Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1990, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1990, Síða 2
2 FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 1990. Fréttir___________________________ KÍ gengur til þjóðarsáttar: Samningsstaða okkar var vonlaus - segir Svanhildur Kaaber, formaður KÍ „Menn geta nú rétt ímyndað sér hvort það sé ekki erfitt að kyngja þessu eftir það sem á undan er geng- ið. Hins vegar mat fulltrúaráðið þetta svo að það gæti hagsmuna félags- manna í Kennarasambandi íslands best með þessu. Það eru okkar skyld- ur en það hefur ekki einum einasta manni þótt ljúft að gera það,“ sagði Svanhildur Kaaber, formaður KÍ. Fulltrúaráð Kennarasambands ís- lands veitti kjararáði umboð í gær til að ganga frá nýjum kjarasamn- ingi. Sá samningur verður byggður á þjóöarsáttinni svokölluðu og felast í samningnum sömu áfangahækkanir, verðlagsviðmiðanir, samningstími og orlofsuppbót og þar voru. Svan- hildur sagðist reyndar ekki vilja nota orðið þjóðarsátt um þann samning. „Því miður er það nú þannig að þessi ríkisstjórn hefur sýnt launa- fólki í landinu ótrúlegan yfirgang með þessum bráðabirgðalögum og ekki síður því launafólki sem ekki fellur undir lögin. Samningsstaða okkar er nefnilega næsta vonlaus og við sáum ekki möguleika til að brjót- ast undan þessu ægivaldi," sagði Svanhildur en umræður fulltrúa- ráðsins um samningsumboðið stóðu í sex tíma í gær. í dag hittir kjara- nefnd KÍ samninganefnd ríkisins vegna viöræðna um kjarasamning- inn sem kennarar munu greinilega ekki skrifa undir með glöðu geöi. -SMJ Lífeyiissjóðanefnd: íslandsmet í nefndarskipun Fjármálaráðherra hefur nú skipað milliþinganefnd um lífeyr- ismál. í nefndinni sitja hvorki fleiri né færri en 25 fulltrúar og samkvæmt heimildum DV mun þaö vera nálægt íslandsmeti. 22 eru tilnefndir af sjö stjómmála- flokkum og tíu félagasamtökum en þrjá fulltrúa skipar ráðherra sjálfur og þar á meðal formann nefndarinnar, Má Guðmundsson hagfræöing, efnahagsráðgjafa fjármálaráðherra. Þessi nefnd er enn stærri en síðasta lifeyrissjóðsnefnd en í henni vom 17 menn. Sú nefnd starfaði i 11 ár, frá 197& 1987, og skilaði frá sér frumvarpsdrögum sem Ólafur Ragnar lagði síðan fram á síðasta þingi í formi frum- varps. f greinargerð irieð því var sagt að ekki væri gert ráð fyrir að afgreiða máliö heldur yrði því vísað til milliþinganefndar. -SMJ Einar Björn skipstjóri við vængtankinn á Höfn. DV-mynd Ragnar Fékk f lugvélatank í trollið Byggingarverkfræðingar: Sultarlaun Það kemur nokkuð á óvart hve litl- ar tekjur þeir byggingarfræðingar, sem skoðaðir vom, höfðu mánaðar- lega samkvæmt skattframtali. Ragn- ar Halldórsson var þó með 740.000 í tekjur mánaðarlega og áætlun á Gunnar Inga Ragnarsson gerir ráð fyrir að hann hafi haft tæplega hálfa milljón í tekjur. Það sem vekur hins vegar mesta athygli að helmingur þeirra aðila sem teknir voru til at- hugunar var aðeins með á annað hundrað þúsunda í tekjur. í fyrri dálkinum eru sýndar skatt- skyldar tekjur á mánuði árið 1989. í seinni dálkinum eru þessar sömu tekjur sýndar framreiknaðar til verðlags í ágúst 1990. Þá er miðað við hækkun framfærsluvísitölu sem nemur 1'5,86% frá meðaltali ársins 1989 til ágústmánaðar 1990. Ekki má blanda saman hugtökunum tekjur og laun og einnig verður það að vera ljóst aö seinni dálkurinn sýnir fram- reiknaðar tekjur í fyrra, ekki tekjur þessaraaðilaídag. -pj Tekjurá mán.'89í þús. kr. Áverðl. ágúst '90 í þús. kr. Ragnar Halldórsson 639 741 Gunnarlngi Ragnarsson* 417 483 Ragnar G. Ingimarsson 314 364 Gunnar H. Pálsson 303 351 Helgi G. Samúelsson 174 202 Þráinn Karlsson 168 194 Gunnar Rósinkranz.. 