Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1990, Qupperneq 25
MÁNUDAGUR 20. ÁGÚST 1990.
33
LífsstOI
Brúðkaup:
Drukknar rómantíkin í kostnaði?
- hálf milljón ekki óraunhæf tala
Kirkjubrúökaup meö öllu tilheyr-
andi hafa á undanfórnum árum notið
vaxandi vinsælda. Er þaö nokkuð
sem fólk hugsar sér að gera aðeins
einu sinni á ævinni, ef það á annað
borð giftir sig. Það er líka eins gott
því kostnaður við athöfnina og veg-
lega 100 manna veislu er í kringum
500 þúsund krónur.
DV tók úttekt á því hversu miklum
fjármunum þyrfti að verja í athöfn-
ina og veisluhöldin. Leitað var upp-
lýsinga hjá aðilum víðs vegar um
bæinn. Er dæmið, sem sett er upp,
ímyndað og miðað við nokkurs kon-
ar meðalverð. Kostnaður getur verið
bæði meiri og minni en tölurnar
sýna. Niðurstöður komu á óvart þar
sem kostnaður reyndist verulegur
og hugsa margir sig sjálfsagt tvisvar
um áður en stóra skrefið er stigið.
Brúðarkjóllinn, kjólfötin. . .
Að mörgu þarf að gæta en það
fyrsta sem kemur upp í hugann er
brúðarkjóllinn. í dæminu er miðað
við að kjóllinn sé saumaður og að
saumaskapurinn kosti 25.000 krónur.
Notað er tæsilki og fara um 5-6 metr-
ar í kjólinn sjálfan. Þá er ótalinn
kostnaður við slörið og höfuðbúnað-
inn sem við bætist. Leigður kjóll er
mun ódýrari og er hægt að fá mjög
fallegan kjól, alskreyttan perlum og
slaufum, fyrir 15.000-17.000 krónur.
Kostnaður við fatnað herrans er
ekki minni og er reiknað með aö
hann sé hinn glæstilegasti í kjól og
hvítu. Fötin og allt tilheyrandi; hvítt
vesti, skyrta, hanskar, slaufa og
fleira, kostar um 48.000 krónur. Leigð
föt eru hins vegar mun ódýrari og
er hægt að fá góð fót á 3.700 krónur.
Skór á hjónakornin verðandi kosta
litlar 20.000 krónur. 10.000 krónur á
hvort um sig.
Þau hafa með sér eina brúðarmey
og einn brúðarsvein en leigja á þau
fötin. Kostar það samanlagt tæpar
4.000 krónur.
Hringarnir eru að sjálfsögðu
ómissandi og ef keyptir eru þriggja
millimetra gullhringar, sem viröist
vera algengt, kostar parið um 16.000
krónur.
Púða undir hringana er gaman að
hafa og heyrir kostnaður við það
undir liðinn annaö.
Brúðurin þarf að skarta síríu feg-
ursta og leitar þar af leiðandi til fag-
manna sem sjá um snyrtingu og hár-
greiðslu. Á laugardegi er taxtinn 20%
hærri en á virkum degi og eru greidd
um 4.500 fyrir þjónustuna. Oft á tíð-
um fara væntanlegar brúðir í auka-
lega snyrtingu, svo sem handsnyrt-
ingu éða andlitsbað. Aukinn kostn-
aður fylgir því að sjálfsögðu.
Til að auka á stemninguna eru
blómaskreytingar ómissandi. Brúð-
urin þarf að bera blómvönd og brúð-
guminn þarf að vera með blóm í
barminum. Bíllinn er skemmtilegri
skreyttur borðum og þarf að sjá til
þess að hann sé sem fallegastur.
Blómaverslanir sjá um þjónustu sem
þessa og ef reiknað er með fallegum
skreytingum og aö annaö sé vel úr
garði gert er hægt að reikna með
25.000 krónum. Hitt er svo annað mál
að margir leggja út í mun meiri
kostnað vegna þessa og greiða allt
að 50 þúsund krónur.
