Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1990, Síða 28
36
FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 1990.
Kvikmyndir
Regnboginn: Hjólabrettagengið ★★
Ekki bara brettamynd
Hjólabretti og kúnstir þær er mögulegar eru viö
ákveönar aðstæður (tómar sundlaugar eru víst vinsæl-
ar) eru einungis uppfyllingin í annars ágætri sögu.
Allir nema Brian Kelly (Slater) trúa því að víetnamsk-
ur bróðir hans hafi framið sjálfsmorð en hann reynir
að komast að hinu sanna og þar á hjólabrettið hans
eftir að koma að góðum notum.
Brettin eru ekki, ólíkt því sem mætti ætla, aðalatriði
myndarinnar og gæti það valdið áhugamönnum dálitl-
um vonbrigðum. Þetta gerir þó myndina mun aðgengi-
legri fyrir aðra því að brettaatriðin eru vel felld inn í
söguna. í þeim er engu líkara en þyngdarlögmálið sé
ekki lengur lögmál og þau eru hvert öðru mikilfeng-
legri án þess þó að draga athyglina frá söguþræðinum.
Hann er ekki ýkja frumlegur en frambærilegur þó þar
til næstu brettakúnstir koma á skerminn.
Christian Slater er upprennandi leikari og taktar
hans minna á Jack Nicholson. Hann skautar ágætlega
sjálfur en flest áhættuatriðin eru í höndum manna á
borð við Mike McGill, Mark Rogowski og Rodney
Mulien. Þeir sem dýpst eru sokknir í brettamennskuna
ættu að kannast við þá.
Titillinn „Gleaming the Cube“ þýðir nokkurs konar
hugarástand sem brettari kemst í þegar hann gefur
sig allan í flugkúnstirnar og á að vera brettasletta en
var reyndar búinn til af handritshöfundinum.
Gleaming the Cube. Bandarísk 1988-89, 105 min.
Höfundur: Michael Tolkin
Leikstjóri: Graem Clifford (Frances, Burke & Willis)
Hinn efnilegi Christian Slater er hér með forláta
bretti sem kemur honum að góðum notum i loka-
slagnum.
Leikarar: Christian Slater, Steven Bauer, Richard Herd, Le
Tuan, Min Luong, Art Chudabala, Ed Lauter, Nicole Mercurio,
Peter Kwong.
Gísli Einarsson
Laugarásbíó: Úlfurinn hún mamma 0
Mjög lengi getur vont versnað
Nafnið lofaði ekki góðu en mig óraði ekki fyrir því
hvers lags hörmungar myndu dynja yfir mig í nær
einn og hálfan tíma.
Þessi „mynd“ fjallar um húsmóður sem breytist í
varúlf og þetta á að vera gamanmynd. Látum nægja
að segja að það væri skemmtilegra að horfa á stilli-
myndina, meira fjör að detta í það með líftryggingar-
sölumanni og meira spennandi að vaka kosninganótt-
ina í Albaníu.
Myndin er misheppnuð að öllu leyti, allt frá frámuna-
lega asnalegu handritsskrípi til falskrar tónlistar með
viðkomu í máttlausri leikstjórn, afspymulélegum leik
og marflatri kvikmyndatöku.
My Mom's a Werewolf. Bandarísk 1989, allt, allf, allt of löng
(81 min.)
Handrit: Hah! þessi var góöur, Mark Pirro skrifaði „söguna".
Leikstjóri: Leggið nafnið vel á minnið og forðist hann: Mic-
hael Fischa. Leikarar: Susan Blakely (hræðileg), John Saxon
Susan Blakely i einum misheppnaðasta kvikmynda-
leik sögunnar sem mamman sem varð að varúlfi.
(skárri), Katarina Caspari (þolanleg), John Schuck (ómögu-
legur) Ruth Buzzi (pirrandi), Marcia Wallace (verri).
Gísli Einarsson
Tilkyimingar
Nýjung í ferðamanna-
þjónustu á Patreksfirði
I sumar gefst brottfluttum Patreksfirð-
ingum sem öðrum ferðamönnum kostur
á að dvelja vikutíma í senn að Aðal-
stræti 65 á Patreksfirði. í húsinu eru 2
íbúðir, 4 uppbúin rúm verða í hvorri ibúð
ásamt eldhúsáhöldum og öðrum búnaði
sem þarf til stuttrar dvalar. Margir sem
aldir eru upp fyrir vestan en eiga enga
ættingja þar lengur eiga þess nú kost að
koma vestur og dvelja þar stuttan tíma.
