Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1990, Side 26
34
MÁNUDAGUR 20. ÁGÚST 1990.
Fólk í fréttum
Hannes Hlífar Stefánsson
Hannes Hlífar Stefánsson, alþjóð-
legur skákmeistari, vann alþjóðlegt
mót í Gausdal í Noregi og náði þá
fyrsta áfanga stórmeistaratitils.
Hannes Hlífar er fæddur 8. júlí 1972
í Rvík og lærði að tefla fimm ára.
Hann gekk komungur í Taflfélag
Reykjavíkur og varð skákmeistari
þess 1986, unglingameistari 1981 og
1987 og vann einstaklingskeppni í
norrænni skólaskák 1983-1987 og
1990. Hannes varð skólaskákmeist-
ari Reykjavíkur í yngri flokki 1984
og skólaskákmeistari íslands í Bol-
ungarvík 1984. Hann varð drengja-
meistari íslands í flokki fjórtán ára
og yngri 1984-1986 og í þessum ald-
ursflokki á skákþingi Reykjavíkur
1985 og haustmóti TR1985. Hannes
varö skólaskákmeistari Reykjavík-
ur í eldri flokki 1986,1987 og skóla-
skákmeistari íslands sömu ár. Hann
varð heimsmeistari unglinga í skák
sextán áraog yngri í Innsbruch í
Austurríki í maí 1987 og náði fyrsta
áfangaalþjóðlegs meistaratitils í
nóvember 1987 á alþjóðlegu skák-
móti í Njarðvík, öðrum áfanga á
Reykjavíkurskákmótinu 1988 og
þriðja áfanga á íslandsmótinu í
Hafnarfirði 1988, Hannes varð sig-
urvegari á IBM skákmótinu í Rvík
1988. Hannes Hlífar á tvo hálfbræð-
ur: Þráin Vigfússon, viðskiptafræði-
nema í HÍ, og Friðrik Öm Egilsson
raftæknifræðing.
Foreldrar Hannesar: Stefán Hann-
esson, kennari í Rvík, sem lést 1974,
og Sesselja Friðriksdóttir matráðs-
kona. Stefán var sonur Hannesar,
póstfulltrúa í Rvík, Árnason, b. á
Krossgerði á Berufjarðarströnd,
bróður Gísla, afa Jóhannesar Gunn-
arssonar, formanns Neytendasam-
takanna. Móðir Árna var Málm-
fríöur, systir Sigríðar, móður Jóns
Helgasonar prentsmiðjustjóra og
ömmu Vals Gíslasonar leikara, föð-
ur Vals bankastjóra. Málmfríður
var dóttir Gísla, b. í Krossgerði,
Halldórssonar, b. í Krossgerði,
Gíslasonar, bróður Brynjólfs, lang-
afa Ólafs Daviðssonar hagfræðings.
Móðir Hannesar var Hansína, systir
Þórðar, fóður Bjama, bæjarstjóra á
Neskaupstað. Hansína var dóttir
Bergsveins, b. í Urðarteigi, Skúla-
sonar.
Móðir Stefáns er Hlíf Bjamadóttir,
vinnumanns á Ósi í Breiðdal,
Snjólfssonar. Móðir Bjarna var
Hólmfríður, systir Jóhönnu,
langömmu Más Elíssonar. Móðir
Hlífar var Dagrún, systir Jónínu,
ömmu Atla og Jóhannesar Eðvalds-
sona knattspyrnumanna. Dagrún
var dóttir Sigurðar, b. á Grjótáreyri
í Seyðisfirði, Sveinssonar, b. í Mjóa-
nesseli, Vigfússonar. Móðir Sveins
var Þuríður Vigfúsdóttir, b. í Flögu,
Hildibrandssonar. Móðir Þuríðar
var Sigríður Erlendsdóttir, b. á
Ásunnarstöðum í Breiðdal, Bjarna-
sonar, ættfóður Ásunnarstaðaætt-
ar, fóður Þorbjargar, langömmu
Vilhelms, afa Alberts Guömunds-
sonar. Dóttir Erlendar var einnig
Guðrún, langamma Bóelar,
langömmu Geirs Hallgrímssonar.
