Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1990, Side 28
36
FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 1990.
Andlát
Jóhanna Jóhannesdóttir, Álakvísl
67, lést aö morgni 16. ágúst í Landa-
kotsspítala.
Valur H. Jóhannsson, Reynigrund 1,
Akranesi, lést þann 15. ágúst.
Sigurjón Sigurðsson, Höfðagrund 15,
Akranesi, andaðist 16. ágúst.
Jarðarfarir
Ásdís Pálsdóttir, Lækjargötu 3,
Hvammstanga, sem lést 13. ágúst,
verður jarðsungin frá Hvamms-
tangakirkju laugardaginn 18. ágúst
kl. 14.
Eiríkur Einarsson frá Þóroddsstöð-
um í Ölfusi, verður jarðsunginn frá
Hjallakirkju í Ölfusi laugardaginn
18. ágúst kl. 14.
Útför Sigríðar Bachmann, fyrrver-
andi forstöðukonu Landspítalans, fer
fram frá Dómkirkjunni mánudaginn
20. ágúst kl. 13.30.
Lárus Á. Ársælsson, Kirkjuvegi 43,
Vestmannaeyjum, verður jarösung-
inn frá Landakirkju í Vestmannaeyj-
um laugardaginn 18. ágúst kl. 14.
hennar var Karel Gíslason, en hann
lést árið 1950. Þau eignuðust tvö
börn. Seinni maður hennar var Carl
Friðrik Jensen, en hann lést árið
1978. Þau hjónin ólu upp sonardóttur
Aldísar. Útför Aldísar verður gerð
frá Fríkirkjunni í dag kl. 13.30.
Tilkyimingar
Matthildur K. Gunnarsdóttir lést 7.
Ný hárgreiðslustofa
í Mjóddinni
Opnuð hefur verið ný hárgreiðslustofa í
Mjóddinni.- Eigendur eru Jóhanna
Margrét Steindórsdóttir og Ásta Margrét
Jóhannsdóttir hárgreiðslumeistarar.
Möggurnar í Mjódd kalla þær sig og er
opið daglega kl. 9-18 og laugardaga kl.
kl. 9-13. Síminn er 77080.
ágúst. Hún var fædd í Reykjavík 23. /
febrúar 1923. Hún starfaði í 33 ár sem
símavörður á Reykjalundi. Útför
hennar verður gerð frá Langholts-
kirkju í dag kl. 15.
Aldís Kristjánsdóttir lést 9. ágúst.
Hún fæddist í Stíghúsi á Eyrarbakka
þann 14. september 1912. Foreldrar
hennar voru hjónin Margrét Þóra
Þórðardóttir og Kristján Guðmunds-
son.. Aldís var tvígift. Fyrri maður
Tapað-fundið
Páfagaukur tapaðist
Blár páfagaukur tapaöist frá Ásgarði 95
miðvikudaginn 15. ágúst sl. Finnandi vin-
samlegast hringi í síma 36153.
Fress í óskilum
Hvítbröndóttur hálfstálpaður fress, ca 6
mánaða, er í óskilum á Melunum. Upp-
lýsingar í síma 18937.
Tombóla
Nýlega héldu þessar tvær stúlkur, þær
Jóna Dögg Sveinbjörnsdóttir og Klara
Sverrisdóttir, tombólu til styrktar Rauða
krossi íslands. Alls söfnuðu þær 1.303
krónum.
Tombóla
Nýlega héldu þessar tvær stúlkur, þær
Harpa Hannesdóttir og Sólborg Ósp
Bjamadóttir, tombólu til styrktar Rauða
krossi íslands. Þær söfnuðu 520 krónum.
Fréttir
Hin nýja sorpböggunarstöð höfuðborgarsvæðisins ris nú hratt í Gufunesinu en það er Ármannsfell hf. sem bygg-
ir þetta áður umdeilda hús. Þarna verður allt sorp frá Reykvíkingum og nágrönnum flokkað og það ónýtanlega
pressað í böggla sem síðan verða urðaðir. Af myndinni má ráða að þetta hús er engin smásmíði. DV-mynd S
Akranes:
Málefni Skipasmíða-
stöðvar Þ&E í biðstöðu
Sigurður Sverrissan, DV, Akxanesi:
Málefni Skipasmíðastöðvar Þorgeri
og Ellerts hf. á Akranesi eru í bið-
stöðu um þessar mundir meðan beð-
ið er eftir milliuppgiöri fyrir fyrri
hluta þessa árs. Fyrirtækið á í mikl-
um fjárhagserfiðleikum eins og íleiri
fyrirtæki í sömu iðngrein og hefur
fengið greiðslustöðvun.
