Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1990, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1990, Page 4
4 FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 1990. Fréttir Ofurhuginn Kristinn Einarsson ekki af baki dottinn: „Reyni aftur í næstu viku ef vel viðrar“ Sigurður Sverrissan, DV, Akranesi; „Ég er staöráðinn í því að reyna aft- ur í næstu viku ef vel viðrar. Núna er Reykjavíkurmaraþonið næst á dagskrá hjá mér því ég ætla að hlaupa hálfmaraþon. Ef ekki viðrar vel í næstu viku verð ég sennilega að sleppa sundinu í ár því ég er bú- inn að einsetja mér að hjóla hring- veginn og ætla að leggja upp á fimmtudag í næstu viku. Maður get- ur þá alltaf fengið sér sundsprett í Jökullóni á Breiðamerkursandi ef ekki vfll betur,“ sagði ofurhuginn frá Akranesi, Kristinn Einarsson, þegar DV ræddi við hann eftir að hann varð að hætta við sund sitt yfir Hval- fjörð í fyrradag vegna erfiðra skil- yrða. Kristinn var stálsleginn og ekki hið minnsta þrekaður eftir 10 km hlaup og hálfs annars tíma sund í miklum straumi og úfnum sjó. Úthald hans og líkamsstyrkur er með ólíkindum enda æfir hann stíft árið um kring. „Ég synti yfir Hvalfjörð árið 1980 og var þá rúman klukkutíma á leið- inni. Skilyrði þá voru betri, logn en sjórinn að vísu kaldari en núna. Hann var einar 12 gráður þegar ég stakk mér á miðvikudag. Ég er hins vegar miklu betur á mig kominn nú en þá, - bæði með meira úthald og þoli kuldann betur en áður.“ Þess má geta að Kristinn synti ósmurður á miðvikudag, aðeins í sundskýlu og með sundhettu á höföi. Kristinn sagðist ætla að láta það ráðast af því hvernig hann væri upp- lagöur eftir hálfmaraþonið hvort hann hlypi 10 km eins og á miðviku- dag áöur en hann styngi sér til sunds. Hugsanlega myndi hann aðeins synda yfir fjörðinn og hjóla síðan til Reykjavíkur. Það yrði þó að koma betur í ljós. t Kópasel starfar áfram: Ekkert ákveðið hverjir taka við rekstrinum - segir Sigurður Geirdal bæjarstjóri „Það hefur ekki verið gerður neinn samningur við Waldorf-hópinn. Hann lagði hins vegar fram ósk um að fá húsnæði til að reka leikskóla og við höfum lýst okkur reiðubúna til að hlusta á þá og vita hvað það er sem þeir bjóöa upp á. Málið er nú ekki komið lengra en þetta,“ segir Sigurður Geirdal, bæjarstjóri í Kópa- vogi, um mótmæh foreldra við breyttu rekstrarfyrirkomulagi leik- skólans í Kópaseli. Leikskólinn, sem er í Lækjarbotn- um, hefur undanfarin ár, líkt og Marbakki í Kópavogi, verið rekinn samkvæmt ítölsku kerfi sem kallast Reggio en þar er lögö mikil áhersla á listir og tjáningu. Foreldrar hafa verið mjög ánægðir með þetta fyrir- komulag og vilja engar breytingar þar á. „Leikskólinn er rekinn með miklu tapi. Á síðasta ári nam tapið um 10 milljónum króna sem gerir um 'A milljón á bam. Það sér það hver maður að svona getur það ekki hald- ið áfram. Leikskólinn var aldrei full- nýttur. Þama vom um fimm fóstmr en aðeins 20 böm. Það er hins vegar ekki rétt hjá foreldrunum aö vannýt- ingin sé vegna þess að bæjaryfirvöld hafi ekki kynnt .leikskólann nægi- lega. Hann hefur verið auglýstur og kynningarbæklingur fór í hvert hús í Kópavoginum. Það hefur verið gert allt til að rétta reksturinn við. Það á ekki að leggja þennan leik- skóla niður heldur einungis að fela öðmm reksturinn. Það getur því vel komið til greina að foreldramir taki við rekstrinum, vilji þeir það. Það kemur mér á óvart að þetta skuli vera blásið svona upp. Foreldramir hafa ekki komið og rætt við okkur í rólegheitum. Þeir virðast fyrirfram gera því skóna að við viljum ekkert við þá ræða sem er algjör misskiln- ingur,“ segir Sigurður. Að sögn Sigurðar hefur fóstrunum, sem unnu á Kópaseli, verið boðið starf á öðrum leikskólum bæjarins og einnig em nóg leikskólapláss fyrir öll bömin sem þar voru. Þessi börn gætu jafnvel komist á leikskólann Marbakka sem er rekinn með sama sniði og Kópasel. „Það vom alveg sömu lætin og for- dómarnir og þegar byijað var með Reggio-stefnuna á Marbakka. Þá var þetta sama fólk mikið á móti öllum breytingum. Nú kemur ný hugmynd og þá endurtekur sagan sig. Wald- orf-hópurinn boöar nokkurs konar afturhvarf til náttúrunnar. Þessi stefna er til um allan heim og líkar vel. Mér finnst gott að það