Sesselja er dóttir Friðriks, b. og
hreppstjóra í Hvestu í Arnarfirði,
Jónssonar, b. í Neðri-Hvestu, Jóns-
sonar, b. í Neðri-Hvestu, Jónssonar,
b. á Núpi í Dýrafirði, Magnússonar.
Móðir Jóns eldra í Hvestu var
Ástríður Gísladóttir, systir Odds,
langafa Guðmundar G. Hagalín rit-
höfundar. Móðir Ástríðar var Mar-
en Guðmundsdóttir. Móðir Marenar
var Sólveig Þórðardóttur, stúdents
í Vigur, Ólafssonar, lögsagnara á
Eyri, Jónssonar, ættfoður Eyrar-
ættar, langafa Jóns forseta. Móðir
Friðriks var Sesselja Guðbrands-
dóttir, b. og smiðs á Hvalskeri við
Patreksfjörð, Magnússonar, og
konu hans, Veróniku Árnadóttur.
Móðir Sesselju var Sigríður, kenn-
ari, Þórðardóttir, b. í Eystri-Hóli í
Landeyjum, Tómassonar, bróður
Ingibjargar, ömmu Guðrúnar
Helgadóttur alþingismanns. Móðir
Þórðar var Jóhanna Jónsdóttir,
prests í Kálfholti, Sigurðssonar, sem
var talinn launsonur Jóns Þorláks-
sonar, prests og skálds á Bægisá.
Móðir Jóhönnu var Guðný Jóns-
dóttir, b. á Kirkjubæjarklaustri,
Magnússonar, föður Þórunnar,
ömmu Jóhannesar Kjarval. Móðir
Sigríðar var Guðrún, systir Boga
yfirkennara og Jóns, bankastjóra.
Hannes Hlífar Stefánsson.
Guðrún var dóttir Ólafs, b. í Sumar-
liöabæ í Holtum, Þórðarsonar, og
konuhans, GuðlaugarÞórðardótt-
ur, b. í Sumarliðabæ, Jónssonar.
Móðir Ólafs var Helga Gunnars-
dóttir, b. í Hvammi, Einarssonar,
og konu hans, Kristínar Jónsdóttur,
b. á Vindási, Bjarnasonar, b. á Vík-
ingslæk, Halldórssonar, ættföður
Víkingslækjarættarinnar.
Afmæli
Guðmundur Valberg Sigurjónsson
Guðmundur Valberg Sigurjónsson
vélfræðingur, Kambaseli 69,
Reykjavík, er sextugur í dag.
Guðmundur fæddist á Lindargötu
8E (nú 26), Reykjavík. Hann fluttist
í Borgames 1936 með foreldrum sín-
um, ólst þar upp og lauk bama-
skóla. Síðast var hann hjá frænku
sinni, Margréti Jónsdóttur í Dal, er
foreldrar hans fluttust aftur til
Reykjavíkur.
Fyrsta starf Guðmundar í Reykja-
vík var árið 1944, sendilsstarf í
Þvottahúsi Reykjavíkur við Vestur-
götu en þá átti hann heima á Sund-
laugarvegi 10. Hann var seinna
verslunarmaður hjá Silla og Valda
á Vesturgötu 29. Guðmundur var í
kvöldskóla KFUM1945 og gagn-
fræðingur frá Gagnfræðaskóla í
Reykjavík árið 1949. Hann var í Iðn-
skólanum í Reykjavík 1956, lauk
sveinsprófi í vélvirkjun 1957, í Vél-
skóla Islands 1959 og fékk meistara-
réttindi áriðl965.
