Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1990, Page 5

Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1990, Page 5
FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 1990. 5 dv Viðtalid Langur námsferill V —I .............- ✓ Nafn: Matthías Halldórsson Aldur: 41 árs Starf: Aðstoðarlandlæknir „Mér list vel á starfið, þetta er fjölbreytt og áhugavert og hér starfar gott starfslið,“ segir Matt- liias Halldórsson sera nýverið var settur aðstoðarlandlæknir. „Landlækniserabættið er ríkis- stjórninni og heilbrigðisráðherra til ráðuneytis um allt er varöar heilbrigðisþjónustuna auk þess sem embættið sér um faglegt eft- irlit.“ Styrktur til náms Matthías fæddist í Reykjavík og er uppalinn i vesturbænum. Hann varð stúdent frá Mennta- skólanum í Reykjavík og hélt sið- an í læknadeild Háskóla íslands þaðan sem hann útskrifast árið 1974. „Við kandidatsnámið starf- aði ég á ýmsum sjúkrahúsum, mest á Akranesi, Akureyri og svo á Kleppsspítala. Svo hélt ég til Svíþjóðar þar sem ég stundaði nám í heimilislækningum í þrjú ár og vann síðan á félagslækn- ingadeild í Stokkhólmi." Arið 1980 kom Matthias aftur heim til íslands og "hélt þá til Hvammstanga þar sem hann starfaði sem heilsugæslulæknir þangað til í fyrra. Jafnframt starfinu á Hvammstanga lauk hann ýmsum námskeiðum við Norræna heilsuverndarháskól- ann í Gautaborg og fékk auk þess sérfræðiréttindi í embættislækn- ingum. En Matthías lét ekki staðar numið eftir allt þetta nám. Síðast- liðið ár fékk hann styrk frá bresk- a sendiráðinu til náms viö Lon- don School of Economics þar sem hann tók mastersgráðu í skipu- lagningu og fjármáium heilbrigð- isþjónustunnar. Sveitarstjórnarstörf „Aðaláhugamál mitt er mennt- unin og ég stefhi á að halda kunn- áttu minni stöðugt við. Þegar ég bjó á Hvammstanga tóku sveitar- stjómarmálin mikið af tima min- um. Ég sat i sveitarstjórn fyrir Alþýðubandaiagið á Hvamms- tanga í átta ár, þar af sem oddviti í nokkur ár. Núna hef ég hins vegar hugsað mér að hætta öllu stjórnmálastarfi - um tíma að minnsta kosti. Annars eru áhugamálin helst bóklestur og ferðalög. Svo ætla ég aö reyna að taka mig á og hreyfa mig meira. Ég er talinn vera latur við alla hreyfingu. Þeg- ar ég var á Hvammstanga var mikið gert grín að þessu og einu sinni á skemmtun var eitt skemmtiatriðið þannig að spurt var: „Hvað gerir Matthias þegar hann finnur hjá sér löngun til að hreyfa sig? Svarið var: „Hann leggst fyrir og lætur það iíöa hjá!“ Ég bý núna á Seltjamar- nesinu með þessa góðu sundlaug i nágrenninu þannig að nú er ég farin aö stunda sundið. Matthías er giftur Theódóru Gísladóttur og eiga þau 11 ára dóttur sern einnig heitir Theód- óra. -BÓl ________________________________________Fréttir Fiskmarkaður Suðumesja: Flytur f isk frá Eyjum til Grindavíkur - gamla Breiðafl arðarferj an Baldur notuð í flutningana „Fiskmarkaður Suðurnesja er með útibú í Vestmannaeyjum og hefur fengið nokkrar sendingar af fiski þaðan. Það er gamia Breiðafjarðarferjan Baldur, sem nú hefur hlotið nafnið Árnes, sem flytur fiskinn frá Eyjum til Grindavíkur,“ segir Ólafur Þór Jóhannsson, framkvæmdastjóri Fiskmarkaðar Suðurnesja. „Við erum ekki að taka fiskinn frá vinnslustöðvunum úti í Eyjum þó við flytjum hann