Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1990, Side 31
MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 1990.
43
Lífsstm
Fj ármögnunarleiga:
Leigus amningur
Margar leiðir eru færar til að koma
á fót atvinnurekstri. Hafa ófáir kosið
að gera fjármögnunarleigusamning
til að flármagna kaup á tækjum og
öðru til reksturs. Sumir hveijir hafa
undrast það, þegar fyrstu greislu á
að inna af hendi, að ekki koma fram
upplýsingar á greiðsluseðli eins og
um lán væri að ræða, þ.e. eftirstöðv-
ar eru hvergi nefndar. Fjármögnun-
arleigusamningar eru ekki með-
höndlaðir sem skuldabréf þar sem
um leigu er að ræða. Um er að ræða
leigusamning en ekki lánasamning.
Er það ástæða þess að nefndar upp-
lýsingar eru ekki uppgefnar. Hins
vegar er ekkert því til fyrirstöðu aö
fá upplýsingar um þá upphæð sem
ógreidd er.
Nær aðeins til atvinnurekstrar
Samningur um fjármögnunarleigu
nær eingöngu til atvinnustarfsemi.
Bílar hafa þó einnig verið fjármagn-
aðir á þennan máta en það er aðeins
mögulegt ef hann er ætiaður til nota
í atvinnuskyni. Tæki til atvinnu-
reksturs teljast allt frá tölvum og upp
í stórvirkar vinnuvélar.
Kostir þess að gera fjármögnunar-
leigusamning felast einkum í því að
í flestum tilfellum þarf ekki trygg-
ingu fyrir leigunni en leigumunir eru
eign leigusala. Þó er óskað eftir
tryggingu ef fyrirtæki hefur ekki
sterka fjárhagsstöðu. Tækin eru þó
megintryggingin. Að auki getur verið
hagstætt út frá skattalegu tilliti að
- ekki lánasamningur
hafa fjármagnað atvinnutæki með
kaupleigu. Er hægt að gjaldfæra
leigugreiðslur í ársuppgjöri fyrir-
tækisins. Þetta á þó ekki við um bíla.
Þriðji kosturinn er sá að tækin eru
staðgreidd og getur kaupandi því á
stundum fengið góðan staðgreiðslu-
afslátt.
Ókostir felast einkum í því að vext-
ir íjármögnunarieigu eru hærri en
almennir bankavextir og er ástæða
til að benda á að menn skoði vand-
lega leiguskilmála áður en gengið er
til samninga. Vextir, sem viðskipta-
maður greiðir, eru þó misháir. Sterk-
ari er samningsstaða hans ef það
hefur sýnt sig að hann er skilvís
greiðandi.
Fyrir afnot af leigumunum greiðir
leigutaki leigugjald. Leigutími er
venjulega 36 mánuðir og er viðmið-
unarverð leigumuna í flestum tilfell-
um kaupverð þeirra. Reiknuð er út
vaxtaprósenta sem lögð er til grund-
vallar við ákvörðun mánaðar-
greiðslna. Viðmiðunarverð leigu er
uppfært miðað við lánskjaravísitölu
hveriu sinni. Ef hluti leigugjalds er
í erlendri mynt er það gengistryggt.
Ekki eru slíkir samningar óalgengir.
Auk leigunnar greiðir leigutaki alla
skatta og opinber gjöld.
Ekki staðið í skilum
Ef ekki er staðið í skilum er reynt
að komast að samkomulagi um
greiðslur en ekki er til ákveðin þum-
alputtaregla um það hversu langur
frestur mönnum er gefinn til að
greiða skuld sína. Dráttarvextir
reiknast ef ekki er greitt á réttum
gjalddaga.
Ef ekki tekst að finna samkomu-
lagsgrundvöll og leigutaki innir ekki
af hendi tilskildar greiðslur á réttum
gjalddögum, gerist að öðru leyti sek-
ur um vanefndir, bú hans tekið til
gjaldþrotaskipta eða aðhefst eitthvaö
sem hefur áhrif á eignarétt leigusala
er leigusala heimilt að rifta samn-
ingi.
Nokkuð hefur dregið úr því að
tækjakaup séu fjármögnuð með
kaupleigu. Má ástæður meðal annars
finna í almennum samdrætti efna-
hagslífsins og minnkandi kaupgetu.
- -tlt
Politiken:
Skaðlegir geislar frá
tölvum valda áhyggjum
Umræðan um skaðsemi hættu-
legra geisla frá tölvum hefur nú haf-
ist af miklum krafti eftir að virt
bandarískt tímarit birti grein um
efnið. Samkvæmt því er tahð að
menn hafi til þessa einbeitt sér að
rannsóknum á röngum geislum, en
þar segir meðal annars að geislar
sem koma frá tölvuskjám geti aukið
hættuna á hvítblæði og krabba-
meini. Hafa stóru tölvuframleiðend-
urnir nú hafið rannsóknir til að kom-
ast til botns í máhnu, segir í danska
blaðinu Politiken.