Þá er þetta kjörið tækifæri fyrir ferða-
menn sem vilja skoða sig um í nágrenni
Patreksfjarðar, t.d. Látrabjarg og aðra
staöi, eða skreppa til berja í haust. Með
tilkomu nýrrar ferju yfir Breiðafjörð eru
nú daglegar ferðir milli Stykkishólms og
Bijánslækjar, einnig er flogið 5 sinnum
í viku til Patreksfjarðar. Með bættum
Andlát
Ása Gunnarsdóttir Skógargerði 3,
Reykjavík, andaðist í Landspítalan-
um 31. maí.
Þormóður Benediktsson, Höfðahlíð
2, Akureyri, lést í Landspítalanum
þann 31. maí.
Jarðarfarir
Þórður Þorsteinsson, fyrrverandi
póstþjónn frá Meiritungu, verður
jarðsunginn frá Ábæjarkirkju í Holt-
um laugardaginn 2. júní kl. 13.30.
Útför Vigdísar Kristdórsdóttur frá
Sævarlandi, Þistiisfirði, fer fram í
dag, fóstudaginn 1. júní, frá Foss-
vogskapeliu kl. 13.30.
Elín Ólafsdóttir, Akurgerði 35, verð-
ur jarðsungin frá Bústaðakirkju í
dag, fóstudaginn 1. júní, kl. 13.30.
Hólmfríður Jónsdóttir frá Skagnesi,
Norðurbrún 1, verður jarðsungin frá
Fossvogskapellu í dag, 1. júni, ki. 15.
Jarðsett verður í Fossvogskirkju-
garði.
Flosi Gunnarsson skipstjóri lést 26.
maí. Hann fæddist á Hólmavík 24.
ágúst 1933, sonur hjónanna Jakobínu
Guðmundsdóttur og Gunnars Guð-
mundssonar. Fiosi stundaði lengst
af sjómennsku. Hann var tvíkvænt-
ur. Fyrri kona hans var Margrét
Helga Jóhannsdóttir og eignuðust
þau tvö böm. Síðari kona Flosa var
Aida Kjartansdóttir og eru dætur
þeirra tvær. Sonur Öldu óist einnig
upp á heimiii þeirra. Útfór Flosa
verður gerð frá Fella- og Hólakirkju
í dag kl. 15.
Tónleikar
Langholtskórinn með
tónleika á Vesturlandi
Sem kunnugt er stendur nú yfir M-hátið
á Vesturlandi. í tilefni af því heldur Lang-
holtskórmn tónleika að Hlöðum laugar-
daginn 2. júní og hefjast þeir kl. 15.
Stjómandi kórsins er Jón Stefánsson.
Tónleikamir eru á vegum Tónlistarfélags
Borgarijarðar. í Grunnskólanum í Borg-
amesi stendur yfir sýning 14 frístunda-
listamanna í Mýra- og Borgarfjarðar-
sýslu. Sýningin er opin tii 10. júni kl.
16-22 alla virka daga og kl. 14-22 um helg-
ar. Einnig stendur þar yfir sýning á
handavinnu eldri borgara og er hún opin
á sama tima. Henni lýkur 4. júní. Þá
stendur yfrr mynd- og handmenntasýn-
ing á verkum nemenda í Varmalands-
skóla í Þinghamri. Sýningin er opin kl.
10-22 virka daga og kl. 14-22 um helgar.
Tilkyimingar
Laugardagsganga Hana nú
Vikuleg laugardagsganga Hana nú í
Kópavogi verður á morgun. Lagt af stað
frá Digranesvegi 12 kl. 10. Aldrei skín
júnísólin bjartar en núna og ilmurinn af
trjám og blómum fyllir vitin. Góð byrjun
á góðri helgi er að koma með i bæjar-
röltið. Markmiðið er samvera, súrefni og
hreyfmg. Nýlagað molakaffi. Púttvöllur
Hana nú á Rútstúnier opinn öllum með-
an holur leyfa.