Gefin saman
Nú er kærustuparið komið í sitt
fínasta púss og þá er eftir að gefa þau
saman. Presturinn tekur 3.000 krón-
ur fyrir þjónustu sína og bætast um
1.800 krónur við þegar greitt hefur
verið fyrir afnot af kirkjunni. Organ-
isti, sem fenginn er til að spila, kost-
ar 3.500 krónur, en verðið hækkar
ef hann leikur einnig fyrir athöfnina
og er þá orðið 5.000 krónur. Nú viija
margir hafa söngvara að auki og
kostar hann 4.500 krónur. Það er þó
ekki nauðsynlegt að kaupa alla þessa
þjónustu og er hægt að koma með
þann prest, söngvara eða organista
sem menn kjósa sjálfir.
Góða veisiu gjöra skal
Að lokinni athöfn er boðið til veislu
og er kalt borð á boðstólum. Dreypa
skal á kampavíni og koníak drukkiö
með kaffinu. Kransakakan er með
súkkulaðiskreytingum.
Salarleiga er innifalin svo og gos,
freyðivín, matur, kaffi og koníak. Er
reiknað með að herlegheitin kosti
2.700 krónur fyrir manninnn sem
gerir 270.000 krónur ef reiknað er
með að 100 manns komi til veislunn-
ar. Það er ekki óraunhæf tala þó
margir reikna með í upphafi að
veislugestir verði færri. Þegar boð
eru send út komast flestir að raun
um að fjölskyldan er stærri en hugað
var og að vinsældir í vinahópi meiri
en ætlað var í fyrstu.
Ef reiknað er síðan með tveimur
50 manna kransakökum, sem hvor
um sig kostar tæpar 10.000 krónur,
Kostnaður vegna brúðkaups
Kr.
Brúðarkjóll 42.000
Kjólföt 48.000
Brúðarmeyjarkjóll 2.000
Brúðarsveinsföt 1.900
Herraskór 10.000
Dömuskór 10.000
Hringar 16.500
Brúðarvöndur og skreytingar 25.000
Hárgreiðsla og snyrting 4.500
Prestur 3.000
Kirkja 1.800
Organisti 3.500
Kalt borð, drykkir, kaffi (100x2.700)... ...270.000
Kransakaka (2x10.000) 20.000
Boðskort 5.000
Myndataka 15.000
Hótel
Annað 10.000
Samtals ...495.700
Miðað er við 100 veislugesti
hefur nokkrum tugum verið bætt við
dæmið.
Niðurstöðutalan verður lægri ef
reiknað er með pinnamat, sem marg-
ir kjósa að veita gestum sínum nú til
dags. Að sama skapi hækkar verð ef
boðið er upp á heitan mat og ef vín
er ríflega veitt.
Annað? Hvað meira!
Ekki má gleyma í upphafi að senda
út boðskort því annars eru líkur á
því að enginn mæti. Þau kosta um
5.000 krónur og er þá ekki innifalinn
kostnaður við frímerki. Margir
senda einnig þakkarkort eftir brúð-
kaupið til þeirra sem komu og er sá
kostnaður ekki reiknaður inn í dæm-
ið.
Myndatöku má ekki sleppa ef
minningarnar eiga að lifa og er
reiknað með 15.000 krónum í þann
kostnaðarlið. Fá menn fyrir þann
pening um það bil 12 blandaðar
Brúðkaup með hefðbundnu sniði hafa notið vaxandi vinsælda síðustu ár
en kostnaðurinn kemur eflaust mörgum til að hugsa sig tvisvar um.
my ndir, svartar og hvítar. Kostnaður
við myndatöku er þó jafnmisjafn og
uppstillingar eru margar og þarf að
fá góðar upplýsingar um hvað í boði
er þegar spáð er í verð.
Að lokum er reiknað meö að ný-
gifta parið stingi af og njóti nýfeng-
innar sælu í fínasta hótelherbergi
sem völ er á. Það kostar 7.500 krónur
og er innifalið í því verði falleg
ávaxtakarfa og freyðivínsflaska.
Lúxusferðirtil framandi landa
Kostnaður getur orðið mun meiri
eða mun minni en þessar tölur sýna
og fer það eftir efnum og aðstæðum
hverju sinni hver endanleg tala verð-
ur.
Það má hins vegar geta þess í
gamni að fyrir sömu upphæð má
fljúga í kringum hnöttinn, fara í lúx-
usferðir til Tælands, Brasilíu og til
ótal annarra áfangastaða. -tlt
niottu og TIPPA
20*50%
Gram
Tcpp«
afsláttur
FRKKIKBEKTBSEN
TEPPAVERSLUN
FMDRIKS BERTELSEN
FÁKAFEN 9 - SlMi 686266
\