Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1990, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1990, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 1990. Fréttir Kæra á hendur 45 ára gomlum manni: Sagður haf a svikið 2,5 milljónir af blindum öryrkja - lofaðiendurgreiðsluoggóðriávöxtun Rannsóknarlögreglunni hefur bor- ist kæra á hendur manni þar sem honum er gefið að sök að hafa svikið 1.300 þúsund krónur af 75 prósent öryrkja árið 1986. Ef lánið er fram- reiknað samkvæmt lánskjaravísitölu þá er upphæð þess um 2,5 milljónir í dag. Þá eiga vextir eftir að bætast við. Ef mið er tekið af venjulegum vöxtum þá er upphæðin komin vel yfir þrjár milljónir króna. Öryrkinn, sem er blindur á öðru auga og með 10 prósent sjón á hinu, ' kynntist þeim sem nú hefur verið kærður lítillega á árinu 1986. Með þeim tókst samkomulag um að ör- yrkinn lánaði hinum peningana. Sá sem sætir kærunni rak þá tískuvöru- verslun við Laugaveg í Reykjavík og var í fjárþröng. Bú hans hefur nú verið tekið til gjaldþrotaskipta. Öryrkinn fékk engar kvittanir þeg- ar hann lét peningana af hendi en fékk tvær ávísanir. Hann hefur ávís- anirnar tvær í sínum fórum, samtals að upphæð 1.300 þúsund. Engin inn- stæða var fyrir þessum ávísunum og þær hafa því ekki fært öryrkjanum greiðslu á þeim peningum sem hann lánaði. Öryrkinn fullyrðir að maðurinn hafi fuUvissað sig um að hann væri borgunarmaður fyrir láninu og eins hefði sér verið boðin góð ávöxtun sem yrði greidd síðar. Kæran hefur nýlega borist til rann- sóknarlögreglu ríkisins. -sme Eiríkur Ragnarsson, útgerðarmaður 1 Sandgerði: Þessir bátar eru hættulegir - á nýjan norskan bát sem gallar hafa komið fram í „Það segir sig sjálft að þessir bátar eru hættulegir. í apríl losnaði stýri í innsiglingunni til Sandgerðis og í maí losnaði véhn af stæði sínu í róðri. Það sér hver maður að bátar sem svo er ástatt um eru hættuleg- ir,“ sagði Eiríkur Ragnarsson, út- gerðarmaður í Sandgerði. Eiríkur keypti fyrr á þessu ári nýj- an 9 tonna norskan plastbát. Hann segist aðeins hafa getað róið á bátn- um í tvo og hálfan mánuð. Nú stefnir í að báturinn verði á þurru í aUt að fimm mánuði vegna galla sem komið hafa í ljós. í kaupsamningi segir að seljandi hafi rétt til úrbóta. Seljandinn hefur fárið fram á við mig að ég faUi frá kröfum um skaðabætur. Það geri ég aldrei. Hóflega reiknað hefur veiði- tapið, vegna galla á bátnum, verið um 5 milljónir króna.“ EirUíur segir að eftir að vél bátsins losnaði hafi komið tveir viðgerðar- menn frá söluaðila. Þeir hafi komið vélinni á sinn stað - að þeir töldu. Eiríkur segir að viðgerðin hafi ekki dugað betur en svo að ekki hafi verið hægt að róa á bátnum. Hann er nú í slipp í Njarðvík þar sem matsmenn hafa skoðað hann. „Það eru fleiri bátar sömu tegund- ar sem ekki hafa reynst í lagi. Ég keypti minn bát fullbúinn. Það eru gallar í tveimur bátum sem voru keyptir plastklárir. Annar þeirra er aUtof þunnur á stórum hluta, það vantar efni í hann. í hinn bátinn vantar bönd og dekkið situr ekki á dekkfestingunum. Það hefur verið erfitt að eiga við umboðsmennina hér og eins við framleiðanda í Nor- egi,“ sagði Eiríkur Ragnarsson. -sme Islensk kona Norðurlanda- meistari í hjólreiðum Jóhanna Jónsdóttir Lysgárd, ís- lensk kona sem búsett er í Noregi, varð Norðurlandameistari í hjólreið- um í flokki 35 ára og eldri í keppni sem haldin var í Hofors í Svíþjóð dagana 11. og 12. ágúst. Jóhanna hjólaöi tvær vegalengdir, 30 km, og var tími hennar á þeirri leið 55 mín. og 18 sek, og hafnaði hún í fyrsta sæti. Hún hjólaði einnig 60 km og var önnur í þeirri keppni á 1 klst. 52 mín. Jóhanna keppti fyrir hönd Noregs á mótinu en hún hefur margoft áöur keppt á hjólreiðamótum og ávallt verið í efstu sætunum. Hún hefur verið búsett í Noregi síðastUðin 16 ár, hún er fædd og upp- aUn á Selfossi, dóttir Guðríðar Magn- úsdóttur og Jóns Á. Hjartarsonar. -J.Mar Gamli miðbærinn: „Þessi afgreiðsla borgarráðs, að Nú drepa þeir verslun í Kvosinni skyni.