Félag eldri borgara
í Kópavogi
fer stutta ferð til Akraness laugardaginn
9. júní. Farið verður af stað frá Sparisjóði
Kópavogs kl. 13. Þátttaka tilkynnist fyrir
miðvikudagskvöld í símum 41564 Stefán,
41566 Anna og 41359 Sveinn.
Tvöfaldur íslandsmeistari í
hárskurði
Ómar Diðriksson hefur hafið rekstur á
hárgreiðslustofunni Eddu, Sólheimum 1,
sími 36775 en auk hans á stofunni er Ólöf
Ólafsdóttir hárgreiðslumeistari. Ómar
hóf nám á Rakarastofunni á Klapparstíg
1980 og varð tvívegis íslandsmeistari
nema í hárskurði á þeim tima, síðan hélt
hann til Noregs og tók þar eitt besta
sveinspróf sem um getur, auk þess sem
harrn hefur unnið til fjölda verðlauna í
hinum ýmsu hárkeppnum. Ómar býður
upp á alla almenna hársnyrtiþjónustu
fyrir karla, konur og börn. Stofan er opin
virka daga kl. 9-18 og laugardaga kl. 9-13.
samgöngum til Patreksfjarðar má búast dvelji þar í vikutíma. Allar nánari upp-
við að margir ferðamenn notfæri sér lýsingar eru veittar í síma 94-1275 á
þessa nýjung í ferðamannaþjónustu og kvöldin og 94-1280 á daginn.
Ný verslun á Siglufirði
Fyrir skömmu opnaði ný verslun Torgið
. .hf. að Aðalgötu 32 á Siglufirði. Eigendur
verslunarinnar eru Rafbær sf. og Jón
Sigurðsson og fjölskylda. Þessir aðilar
ráku sitt hvora verslunina við Aðalgötu
til síðustu áramóta en síðan var rekstur-
inn sameinaður á einum stað. Torgið er
með byggingarvörur, auk þess fatnað,
raftæki og sportvörur. Á myndinni eru
verslunarstjóramir Jón Sigurðsson og
Kristján Möller.
Tombola Amardóttir og Sigurlín Ellý Sigvalda-
j Nýlega héldu þessar stúlkur, þær Jó- dóttir, tombólu til styrktar Sjálfsbjörgu.
hanna Dögg Olgeirsdóttir, Anna Kristín Alls söfnuöu þær 1.109 krónum.
Fjölmiðlar
Atök 09 sápur
Stöð 2 byrjaði að sýna enn eina
sápuna í gærkvöidi, Aftur til Eden.
Virðist sápan sú ekki ætla að gefa
öðrum sápum neitt eftir. Helming-
urinn af aðalpersónur eru hinar
vænstu manneskjur, hinn helming-
urinn er vont fólk. í fyrsta þætti
voru flækiumar kynntar sem nátt-
úrulega munu snúast um peninga,
ástir og valdabaráttu þeirra góðu
og slæmu. Og að iokum er leikurinn
eins og í öðrum sápum ekki sá vand-
aðasti sem sést hefur.
Stöö 2 virðist vera að verða ein
alherjarsápuópera, auk þessar get-
um við fengiðað fylgjastmeð Dall-
as, Fálkahreiðrinu og Santa Bar-
bara sem mun nú raunar vera að
renna skeið sitt á enda. í staðinn fá
sjónvarpsáhorfendur þáttinn Ná-
grannar sem verður kannski há-
punkturinn á sápusýningum Stöðv-
arinnar. Það er svo spurningin
hvort aö landinn fer ekki að verða
mettaður af allri þessari froðu.
I Morgunblaðinu í gær birtist
einkar athygiisverö grein um
„átök“ eför Ragnar Gestsson. Þar
fer greinarhöfundur á kostum yfir
öllum þeim „átökum“ sem eru að
tröiiríða þjóöfélaginu. Enda eru svo
sem allir að gera átak í hinu og
þessujafnvel er orðið svo langt
gengið að heyri maöur að einhver
ætli að fara að gera átak þá lokar
maður eyrunum og reynir að
gleyma á stundinni þvi sem maður
heyrði. Fyrir utan það hvað þetta
orðasamband er löngu orðið illilega
misnotaö og hljómar ankanalega.
Maður býður svo spenntur yfir að
fá eltth vaö nýtt orðasamband i mál-
ið sem verður jafnofnotað, svona
svo maður geti endanlega hætt að
blusta.
-Jóhanna Margrét