Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1990, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1990, Side 7
FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 1990. 7 DV Gyifi EriatjánEson, DV, Akutoyii „Uppbyggingu verksmiðjunnar miðar vel áfram og ef ekkert óvænt kemur upp þá fer verk- smiðjan í gang í nóvember" segir Hóimsteinn Hólmsteinsson for- maöur stjómar Krossanesverk- smiöjunnar á Akureyri. Verksmiðjan hefur verið i frétt- um frá því að stórbruni varð þar um áramót. í fyrstu var áformað að reisa á grunni hennar stærri og afkastameiri verksmiðju, en niðurstaöan varð sú aö byggja upp verksmiðju sem hefði svip- aða afkastagetu og íyrri verk- smiðjan og veröa afköst nýju verksmiðjunnar á bilinu 270-300 tonn á sóilarhring. Hólmsteinn sagði að viðræður viö þá útgeröarmenn loðnuskipa sera höföu ákveðið að ganga til liðs við verksmiðuna á sínum tíma og sjá henni fyrir hráefni væru í biöstöðu. „Við viljum halda samningum við Þessa að- ila, enda mikilvægt aö tryggja verksmiðjunni hráefni" sagöi Hólmsteinn. Nýr framkvæmdatjóri hefm' verið ráöinn til verksmiðjunnar, en það er Jóhann Pétur Andersen og sagöist Hólmsteinn binda miklar vonir við störf hans. Fjárhagsstaða Krossanesverk- smiðjunnar hefur mikið verið til umræðu, en Hólmsteinn sagði aö staðan væri þannig í dag að eign- ir og skuldir stæðust nokkurn veginn á. „Næstu ár verða mjög afdrifarik fyrir þetta fyrirtæki og við beijumst fyrir því af öllmn kröftum aö halda öllum kostnaði niðri eins og mögulegt er" sagöi Hólmsteinn Hólmsteinsson. Fréttir Stefnt að því að taka jarðgöngin í Olafsíj arðarmúla í notkun í nóvember: Erum í miklu kapp- hlaupi við veturinn - segir Bjöm A. Harðarson staðarverkfræðingur Gylfi Kristjánssan, DV, Akureyxi: „Það eru mörg handtökin eftir við svona jarðgangagerö þótt búið sé að sprengja í gegn og nú má segja að við séum í heilmiklu kapphlaupi við veturinn. Við stefnum að því aö geta tekið göngin í notkun í lok nóvember en það gæti sett strik í reikninginn ef veturinn legðist snemma að, og í versta falii orðið til þess að ekki yrði hægt að taka göngin í notkun fyrr en næsta vor,“ segir Björn A. Harð- arson, staðarverkfræðingur Vega- gerðar ríkisins við jarðgangagerðina í Ólafsfjarðarmúla. Það var 15. mars sl. sem Steingrím- ur J. Sigfússon samgönguráðherra ýtti á hnappinn og síðasta sprenging- in í Múlanum, 800 metrum undir toppi fjallsins, varð að veruleika. Síð- an hefur verið fremur hljótt um framkvæmdir í Múlanum en DV kom þar við í vikunni og fór meö Birni A. Harðarsyni um göngin og vinnu- svæðin sitt hvorum megin ganga- opanna. Björn sagði að þegar sprengivinnu lauk heföi verið hafist handa við end- aniega styrkingu ganganna. Loft og veggir voru steypusprautuð, boraðir í bergið boltar tU að treysta bergið en þessari vinnu lauk í júní. Þá var farið í að klæða alla staöi með mott- um þar sem leki er í göngunum og stendur sú vinna enn yfir. Ennfrem- ur stendur nú yfir vinna við frá- rennslislagnir. Þegar þessu lýkur er eftir að hækka gólfið í göngunum og setja á það varanlegt slitlag og koma upp lýsingu. Vatnið er vandamál Utan ganganna er einnig unnið báðum megin. Innan skamms verður lagt bundið slitlag á veginn úr Ólafs- fjarðarbæ að forskálanum og Dalvík- urmegin er unnið að uppsteypu for- skálans og vegagerð, og áætlað að ljúka henni áður en langt um líð- ur. „Vegna þess hversu mikið vatn hefur komið úr göngunum, um 150 sekúnduiítrar, hafa tveir verkþættir tafist nokkuð. Klæðning ganganna verður 60% meiri en áætlað var og frárennslislagnir verða um einum km lengri en áætlað var eða um 8 km. Þetta tefur reyndar aðra verk- þætti og sennilega veldur þetta okk- ur um mánaðartöf þegar allt kemur heim og saman. Það kæmi okkur því afar illa ef veturinn legðist snemma að og gæti jafnvel orðið til þess að Þrír menn unnu hörðum höndum við þvi verki miðar vel áfram. við gætum ekki malbikað gólf gang- anna eins og nauðsynlegt er áður en klæðningu loftsins í göngunum en umferð verður hleypt á þau,“sagði Björn A. Harðarson. 28“ Sharp sjónvarp Flatur skjár, Nicam stereo, super inngangur, teletext fjarstýring og fi. Veröíóurkr. 134.910.- Núkr. 109.000.- 25“ Sharp sjónvarp Flatur skjár, Nicam stereo, super inngangur, teletext fjarstýring og fl. Verðáöurkr. 121.250.- Núkr. 98.900,- Ch 3ia ára abyrgú eraöllum Pioaeer hliomtælijiim (MivaraUetirnrleea) 14“ Sharp sjónvarp Verðnúkr. 26.315.- Pioneer geislaspilarar PDT 303.2ja platna. Verö áöur kr. 24.720.- Núkr. 18.950,- PD 5300.18 bita fjarstýring Verð áöurkr. 27.500,- Núkr. 21.900.- PD 6300.18 bita fjarstýring Veröáöurkr. 31.985.- Nú kr. 24.900.- Tilboðið giidirí örfáa daga. Verð miðast við stað- greiðslu. Pioneer hljómtækjastæður S 111.2 x 50W magnari, 2x5 banda tónjafnari, 24 stöðva minni, stöövaleitari, sjálfvirk klukka, kassettu- taeki meðsíspilun, Dolby B, 2 x 100W hátalarar, fjarstýring. Verö áöurkr. 60.827.- Nú kr. 49.900 án geislaspilara. S 222.2 x 65W magnari, 2x5 banda tónjafnari með „analyser", 24stöðva minni á útvarpi, klukka, kassettu- tæki með sispilun, Dolby B, 2 x 100W hátalarar, fjarstýr- ing. Verðáðurkr. 72.265.- Nií kr. 58.900.- án geislaspilara. VC 865. Hl Fl stereo, „Long play", 4 hausar, fjarstýring. Verð áðurkr. 85.585.- Núkr. 68.500.- HLj&MBÆR HLJÓMBÆJARHÚSINU HVERFISGÖTU simi 25999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.