séu ein- hverjir kostir í boði og mér finnst að það eigi að gefa svona hugmyndum tækifæri en ekki að vera með fyrir- fram fordóma," sagði Sigurður. Fegurstu garöar HafnarQaröar: Garðurinn verk f rúarinnar - segir Eyjólfur Einarsson sem nú fær verðlaun ööru sinni Eyjólfur Einarsson í garðinum sinum að Þrastahrauni 6 en hann fékk viður- kenningu frá Fegrunarnefnd Hafnarfjarðar. DV-mynd Brynjar Gauti „Það er mikil vinna að halda þessu við. Það má segja að við gemm eitt- hvað í garðinum á hverjum degi," segir Eyjólfur Einarsson sem ásamt konu sinni, Ástu Lárusdóttur, fékk viðurkenningu frá Fegmnarnefnd Hafnarfjarðar fyrir fallegan og snyrtilegan garð í áraraðir. Þetta er í annað sinn sem þessi garður hlýtur viðurkenningu en hann var fyrst verðlaunaður árið 1976. Að sögn Eyjólfs em 25 ár síðan þau fluttu í Þrastahraunið og byrj- uðu að byggja garðinn upp. „Frúin skipulagði og hannaði garð- inn þannig að hann er að mestu hennar verk. Húsið er byggt í hraun- inu og því er töluvert af klettum sem við gróðursettum í. Viö notum garð- inn mikið. Þetta er friðsæl, lokuð gata svo að það er auðvelt að slappa af í garðinum,“.segir Eyjólfur. Fegrunamefnd Hafnaríjarðar veit- ir árlega viðurkenningar fyrir fallega garða, snyrtimennsku og fegrun á vegum bæjarins. Valdir em nokkrir mismunandi garðar, gamlir og nýir, víðs vegar um bæinn. Aðrir garðar, sem hlutu viður- kenningu í ár, em Brekkuhvammur 9, fyrir fallegan garö með fjölbreytt- um gróðri, Brattakinn 31, fyrir sér- stakan garð í gömlu hverfi, Glitvang- ur 3, fyrir fallegan og hlýlegan garð, Krosseyrarvegur 7, fyrir fallegan garð, unninn við erfið ræktunarskil- yrði, Skjólvangur 6, fyrir fallegan og gróskumikinn garð þar sem hraunið fær að njóta sín, Fagrihvammur 11, fyrir fallegan garð sem fellur vel að húsi, Blómvangur 18, fyrir snyrti- mennsku, Bæjarhraun 2, fyrir snyrtilegt umhverfi. Að auki var gat- an Glitvangur valin stjömugata bæj- arins í ár. -BÓl Kristinn Einarsson á leið í Hvalfjarðarsundið á dögunum. Hann ætlar að reyna aftur í næstu viku ef sjólag leyfir. DV-mynd Sigurður Sverrisson Ungir sjálfstæöismenn viljá endumýjun: Erum með elsta þing- flokk á Norðurlöndum - segir Davíð Stefánsson, formaður SUS „Þetta hefur verið rætt við mig en framboð af minni hálfu er ekki inni í dæminu," sagði Davíö Stefánsson, formaður Sambands ungra sjálf- stæðismanna, þegar hann var spurð- ur að því hvort hann hygðist taka þátt í prófkjörsslag sjálfstæðismanna en því hefur verið haldið fram að hann ætlaði í framboð í Reykjavík. Mörgum ungum sjálfstæðismönn- um þykir ekki stefna í mikla end- urnýjun í þingflokknum og er nú ákaft leitað að frambærilegum fram- bjóðendum. Davíð staðfesti að ein- hveijir félagsmanna SUS væru aö hugsa sig um en tréysti sér þó ekki til að nefna nein nöfn. „Ég á nú eftír að sjá að það verði ekki breyting. Það verður að eiga sér stað einhver endurnýjun en það lítur út fyrir að mikið af eldra liðinu verði áfram. Þetta er elstí þingflokkur á Norðurlöndum. Auðvitað er hann ekkért verri fyrir það en það þarf að sýna fram á ákveðna möguleika fyrir yngri kjósendur. Við næstu kosning- ar verða 73.000 kjósendur á sama aldri og félagsmenn SUS en enginn úr þingflokknum er á þeim aldri. Við í SUS ætlum að minna á þessa stað- reynd,“ sagði Davíð Stefánsson. -SMJ Tunglið: Lögreglustjóri bú- inn að skila um- sögn vegna kæru „Við erum búnir aö skila inn um- sögn vegna kæru Þorleifs Björnsson- ar veitingamanns og nú er beðið eftir niðurstöðu dómsmálaráðuneytisins vegna þessa máls,“ segir Böðvar Bragason lögreglustjóri. Þann 23. júlí sendi Þorleifur Bjömsson veitingamaður dóms- málaráðuneytinu kæra vegna þess að veitingastaðurinn Tunghð, sem hann rekur, hafði verið sviptur vín- veitinga- og skemmtanaleyfi auk þess sem hann kærði vegna aðgerða lögreglu föstudagskvöldiö 20. júlí síð- astliðinn en þá lokaði lögreglan Tunglinu. Þorleifur taldi að lögregluyfirvöld hefðu meö þessum aðgerðum skaðað sig og aðstandéndur „Listahátíöar næturlífsins" en samtökin voru með dansleik í húsinu umrætt kvöld. Málið er sem fyrr sagði statt í dómsmálaráðuneytinu og er úr- skurðar í því að vænta á næstunni. -J.Mar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.