Sem kunnugt er var öllum starfs-
mönnum fyrirtækisins sagt upp fyrr
í sumar en gildistími uppsagnanna
var framlengdur til 31. ágúst að sögn
Þorgeirs Jósefssonar.
Þorgeir sagði í samtali við DV að í
raun væri ekkert hægt að segja um
málefni fyrirtækisins að svo stöddu.
Ákvarðanir um framhaldið yrðu
teknar þegar milliuppgjörið lægi fyr-
ir.
Egilsstaðir:
Víða heyjað með „hangandi hendi“ -
þar sem skera á niður í haust
Sigrún Björgvinsdóttir, DV, Egilsstöðum:
Heyskap er nú að verða lokið á Hér-
aði. Hann hófst í seinna lagi vegna
þurrka en nýting heyja er mjög góð.
Það er helst á Efri-Jökuldal sem fyrri
slætti er ekki lokið. í mörgum hrepp-
um er heyjað með „hangandi hendi,“
eins og einn bóndi komst að orði, það
er þar sem fjárlaust var sl. ár eða
skorið verður niður í haust en það
er á milli Lagarfljóts og Jökulsár á
Dal.
Veður hefur verið hagstætt til hey-
skapar. Þurrkar nægir og samfelldir
og rigningar ekki miklar þó fari yfir
í norðaustan sem er mesta úrkomu-
áttin á Héraði. Er jörð jafnvel óvenju-
þurr um þessar mundir.
Fjölmiðlar
Risinn og dvergurinn
Mikið hefur verið rætt og ritað
um réttmæti afnotagjalda Ríkisút-
varpsins að undanförnu. Að mínu
viti er allt í lagi aö greiða þessi af-
notagjöld. Hins vegar fyndist mér
eðlilegt aö hætta sölu auglýsinga hjá
RÚV. Vera má að auglýsingar beri
uppi starfsemi þessarar stofiiunar
en spurningin hlýtur að vera hvort
það sé réttlátt og hvort ekki megi
reka þessa stofnun hagstæðar,
Rás tvö átti upphaflega að vera
rekin eingöngu á auglýsingatekjum
en hún er heimtufrekari en svo að
það dugi til. Þar ætti einna helst að
skera niður. Ekki veit ég hversu
margir starfsmenn koma við sögu á
rás tvö á einum mánuði en segja
mætti mér að þeir væru ófáir. í svip-
inn raan ég eftir tíu föstum starfs-
mönnum sem starfa einungis við
dægurmálaútvarpið. Þá eruótaldir
þáttagerðarmenn, pistiahöfundar
og erlendir fréttaritarar. Rás tvö
hiýtur að þurfa míklar fjárhæðir til
að geta haldiö ailri þessari starfsemi
gangandi. Það má líka segja að með
öllu þessu fjármagni fáist mun betri
dagskráenella.
A meðan rás tvö blómstrar sökkva
aðrar útvarpsstöðvar sífellt neðar í
hlustun. Þar kemur best í ljós
hversu RÚV er óvægið meö alla sina
peninga og skylduafnotagjöid. Aug-
lýsendur leita tii þeirra sem hafa
mesta hlustun og þar hiröir rás tvö
einu tekjulind annarra stöðva. Það
veröur ekki sagt aö þetta sé heiðar-
leg samkeppni eða eðlileg. Á meðan
RUV hefur hæði afnotagjöld og aug-
lýsingar og ríkið á bak við sig er lítil
von til þess að litlar einkastöðvar
geti spjarað sig. Á þeim eru sex til
sjö dagskrárgerðarmenn sem halda
úti þáttum alla daga vikunnar.
Sjálf hlusta ég mest á rás tvö því
hún hefur upp á mest aö bjóða og
hefur efni á því. En til hvers var
verið að gefa eftir frjálsan útvarps-
rekstur ef starfsskilyrði eru engin á
móti rikinu? Reyndar þykir manni
ríkið alitaf vera að ota sínum tota
meira út í samfélagið og boð og bönn
sífelit vera að aukast. Hvar er nú
allt hjalið um að ríkið eigi að fækka
starfsmönnum og minnka hlutdeild
sína í rekstri fyrirtækja? Kannski
er fólk fljótt að gleyma lofræðum
stjórnmálamanna fyrir kosningar,"
að minnsta kosti virðastþeir sjálfír
haida það. Ólafur Ragnar hefur til
dæmis ekki opnað munninn varð-
andi matarskatt frá því hann fékk
stól þrátt fyrir stóry rði í stórmörk-
uðum og fiskbúðum fy rir örfáum
árum. Það dettur hvort eð er engum
íhugaðkvarta.
-Elín Albertsdóttir
c