Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1990, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1990, Qupperneq 12
12 Spumingin Ætlarðu að taka þátt í skemmtiskokki eða mara- þonhlaupi um helgina? Sigurbjörg Lóa Ármannsdóttir læknafulltrúi: Nei, ég hafði ekki hugsað mér það. Ég hleyp þó svolítið en yfirleitt fer tíminn í annaö. Gréta Jónsdóttir húsmóðir: Nei, ég er tábrotin og sleppi því. Annars hefði ég líklega hlaupið. Vilhjálmur Guðjónsson stoðtæknir: Nei, alls ekki. Það er hægt að gera ýmislegt skemmtilegra en að hlaupa svona hlaup. Páll M. Pálsson nemi: Nei, æth það. Ég hleyp þó stundum en það er bara fyrir sjálfan mig. Gunnar Larsson: Nei, ég held ekki. Ég er ekkert fyrir svoleiðis. Karl E. Vemharðsson meðferðarfull- trúi: Nei, ég verö að vinna. Ég hefði samt sennilega ekki hlaupið en þaö er gaman að fylgjast með þróuninni í þessum máium. Lesendur FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 1990. Sendiherrafrúr segja frá Kristín Jónsdóttir skrifar: Ég hlýddi á viðtal við tvær sendi- herrafrúr í þættinum Björtu hhðam- ar á Stöð 2 sl. sunnudagskvöld. Að mínu mati fór nú minna fyrir björtu hhðunum í viðtahnu því frúmar héldu sig mjög við sinn leista; eril- samt starf sendiráðsfrúa, mikið af boðum og veislum til skiptis og að það þyrfti sterk bein tíl að komast sæmilega frá stöðunni. Þama var hvorki til umræðu „létta leiðin ljúfa“ né „ormar í ormagryfju" eins og kunnir menn gáfu starfsvettvangi sínum í utanríkisþjónustunni á sín- um tíma. Ég hafði á tilfmningunni að þessi þáttur hefði verið gerður sérstaklega til aö undirbúa jarðveginn fyrir kröfu á hendur ríkinu af hálfu ís- lenskra sendiherrakvenna sem væm ekkert ofsælar .með hlutverk sín og gætu því vel hugsaö sér að þiggja eftirlaun að loknum starfsdegi, jafn- vel örhtla launasporslu á meðan þær gegndu eiginkonuhlutverki innan ís- lensks sendiráðs erlendis. - Að vísu kom fram að sendiherrar frænda vorra, Dana og svo Finna, em einir í stöðum sínum í Bandaríkjunum og er ekkert að vanbúnaði! Hinum þræðinum fannst mér sem þessi þáttur ætti að vera eins konar uppbót (yfirklór vildi ég nú kalla hann) á frásögn sendiherrafrúarinn- ar sem gaf út jólabókina um síðustu jól, Sendiherrafrúin segir frá. - Þar mátti einnig kynnast lííi sendiherr- afrúar og annarra íslenskra sendi- manna sem em nefndir fuhtrúar ís- lands á erlendri grundu. Saga þess- ara sendiherrafrúa var allt öðru vísi! Mér fannst þær líka ekki verá nógu fágaðar í umsögn um hinar erlendu þjóðir sem þær nutu gistivináttu hjá. Hefði ég t.d. verið Frakki myndi ég hafa móðgast sárlega á ummælum þeirra um þá eiginleika sem þær töldu helst einkenna þá þjóð. Heldur tóku þær sig þó á í lokin og töldu frönsku þjóðinni ýmislegt th ágætis, svo sem gott litaval, mikiö matarúr- val og ýmis skemmthegheit, þegar sá gállinn væri á henni. Mér fannst þessi viðtaisþáttur í röð Björtu hliðanna vera dæmigerður þáttur fyrir að gera viðmælendum th hæfis, eins konar thboö um að koma og gera „hreint fyrir sínum dymm“ hkt og stundum er gert fyrir vissa stjórnmálamenn þegar þeir hafa orðið viöskha við fótabúnað sinn og em á sokkaleistunum einum saman. Þessar sendiherrafrúr vora þó eng- an veginn á sokkaleistunum en þær geisluðu heldur ekki beinhnis af þeirri ánægju sem hlýtur að fylgja því að eiga þess kost að vera sverð og skjöldur eiginmanna sinna og fá aö aöstoöa þá m.a. við að vinsa úr u.