Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1990, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1990, Blaðsíða 2
2 MÁNUDAGUR 20. ÁGÚST 1990. Fréttir DV Vogalax: Um 500 milljóna gjaldþrot - risastórtilraunsemmistókst Hafbeitarstöðin Vogalax hefur ver- ið tekin til gjaldþrotaskipta. Talið er að skuldir stöðvarinnar nemi allt að 500 milljónum umfrám eignir. Meginástæða gjaldþrotsins eru lé- legar heimtur á laxi úr sjó. í ár er búist við um 1 prósent heimtum eða svipuðum og í fyrra. Eðlilegar heimt- ur eru hins vegar taldar um 7 pró- sent. Ekki liggur fyrir hvers vegna heimtur hjá Vogalaxi eru svona lé- legar. Meðal skýringa sem nefndar hafa verið má nefna að of mikið af hrognum hafi verið tekið úr laxi sem hafi verið tvö ár í sjó. Lax úr þessum hrognum hefur því erföafræöilega tilhneigingu til að vera tvö ár í sjó en talið er aö allt að 70 til 90 prósent af slíkum laxi drepist í sjó miöað við mun lægra hlutfall hjá löxum sem ganga í ár eftir eitt ár. Onnur skýring er sú að sjórinn fyrir utan stöðina hafi einfaldlega ekki boðið upp á næga fæðu handa þeim þremur millj- ónum seiða sem sleppt var í fyrra. Seiðin haíi því veslast upp og drepist fyrir utan stöðina. Þá hefur og verið bent á aö góðar heimtur hjá Vogalaxi í fyrstu megi að hluta tii skýra með því aö laxar s'em sluppu úr kvíum hafi gengið í stöðina og eins að laxar frá grannstöðinni Pólarlax hafi villst til Vogalax. Eins og sjá má af þessum skýring- um, sem kastað hefur veriö fram, er langt i land að traustur vísindalegur grunnur hafi verið undir starfsemi Vogalax. í raun hefur hvergi í heim- inum verið sleppt álíka magni af seiðum og Vogalax gerði. Það má því segja að starfsemi stöðvarinnar hafi verið risastór tilraun. Eins og DV hefur greint frá á Fram- kvæmdasjóður íslands útistandandi mikla fjármuni hjá fiskeldisstöðvum og hann hefur tapaö miklum hluta þeirra á undanfomum misserum. Við gjaldþrot Vogalax bætast um 70 milljónir viö. Þær eru tryggðar með veði í stöðinni sem ef til vill reynist verðlaus þar sem nánast ekkert fæst fyrir fjárfestingar í fiskeldi eftir hrun greinarinnar. -gse Það reynist nauðsynlegt að hreinsa göturnar öðru hverju og sprauta drullunni kröftuglega i burtu. Þessir hreinsun- arbilar eru hins vegar fremur illa þokkaðir af bileigendum þar sem drullugt vatnið á það til að slettast yfir nýbón- aða fjölskyldubíla. DV-mynd S Takmörkun vígbún- aðar í Norðurhöfum Ráðstefnu Alþjóðamálastofnunar Háskóla íslands og Henry L. Stimson Center um takmörkun vígbúnaðar og traustvekjandi aðgerða í höfun- um, sem haldin var á Akureyri, lauk fimmtudaginn 16. ágúst eftir tveggja daga umræður um það bil 30 sér- fræðinga og embættismanna frá Bandaríkjunum, Kanada, Hollandi, Spáni, Þýskalandi, Bretlandi, Dan- mörku, Noregi og íslandi. Utanríkisráðherra, Jón Baldvin Hannibalsson, flutti setningarræðu ráðstefnunnar og benti meðal annars á að vígbúnaöur í höfunum væri í reynd eina sviö vígbúnaðar sem enn væri ekki gert ráð fyrir í viðræðum um takmörkun vígbúnaðar og traustvekjandi aðgerðir. Norðurhöf væru einhver mikilvægasti vett- vangur flotaumsvifa í heiminum og á fáum svæðum væri jafnmikill fiöldi kjamorkuvopna. Ýmsir þátttakendur á ráðstefnunni lögðu mikla áherslu á pólitíska nauð- syn þes.sa að taka vígbúnað í höfun- um inn í samningaviðræður í því skyni að stuðla að uppbyggingu í samskiptum austurs