Qupperneq 28
36
MÁNUDAGUR 14. MAÍ 1990.
Jarðarfarir
Bjargey Hólmfríður Eyjólfsdóttir,
Hátúni lOb, Reykjavík, sem andaðist
.4 í Borgarspítalanum 5. maí, verður
jarðsungin frá Fríkirkjunni þriðju-
daginn 15. maí kl. 15.
Sigríður Sigurðardóttir, Álfatúni 31,
Kópavogi, verður jarðsungin frá
Kópavogskirkju miðvikudaginn 16.
maí kl. 15.
Svavar Björnsson vélstjóri, andaðist
á Borgarspítalanum mánudaginn 30.
apríl. Útfórin hefur farið fram í kyrr-
þey að ósk hins látna.
Árdís Sigurðardóttir frá Sunnuhvoli,
Bárðardal, sem andaðist 5. maí sl.,
verður jarðsungin frá Akureyrar-
kirkju þriðjudaginn 15. maí kl. 13.30.
- Justine Elizabeth Jolson, Fairfield,
Conn., Bandaríkjunum, f. 26. mars
1902, andaðist á Landakotsspítala aö
kvöldi hins 4. þessa mánaðar. Jarð-
arförin fer fram frá Kristskirkju
föstudaginn 18. maí kl. 15.
Kristján Sigmar Ingólfsson, Eini-
bergi 19, Hafnarfirði, verður jarð-
sunginn frá Víðistaðakirkju í Hafn-
arfirði þriðjudaginn 15. maí kl. 14.30.
Helgi Árnason vélstjóri, Æsufelli 6,
verður jarðsunginn frá Bústaða-
kirkju í dag, 14. maí, kl. 13.30.
Katrín Gísladóttir, Urðargötu 5, Pat-
reksfirði, sem lést 6. maí sl. verður
jarðsungin frá Patreksfjarðarkirkju
þriðjudaginn 15. maí kl. 14.
Jóhannes G. Jóhannesson Mánagötn
„ 6, Reykjavík, verður jarðsunginn íré
Fossvogskapellu í dag, 14. maí, kl.
13.30.
Sigursveinn D. Kristinsson tónskáld,
Stóragerði 23, Reykjavík, sem lést 2.
maí sl., verður jarðsunginn frá Lang-
holtskirkju í dag, 14. maí, kl. 13.30.
Minningarathöfn um Sigurlaugu
Maríu Jónsdóttur frá Ósi, Hraunbæ
152, Reykjavík, fer fram frá Árbæjar-
kirkju þriðjudaginn 15. maí kl. 10.30.
Jarðsett verður á Narfeyri kl. 17
sama dag.____________________
Andlát
Helgi Eiríksson, Fossi á Síðu, andað-
ist á heimili sínu 9. maí.
Sigríður Ása Gísladóttir, Breiðagerði
6, lést fimmtudaginn 10. maí.
Anna Friðhjörnsdóttir lést 12. maí á
Borgarspítalanum.
Tónleikar
Vortónleikar kórs Fjölbrauta-
skóla Garðabæjar
verða haldnir í Norræna húsinu, þriðju-
daginn 15. maí kl. 20.30. Á efnisskrá eru
m.a. íslenskt lög og lög frá Norðurlönd-
um. Stjórnandi kórsins er Hildigunnur
Rúnarsdóttir. Aðgangur að tónleikunum
er ókeypis og öllum heimill._
Fyrirlestrar
Fyrirlestur á vegum Stofnunar
Sigurðar Nordals
Dr. Andrgw Wawn, lektor við enskudeild
University of Leeds, flytur opinberan fyr-
irlestur í boði Stofnunar Sigurðar Nor-
dals, þriðjudaginn 15. maí kl. 17.15 í stofu
101 í Odda, hugvísindahúsi Háskóla ís-
lands. Fyrirlesturinn nefnist „The silk-
clad skald: Þorleifur Repp, Færeyinga
saga and Nineteenth-Century Britian" og
verður fluttur á ensku. Dr. Andrew
Wawn er landi til að vinna að ritgerð um
19. aldar fræðimanninn Þorleif Guð-
mundsson Repp og störf hans á Bret-
landseyjum og mun hún birtast í rit-
röðinni Studia Islandica. Áður hefur dr.