þ.b. 150 boöum sem að sögn berast th íslensks sendiráös erlendis á ári hveiju. Einhvem veginn stóð hug- skoti mínu næst heildarmynd bókar- innar Sendiherrafrúin segir frá - en ekki sendiherrafrúrnar sem freistuð- ust til að sitja í björtu hliðunum í samnefndum þætti á Stöð 2 sl. sunnu- dagskvöld. Hafa ráöherrar skuldbundið sig til að leysa fjárhagsvandræði SS sem liggja að mestum hluta í þessu húsi? Salan á SS-húsinu: Ráðherrar f ikra sig áfram! Valhallarþankar um veitingar Skattborgari skrifar: Ég sé í frétt í Morgunblaðinu í morgun (15. ágúst) að fjármálaráö- herra er farinn aö hðsinna forsætis- ráðherra (Framsóknarflokknum) í því vandamáli sem hann hefur á sinni könnu með því að hafa að lík- indum gefið Sláturfélagi Suöurlands ádrátt um að leysa peningavandræði þess með því að kaupa hið nýbyggða hús á Kirkjusandi. í fréttinni segir Ólafur Ragnar fjár- málaráðherra að „komiö hafi th tals að ríkið leigi hluta af nýju húsi Slát- urfélagsins undir ríkisstofnanir". Það er nú líklega! Sérstök nefnd var einmitt sett á stofn á vegum ríkisins Oíklega launuð af skattborgumum) th að finna leiðir th að nýta SS-húsið eða með einhverjum leiðum að koma því þannig fyrir að réttlæta mætti kaup ríkisins á því. Þetta mál er náttúrlega aht með eindæmum og hinum siðlausasta hætti. Að ráðherra skuli vera farinn að gera því skóna að í þessu vand- ræðahúsi Sláturfélagsins megi stað- setja t.d. myndhstarskóla, Þjóö- minjasafn eða hvað annað sem í hef- ur hlaupið ofvöxtur vegna óverð- skuldaðs örlætis Stórabróður er meiriháttar feilspark hinna þjóð- kjömu þjóna í almenning í landinu. Nú em þrír ráðherrar í þann veg- inn eða búnir að hygla vissum hóp- um samkvæmt reglum suðrænna bananalýðvelda. Utanríkisráðherra er búinn að láta semja um kaup ríkis- ins á meirihluta í Aðalverktökum svo að hluthafar fái smápening í vas- ann. Og nú leggja forsætisráðherra og fjármálaráðherra sameiginlega fram krafta sína til að bjarga Slátur- félaginu fyrir hom í fádæma klaufa- legum og ónauðsynlegum fjármála- þrengingum þess. - Viö skattborgar- ar hljótum að mótmæla kröftuglega fyrirhuguöum kaupum eða afskipt- um ríkisins af SS-húsinu. Sala þess húss er ekki mál þjóöarinnar. Kristinn Snæland skrifar: Ég varð fyrir svo óhepplegri reynslu um síðustu helgi að mér finnst að ég veröi að láta hana koma fram. Þannig var að hópur fólks safn- aðist saman á Þingvöllum á laugar- dag til sameiginlegrar skemmtunar og samvera. Hópurinn hafði pantaö mat í Valhöll. Víst var að matargest- ir yrðu um 200 en sú tala var ekki nákvæm. Seldir höíðu verið 217 mat- armiðar og var þaö tilkynnt til Val- hallar. Þegar þangað kom höfðu nokkrir gestir bæst við og er skemmst frá því að segja að veitingastaðurinn réö ekki viö þessa viðbót, enda munu hafa verið tíndir fram 217 stólar, þar sem umframstólar hefðu verið send- ir niður í Hveragerði í hótehð þar. Þeir stólar sem boðnir vom til setu í voru auk þess svokallaðir klapp- eða felhstólar, óþægilegir og óvand- aöir. Særðu t.d. fótleggi ef fætur voru dregnir inn undir sig. Þá hófst máltíðin, fyrir hveija voru Júlíus Jónsson skrifar: Það hefur talsvert verið rætt hvort ríkisstjórninni sé sætt eftir aö hún setti bráðabirgðalögin á dögunum og hvort ekki væri skynsamlegt aö efna til