“ hafa Austurstræti áfram sem algerlega," segir Jón Siguijónsson, - Hvaö gera samtökin núna? göngugötu, er rosalegt áfall fyrir stjórnarmaður í samtökunum „Þau geta ekkert gert. Þeir kaup- okkur sem höfum starfað í samtök- Gamli mlðbærinn. menn sem eru í Kvosinni eiga eftir unum Gamli miðbærinn og þrýst á - Var samtökunum lofaö fyrir aö hætta og hverfa annaö. Borgar- aö opnað verði fyrir bílaumferð um kosningar að opnað yrði fyrir bíla- yfirvöld ætla greinilega aö gera götuna. Til þess að verslun geti umferö í Austurstræti? miöbæinn að miöborg með börum, þrifist í Kvosinni verður að leyfa „Viö fengum ekki beint loforð en pöbbum, næturlifi og opinberum bílaumferö um allt Austurstrætiö. gefið var í skyn aö það væri kominn byggingum.“ Þaö þarf að hafa blóðstreymi í lík- meirihluti fyrir því aö gatna yrði -JGH amanum til aö hann geti þrifist. opnuð fyrir bílaumferð í tílrauna- Frægð Sykurmolanna verður til þess að ísland kemst víða í heimspressuna. Grein um ísland í áströlsku blaði: Miðnætursólin gerir íslendinga svona skrýtna Andfætlingar okkar, Ástrahr, virð- ast misvel að sér í íslenskum fræðum ef marka má litla grein sem birtist í dagblaði þar fyrir skömmu. Það er hljómsveitin Sykurmolarnir sem er tilefni greirfarinnar en þar er fjallað um hvernig hljómsveitin fór að því að fjármagna sína fyrstu hljómplötu meö póstkortaútgáfu í til- efni leiðtogafundar Reagans og Gor- batsjovs árið 1986. Síðan segir: „Landið, sem hljóm- sveitin er frá, er á margan hátt skrý- tið. Bjór er þar bannaður og það voru hljóðfæri einnig, allt fram á 18. öld.“ í greininni segir að fólksfjöldi hér sé 240 þúsund sem sé minna en í Geel- ong sem er lítill bær, rétt sunnan við Melbourne. Blaðið greinir einnig frá því að ein- ungis séu um 50 íslendingar atvinnu- lausir, að bóklestur sé með því mesta sem gerist í heiminum og að hljóm- plötufyrirtæki Sykurmolanna sé með jafnmörg ljóðskáld og hljóm- sveitir á mála hjá sér. Eina skýringin, sem Ástrahrnir geta fundið á allri þessari skrítnu hegðun okkar íslendinga, er að mið- riætursóhn fari svona með okkur! -BÓl Tannlæknar með tannréttingar sem sérgrein: Tannréttingar gefa milljón á mánuði - sá hæsti með 1,7 mUljón króna mánaðarlaun Tekjur tannlækna með tannrétt- ingar sem sérgrein eru ekki af verri endanum. Meðaltekjur þeirra sem skoðaðir voru eru 914 þúsund krónur á mánuði og sú efsta er með nærri 1,7 milljón krónur í tekjur á mánuði! Helmingur þeirra sem teknir voru til skoðunar höfðu um eða vel yfir millj- ónina á mánuði. Tvö þeirra eru hins vegar með hálfgert „vinnukonuút- svar“ miðað við hina en tekjur þeirra eru „aðeins" um 300.000 krónur á mánuði. Það verður að hafa í huga að svo virðist sem áætlað sé á Gísla Vil- hjálmsson sem lendir í öðru sæti á hstanum. Einnig eru tannlæknar í raun fyrirtæki frekar en einstakling- ar og hér er því ekki aðeins um launatekjur að ræða. j fyrri dálkinum eru sýndar skatt- skyldar tekjur á mánuði áriö 1989. í seinni dálkinum eru þessar sömu tekjur sýndar, framreiknaðar til verðlags í ágúst 1990. Þá er miðaö við hækkun framfærsluvísitölu sem nemur 15,86% frá meðaltali ársins 1989 til ágústmánuðar 1990. Ekki má blanda saman hugtökunum tekjur og laun og einnig verður það að vera ljóst að seinni dálkurinn sýnir fram- reiknaðar tekjur í fyrra, ekki tekjur þessara aðha í dag. -PÍ Tekjurá mán. '891 þús. kr. Áverðl. ágúst '901 þús. kr. Guðrún Ólafsdóttir 1.448 1.678 Gísli Vilhjálmsson* 1.168 1.353 Ólafur Björgúlfsson 1.044 1.209 Helgi Einarsson 841 975 Þórður Eydal Magnússon 670 777 PéturH.ÓIafsson 593 687 Ólöf Helga Sigurðardóttir Brekkan 292 338 Ragnar MagnúsTraustason 250 289 Líklega áætlað á viðkomandi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.