Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1990, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1990, Síða 6
6 FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 1990. Viðskipti DV Uppsafnaður hagnaður íslenskra aðalverktaka: Um níutíu aðilar munu fá 5 til 150 milljónir hagnaðinum deilt út samkvæmt pólitískum skiptum fyrirtækisins Eftir samkomulag eigenda Islenskra aöalverktaka verður ofvöxnum sjóðum þess skipt á milli eigendanna; ríkis- ins, Sambandsins og eigenda Sameinaðra verktaka. Sár vöntun Sambandsins á fjár- munum til að greiða niður skuldir sínar hefur orðið til þess að hluta af uppsöfnuöum auði íslenska aðal- verktaka hefur verið skipt upp á milli eigenda þess. Um 2.400 milljónir verða greiddar út úr fyrirtækinu og tillaga er komin fram um að Samein- aðir verktakar greiði til eigenda sinna um 760 milljónir til viðbótar úr sjóöum sínum. Þetta er gert þess- um fyrirtækjum að skaðlausu, til dæmis standa íslenskir aðalverktar eftir með 1.050 milljón króna eigiö fé. Þetta ber vott um gífurlega auð- söfnun íslenskra aðalverktaka og móðurfélaga þess í gegnum áratuga einokun á verklegum framkvæmd- um fyrir herinn. Núverandi eigið fé íslenskra aðalverktaka, útgreiðslur fyrirtækisins til eigenda og umrædd- ar greiðslur til eigenda Sameinaðra verktaka nema samtals 4.210 milljón- um króna. Fyrir þessa íjárhæð má kaupa 700 blokkaríbúðir á sex millj- ónir stykkið. Þetta eru sjóðir fyrir- tækjanna þrátt fyrir að þau hafi greitt út arð með einum eða öðrum hætti á undanfomum áratugum. Pólitískur aögangur að gífurlegum auði Það er því ekki furða þótt þetta fyrirkomulag, að veita Islenskum aðalverktökum einokun á fram- kvæmdum fyrir herinn, hafi verið gagnrýnt í gegnum árin. Gagnrýnin hefur ekki síst beinst að því að auðn- um hefur verið ráðstafaö eftir pólit- ískum leiðum. Sambandið með sterk tengsl við Framsókn fékk 25 prósent, Sameinaðir verktakar með þekktar ættir sjálfstæðismanna fengu 50 pró- sent og síöan fékk ríkissjóður 25 pró- sent. Nú hefur hluta af þessum auði ver- ið skipt upp en jafnframt hefur verið tryggt að Islenskir aöalverktakar og eigendur þess munu áfram hafa ein- okun á framkvæmdum fyrir herinn til 1995 en hingað til hefur þessi ein- okun verið framlengd eitt ár í senn. Þó eigendumir fái óheyrilegar upp- hæðir til sín nú mun enn bætast við hagnað þeirra af einokunni á næstu árum. * Sambandið fær rétt tæpan milljarð Samkvæmt samkomulagi eigenda íslenskra aðalverktaka fær Sam- bandið 670 milljónir greiddar út úr fyrirtækinu. Sambandið á eftir 16 prósent í fyrirtækinu eða um 160 milljónir sé miðað við eigið fé þess. Þessu til viðbótar fengi Sambandið um 157 milljónir ef tillaga um 2,1 milljarða útgreiðslu úr Sameinuðum verktökum næði fram að ganga þar sem Reginn, dótturfyrirtæki Sam- bandsins, á um 7,5 prósent í Samein- uðum. Samanlagt myndi það gera um 990 milljónir króna. Sambandinu veitir ekki af þessum Gylfi Kristjánason, DV, Akureyri; Útgerðarfélag Akureyringa hf. hefur fengið heimild til að auka hlutafé sitt um 100 milljónir króna að nafnvirði og hefur verið ákveðið að bjóða út hlutabréf fyrir helming þeirrar upp- flármunum. Fyrirtækiö er stórskuld- ugt og skuldabagginn liggur þungt á rekstri þess. Sigurður Markússon, formaður Sambandsins, sagðist í samtali við DV ekki vilja segja til um hvað gert yrði við útgreiðslu á eign Sambands- ins í íslenskum aöalverktökum en sagði ljóst að fyrirtækiö yrði að laga skuldastöðu sína. Eign Sameinaðra ekki undir 2,5 milljörðum Eins og áður sagði áttu Sameinaðir verktakar 50 prósent í íslenskum aðalverktökum. Samkvæmt sam- komulaginu fá þeir 1.340 milljónir útgreiddar og eiga eftir 32 prósent eða um 320 milljónir í fyrirtækinu. Þessu til viðbótar hefur verið lagt til að Sameinaðir greiði út um 760'millj- ónir til viðbótar við 1.340 milljónir til eigenda sinna. Þetta gefur til kynna mikinn auð