144 167 Einar B. Pálsson 140 162 Guðmundur Óskarsson 113 131 "Virðist áætlað á viðkomandi Rafgeymamóttakan hjá íslenska stálfélaginu: Júlía Imsland, DV, Hö&u Hvanney SF fékk óvenjulegan afla í síðustu humarveiðiferðinni en það var rúmlega sex metra langur vængtankur af flugvél. Einar Bjöm Einarsson, skipstjóri á Hvanney, sagði að þeir hefðu veriö að veiðum vestur í Meðallandsbug, austan við Skaftárdýpið, og hefðu ekki orðið varir við neitt óvenjulegt meðan tog- að var og því ekki vitaö hvar tankur- inn kom í trollið. Varðskipi var tilkynnt um fundinn en þar var ekki áhugi á gripnum svo ekki er enn vitað hvaðan hann er tilkominn eða hvað um hann verður. Verðlagsstofnun: Hert eftirlit með verðlagi - hefur hækkað um 3,7% frá því þjóðarsáttin var gerð Til að ná markmiðum ríkissljóm- arinnar og samningsaöila um hjöðn- un verðbólgu hefur verið farið fram á þaö við verðlagsyfirvöld að þau veiti strangt aðhald í verðlagsmál- um. Hefur Verðlagsstofnun því skerpt áherslur sínar við fram- kvæmd og fyrirkomulag eftirhts. Al- mennt verðlag hefur hækkað um 3,7% frá því að kjarasamningar vom gerðir en á sama tíma árið 1989 hækkaði þaö um 12%. Að sögn Georgs Ólafssonar verð- lagsstjóra hefur viðskiptaráðherra óskað eftir strangara verðlagseftir- liti. Tilkynningaskylda fyrirtækja um hækkanir veröa hertar og lögð verður meiri áhersla á eftirUt með verðmerkingum á vömm og þjón- ustu og að auki verða verðkannanir áfram mikilvægur liður. Georg sagði að hugarfarsbreyting gagnvart verðbreytingum hefði greinilega átt sér stað meöal neyt- enda og stjórnenda fyrirtækja sem stuðlað hefði að stöðugleika verð- lags. Hugsunin um sjálfvirkar hækk- anir væm á undanhaldi. Til marks um það sagði hann að sumum fyrir- tækjum hefði tekist að halda óbreyttu verði nær allt árið en aukið aðhald neytenda og hagstæð skilyrði í kjölfar hjaðnandi verðbólgu heíði gert þeim þaö kleift. Dæmi um hið gagnstæða væri þó einnig til og yrði krafist viðhlítandi skýringa á verö- lagshækkunum og færu málin fyrir Verðlagsráð ef rökstuðningur teldist ekki nægjanlegur. Stofnunin gerði könnun á verð- breytingum í matvömverslunum og sýna helstu niðurstöður að meðal- talshækkun á vörum sem könnunin náði til á tímabilinu apríl til júlí, var 2,8%. Vakti athygli að 56% vömteg- undanna hafði ýmist óbreytt verð eða höfðu lækkað. Sem dæmi um hvar meðaltalshækkun var mest má nefna verslanimar Plúsmarkaöinn Efstalandi og Verslunina Laugalæk. Meðalverö reyndist lægst í verslun- um Bónus en þar var vömúrval einn- ig af skornum skammti. Fjarðarkaup í Hafnarfiröi reyndist vera með lægsta meðalverð af stórmörkuðun- um. Meðalverðhækkun varö mest í stærri hverfaverslunum, eða 3,1%. -tlt Vöktuð allan sólarhringinn - segir Páll Halldórsson framkvæmdastjóri „Við höfum reynt að takmarka móttöku rafgeyma þangað til við er- um búnir að koma okkur upp full- nægjandi aðstöðu en alls höfum við einungis tekið á móti um það bil 400 rafgeymum,“ segir Páll Halldórsson, framkvæmdastjóri íslenska stálfé- lagsins. „Hingað til höfum við tekið geym- ana og raðað þeim 1 fiskiker úr stáli. í rafgeymunum er hins vegar brenni- steinssýra sem vinnur á stálinu þannig að núna erum við að taka í notkun plastker sem sýran vinnrn- ekki á. Viö tökum alla rafgeymana upp úr ruslagámunum og handröö- nm þeim í körin tiTað þeir verði ekki fyrir hnjaski og brotni þannig að sýran geti lekið út. Að auki erum við með vakt allan sólarhringinn á svæð- inu hjá okkur til að fólk fari sér ekki að voða með snertingu við þessi stór- hættulegu efni eða fái yfir sig bílhræ sem hér staflast upp,“ segir Páll. Að sögn Páls stendur íslenska stál- félagið í viðræðum við Eimskip um útflutninga á geymunum til endur- vinnslu. „Við erum að reyna að finna viðunandi lausnir á flutningsvanda- málunum. Líklegast verður niður- staðan sú að rafgeymunum verður fyrst staflað í sérstök plastker með loki áður en þeim verður stungið í gáma og komið fyrir í skipunum. Það verður að standa vel að þessum mál- um. Rafgeymamir eru mikið vanda- mál, sérstaklega ef þeir brotna og sýran lekur út.“ Ásmundur Reykdal, stöðvarstjóri hjá Sorpeyðingu höfuðborgarsvæð- isins, segir að til standi að Efnamót- taka höfuðborgarsvæðisins, sem nú er við Dalveg 7 í Kópavogi, komi sér upp aðstöðu til að taka á móti raf- geymum. Áætlað er að Efnamóttak- an flytji í sérstakt hús viö hliö vænt- anlegrar sorpböggunarstöðvar í Gufunesi. Þar verður komið upp full- kominni aðstöðu til að taka á móti öllum umhverfismengandi úrgangi, þar með talið rafgeymum. -BÓl

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.