Wawn birt margar greinar um bók-
„mennta- og menningartengsl milli fs-
lands og Bretlands á síðustu öldum.
Tapað-fundið
Læða fannst í Þingholtunum
Gulbröndótt, ung læða með dökka flekki,
hvita bringu og annan framfót hvítan og
hinn svartan fannst í Þingholtunum.
Upplýsingar í síma 10539.
t
MINNINGARKORT
Námskeiö
Námskeið um kynferðis-
legt ofbeldi
Konur og böm, sem hafa orðið fyrir kyn-
ferðislegu ofbeldi, ætla að halda nám-
skeið dagana 23.-28. ágúst 1990 að Þela-
mörk, 11 km fyrir norðan Akureyri. Fjall-
að verður um kynferðislegt ofbeldi, s.s.
einkenni, afleiðingar og úrræði. Nám-
skeiðið er miðað við þarfir þeirra sem fá
þessi mál til umfjöllunar í dreifbýlinu.
Skráning fer fram á Stígamótun, Vestur-
götu 3, 101 Reykjavik, símar 626868 og
626878. Þar em einnig veittar upplýsing-
ar. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku fyrir
lok júnímánaðar.
Tilkynningar
íslendingar til Japan
Um þessar mundir er hópur nemenda frá
hótelskólanum IHTTI í Sviss á leið til
Japans til að ljúka síðasta hluta, 3 ára
náms síns í hótelstjórnun. Um er að ræða
verklegt nám sem fram fer hjá hinni
þekktu japönsku hótelkeðju Fujiya. Tveir
íslendingar, þær Sigrún Björk Jakobs-
dóttir og Kristín Petersen em í hópi þess-
ara nemenda sem fá þetta einstaka tæki-
færi, en þær stöllur útskrifúðust með
hæstu einkun skólans þann 20. apríl sl.
Hótelskólinn, IHTTI, hefur tekið mið af
þróun 'í alheimsviðskiptum og alþjóða
ferðamálum með því að bjóða nemendum
sínum upp á kennslu í japönsku og síðar
möguleika á starfsþjálfun í Japan. Það
mun því ekki líða á löngu þar til íslensk-
ur ferðamálaiðnaður fær að njóta góðs
af reynslu þeirra Sigrúnar og Kristinar
á japanskri gmnd.
Laus prestaköll
Biskup Islands hefur auglýst fimm prest-
köll laus til umsóknar og er umsóknar-
frestur um þau til 5. júní nk. Þessi presta-
köll era: Grindavikurprestakall í Kjalar-
nesprófastsdæmi, Kársnesprestakall í
Kópavogi, Setbergsprestakall í Snæfells-
og Dalaprófastsdæmi, Staðarprestakall í
Súgandafirði, ísafjarðarprófastsdæmi og
Ámesprestakall í Húnavatnsprófasts-
dæmi.
Útfararþjónustan
tekin til starfa
Tekið hefur til starfa fyrirtækið Útfarar-
þjónustan hf. sem er til húsa að GrenSás-
vegi 16, Reykjavík. Eins og nafnið bendir
til annast fyrirtækið alhliða útfararþjón-
ustu og tekist hefur gott samstarf við
Kirkjugarða Reykjavíkur á því sviði. Fyr-
irtækið hefur fest kaup á líkbifreið af
Cadillac gerð frá Bandaríkjunum og flyt-
ur inn vandaðar viðarlíkkistur frá Hol-
landi. Þjónusta fyrirtækisins verður á
svipuðu verði og sambærileg þjónusta
hjá öðmm útfararfyrirtækjiun en leitast
verður við að uppfylla séróskir ef við-
skiptavinirnir fara þess á leit. Útfarar-
stjóri og einn aðaleigandi fyrirtækisins
er Rúnar Geirmundsson sem starfað hef-
ur sl. sjö ár við útfararþjónustu Kirkju-
garða Reykjavíkur. Aörir eigendur em
Páll Axelsson og Birgir Finnbogason.