Sameinaðra en ársskýrslur þess fyrirtækis eru og hafa verið mikil leyndarplögg. Miðað við þetta er hrein eign fyrirtækisins ekki undir 2,5 milljöröum króna. Sameinaðir verktakar eru í eigu um 166 aðila. Þar eru nokkur skúffu- fyrirtæki með stóran hlut, einnig nokkrir einstaklingar en mestur íjöldinn er einstaklingar sem eiga til- tölulega lítinn hlut í fyrirtækinu. Það ræðst að nokkru af því að eftir and- lát stofnenda fyrirtækisins hefur hlutur þeirra dreifst til erfingjanna. Eins og áður sagði hefur verið litiö á hlut Sameinaðra í íslenskum aðal- verktökum sem hlut Sjálfstæðis- flokksins í hagnaðinum af fram- kvæmdum fyrir herinn. Meðal eig- enda Sameinaðra eru því ýmsar kunnar ættir sjálfstæðismanna. Fjölmörg skúffufyrirtæki Reginn, dótturfyrirtæki Sam- bandsins, er reyndar stærsti hluthaf- inn í Sameinuðum verktökum en eins og áður sagði fengi Sambandið um 157 milljónir ef tillaga um 2,1 milljarðs greiðslu úr fyrirtækinu hæðar á næstunni. Fjölmargir aðilar, bæði einstakl- ingar og aðrir, hafa sýnt áhuga á að kaupa hlutabréf í fyrirtækinu sem er eitt af best reknu og stöndugustu útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækjum landsins. Þessir aðilar hafa þegar yrði samþykkt. Næststærsti eigandinn er Félag vatnsvirkja hf. sem fengi um 147 milljónir í sinn hlut. Þetta er eitt af stofnfélögum Sameinaðra verktaka en þaö var myndaö úr nokkrum verktakafélögum. Sameinaðir verktakar eiga sjálfir þriðja stærsta hlutinn en þar næst kemur Byggingarfélagið Brú, Bygg- ingarfélagið Stoð og Byggingarfélag- ið Goði, sem fengju um 94 milljónir Fréttaljós Gunnar Smári Egilsson hvert um sig. Þetta eru allt skúffufyr- irtæki. Á eftir þessum hluthöfum koma enn fleiri skúffufyrirtæki; Rafvirkja- deildin, Byggingarmiðstöðin, Iðn- samtök og Gulltoppur með eign sem myndi gefa þeim um 61 til 77 milljón- ir ef til útgreiðslu kæmi. Á bak við þessi skúffufyrirtæki sækir til dæmis Halldór H. Jónsson, stjórnarformaður Sameinaðra, at- kvæðastyrk á hluthafafundum og þau tryggja þeim sem mestu hafa ráðiö í fyrirtækinu völd sín. 90aðilar fá meira en 5 milljónir Sá einstaklingur sem á stærstan hlut í Sameinuðum verktökum er Þorkell Ingibergsson byggingameist- ari en hann á 2,2 prósent og kemur á eftir ofantöldum skúffufyrirtækj- um. Ef til útgreiðslu kæmi fengi Þor- kell um 47 mflljónir í sinn hlut. Af einstaklingum koma næstir Kristín Guðmundsdóttir, Jón G. Halldórs- son, Jón Bergsteinsson, Jónína Þórö- ardóttir, Anton Sigurðsson og Katrín Vigfússon, hvert um sig með hlut frá 21 til 41 milljónar ef til útgreiðslu kemur. Á eftir þessum einstaklingum kém- ur langur hsti fólks sem flest er af- skráð sig fyrir kaupum á bréfum fyr- ir 40 til 50 milljónir króna. Akureyrarbær er langstærsti eignaraðili Útgerðarfélags Akur- eyringa og samkvæmt lögum félags- ins um forkaupsrétt hluthafa á hluta- bréfum hefur Akureyrarbær rétt til komendur upphaflegra stofnenda Sameinaðra verktaka. Alls eru það um 90 aðilar sem fengju 5 milljónir eða meira í sinn hlut. Þurfa ekki að borga skatta Bæði Islenskir aðalverktakar og Sameinaðir verktakar eru sameign- arfélög en ekki hlutafélög. Þegar eignir þeirra eru greiddar út til eig- enda þarf ekki að greiða af þeim skatta öfugt við ef um arð hlutafélaga væri að ræða. Sameignarfélagið hef- ur þegar greitt skatt af þessum fjár- munum og því verða þeir ekki skatt- lagöir aftur sem tekjur einstaklinga. Þeir einstaklingar, sem fá þessa gíf- urlegu fjármuni útgreidda á næstu árum, munu því geta ráöstafað þeim öllum. Óljóst hvers virði Aðalverktakar verða Þrátt fyrir að 2,4 milljarðar verði greiddir út úr íslenskum aðalverk- tökum á næstu fimm árum mun nokkuð stöndugt fyrirtæki standa eftir. Samkvæmt samkomulagi eig- enda fyrirtækisins á að stefna að því að selja hlutabréf í því á almennum markaði innan fimm ára. Ef af verð- ur mun markaðurinn ákvarða hversu mikils virði