Mynd sem birtist með greininni í bandariska tímaritinu Macworld sem kom-
ið hefur umræðu af stað um rafsegulmagnað svið umhverfis tölvur og
mögulega skaðsemi þess.
Það var bandaríska tölvublaðið
Macworld sem vakti athygli á því að
geislar sem finnast í kringum tölvu-
skjái geti verið mun skaðlegri en
áður var tahð. Rannsóknarmenn
beindu augum sínum að geislum sem
ganga undir heitinu ELF (extremely
low frequency) sem hafa hingað til
verið áhtnir meinlausir. Menn hafa
til þessa verið uppteknir að mestu
af því að skoða VLF-geisla (very low
freguency). Þeir sem staðið hafa að
rannsóknunum hafa á síðustu tíu
árum fundið aukinn vitnisburð sem
bendir til þess að ELF-geislar geti
verið skaðlegir.
ELF-geisla er ekki aðeins að fmna
í kringum tölvuskjái heldur einnig í
kringum öh rafmagnstæki. Athugan-
ir á áhrifum þeirra hafa verið gerðar
um liðlega áratugaskeið en til þessa
hafa þær aðallega beinst að öðrum
hópum og atvinnugreinum en þeim
sem starfa við tölvur. Rafvirkjar hafa
verið meðal þeirra hópa sem hafa
fengið hvað mesta athygli í þessu
sambandi.
Rannsóknir sem framkvæmdar
hafa verið á síðast hðnum tíu árum
hafa bent til þess að langvarandi
snerting við rafsegulmagnað svið
geti aukið hættuna á hvítblæði.
Rannsókn, sem gerð var árið 1979 í
Bandaríkjunum, leiddi í ljós að börn-
um, sem bjuggu mjög nálægt há-
spennustöðvum, væri mun hættara
við að fá hvítblæði en öðrum börn-
um.
Árið 1988 voru niðurstöður athug-
ana, sem gerðar voru í Texas, túlkað-
ar á þá leið að hættan á krabbameini
væri 13 sinnum meiri hjá rafvirkjum,
og þeim sem störfuðu við skyldar
atvinnugreinar en öðrum. Stöðlum,
sem notaðir voru í rannsókninni,
svipar til þeirra sem nefndir voru í
grein tímaritsins Macworld.
Ekki hafa fengist sönnur fyrir því
að ELF-geislar geti verið skaðlegir
fóstri í móðurkviði. Tilraunir, sem
bandarískir og sænskir vísindamenn
hafa gert á dýrum, benda þó til þess
að geislarnir geti haft áhrif ef þá er
að finna í miklu magni í umhverfmu.
Fram th þessa hefur umræðan um
rafsegulmagnað svið í kringum raf-
magnstæki, og þá sérstaklega í kring-
f um tölvur, hlotið takmarkaðan
hljómgrunn. Nú virðist orðin breyt-
ing þar á og hafa stór u tölvuframleið-
endurnir, svo sem IBM og Apple, lýst
sig reiðubúna til að taka á máhnu.
Fyrirséð er að það getur tekið langan
tíma að finna hver áhrifin eru nám-
kvæmlega og hversu mikh þau eru.
-vtlt
Ef penslar eru hreinsaðir samkvæmt kúnstarinnar reglum ætti að vera
* hægt að nota þá oftar en einu sinni. DV-mynd JAK
Málningarvinna:
Vel hreinsaða
pensla er
hægtað
nota aftur
Það rekast eflaust margir á það
að erfitt reynist að nota pensla eft-
ir að búið er að nota þá í eitt skipti
og þeir hafa legið ónotaðir í ein-
hvern tíma. Þá er ekkert annaö að
gera en að fleygja þeim og kaupa
sér nýja, eöa hvað?
Þær upplýsingar fengust hjá fag-
mönnum að grundvallaratriði væri
Neytendur
að hreinsa penslana vel og væri þá
hægt að nota þá aftur. Yfirleitt eru
notuð vatnsþynnanleg efni og næg-
ir þá að hreinsa penslana upp úr
volgu sápuvatni.
Olíumálning krefst þess að pensl-
ar séu hreinsaðir með terpentínu.
Pensla með olíumálningu er hægt
að geyma í vatni í nokkra daga og
haldast þeir þá mjúkir. Þá verður
þó að nota reglulega th að þeir
harðni ekki.
Ef notuð eru sterkari efni, th að
mynda epoxy, á að nota þynni sem
passar fyrir hvert efni. Einnota
áhöld henta þó yfirleitt betur því
það svarar varla kostnaði að
hreinsa þau eftir notkun. Ef farið
er út í að nota sterk leysiefni th að
hreinsa áhöld ber þó að varast að
nota plastílát því þau leysast upp.
-tlt