Lengst hefur Guðmundur starfað
sem vélsfjóri á farmskipum. Sitt sjó-
mannsstarf hóf hann 1948 sem kola-
mokari (lempari) á es. Reykjafossi I
(Katla I). Hann hefur verið skráður
í skipsrúm í tæp 30 ár, síðast hjá
Skipadeild Sambandsins 1979-1989.
Guðmundur vann við vélaviðgerðir
og eftirlit á Keflavíkurflugvelli um
tíma og var með sjálfstæðan at-
vinnurekstur í Reykjavík í nokkur
ár. Hann hefur unnið töluvert viö
skriftir, sögur, ljóð og síðustu ár
hefur hann mikið unnið í ýmsum
fróðleik um ættfræði.
Guðmundur giftist þann 15. októb-
er 1960 Dagný Jónsdóttur, bakara,
Jónssonar, verkamanns, Halldórs-
sonar, og Adile Ragnheiðar Christ-
iansen. Guðmundur og Dagný slitu
samvistum 1978.
Systkini Guðmundar: Jóhann Val-
berg, f. 23. janúar 1925, útvarpsmað-
ur, kona hans er Lára Árnadóttir
og eiga þau fimm börn, níu barna-
börn og fjögur bamabarnabörn;
Sigríur Þóra, f. 3. nóvember 1926,
fyrrverandi matráðskona, hún á
fiögur böm og fimm barnabörn;
Olafur Valberg, f. 7. júní 1928, vél-
stjóri og kaupmaður í Svíþjóð, kona
hans er Ingibjörg Jóna Gunnlaugs-
dóttir og eiga þau fiögur börn og tíu
bamabörn; Jón Valberg, f. 9. ágúst
1932, matsveinn, hann á sex börn
og átta bamaböm; Sigurjón Ari, f.
4. september 1937, stórkaupmaður,
kona hans er Þóra Gunnarsdóttir
og eiga þau þrjú börn og eitt barna-
barn; og Erla, f. 16. janúar 1942,
maður hennar er Guðmundur
Gíslason aðstoðarbankastjóri og
eiga þau tvær dætur og tvö barna-
börn.
Foreldrar Guðmundar era Sigur-
jón Jóhannsson, fyrrverandi yfir-
vélstjóri, f. 30. ágúst 1898 í Flatey á
Breiðafirði, og Jóna Guörún Þóröar-
dóttir, f. 3. september 1904 í Reykja-
vík, d. 27. október 1985.
Sigurjón var sonur Jóhanns Guð-
jóns Arasonar, skipstjóra í Flatey,
og Valborgar Sigrúnar Jónsdóttur
frá Þormóðsey. Ari var smiður og
skáld í Flatey, Steinsson, hákarla-
Steins Sveinssonar. Kona Ara var
Guðrún Jónsdóttir, Jónssonar, b.
Grónesi og Guðrúnar Jónsdóttur,
Einarssonar, frá Svefneyjum,
Sveinbjarnarsonar, Gíslasonar,
Sveinbjamarsonar, Árnasonar,
prests í Hvallátrum. Jón b. í Gróu-
nesi var Jónsson, hreppstjóra, Sig-
urðssonar, og Guðrúnar Snjólfs-
dóttur, Jónssonar, b. á Hallsteins-
nesi, Snjólfssonar, bónda á Borg og
Hríshóli í Reykhólasveit, Oddsson-
ar, Jónssonar.
Ari var sonur Eiðvarar Sveins-
dóttur, hreppstjóra, smiðs og sjó-
manns í Hergilsey, Einarssonar,
Jónssonar, hrekks, lrm. Einarsson-
ar á Hreggstöðum og Steinunnar
Eggertsdóttur, betri b. og sjómanns,
Ólafsson, er átti Hergilsey.
Valborg Sigrún Jónsdóttir var
dóttir Jóns Þorvaldssonar, b. á Ref-
stöðum í Laxárdal og Sigurlínu Ing-
veldar Jónsdóttur.
