Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1990, Page 26
Tímarltfyriralla
Til ísafjarðar
Dýrafjörður
Ytri-
^ Kjaransstaðir
Til Hrafnseyrar
MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 1990.
Fréttir
Jóhann Bjarnason með fjórar gæsir.
Gæsaveiðitíminn
hefst 20. ágúst
- margir skotveiðimeim komnir í startstöðu
„Auðvitað bíður maður spenntur
eftir að gæsaveiðitíminn byrji og það
verður farið á Vesturlandið að skjóta
gæsir fjótlega á veiöitímanum. Sjálf-
ur fer ég ekki fyrr en um miðjan sept-
ember en ég fylgist vel með öðrum
veiðimönnum sem fara strax af stað.
Skotveiðimenn eru famir að ræða
málin löngu fyrir veiðitímann og spá
í hlutina, það er litið í kringum sig
þegar farið er um landið,“ sagði
Sverrir Scheving Thorsteinsson,
skotveiðimaður og jarðfræðingur,
fyrrverandi formaður Skotveiðifé-
lags íslands, í samtali við DV.
Gæsaveiðitíminn hefst 20. ágúst og
eru skotveiðimenn farnir að bíða
með óþreyju eftir upphafmu. „Það
eru ljótir hlutir sem gerast fyrir
veiðitímann á hverju ári. Þarna eiga
í hlut veiðimenn i skjóli landeiganda.
Þetta er svipað og að veiða niður-
göngulax. Þeir sem kaupa fugl við
bestu skilyrði fá hann alls ekki góðan
löngu fyrir veiðitímann."
- Er ekki mikil fjölgun í skotveið-
inni, Sverrir?
„Jú, það bætast viö margir fyrir
hverja gæsabyrjun og þetta sjáum
við í okkar félagsskap, Skotveiðifé-
lagi íslands, þar sem nýir félagsmenn
bætast við á hverju ári. Nokkur
hundruð manns útskrifast af skot-
vopnanámskeiði lögreglunar ár
hvert.“
- Hvert fara menn til að skjóta gæsir?
„Það er varla til sá blettur sem
ekki er farið á til veiða, margir fara
upp til heiða og skjóta heiðargæsir
en ílestircsækja grágæs niður á lág-
lendi. Þeir liggja þá í skurðum og
bíða eftir bráðinni. Ungar sýnast
færri núna en verið hefur og kenna
bændur um búratófunni sem liflr
góðu lífi á gæsareggjum og ungum á
mörgum stöðum víða um land,“
sagði Sverrir ennfremur.
-G.Bender
Dýrafjarðarbrúin í
gagnið haustið 1991
- eða talsvert fyrr en reiknað var með
Reynir Traustason, DV, Flateyri:
Framkvæmdir við Dýrafjarðarbrú
ganga samkvæmt áætlun. í sumar
hefur verið unnið aö brúarsmíðinni
og er áformað að ljúka henni í sept-
ember. Verið er að fylla að brúnni
og er búið að setja 150 þúsund rúm-
metra af möl í uppfyllinguna. Þá eru
eftir um 50 þúsund rúmmetrar og
sem reiknað er með að ljúka fyrir 1.
september að sögn Steins Sveinsson-
ar, tæknifræðings hjá Vegagerð rík-
isins á ísafirði.
Steinn sagði að síðan yröi uppfyll-
ingin látin standa í vetur og hún svo
kláruð næsta sumar. Samkvæmt
áætlun Vegagerðarinnar átti að taka
brúna í notkun 1992 en miklar líkur
eru til þess að verkinu ljúki fyrr eða
í lok nóvember á næsta ári.
Verktakar við fyllinguna eru Suð-
urverk og Klæðning h/f og kostar
þeirra verkhluti tæpar 140 milljónir
króna. Mikil samgöngubót verður að
brúnni þar sem vegurinn fyrir Dýra-
flörð verður þá opinn allt árið en við
núverandi aðstæður er nánast við-
burður ef vegurinn er opinn að vetr-
arlagi. Þá styttist leiöin fyrir fjörðinn
um fimmtán kílómetra.
Smáauglýsingar - Sími 27022 Þverholti. 11
Speglar, lampar og skrautmunir.
TM-húsgögn, Síðumúla 30, s. 686822.
Opið allar helgar.
(fiómeó
mc
kjúlicu
Konur, karlar og hjónafólk. Við leggjum
áherslu á yndislegra og fjölbreyttara
kynlíf, höfum geysilegt úrval af hjálp-
artækjum ástarlífsins f. dömur og
herra. Einnig úrval af æðislegum nær-
fatnaði á frábæru verði á dömur og
herra. Verið velkomin, sjón er sögu
ríkari, ath. póstkr. dulneíhd. Opið
10-18 virka daga og 10-14 laugard.