Skrifstofa Útfararþjónustunnar er opin
frá kl. 8-18 alla virka daga en auk þess
verður hægt að fá upplýsingar og sam-
band við útfararstjóra utan þess tíma í
síma fyrirtækisins, 679110.
Sprellibókin komin út
Sprellibókin er komin út á vegum Nathan
& Olsen hf. í henni má finna skemmtilega
leiki, fóndur, ráðgátur, fróðleiksmola,
litla sögu um hafragraut, gómsætar upp-
skriftir og síöast en ekki síst spennandi
verðlaunasamkeppni þar sem fyrstu
verðlaun em hvorki meira né minna en
Floridaferð fyrir tvo. Bókin er ætluð fyr-
ir börn á aldrinum 3-106 ára, eins og seg-
ir á forsíðu, og verður seld í matvöm-
verslunum á 50 krónur. Ekki er að efa
að Sprellibókin á eftir að stytta ýmsum
stundirnar í skammdeginu. Auk hf. Aug-
lýsingastofa Kristínar, sá um ritstjórn,
hönnun og setningu bókarinnar og Korp-
us hf. um prentvinnslu.
Fundir
3. fundur ITC Eikar
verður haldinn í kvöld, 14. maí, kl. 20 að
Austurströnd 3, Seltjamarnesi. Stef
fundarins er: Sjaldan fellur ephð langt frá
eikinni. Upplýsingar veita Hera, s. 19747,
og Snjólaug, s. 24474. Allir velkomnir.
ITC deildin Kvistur
heldur fund í kvöld, 14. maí, í Holiday Inn
hótelinu. Nánari-upplýsingar gefur Þóra
í síma 627718.
Merming
Um tónlistargagnrýni
Undirritaður hefur tekið aö sér að rita tónlistargagn-
rýni í DV á næstunni og finnst viðeigandi að hefja
starfið á því að lýsa í nokkrum orðum viðmiðunum
sem lagðar verða til grundvallar í skrifum þessum.
Svo mætti virðast sem höfuðinntak tónlistargagn-
rýni væri að gagnrýnandinn lýsti smekk sínum á lista-
viðburðum og skýrði lesendum frá því hvað í hans
eyrum væri fagurt og hvað ljótt. Þetta er misskilning-
ur. Persónulegur smekkur gagnrýnandans á auðvitað
hlutverk í gagnrýni en er einn sér of grunnur pollur
að dorga í. Fleira þarf að koma til.
Mikilvægt hlutverk tónlistargagnrýni er einfaldlega
að skýra frá því sem gert er eða með öðrum orðum
segja fréttir úr tónlistarlífinu. Þannig verður gagnrýn-
in mikilvæg heimild um tónhstarlífið og vitnisburður
um menningu þjóðarinnar. Hér er gagnrýnandinn í
hlutverki fréttamanns og lýtur lögmálum hans um
hlutlægni í frásögn og efnisvali.
Þá er það eölileg viðleitni í skrifum gagnrýnanda að
stuðla að eflingu tónlistarlífins. Þetta er sérstaklega
mikilvægt hjá smáþjóð eins og íslendingum sem á sjálf-
stæði sitt og framtíðarvelferð að verulegu leyti undir
því að henni takist að efla sitt eigið menningarlíf á
tímum sem eru slíkum tilburðum mjög íjandsamlegir.
Við þetta bætist að tónlistin er ung hér á landi og
mikið verk enn óunnið..Hér er gagnrýnandinn áróð-
ursmaður sem berst fyrir málstað tónhstarinnar og
íslenskrar menningar.
Fræðsla og miðlun þekkingar um tónlist er nauðsyn-
legur hður í störfum gagnrýnandans eftir því sem
hann er maður til. Slíkt innlegg er eðlilegt að miða
frekar við hinn almenna lesanda en innvígða tónlistar-
menn.
