Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1990, Side 13
MÁNUDAGUR 20. ÁGÚST 1990.
13
DV
Lesendur
Af brotamenn í öryggisgæslu
Öryggisfangi skrifar:
Frá árinu 1970 hafa alls 15 manns
verið úrskurðaðir í öryggisgæslu,
og hafa þeir setiö inni í 2 til 10 ár.
í dag eru alls 5 menn í öryggis-
gæslu. Einn þeirra er á Litla-
Hrauni, einn er á Vogi, tveir eru í
Svíþjóð og svo sá er hér heldur á
penna sem dvelst á F.S.A.
Svíþjóðarfangarnir eru á lokaðri
deild í algjörri einangrun. Afbrota-
mannadeildin á Vestervik í Svíþjóð
er reyndar eins og rammgert fang-
elsi, með rimlum fyrir gluggum,
strangri gæslu og engri útivist
nema í fangelsisgarði. Það er dýrt
að kaupa þessa þjónustu af Svíum.
Sólarhringurinn þar kostar um 20
þúsund kr. íslenskar á dag en það
gerir um 8 milljónir á mann á ári.
- þar eru þeir nánast eins og rifnir
upp með rótum frá sínu eigin sam-
félagi, ókunnugir menn í framandi
landi.
Það er áhtamál hvort afbrota-
hneigð sé ekki sjúkdómur eða
hvort hægt sé að kveða skýrt upp
úr um það hverjar ástæður afbrota
eru. Fangar fá að vísu læknisþjón-
ustu, félagsráðgjöf og viðtalstíma
hjá afbrotafræðingi en ekkert fast
skipulag er á því. - Almennir fang-
ar gætu notiö góðs af deild eða
stofnun fyrir ósakhæfa geðveika
afbrotamenn. Þeir geta veikst eins
og annað fólk og þá þurft á þessari
þjónustu að halda.
Yfirlæknir Kiepps- og geðdeilda
Landspítalans hefur lengi vel neit-
að að taka fanga inn á geðdeildir
ríkisspítalanna. Almennir fangar
gætu þurft á tímabundinni geð-
hjúkrun að halda eins og dæmið
sannar sem kom upp nú í sumar.
Þar var fanga mismunað vegna
dóms þess sem hann hafði hlotið,
og var hann vistaður í fangelsi.
í athugun er hjá mér að höfða
mál, í samráði við fangahjálpina
Vernd, og stefna dómsmálaráð-
herra fyrir vanrækslu í málefnum
öryggisgæslufanga. - Ekkert „við-
eigandi hæli“, sbr. hegningarlög,
er starfrækt og ég hyggst fá yfir-
menn dómsmála í landinu skyld-
aða með dómi til að hlutast til um
aö hæli þetta verði stofnsett svo
fljótt sem kostur er.
Þetta er að sjálfsögðu spuming
um mannréttindi og réttlæti fyrir
öryggisgæslufanga. Þessu máli
mun ég vinna að á vetri komanda.
Möguleiki er að koma upp bráða-
birgðaaðstöðu, t.d. á deild 33 E á
Landspítaianum. Ég tel það brýnt
að réttur þeirra sem eru á öryggis-
gæsludómi verði tryggður á mann-
sæmandi hátt. Málin eru í algjörum
ólestri og tími tii kominn að að-
hafast eitthvað í þessum málum.
(Bauknecht
ÞÝSK GÆÐATÆKIÁ GÓÐU VERÐI
Hugmyndir til að nýta SS-húsið:
Nýtt baðhús eða langleguspítali
Dagný húsmóðir skrifar:
Mig langar til að koma á framfæri
hugmyndum um hvemig megi nota
þetta margumrædda SS-hús sem
Sláturfélag Suðurlands er aö vand-
ræðast með og vill helst að ríkið
kaupi, rétt svona einn, tveir og þrír.
Þar sem gera má ráð fyrir að þetta
hús standi nú þarna nokkra áratugi,
úr því það var byggt, má hka gera
því skóna að það verði notað í þágu
einhverra þegar og ef að þvi kemur
að það verður selt.
Auðvitað eru skattborgarar á móti
hvers konar afskiptum ríkisins af
þessu máli og þá fyrst biti það höfuð-
ið af skömminni ef það færi að festa
kaup á SS-húsinu fyrir starfsemi sem
ekki er nauðsynlegt að ríkið sjái fyr-
ir, svo sem óperuhús, tónlistarhús,
safnhús eða eitthvað í þá veru.
Hins vegar má til sanns vegar færa
að ef ríkið kemur þarna nærri þá sé
það með þvi skilyrði, aö húsið verði
notað til starfsemi sem brýnt er að
hýsa og er sannanlega á hrakhólum.
Þama vil ég koma með eftirfarandi
hugmyndir: Annaðhvort verði þarna
komið á fót nýju baðhúsi Reykjavík-
ur sem mikil þörf er á hér i borg eins
og annars staðar í borgum erlendis.
- Eða þar verði komið upp langlegu-
plássum fyrir aldraða.
í Reykjavík eru margir þótt ótrú-
legt sé sem ekki hafa aðgang að baði,
eða geta ekki sjálfir séð um sig í þeim
efnum. Hér er aðallega um að ræða
aldraða sem ekki vilja eða geta farið
t.d. í sundlaugar og verða að fá að-
stoð við böð í heimahúsum þar sem
alls ekki er nógu góð aðstaöa þegar
kemur að öldruðu eða lasburða fólki.
- Þarna mætti koma upp allsherjar
baöaðstöðu og annarri skyldri þjón-
ustuaðstöðu, gufuböðum og heilsu-
böðum af ýmsu tagi líkt og maður
hefur séð í hinum vinsælu og þekktu
bæjum í Evrópu og víðar.
Langleguspítah er annað sem hér
sárvantar og langlegupláss eru engin
til í Reykjavík í dag. Fólk bíður nán-
ast örmagna eftir því að pláss losni
á hinum og þessum stofnunum, en
úrlausn virðist ekki framundan. -
Ég er þess fullviss að ef einhver hús-
næöiseigandinn aö stórbyggingu eða
sæmilegu húsnæöi (þarf ekki endi-
lega að vera stórhýsi) innréttaði hús-
næðið með tilliti til langlegusjúkl-
inga, keypti rúm og innréttaði á ann-
an viðunandi hátt, myndi hann fá
arðvænleg viðskipti á stundinni. -
En hér eru mínar hugmyndir, aðrir
koma svo e.t.v. með sínar.
Baðhús eða langlegudeild? Þörf á
hvoru tveggja. - Síðasta baðhúsið í
Reykjavík stóð við Grandagarð þar
sem nú er Grandakaffi.
flflflf
S SAMBANDSINS
HOLTAGÖRÐUM SÍMI 68 55 50
VID MIKLAGARÐ
& KAUPFÉLÖGIN
omRon
SJÓÐSVÉLAR
Gera meira
en að uppfylla
kröfur
fj ármálar áðuneytisins.
Yfir 15 gerðir fyrirliggjandi
Verð frá kr. 26.400.-
SKRIFSTOFUVÉLAR sund hf
HVERFISGÖTU 33 - SÍMI 623737 NÝBÝLAVEGI 16 - SÍMI 641222
■tækni og þjönusta á traustum grunni
ALAN Á FULLU
KlblIÍ
Sendum i póstkröfu
< humnél
JLA 40, REYKJAVlK, SÍMI 83555
RGI 11,2. HÆÐ, SELTJ. SiMI 611055.