eign núverandi eigenda í íslenskum aðalverktökum er. Eins og áður sagði er eigið fé fyrir- tækisins um 1.050 milljónir eftir að 2,4 milljarðar hafa verið greiddir út. Hugsanlegt er að fyrirtækið verði ekki meira virði á hlutabréfamark- aði. Fyrir það fyrsta er það ekki al- gengt að íslensk almenningshlutafé- lög séu metin langt umfram innra virði, þaö er eigið fé þess. Methafmn á þessu sviði, Eimskip, er þannig ekki metið hærra en 49 prósent um- fram innra viröi. Þess eru dæmi að fyrirtæki séu metin undir innra virði eins og Olíufélagið þegar hlutabréf í því voru fyrst boðin út. í öðru lagi er allt óljóst um framtíð að kaupa um 70% af hinum nýju hlutabréfum. Það mál er nú til af- greiðslu hjá bæjaryfirvöldum en samkvæmt heimildum DV eru ekki taldar lýkur á að bærinn muni not- færa sér þennan forkaupsrétt. Islenskra aðalverktaka. Einokun þeirra er tryggð til næstu fimm ára en búast má við að þrýstingur vaxi á að afnema þessa einokun. Jafnvel þótt einokunin verði framlengd er allt á huldu um framhald á verkleg- um framkvæmdum hersins þar sem með breyttum aðstæðum í heims- málum er hætt við að hlutverk her- stöðvarinnar verði endurmetið. Auk þess er stöðin að verða að fullu upp- byggð miöað við núverandi hlutverk. Það mun því sjálfsagt ráöa miklu um verðmæti hlutabréfa í íslenskum aðalverktökum hvort fyrirtækið haslar sér völl í öðrum framkvæmd- um og hvernig til tekst. Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) h'æst Innlán óverðtryggð Sparisjóðsbækur ób. 3.0 Allir Sparireikningar 3ja mán. uppsógn 34 ib.Sb,- ' - Sp 6 mán. uppsögn 4-5 ib.Sb 12mán. uppsógn 4-5.5 lb 18mán.uppsögn 11 Ib Tékkareikningar, alm. 0.5-1 Allir nema Ib Sértékkareikningar 3.0 Allir Innlan verðtryggð Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 1.5 Allir 6 mán. uppsögn 2.5-3.0 Lb.Bb,- Sb Innlán meðsérkjörum 2,5-3.25 Ib Innlángengistryggð Bandaríkjadalir 7-7.25 Lb.Sb Sterlingspund 13.6-14.25 Sb Vestur-þýsk mörk 6.75-7,5 Lb Danskarkrónur 9,25-10,75 Sb ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennir vixlar(forv.) 13.5-13.75 Bb.Sb Viðskiptavixlar(forv.) (1) kaupgengi Almenn skuldabréf 14,0 Allir Viðskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir . Hlaupareikningar(yfirdr.) 16,5-17.5 Bb Utlan verðtryggð Skuldabréf 7.5-8.25 Lb.Bb Útlán til framleiðslu isl. krónur 13,75-14,25 Bb SDR 10,75-11 Bb Bandaríkjadalir 10,10-10,25 Bb Sterlingspund 16.8-17 Sp Vestur-þýsk mörk 9,9-10,5 Bb Húsnæðislán 4.0 Lifeyrissjóðslán 5-9 Dráttarvextir 23.0 MEÐALVEXTIR óverðtr. ágúst 90 14.0 Verðtr. ágúst 90 7.9 VISITÖLUR Lánskjaravisitala ágúst 2925 stig Lánskjaravisitala júlí 2905 stig Byggingavisitala ágúst 550 stig Byggingavisitala ágúst 171.9 stig Framfærsluvisitala júli 146.8 stig Húsaleiguvísitala hækkar 1,5% l.júli. VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa verðbréfasjóða Einingabréf 1 5.045 Einingabréf 2 2.746 Einingabréf 3 3,322 Skammtimabréf 1.702 Lifeyrisbréf Gengisbréf 2.174 Kjarabréf 4.995 Markbréf 2,658 Tekjubréf 2,007 Skyndibréf 1.490 Fjölþjóðabréf 1,270 Sjóðsbréf 1 2.425 Sjóðsbréf 2 1,786 Sjóðsbréf 3 1,693 Sjóösbréf 4 1.442 Sjóðsbréf 5 1.019 Vaxtarbréf 1.712 Valbréf 1,610 Islandsbréf 1,046 Fjórðungsbréf 1.046 Þingbréf 1.045 öndvegisbréf 1.043 Sýslubréf 1.048 Reiðubréf 1,033 HLUTABRÉF Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.: Sjóvá-Almennar hf. 650 kr. Eimskip 525 kr. Flugleiðir 205 kr. Hampiðjan 171 kr. Hlutabréfasjóður 167 kr. Eignfél. Iðnaöarb. 164 kr. Eignfél. Alþýðub. 126 kr. Skagstrendingur hf. 367 kr. Islandsbanki hf. 162 kr. Eignfél. Verslunarb. 140 kr. Oliufélagiö hf. 536 kr. Grandi hf. 184 kr. Tollvörugeymslan hf. 107 kr. Skeljungur hf. 546 kr. (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Útgerðarfélag Akureyringa: Hlutafé aukið um 50 milljónir - margir sýna bréfunum áhuga

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.