Síðast en ekki síst þarf gagnrýnandinn að leggja mat
á frammistöðu tónskálda, flytjenda og annarra þeirra
sem koma víð sögu. Hér er það listin sjálf sem kemur
til skoðunar. Tækni listafólksins og faglegar aðferðir
þess eru hér aukaatriði. Öndun söngvarans, úlnliðs-
hreyfingar fiðluleikarans, eða það hvort tónskáldið
hefur brotið reglur réttrar teoríu er ekki viðfangsefni
tónhstargagnrýni. Gagnrýnandinn er fulltrúi hlust-
andans en ekki tónhstarkennarans. Áhugamál hans
er hin listræna útkoma en ekki aðferðin sem notuð er.
Hvernig á að meta listina? Skal mælikvarðinn vera
fagurfræðilegur eða þjóðfélagslegur? Hvað með tillit
til sögunnar? Trúlega verða öll þessi sjónarmið að
komast að með einhverjum hætti. Meðal þess sem
beint liggur viö að nota eru þær forsendur sem lista-
maðurinn setur sjálfur. Sá sem kynnir sig sem heims-
frægan snilling verður metinn sem slíkur. Lag fyrir
barnakór hefur aðrar forsendur en píanókonsert.
Mikilvægast er þó að gagnrýnandinn gleymi því aldr-
ei hversu lærðar og gáfulegar sem honum kann að
virðast athugasemdir sínar að listrænt mat er í innsta
eðli smekksatriði. Að sama skapi má það vera lesend-
anum huggun, ef honum líka ekki skrif gagnrýnan-
dans, að hans eigin smekkur er jafngóður. Eða hvað?
Finnur Torfi Stefánsson
ÖMin vanrækta
í Langholtskirkju
Tónleikagestir í Langholtskirkju áttu ánægjulega
stund með íslensku hljómsveitinni á lokatónleikum
hennar sl. sunnudag. Verkefnin voru öll frá tuttug-
ustu öld og góður vitnisburður um ríkidæmi þessa
vanrækta og fjölskrúðuga tímabhs tónhstarsögunnar.
Tónleikamir hófust á verki Charles Ives „The Un-
answered Question“. Verk þetta byggist á þeirri hug-
mynd, sem Ives notar í fleiri verkum, að tefla saman
í senn tveim eða fleiri efnisþáttum, sem láta eins og
enginn viti af hinum. í The Unanswered Question em
efnisþættirnir af sláandi ólíkum toga. Hugmyndin er
áhrifarík en eftir að hún hefur verið sett fram í upp-
hafi gerist htið annað en að hún er endurtekin sem
skilur hlustandann eftir með nokkrar efasemdir um
tilganginn. Verkið er engu að síöur ljúft áheyrnar og
rekur vinsældir sínar efalaust til þess. Flutningurinn
var í hehd góður þótt á köflum gætti óöryggis í strengj-
unum. Eiríkur Örn Pálsson lék einleikshlutverk eink-
ar fallega með flauelsmjúkum trompettóni.
Næsta verk á efnisskránni „Áttskeytla“ eftir Þorkel
Sigurbjömsson reyndist mun innihaldsríkara. Verkið
byggist á litlum efnivið en hugmyndaauðugri útfærslu
og verður þannig í senn heildstætt og fjölbreytt. Það
er aðgenghegt um leið og það gefur th kynna að ekki
séu öll kurl komin til grafar viö fyrstu heym. Að-
ferðir Þorkels era sumar gamalkunnar en notaðar á
einkar persónulegan hátt. Útkoman er stíll sem er
mjög sjálfstæður jafnframt því að vera íslenskur.
Flutningur Áttskeytlu var samviksusamlegur og svo-
htið varfæmislegur eins og flytjendur væru ekki nægi-
lega kunngir sthnum.