upp á land. Það er að okkar mati algert lykilatriði að vinnslustöðvar þar hafi sömu tæki- færi á að bjóða í fiskinn um leið og fiskkaupendur á suðvesturhomi landsins. Það sitja því allir við sama borð þegar fiskurinn er boðinn upp. Þetta fyrirkomulag gefur Eyjamönn- um einnig tækifæri til að bjóða í all- an þann fisk sem boðinn er upp á fiskmarkaðnum og fá hann fluttan út í Eyjar með Árnesinu. Það er komið á annan mánuð síðan við fórum að fá fisk frá Vestmanna- eyjum en það hefur ekki verið neitt að gagni fyrr en nú í vikunni. Árnes- ið kom með á milli 65 og 70 tonn á mánudag og annað eins magn kom á miðvikudaginn og við eigum svo von á svipuðu magni í dag. Þetta hefur því gengið vel þessa vikuna og fisk- urinn selst háu verði. Kíló af stórum þorski hefur farið á 100 til 110 krón- ur, kílóið af smáþorski á um 85 krón- ur og ufsinn hefur farið á 48 til 52 krónur kílóið,“ segir Ólafur Þór. -J.Mar Trillukarlar: Óttaslegnir vegna breytinga á veðurfréttum „Okkur Hka ekki þessar nýju veð- urspár í sjónvarpinu. Þær eru væg- ast sagt þunnur þrettándi. Það má eiginlega segja að þær séu það lélegar að við gætum búið þær til sjálfir, enda hafa margir smábátaeigendur kvartað við sjónvarpið vegna veður- fréttanna. Það hlýtur öllum að vera Akureyri: Hótelnýting betri en und- anfarin ár Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: „Við erum ánægð hér á bæ enda hefur sumarið í heild verið mjög gott hjá okkur,“ sagði Gunnar Karlsson, hótelstjóri á Hótel KEA á Akureyri, er DV kannaði nýtingu gistirýmis á hótelum í bænum í sumar. Sömu sögu var að segja hjá Hótel Norðurlandi. Þórgunnur Stefáns- dóttir, sem þar varð fyrir svörum, sagði sumarið hafa verið mjög gott, sérstaklega hefði júlímánuður komið vel út. Þá væri vel bókað í ágúst þar sem af er og ágætt útlit framundan. Inga Árnadóttir hjá Hótel Stefaníu tók í sama streng: „Sumarið kemur vel út hjá okkur og framhaldið lítur ágætlega út,“ sagði hún. Hótelfólkið, sem DV ræddi við, var sammála um að hlutur erlendra ferðamanna hefði aukist mjög varð- andi gistingu á Akureyri og þeir væru í meirihluta hótelgesta yfir sumarmánuðina. Gunnar Karlsson sagði að bókanir hefðu staðist betur en áður enda hefði sérstaklega verið gengið eftir því að þær stæðust. Hann vildi sérstaklega nefna hlut erlendu ferðaskrifstofunnar Saga Reisen og sagði bókanir þess fyrirtækis hafa staðist 100% og jafnvel meira en það. Niðurstaðan af þessari lauslegu athugun er því sú að nýtingin á gisti- rými hótelanna á Akureyri hafi verið mjög góð í sumar þrátt fyrir að gisti- rými hafi aukist mjög frá því sem áður var. ljóst að góðar veðurspár skipta okk- ur miklu máli,“ segir Haraldur Jó- hannsson, stjórnarmeðlimur í Landssambandi smábátaeigenda. Stjórnarfundur Landssambands- ins hefur vegna þessa máls sent RÚV ákorun og í henni segir meðal ann- ars: Smábátaeigendur skora á for- ráðamenn RÚV og veðurfræðinga að ná þegar samkomulagi um sín mál. Veðurfregnir ættu að vera eftirsóttur varningur fyrir fjölmiðla í landi eins og á íslandi. Góðar veðurspár, vel fram settar í sjónvarpi og hljóðvarpi hafa örugglega oft og mörgum sinn- um komið í veg fyrir manntjón á fiskimiðunum við ísland.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.