og vesturs sem leiddi til varanlegs stöðugleika og jákvæðra samskipta í framtíðinni. Þá var bent á að væru Norðurhöf undanskilin í samningaviðræðum væru líkurnar fyrir aukinni spennu á norðurslóðum meiri en ella, enda giltu þar aðrar reglur um hemaðar- leg málefni en í Miö-Evrópu. -J.Mar Fróöir menn og konur hafa sjaldan séð eins mikiö af berjum um landið eins og i sumar, jafnvel er talað um metberjasprettu. En ekkert met i berjasprettu virðist ætla að veröa slegið i Heiðmörk í ár. Alla vega var lítið um ber um helgina er málið var kannað, eins og Petra Ingvarsdóttir gerir. Eitt og eitt ber á lyngi. DV-mynd G. Bender Innbrot og skemmdarverk á ísafirði Tvö innbrot vom kærð til lögregl- unnar á ísafirði um helgina. Brotist var inn á billiardstofu og þar var peningum og fleiru stolið. Málið er óupplýst. Einnig var brotist inn í byggingarvöruverslun kaupfélags- ins. Þar hurfu verkfæri og skot í naglabyssu. Þýfið fannst síðan í poka fyrir utan verslunina en ekki er vitað hver var aö verki. Átta rúður vom brotnar í ísafjarö- arbæ aðfaranótt laugardagsins. Tvær blómabúðir, sem eru hlið við hlið, urðu fyrir barðinu á skemmdar- vörgum. Fimm rúður voru brotnar í annarri búðinni en tvær í hinni. Ein rúða var síðan brotin í íbúðarhúsi. Lögreglan segir rúðubrot vera orðin algeng í bænum og brýna þörf vera orðna á átaki gegn þessari þróun. Ein líkamsárás var einnig kærð til lögreglunnar. Karlmaður hafði feng- ið glóðarauga í átökum við annan. Að sögn lögreglunnar valt steypu- bíll í Dýrafirði um helgina. Þar urðu engin slys á mönnum. Orsökin var aö vegkantur gaf sig með fyrrgreind- um afleiöingum. -ÓTT Sjóstangaveiði- mót á Eyjaf irði Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Sjóstangaveiðimenn víðs vegar af landinu munu mæta til leiks þegar 26. Akureyrarmótið verður haldið, fóstudaginn 31. ágúst og laugardag- inn 1. september, og er búist við mik- illi þátttöku. Mótiö er hið fyrsta í röð móta þar sem keppt er um íslandsmeistaratitla í sjóstangveiði, annað verður í Eyjum um hvítasunnuna á næsta ári og hið þriðja á ísafirði um mitt næsta sum- ar. Keppendur í mótinu á Eyjafirði halda til veiða snemma morguns fóstudaginn 31. ágúst og einnig dag- inn eftir en verða komnir í land um miðjan dag. Þá veröur afli vigtaður og flokkaður en mótinu lýkur síðan með hófi og verðlaunaafhendingu á Hótel KEA. Mótmæli kennara: Vitum ekkert um aðgerðirnar - segir Guöni Guömundsson „Við getum í raun ekkert gert því við vitum ekki neitt um þessar að- gerðir," sagði Guðni Guðmundsson, rektor við Menntaskólann í Reykja- vík, þegar hann var spurður að því hvort skólayfirvöld viö MR hygöust á einhvern hátt bregðast við aðgerð- um kennara í haust. - En nú er ekkert leyndarmál að kennarar hyggja á skærur? „Við getum ekki fengið nein svör við því hvað við er átt. Félagið sem slíkt getur ekki ákveðið neitt þannig að þetta er spurning um það hvað einstaklingarnir gera. Hvað kemur upp er engin leið að spá fyrr en skól- inn byrjar," sagði Guðni en MR byrj- ar mánudaginn 3. september. -SMJ Leit að sæsleða- köppumínótt Björgunarsveitin Albert á Sel- Ijóslaus og var farið að óttast um tjarnarnesi var kölluð út til að leita sæþórana í myrkrinu. Björgunar- að tveimur sæsleðaköppum á öörum sveitarmenn fundu þá síðan heila á tímanum í nótt. Farartækin voru húfi. -ÓTT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.