Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1990, Síða 29
MÁNUDAGUR 14. MAÍ 1990.
37
DV Lífsstfll
Leifur Guðjónsson hjá verólagseftirliti verkalýðsfélaga segir að flestar upphringingar þessa dagana séu vegna
hækkunar á húsaieigu og vöruverði. DV-mynd GVA
Verðlagseftirlit verkalýðsfélagaiina:
HÚSEiGENDAÞJÓNUSTAN:
(M) MOTOFtOLA
FARSÍMAR
Verð frá
85.657,-
Fjarskipti hf.
Fákafeni 11
sími 678740
Rækjur á 2.800
krónur kílóið
- eða þreföldu innkaupsverði
Þann 23. febrúar sl, opnaði Dags-
brún og önnur félög sérstaka skrif-
stofu í húsnæði Dagsbrúnar sem
sinna átti verðlagseftirliti meö aðstoð
almennings. Skrifstofan er nú búin
að vera opin í tæplega þijá mánuði
og því ekki úr vegi að forvitnast um
hvemig starflð hefur gengið.
Leifur Guðjónsson, starfsmaður
verðlagseftirhts verkalýðsfélaga,
sagði að starfið hefði hingað til geng-
ið þokkalega. Heldur hefur dregið úr
hringingum og nú eru þær flmm til
sex á dag, stundum fleiri.
Hækkun húsaleigu
og vöruverð
Það sem fólk gerir helst athuga-
semdir við þessa dagana er hækkun
húsaleigu um 1,8% og þó að þetta sé
ef til vill ekki há prósentuhækkun
hefur hún samt sín áhrif. Einnig
kvartar fólk yfir óeðlilegum hækk-
unum á vöruverði. Leifur sagði að
óeðlileg hækkun á vöruverði hlyti
að teljast allt umfram það sem kaup-
menn hafa ekki á valdi sínu vegna
innflutnings. Sagði hann að svo virt-
ist sem meira jafnvægi ríkti í vöru-
verði á stórmörkuðunum, en aftur á
móti hefðu sérverslanir tilhneigingu
til að hækka verðiö talsvert.
Leifur tók í þessu sambandi dæmi
um upphringingu sem hann fékk
vegna verðs á rækjupoka. Þessi
ákveðna verslun seldi pokann á 2.800
krónur kílóið, en það hefði í mesta
lagi átt að vera 1.300-1.400 krónur því
innkaupsverðið var rúmlega 900
krónur. Leifur hefur verið að reyna
að ná í kaupmann verslunarinnar en
hann hefur ekki látið svo lítið að
svara því.
„Kaupmenn taka þessu yfirleitt
mjög vel og eru samvinnuþýðir,"
sagði Leifur, „og verðið verið lagað.
Sumt eru mistök og það er þá lagað
Neytendur
all snarlega. Á heildina litið hefur
þetta starf skilað árangri."
Aðrir með hærra verð
Til stóð að verðlagseftirlitið myndi
birta lista yflr þær verslanir sem
hefðu óeðlilega hátt vöruverð, en lít-
ið hefur orðið úr því í framkvæmd.
Ástæöan mun vera sú, að sögn Leifs,
að í þau fáu skipti sem slíkt var gert
kom ef til vill í ljós að aðrar verslan-
ir voru kannski með ennþá hærra
verð. Verslanir á höfuðborgarsvæð-
inu væru einfaldlega of margar til
þess að hægt væri að hrinda slíku í
framkvæmd.
Leifur minntist á að ekki liti út fyr-
ir að lækkun vaxta hefði skilað sér
út í verðlagið og fannst honum það
undarlegt. Hann bætti líka við að svo
virtist sem ákveðnir aðilar í þjóð-
félaginu vildu ekki að þaö heppnaðist
að halda verðlaginu í skefjum.
Nefndi hann að Reykjavíkurborg
hafi verið duglég við að hækka verð
á ýmissi þjónustu, t.d. hefur garð-
leiga á kartöflugörðum hækkað um
28%, leiga á íþróttaaðstöðu um 30%
og svo mætti lengi telja.
Brauðið hækkaði
um 2 krónur
„Ég vona að kaupmenn séu að átta
sig á að þaö er ekkert sniðugt að fá
fólkið upp á mófi sér,“ sagði Leifur.
“Aðalatriðið með þessari þjónustu
er að fá fólk með og að það verði
meira meðvitað. Gleggsta dæmið um
þetta er þegar fólk er að hringja inn
verðhækkun á brauði um 2 krónur,
slíkt hefði ekki gerst áður en þessi
þjónusta kom tíl.“
Leifur var ráðin til þriggja mánaða
til verðlagseftirlitsins og er það und-
ir verkalýðsfélögunum komið hvort
því verður haldið áfram. Skrifstofan
er nú opin frá kl. 9 til hádegis og er
svarað í síma 624230.
-GHK
Athugasemd frá Ljósmyndahúsinu
Ljósmyndahúsið Dalshrauni 13,
Hafnarfirði, óskar eftir að koma eft-
irfarandi á framfæri:
í nýafstaðinni verðkönnun kom í
ijós að verðlagning á filmum og fram-
köllun var eilítið hærri hjá Ljós-
myndahúsinu en öörum stöðum sem
taldir voru upp. Viljum við taka fram
í því sambandi:
1. Viö bjóðum 5% staðgreiðsluaf-
slátt af fllmuvinnslu og öllum vörum
í versluninni. Sé það reiknaö inn í
dæmiö eru verð Ljósmyndahússins
lægri en hjá flestum öðrum. Mjög
margir notfæra sér staðgreiðsluaf-
sláttinn.
2. Magnafsláttur. Ef komiö er með
þrjár fllmur eða fleiri er gefinn veru-
legur magnafsláttur.
3. Ljósmyndahúsið veitir einnig
íþróttafélögum, góðgerðarstarfsemi,
eldri borgurum, fyrirtækjum o.íl.
10% afslátt.
Ljósmyndahúsið veitir magnafslátt ef komið er með þrjár filmur eða fleiri.
■ Ertu farinn að huga ad viðhaldi?
■ Þarftu nýjar hurðir, glugga eða innréttingar?
■ Er húsið haldið steypuskemmdum?
■ Hvað með þakið eða svaiirnar?
■ Áttu í vandræóum með flatt þak?
■ Leki?
■ Vantar þig trésmið, múrara, málara, blikksmið?
■ Við hjá húseigendaþjónustunni höfum áralanga
reynslu í viðhaldi og nýsmíði.
I Látið fagmenn vinna verkin og annast þau fyrir ykkur.
I Húseigendaþjónustan S. Sigurðsson hf., Skemmuvegi
34, 200 Kóp.
Sigurður Sigurgeirsson byggingameistari, s. 670780.
r:
ERTU ENN A
NEGLDUM?
ÍS
V0RIÐ ER K0MIÐ
VIÐERUMTIL-ENÞÚ?
Það er staðreynd að mikíl-
vægasta atriði hvers bils eru
góðir og öruggir hjólbarðar.
Það er lika staðreynd að Michelin eru góðir og
öruggir hjólbarðar.
MUNDU MICHELIN MARKAÐINN
michelin MICHELIN - MIKILVÆGT ATRIÐI m,CHel,n
HMBAMSTÖM H/F
SKEIFUNNI 5, SÍMAR 68-96-60 OG 68-75-17