Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1990, Page 27

Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1990, Page 27
FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 1990. 35 LífsstOI PAPRIKA I 0Q 1 698 280 SVEPPIR O) 640 199 DV kannar grænmetismarkaðinn: Veruleg verðlækkun á íslensku kartöflunum - kílóið af smælki á 39 krónur Eins og fram hefur komiö í fréttum undanfarna daga virðist verðstríö vera í uppsiglingu meðal kartöflu- bænda. Lögbundiö verð til bænda er 55 krónur en nú er kílóverð á kartöfl- um mjög misjafnt. Lægst er það 39-40 krónur. Það skal tekið fram að í þeim tilfellum, sem verð þeirra er svo lágt, er um smælki að ræða og eru stærri gullaugakartöflumar eðlilega á nokkru hærra verði. Það er hins veg- ar ljóst að veruleg verðlækkun hefur orðið á kartöflunum frá því að þær komu á markað fyrir nokkrum vik- um. Meöalverð á tómötum er 172 krón- ur en munur á hæsta og lægsta verði er 85%. Er verðið lægst í Hagkaupi og kostar kílóið þar 135 krónur. Hæst er verðið í Kjötstöðinni í Glæsibæ en þar er kílóið á 250 krón- ur. Tómatar eru einnig á tilboðsverði og kosta þá 220 krónur. Kílóverð á tómötum hjá versluninni Bónus er 139 krónur. Mikligarður selur sína á 145 krónur og er það tilboðsverð. Er þeim pakkað í eins kílóa poka og eru þeir vel þroskaðir. Þá er einnig hægt aö fá í lausu en kosta þá 228 krónur. Kílóverð í Hagkaupi er 159 krónur en 165 í Fjarðarkaupi. Gúrkur em á lægsta verðinu í Bón- usi og kosta þar 153 krónur kílóið. Dýrastar era þær hjá Kjötstöðinni og em á 275 krónur. Kílóverð hjá Bónusi getur veriö mismunandi þar sem gúrkumar eru seldar í stykkja- tali og ræður þyngd þeirrar gúrku sem keypt er nokkru um kílóverð. Þær eru á 169 krónur hjá Hagkaupi, 187 krónur hjá Fjarðarkaupi og 215 í Miklagarði. Meðalverð er 200 krón- ur og er munur á hæsta og lægsta verði 80%. Það er ríflega 200% verðmunur á sveppum. Eins og í síðustu viku ber að taka fram að þeir em mjög mis- jafnir að gæðum og sést það best á því að sama verslunin býður hæsta og næstlægsta verðið. Ber því að taka mið af því þegar spáð er í sveppa- Islensku kartöflurnar hafa lækkað verulega i verði. verð. Sumar verslananna merkja sveppina sem fyrsta og annan flokk. Síðarnefndi flokkurinn er venjulega seldur á tilboðsverði. Verslunin Hag- kaup er með lægsta sveppaverð og er það 199 krónur. Verslunin skiptir vörunni í tvo flokka og er sá dýrari á 459 krónur. Hæsta verð er að finna í Kjötstöðinni og er kílóverð þá kom- ið í 640 krónur. Sama verslun selur sveppi á 250 krónur og er það tilboðs- verð. Bónus selur kílóið á 299 krón- ur. Sveppirnir hjá Fjarðarkaupi kosta 460 krónur en í Miklargarði 488 krónur. Meðalverð er 389 krónur. Grænu vínberin eru á lægsta verð- inu í Hagkaupi og kosta 269 krónur. Mikligarður selur þá á 285 krónur, Fjarðarkaup á 288 krónur og Kjöt- stöðin á 398 krónur. Að vanda er Bónus ekki með vínber. Meðalverð á vínberjum er 310 krónur og munur á hæsta og lægsta verði er 48%. Meðalverð á grænni papriku er 454 krónur og er lægsta verð að finna í Bónusi þar sem kílóverö reiknast 280 krónur. Kílóverð í Hagkaupi er 415 krónur, 433 í Miklagarði, 445 í Fjarð- arkaupi og Kjötstöðin rekur lestina með 698 krónur. Tæplega 