Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1990, Qupperneq 24

Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1990, Qupperneq 24
32 MÁNUDAGUR 20. ÁGÚST 1990. Fréttir Ný umferðaræð um Sæbraut - framkvæmdum lýkur í næsta mánuöi Nú standa yfir miklar vegafram- kvæmdir viö Sætún og Skúlagötu. Verið er að tvöfalda Sætúnið frá Kringlumýrarbraut að Kalkofnsvegi en þar mun í framtíðinni verða um- ferð í tvær áttir meö eyju á milli. Nýi vegurinn liggur töluvert neðar eða næstum alveg í íjöruborðinu. Stefnt er að að þessum framkvæmdum ljúki í næsta mánuði. Nafni Sætúnsins verður breytt í Sæbraut og Skúlagat- an verður gerð að rólegri húsagötu. Gatnaframkvæmdirnar eru nú komnar alveg að Ingólfsgarði en þar mun vegurinn verða tekinn í boga inn á Kalkofnsveginn. Til að geta það reynist nauðsynlegt að brjóta niður lágan vegg sem þar skilur á milli. Þessi veggur er hlaðinn úr hand- höggnu grjóti úr Öskjuhlíðinni. Að sögn Inga Ú. Magnússonar gatna- málastjóra verður þessu grjóti ekki hent heldur verður það notað í hleðslur við opinberar byggingar og í garða borgarinnar. Ingi segir að í framhaldi af þessu verði hugað að umferðarhnútnum sem iðulega myndast í Tryggvagöt- unni. Það hefur komið til tals að taka veginn niður fyrir Hafnarhúsið en ennþá hefur ekkert verið ákveðið með það. Formaður og varaformaður Verkamannasambands íslands, þeir Guðmund- ur J. Guðmundsson og Karl Steinar Guðnason, fylgjast af athygli með upp- boðshaldi í Fiskmarkaði Suðurnesja. Þessi fiskmarkaður starfar á ýmsan hátt öðruvísi en aðrir markaðir því uppboðshaldið fer fram í gegnum tölvur. DV-mynd ÆgirMár :■'.. : úr Öskjuhliðinni, verður að vikja fyrir gatnaframkvæmdum DV-mynd Sveinn Þessi veggur, sem hlaðinn er úr handhöggnu grjóti við Sæbrautina. Vandamál velferðarþjóðfélagsins Margt hefur verið rætt og ritað um bráðabirgðalög ríkisstjórnar- innar á samninginn við BHMR. - Sjálfstæðisflokkur og Kvennalisti krefjast afsagnar ríkisstjórnarinn- ar og að efnt verði til kosninga sem fyrst. Varla getur það verið af um- hyggju fyrir þjóðfélaginu. Skyldi Þorsteinn Pálsson hafa gleymt því að hann setti í stjórnar- tíð sinni lög sem afnámu öll helstu grundvallarréttindi alls launa- fólks? Þessi lög afnema þó hvorki samnings- né verkfallsrétt og þorri launafólks áttaði sig áreiðanlega á því að þau voru óumflýjanleg eins og málin stóðu. - Engan langaði víst til að verðbólgan ryki upp í þá tölu, sem ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar skildi við hana í. Líklega hefur flestu láglaunafólki fundist að þær fórnir sem það hafði fært í þjóðarsáttinni, svokölluðu, væru fullmiklar til þess að sætta sig við að enginn árangur næðist í baráttunni og aldrei hefur fylgi rík- isstjórnarinnar veriö meira en nú eftir skoðanakönnunum að dæma. Fólk vill vafalaust sjá hvort ríkis- stjómin getur eða vúl efna loforð sín um eitt og annað t.d. niðurfell- ingu lánskjaravísitölu svo eitthvað sé nefnt. - Kannski fækkaði þá eitt- hvað þeim sem verða að missa íbúðir sínar á nauðungaruppboð. - En Sjálfstæðisflokkur og Kvenna- hsti hafa líklega takmarkaðan áhuga fyrir slíku. Viðhorf þessara flokka er ótrú- lega ábyrgðarlaust, að vilja etja þjóðinni nú út í kosningar og kannski langvarandi stjórnleysi. KjaUarinn Aðatheiður Jónsdóttir verslunarmaður Tilvistarkreppa Kvennalistans Pólitískur ferill Kvennahstans er heldur dapurlegur. Líklega hefur þaö undarlega mikla fylgi sem skoðanakannanir veittu honum, stigið konunum svo til höfuðs að þær þorðu ekki að gera eitt eða neitt af ótta við að þá væri allt búið. - Þess vegna tóku þær líka þann kost að hjúfra sig upp að íhaldinu fremur en verða virkar í