Dhlandi spilagleði réð hins vegar ríkjum í Oktett-
Igors Stravinskys. Það er í sjálfu sér merkhegt athug-
unarefni hvað hljóðfæraleikarar fá mikið út úr því að
spha hina stöðugu áttunduparta Stravinskys, en stað-
reynd er það. Þetta verk er af mörgum tahð eitt skýr-
Tónlist
Finnur Torfi Stefánsson
asta dæmið um ný-klassísk Stravinskys. Hlutlæg tón-
list, laus við tilfinningasemi og rómantík. Díatónískur
tónstigi með sjö tónum. Greinhegur æðasláttur eins
og í taktstokki. Þessi tónlist var í beinni andstöðu og
samkeppni við tólftónatónlist Vínarskólans síðari um
miðbik aldarinnar. Seinna á ævinni samdi Stravinsky
tólftónamúsík og sýndi að snillingar eru snilhngar
hvaða stíltegund sem þeir nota.
Síðasta verkið á þessum tónleikum, „Appalachian
Spring" eftir Aaron Copland, var léttvægast og trúleg-
ast einnig frægast. Áhersla tónskáldsins í þessu verki
er lögð frekar á vinsældir en gæði. Mikið er af kunnug-
legum laglínum útsettum með þrautreyndum hætti.
Það skásta er fengið að láni, útþynnt og án kvittunar,
frá Stravinsky. Fegurðin er á yfirborðinu, en tómt
undir. Tónlist af þessu tagi hefur verið samin í mjög
miklu magni á okkar öld til notkunar í kvikmyndir.
Handbragð Coplands er að vísu betra en hins venju-
lega höfundar kvikmyndatónlistar, en innihaldið litlu
meira. Flutningur hljómsveitarinnar var öruggur og
töluvert blæbrigðaríkur á stundum enda engin ný-
mæli við að eiga hvað túlkun varðar.
Frammistaða hljómlistarmanna á þessum tónleikum
var yfirleitt góð og hjá sumum blásaranna mjög góð.
Stjómandinn, Guðmundur Óli Gunnarsson, sýndi gott
vald á öllum verkunum í þessari frumraun sinni með
íslensku hljómsveitinni og er líklegur til stórræða í
framtíðinni.
Fjölmiðlar DV
Kjosið mig, kjosið mig!
Þaö era sjálfsagt margir kj ósend
ur sem enn hafa ekki gert upp hug
sinn varðandi val á lista í komandi
borgarstjómarkosningum. Eftir
kosningafund Ríkissjónvarpsins í
gær er undirritaöur ekki viss um
að hinum óákveðnu hafi fækkað svo
nokkrunemi.
Það sló mann strax í upphafi að
flestir þeir hstar sem hafa hug á að
ná trausti kjósenda skuli ekki hafa
undirbúið sitt fólk betur en raun bar
vitni. Þarna stigu þeir frambjóðend-
ur í pontu hver á eftir öðrum, þvegn-
ir og stroknir. Það kom fyrir htið.
Áhorfendur og áheyrendur heima í
stofunum gripu ósjaldan um höfuð
sér og veinuðu hreinlega þegar
ástandið í ræðupúlitinu eða við .
borðin varð hvað neyðarlegast eöa
væmnast.
Hvernig í ósköpunum stendur á
því að listi í kosningabaráttu skuli
senda fólk á skjáinn fyrir framan
alþjóð án þess að undirbúa það al-
mennilega. Ef menn voru ekki hætt-
ir að skilja þá höfðu þeir allavega
misst áhugann þegar ræðuhöldin
dundu yfir. „Ó guð, farðuað hætta,
ekki gera okkur þetta,“ veinaði und-
irritaður og haföi mesta löngun til
að hnipra sig saman undir stofu-
borðinu þegar verst lét. Þvíhk
ósköp.
Það á að vera kunnara en frá þurfi
að segja aö framkoma, flutningur
og aht yfirbragð skiptir töluverðu
máh þegar barist er um atkvæðin.
Ekki endilega vegna þess að kjós-
andinn fær glýju í augun yfir vel-
hnýttu bindi eða lögulegum lærum
heldur vegna þess að hann htur
undan og nánast ælir þegar honum
oíbýður staglið, svo ekki sé minnst
á grandvallarmálfræöiatriði.
Haukur Lúms Hauksson