Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1990, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1990, Qupperneq 8
8 FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 1990. Utlönd Neita beiðni Norðurianda Sænsk yflrvöld afhentu í gær ír- aska sendifulltrúanum í Stokkhólmi harðorð mótmæli vegna neitunar íraskra yfirvalda við beiðni Norður- landa um að þegnar þeirra fengju að fara frá Kúvæt. Kröfðust sænsk yfir- völd þess í gær að allir sænskir ríkis- borgarar sem þess óskuðu fengju að fara heim. Norrænu sendiherrarnir í Bagdad í írak fóru á miðvikudaginn í íraska utanríkisráðuneytið og fóru fram á að Norðurlandabúar fengju leyfi til að fara frá írak og Kúvæt. Þeir fengu strax neitun og var þeim tjáð að eng- ir Vesturlandabúar fengju fararleyfl eins og er. Sendiherra Noregs í Bagdad hefur fengið hjartaáfall og hafa norsk yfir- völd beðið um leyfl til að senda ílug- vél eftir honum til íraks. Ekki er vit- að hvort þeir tuttugu og sjö Norð- menn sem eru í írak myndu fá að fara með ef leyfl yrði veitt til að láta sækja sendiherrann. Læknar í Bagdad segja að hann verði að liggja á sjúkrahúsi í að minnsta kosti viku. Bandarísk og bresk yfirvöld óttuð- ust þróun mála í gær er írakar skip- uðu þúsundum Breta og Bandaríkja- manna að safnast saman á hótelum í miðhluta Kúvætborgar. Var þeim hótað að þeir yrðu fluttir þangað með valdi ef þeir kæmu ekki sjálfir. í gærkvöldi höfðu aðeins fáir komið til hótelanna. Óttast yfirvöld í Bandaríkjunum og Bretlandi að fjöldahandtökur standi fyrir dyrum. TT, NTB og Reuter Tveir egypskir flóttamenn frá Kúvæt með hafurtask sitt á leið yfir landa- mæri íraks og Jórdaníu i gær. Símamynd Reuter Viðbúnaður vegna mögulegra hryðjuverka Starfsmönnum bandarísku alrík- islögreglunnar, FBI, hefur verið fyr- irskipað að vera í viðbragðsstöðu vegna mögulegra hryðjuverka í sam- bandi við ástandið á Persaflóa. Síðustu vikur hefur verið á kreiki orðrómur um að Abu Nidal, leiðtogi hryðjuverkasamtaka sem af banda- rískum yfirvöldum hafa verið sökuð um níutíu árásir á óbreytta borgara, væri kominn til íraks eftir sjö ára deilur við stjóm Saddams Hussein íraksforseta. Fregnin um komu Abu Nidals til íraks hefur ekki fengist staðfest en bandaríska leyniþjónustan, CIA, hef- ur sagt að önnur hryðjuverkasam- tök, þar á meðal palestínsk samtök undir forystu Abu Abbas, séu með bækistöðvariírak. Reuter Olíuverð hækkar aftur Olíumálaráðherra Saudi-Arabíu, Hisham Nazer, sagði í gær að hann væri að þrýsta á um skyndifund olíu- útflutningsríkja, OPEC, til að ræða afleiðingarnar af innrás íraka í Kú- væt. Ráðherrann neitaði fregnum um að Saudi-Arabía, stærsta olíuút- flutningsríki heims, ætlaöi að minnka þá olíufarma sem gerðir hefðu verið langtímasamningar um við önnur ríki. Ef af fundinum verð- ur er gert ráð fyrir að rætt verði um hvernig auka eigi framleiðsluna til aö fylla upp í það skarð sem orðið hefur í kjölfar innrásar íraka. Heimsmarkaðsverð á hráolíu hækkaði aftur í gær vegna þróunar mála við Persaflóa. Síðdegis í gær var verðið 26,68 dollarar á tunnuna. Verð á gulli stóð nokkurn veginn í stað í gær og kostaði únsan 402,80 dollara seinni part dagsins. Hlutabréf í Tokýo féllu í verði í morgun í kjölfar fréttarinnar um að Hussein Jórdan- íukonungur hefði ekki verið með bréf í fórum sínum frá íraksforseta til Bandaríkjaforseta. Einnig olli fyr- irskipun Bandaríkjaforseta um að stöðva skipaferðir til og frá írak og Kúvæt óróa á mörkuöunum. Reuter og TT Bandarískt herskip á siglingu á Omanflóa. Bush Bandaríkjaforseti hefur fyrirskipað beitingu hervalds þegar í stað ef þðrf krefur til að stöðva skipaferðir til og frá írak. Símamynd Reuter Aukin hætta á átökum Hussein Jórdaníukonungur ræðir við fréttamenn í Washington í gær. Hann kvaðst ekki verið með í fórum sínum friðartillögu frá íraksforseta og þótti þá mörgum sem horfurnar á diplómatiskri lausn á ástandinu við Persaflóa væru orðnar litlar. Símamynd Reuter Aukin hætta þykir nú á átökum á Persaflóasvæðinu eftir að George Bush Bandaríkjaforseti skipaði í gær bandarískum herskipum að beita þegar í stað valdi ef með þyrfti til að framfylgja hafnbanni á Irak og Kú- væt. Irösk yfirvöld tilkynntu fyrr í þessari viku að öllum tilraunum af hálfu Bandaríkjamanna eða annarra til að stöðva vöruflutninga til og frá írak yrði mætt með hefndaraðgerð- um. Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, Javier Perez de Cuellar, sagði í gær að hernaðaraðgerðir í þeim tilgangi að framfylgja við- skiptabanni Sameinuöu þjóðanna án samþykkis Öryggisráðsins brytu í bága við reglugerð stofnunarinnar. Sagði Perez de Cuellar að Öryggis- ráðið þyrfti að samþykkja hafnbann. Talsmaður hans í New York tjáði hins vegar fréttamönnum að fram- kvæmdastjórinn hefði ekki dregið til baka fyrri ummæli sín um rétt þjóða til að veija sig. Þó svo að Saddam Hussein íraks- forseti haíi formlega bundið enda á eitt stríð virtist í gær sem hann væri reiðubúinn að hefja annað fremur en að láta undan þrýstingi þeirra sem vilja brottflutning íraskra hermanna frá Kúvæt. íraksforseti svaraði ásök- unum Bush forseta um að hann væri lygari og morðingi og sagði Banda- ríkjaforseta ljúga. í opnu bréfi; sem lesið var í ríkisútvarpinu í Bagdad í gær, sagði Saddam Hussein að hann myndi aldrei fara frá Kúvæt og að emírnum af.Kúvæt yrði aldrei leyft að snúa aftur. Horfurnar á diplómatískri lausn á ástandinu við Persaflóa virtust litlar í gær eftir að Hussein Jórdaníukon- ungur lauk viðræðum sínum við Bush Bandaríkjaforseta. Margir höfðu talið hann líklegastan til að miðla málum. Hafði verið búist við að hann hefði í fórum sínum friðar- tillögu frá íraksforseta en konungur- inn kvaðst ekkert bréf vera með. Hann hét því að framfylgja viðskipta- þvingunum Sameinuðu þjóðanna gegn írak en tók það fram að hann væri ekki reiöubúinn að loka höfn- inni í borginni Aqaba, helstu líflínu íraka. Reuter Telur íraka munu bjarga sér írakar munu flnna fyrir viðskipta- þvingunum Sameinuðu þjóðanna en þær munu ekki verða afgerandi. Það getur vel verið að Saddam Hussein Iraksforseti geti bæði séö löndum sínum fyrir nauðsynjum og haldið völdum. Þetta er álit Peters Wallenst- ens, prófessors við Uppsalaháskóla í Svíþjóð. Hann hefur sérhæft sig í milliríkjadeilum og sérstaklega rannsakað áhrifin af viðskiptaþving- unum. Niðurstaða hans er sú að í flestum tilfellum náist ekki tilætlað- ur árangur af þvingunum. „Það þarf tvennt til að refsiaðgerð- ir verði árangursríkar. í fyrsta lagi að alþjóðasamhugur ríki um þær og í öðru lagi að það sé stjómmálaand- staða í landinu sem notfæri sér ástandið," segir prófessorinn. Með tilliti til þessa þykir honum athyglisvert hversu lítill gaumur hefur verið gefinn að ástandinu í írak sjálfu. Þjóðir heims bindi vonir sínar næstum eingöngu við þann ytri þrýsting sem nú sé beint að írak. Það er skoðun Wallenstens að næstu mánuðir verði afgerandi. Því lengri tími sem líði því meiri verði möguleikar íraka á að aðlaga sig að nýjum aðstæðum. Næsta öruggt sé að þeir fái varning landleiðina. Wal- lensten telur að Hussein Jórdaníu- konungur þori ekki að stöðva flutn- ingana til Iraks af ótta við að verða steypt af stóli. Mikill meirihluti Jórd- ana styður íraka, að sögn Wallen- stens. Hann álítur að Bandaríkjamenn muni fara sér hægt í sakimar með að þrýsta á Jórdaníu þar sem jórd- önsk stjórn hliðholl írak myndi verða ógnun við ísrael. „Líklega vilja Bandaríkjamenn að Jórdaníukon- ungur stöðvi hluta flutninganna til íraks en ekki svo mikið að hann eigi á hættu að verða steypt,“ segir Wal- lensten. TT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.