Erum á Grundarstíg 2 (gengið inn frá
Spítalastíg), sími 14448.
Sumarbústaðir
Tröppur yfir girðingar. Vandaðar, fúa-
varðar, einfaldar í samsetningu. Uppl.
í síma 91-40379 á kv. Geymið augl.
Vinnuvélar
Bílar til sölu
Dráttarbeisli - Kerrur
Dráttarbeisli, kerrur. Framleiðum allar
gerðir af kerrum og vögnum. Original
OÍ.S.Ó.) staðall - dráttarbeisli á allar
teg. bíla. Áratugareynsla. Allir hlutir
í kerrur og vagna. Hásingar 500 kg -
20 tonn, með eða án bremsa. Ódýrar
hestakerrur og sturtuvagnar á lager.
Veljum íslenskt. Víkurvagnar, Dal-
brekku, símar 91-43911, 45270.
• Gröfuþjónusta.
Bragi Bragason, sími 651571, bílasími
985-31427. órafa með opnanlegri fram-
skóflu og skotbómu. Vinn einnig á
kvöldin og um helgar. Verð 2000 kr.
á tímann (alltaf sama verð, virka daga,
á kvöldin og um helgar).
Volvo 1023, árg. ’80, til sölu, ekinn
rúml. 100 þús. km, selst palí- og krana-
laus. Uppl. í símum 97-71433 og 985-
22572.
M. Benz 410D ’89, ekinn 28 þús. km,
hvítur, háþekja og háar hurðir, 5 gíra,
vökvastýri, sem nýr. Skipti möguleg á
sendibíl á verðbilinu 1300-1400 þús.,
með gluggum. Tii sýnis og sölu á Bíla-
sölu Ragnars Bjamasonar (s. 673434),
Eldshöfða 18.
Chevrolet Monza ’76 til sölu. Meiri-
háttar sprækur sportbíll, 327 vél, upp-
hækkaður að aftan, extra lágt drif
o.fl. Einnig er til sölu Peugeot 309 GR
’87, fallegur fjölskyldubíll. Uppl. í sím-
um 688207 og 678393.
Chevrolet pickup, árg '79, 4x4. Skoðað-
ur og jeppaskoðaður. Mikið endurnýj-
aður. Til greina koma skipti á ódýr-
ari. Uppl. í síma 91-66611.
Antik bill. Chevrolet Belair, árg ’54.
Góður bíll, þarfnast lítillar aðhlynn-
ingar. Vél 307, sjálfskiptur, krómfelg-
ur. Verð tilboð, skipti. Einnig Scout
’74, verð 150 þús. Uppl. í síma 91-79642
eftir kl. 19.
Til sölu Oldsmobile Delta Royal 88, árg.
’87, vél 3,8 bensín, einn með öllu, verð
1.800 þús. Óska eftir sjálfskiptum, góð-
um, lítið upphækkuðum jeppa í skipt-
um. Uppl. í síma 92-14147.
Audi 200 cc ’85 til sölu vegna brott-
flutnings, leður, turbo, sóllúga, raf-
magn í öllu. Sérlega glæsilegur bíll,
verð 970 þús. Uppl. í síma 91-37937.
Pontiac Fiero, árg ’84, Vel með farinn.
Keyrður aðeins 35 þús. mílur. Verð
400.000 staðgreitt eða 650.000. Ath
skipti. Uppl. í síma 91-73474.
BMW 323i Cabriolet (með blæju), árg.
’84 til sölu. Ekinn 99 þús. km. Úppl. í
símum 54940 og 656140 eftir kl. 19.
Ymislegt
- QR0HH-
Aldrei aftur í megrun.
Kynningarfyrirlestur á veitingastaðn-
um „Á næstu grösum”, Laugavegi 20,
mánudaginn 20. ágúst kl. 21. Aðgang-
ur ókeypis og öllum opinn!
Námskeið verður síðan haldið kvöldin
28.-30. ágúst og laugard. 1. sept.
Skráning fer fram á fyrirlestrinum.
Tekið er á móti beiðnum um námskeið
á landsbyggðinni í síma 91-625717 og
91-13829 (Axel).
Toyota Tercel, árg. '85, til sölu, blár á
litinn, nýyfirfarinn, góð sumar- og
vetrardekk. Uppl. í síma 10772 e.kl. 18.
Yamaha mótorkrosskeppnin fer fram í
Leirdal á laugardag (18/8) kl. 14. Leir-
dalur er sunnan við Kópavog, á milli
Seljahverfis og Garðabæjar. Keppend-
ur, mætið á félagsfund til skráningar
í félagsheimili akstursíþróttaklúbb-
anna að Bíldshöfða 14 á fimmtudag
16/8 kl. 21. Upplýsingar í s. 20128.
Vélhj ólaíþróttak lúbburinn.