150% mun- ur er á hæsta og lægsta verði. Eins og fram hefur komið er kart- öfluverð rokkandi og fer best á því að lýsa útliti þeirra um leið og verð er nefnt. Bónus er með lægsta kíló- verð og er það 68 krónur. Kartöflurn- ar eru þokkalega stórar. Smælkið er á 39 krónur. í Hagkaupi er dýrast að kaupa kartöflur en þar er selt gull- auga á 132 krónur og 50 aura. Þær líta vel út og eru að því er virðist búnar að ná fullum þroska. Hagkaup selur einnig premierkartöflur og kostar kílóið af þeim 70 krónur. Þær eru minni en hinar. Það eru einnig á boðstólum smáar kartöflur á 39 krónur kílóið. Verðmerkingar og vörumerkingar eru í einstaklega góðu lagi hjá versluninni og til hag- ræðingar fyrir neytandann. Fiarðar- kaup selur kílóið á 72 krónur en þar er smælki einnig selt og kostar 40 krónur. Kjötstöðin selur kartöflurn- ar á 90 krónur kílóiö og eru þær að norðan. Þær líta vel út og hafa náð þokkalegri stærð. Smælkið er selt á 40 krónur. Mikligarður selur kílóið á 94 krónur og 50 aura. Verðlag á grænmeti er svipað og í síðustu viku. Grænmetisverö getur verið breytilegt milli sendinga, að sögn verslunarmanna, og getur því verið annað að morgni en það er að kvöldi. -tlt Ávaxtamarkaður: Epli, appelsínur, bláber... DV kannaði fimm mismunandi tegundir ávaxta og fer niðurstaða könnunarinnar hér á eftir. Mesti verðmunur var á banönum, eða 94%, en minnsti verðmunur var á bláberj- um, eða 9,5%. Rauð epli voru ódýrust í Bónusi og kostuðu þar 120 krónur. Hæsta verð var aö finna í Kjötstöðinni og kostaði kílóið þar 159 krónur. Verðmunur reyndist vera 32,5% og meðalverð 135 krónur. Ephn kostuðu 128 krónur í Fjarðarkaupi, 129 krónur í Hagkaupi og 137 krónur í Miklagarði. Appelsínur voru ódýrastar í Bón- usi og kostuðu 85 krónur kílóið. Það er nokkuð langt undir meðalverði sem var 116 krónur. Kílóverð hjá Kjötstöðinni var 155 krónur. 106 krónur kostuðu þær í Miklagarði, 115 í Fjarðarkaupi og 119 í Hagkaupi. Bananar em mjög viðkvæm vara og eru fljótir aö skemmast. Er þá því oft að finna á tilboðsverði. Slík var raunin í Kjötstöðinni en þar voru þeir á 90 krónur kílóið. Einnig voru bananamir dýrastir þar og var verð- ið 175 krónur. 122 krónur kostuðu þeir í Bónusi en 135 krónur í öllum hinum verslununum. Munur á Mjög fjölbreytilegt úrval er af ávöxtum en það er af sem áður var að einung- is var hægt að fá epli og appeisínur fyrir stórhátíðir. hæsta og lægsta verði var 94%. Kílóverð á kiwi var lægst í Fjarðar- kaupi, eða 224 krónur. Bónus seldi kílóið á 225 krónur, Hagkaup á 259 krónur, Mikligarður á 298 krónur og Kjötstööin á 348 krónur. Meðalverð var 271 króna og munur á hæsta og lægsta verði 55%. Bláber fengust aöeins í þremur verslananna: í Fjarðarkaupi, þar sem verðið var 273 krónur og jafn- framt lægst, í Kjötstöðinni á 275 krónur og í Miklagarði, en þar var verðið hæst, 299 krónur. Meðalverð var 282 krónur og munur á hæsta og lægsta verði 9,5%. Það er vonandi ekki langt að bíða þess að íslensk bláber komi í verslanir en þau sem fást núna em bandarísk. -tlt Paprika Verð í krónum Jaa F#o. Mars Aprl Mal Júnl Júil A^»i soo- 400 - 300- p Tómatar Verð í krónum 100- Jaa Foo. Mars AprS Mal Júnl Júil Agltl

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.