kosninga núna í haust. - Ég er einn þeirra mörgu sem finnst að núverandi ríkisstjórn hafi ekki þann styrk sem til þarf til að takast á við vandann sem við blasir. Kosningar nú í haust myndu færa þjóðinni nýja von og ný ríkisstjórn fengi siðferði- legan og pólitískan styrk til að standa að þeim aðgerðum sem nú þarf að gera. Það er allt of mikið í húfi til þess að nokkur ábyrgur stjórnmálaflokk- ur eöa forystumenn þeirra geti lokað augunum fyrir nauðsyn á kosning- um í haust. En hver er hugur þeirra til kosninga í raun? - Jú, Sjálfstæðis- flokkurinn og forystumenn hans - sumir en ekki allir - hafa lýst þeirri skoðun að kosningar væru besti kosturinn í stöðunni. Á þessu hamr- ar Morgunblaðið einnig af og til. Þaö er hins vegar vont að átta sig á heilindum þessara yfirlýsinga, jafnvel þótt þingflokkur Sjálfstæðis- flokksins hafi samþykkt þetta áht. Ekki hefur veriö upplýst hvort þar vom einhveijir á móti. Ekki trúi ég t.d. því a6 þeir þingmenn flokksins, sem hafa hvað mest oröið varir við andstöðu gegn áframhaldandi þing- setu þeirra, séu mjög fylgjandi kosn- greiddar 1500 krónur. Fram voru bornar tvær litlar lambakjötssneiðar á mann og grænmeti með. Var það svona á aö giska 5 til 10 baunir, þrjár til fimm litlar gulrótarsneiöar og hálf lítil kartafla, reyndar skorin í þrjá smá laska, og eitt grænt blað að auki. Einnig fylgdi vatnsþunn sósa með nokkrum pipárkornum. - Þá var eftirréttur; vel úti látinn ís með rjómahomi, súkkulaði og möndlu- flísum og loks kaffi en mjólkin sem fylgdi skildi sig frá í bollanum og varð að htlum rjóma- eða fituflyks- um. Anda gestanna er best lýst með orðum stúlku einnar í hópnum, en hún er kunnug veitingarekstri. Hún sagði: Ekki trúi ég að það borgi sig að hafa fólk á launum viö að telja baunir á hvern disk. - Fengu þessi orð góðan hljómgmnn hjá gestunum, sem væntanlega geyma í huga sér, en ekki gleyma, viðurgjörningi í Val- höh þetta kvöld. ingum í haust. í pólitíkinni gildir nefnilega sífellt hugsunin „einn hring enn“ og það í fleiri málum en þaulsetu á Alþingi. Ekki er vafi á að Sjálfstæðisflokk- urinn fær mikið fylgi í næstu kosn- ingum. Hinu mega menn ekki gleyma að þótt Sjálfstæðisflokkurinn fengi ríflegan meirihluta í kosning- um myndi ekki hvarfla að mönnum þar á bæ að mynda ríkisstjóm án þátttöku einhvers annars flokks til viðbótar. Þetta er gallinn á íslensk- um stjórnmálum. Ábyrgðartilfinn- ingin er naumt skömmtuð í hjarta hérlendra stjórnmálamanna og því fer sem fer. Stjóm Reykjavíkurborg- ar er sérfyrirbæri í íslenskum stjórn- málum og þar er komin hefð á eins flokks yfirráð. En vita mega núverandi þingmenn Sjálfstæðisflokks - og reyndar ann- arra flokka líka, að hugur fólks stendur til mikihar endurnýjunar í þingliði, jafnt í Reykjavík sem ann- ars staðar. Prófkjör, opin eða lokuð, eöa listauppstilhng leikur hér mikil- vægt hlutverk. En uppstilhng á fram- boðshsta Sjálfstæðisflokksins t.d. kemur þó ekki í veg fyrir kröfur um umtalsverðar breytingar. Það er því áfallaminnst að leyfa fólkinu sjálfu að ráða í þeim efnum. Og haustkosn- ingar eru áreiðanlega einnig krafa fólksins. Leyfum lýðræöinu að ráöa. „Kröfur um umtalsverðar breytingar á þingflokki sjálfstæðismanna. Uppstill- ing á framboðslista kemur ekki i veg fyrir það.“ Kosningar íhaust?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.