stjórnar- samstarfi. Að sjálfsögðu vissu þær að þaö yrði ekki vinsælt verk að glíma við vandann sem ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar arfleiddi komandi ríkis- stjórn að og að taka þátt í slíku vantaði þær allan vilja. Þrátt fyrir skýr fyrirmæh frá kjósendum, sem ætluðust til að Kvennahstinn yrði ábyrgur stjórnmálaflokkur, en til þess skorti þær hugsjónir og pólit- ískt þrek. - Síðan hafa þær líka fundið sér það einkar verðuga verkefni að dansa hringdans við íhaldið, bæði í stjórnarandstöðu og í borgarstjórnarkosningunum. - Þess vegna vildu þær engan þátt eiga í sameiginlegu framboði allra minnihlutaflokkanna gegn Sjálf- stæðisflokki. Þær töldu það reyndar alveg ótrúlega kvenfyrirlitningu að bjóða þeim slíkt. - Og eftir að hafa halldið fund um málið sendu þær Sigríði Dúnu Kristmundsdóttur - eöa var það kannski Friðrik Sophusson? - með skýrt og skorinort „nei“. - Þær hefðu nú ekki átt annað eftir íhaldskonurnar í henni Reykjavík en fara að reyna að fella átrúnaðar- goðið sitt, blessaðan drenginn hann Davíð. Svartir blettir samfélagsins Hvað varðar samninga BHMR sýnist ofureðhlegt að stéttarfélag sem samið hefur um bætt kjör taki því ekki eins og sjálfsögðum hlut að þegar við er litið sé það afnumið meö lögum, og varla getur ríkis- stjórn, sem gerir samning, er kallar á slíka neyðarráðstöfun, verið stolt af vinnubrögðunum, - En hvað um það... Við skulum vona aö hún lendi ekki í fleiri umferðarslysum á ferli sínum. Það er ansi margt í okkar marg- rómaða velferðarþjóðfélagi, sem þarfnast endurskoðunar og lagfær- ingar. - Einhver svartasti blettur- inn er ranglát tekjuskipting. Það ætti vissulega að vera lág- markskrafa að dagvinnulaun nægöu fyrir framfærslukostnaði. - En svo hrikalegt er launamisréttið að mánaðarlaunin geta verið allt frá 50 þúsund upp í eina milljón króna eða jafnvel meira. Þetta er sameiginlegur smánar- blettur verkalýðshreyfingar, vinnuveitenda og ríkisvalds. Hvort sem með völd hafa farið flokkar til hægri eða sem telja sig verkalýðs- flokka. Það hlýtur að vera illa ráðstafað tekjum þeirrar þjóðar sem telst með tekjuhæstu þjóðum heims, þegar þeir sem afla teknanna geta ekki lífað af laununum sínum. - Við vitum reyndar í stórum drátt- um hvemig þeim er varið... Að mörgum tugum milljarða er fleygt í óarðbærar, afdankaðar og illa reknar atvinnugreinar. - Og alltaf er eins og hringavitleysan versni með hverju ári. Glataðar hugsjónir Verkalýðshreyfingin mætti láta meira til sín taka, en hún gerir, hvernig þjóðartekjunum er varið. En hún hefur því miður glataö neistanum og virðist hafa þurrkað út jafnréttishugsjónina. - Það er hennar vandamál. Hún sættir sig við að þeir sem eru í neðri þrepum launastigans geti ekki hfað nema leggja á sig óhóflega yfirvinnu. Það er líka stórt vandamál að hér er enginn raunverulegur verka- lýðsflokkur til og þar er Kvenna- listinn ekki undan skhinn enda hefur hann fengiö sinn dóm hjá kjósendum eins og hinir. Kvennalistinn varð th fyrir nokkrum árum vegna þess að hinir flokkarnir höfðu brugðist. - Nú skilst mér að hann hafl tæmt tíma- glas sitt. Kannski hafa konurnar nú áttað sig á því að það er ekki traust fylgi sem einungis byggist upp á óvin- sældum annarra. En þær áttu valið og vildu vera ábyrgðarlausar... hins vegarmega þær gjaman átta sig á að með ábyrgðarleysi sínu bera þær að hluta til ábyrgð á ófremdarástandi, sem þær vildu engan þátt eiga í að breyta. Aðalheiður Jónsdóttir „Fólk vill vafalaust sjá hvort ríkis- stjórnin getur eða vill efna loforð sín um eitt og annað, t.d. niðurfellingu lánskjaravísitölu, svo eitthvað sé nefnt.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.