Móðir Guðmundar var Jóna Guð-
rún Þórðardóttir, Jónssonar, b. á
Skipanesi í Melasveit, síðast í Borg-
arnesi, Benediktssonar, b. í Grísa-
tungu, Jónssonar, b. á Balaskarði í
Engihlíðarhreppi, Hún., Jónssonar,
b. s. st., Einarssonar, b. Efri-Mýri,
Marteinssonar. Móöir Jóns Ben. var
Þórdís Halldórsdóttir, Jónssonar, b.
á Kalastöðum, Þorsteinssonar, frá
Miðfelli í Kjós. Móðir Þórdísar var
Rannveig Jónsdóttir, b. á Brekku,
Hvalfiarðarströnd, Klemenssonar,
Oddssonar frá Engey. Kona Jóns
Ben. var Guðrún Þórðardóttir, Ás-
mundssonar, Þórðarsonar, prests í
Hvammi, Þorsteinssonar, prests,
Þórðarsonar, prests, Þórðarsonar.
Móðir Guörúnar Þóröardóttur var
Þóra Egilsdóttir, b. á Þorgautsstöð-
Guðmundur Valberg Sigurjónsson.
um, og Guðrúnar Jónsdóttur, b. á
Kolstöðum, Guðmundssonar.
Móðir Jónu Guðrúnar var Sigríð-
ur, f. á Traðarbakka, Akranesi, Ól-
afsdóttur, f. í Hlíðartúni, Miðdölum,
Ólafssonar, f. Tungutúni í Andakíl,
Vigfússonar, b. á Kvígsstöðum í
Andakil, Magnússonar.
Guðmundur verður að heiman á
afmælisdaginn.
Sigrún Viktorsdóttir
Til hamingju meö
afmælið 20. ágúst
Sigrún Viktorsdóttir verslunarmað-
ur, Laugalæk 58, Reykjavík, er sex-
tugídag.
Sigrún fæddist á Akureyri og ólst
þar upp. Hún hóf verslunarstörf fyr-
ir 45 árum. Fyrst vann hún hjá föð-
ur sínum, Viktori Kristjánssyni,
rafvirkjameistara á Akureyri, og
síðar hjá Jóni Bjarnasyni, úrsmiö á
Akureyri. Árið 1970 fluttist Sigrún
ásamt foreldram sínum til Reykja-
víkur og hóf störf í Apóteki Kópa-
vogs. Frá 1972 til 1988 starfaði hún
í gjafadeild Húsgagnaverslunar
Kristjáns Siggeirssonar. Eigenda-
skipti að versluninni urðu 1988 og
fékk hún þá heitið Karel og starfar
Sigrún þarnú.
Systkini Sigrúnar era Viktoría B.
fótsnyrtifræðingur og Haukur A.
arkitekt.
Foreldrar Sigrúnar eru Viktor A.
Kristjánsson rafvirkjameistari, f. 19.
júlí 1898, d. 5. desember 1973, frá
Ölversgerði í Saurbæjarhreppi,
Eyjafirði, og kona hans Friöfinna
Hrólfsdóttir, f. 2. apríl 1909 að Ábæ
í Skagafirði. Viktor var sonur
Kristjáns Jósefssonar og konu hans,
Sigrúnar Pálsdóttur, frá Vatnsenda
í Eyjafirði. Friðfinna er dóttir Hrólfs
Þorsteinssonar, bónda Skatastöð-
um, Austurdal, Skagafirði, ogkonu
hans, Vaigerðar Kristjánsdóttur,
Ábæ, Austurdal, Skagafirði. Kristj-
án, faöir Valgerðar, var Kristjáns-
son.
Sigrún tekur á móti gestum á
Sigrún Viktorsdóttir.
heimili sínu að Laugalæk 58 á af-
mælisdaginn klukkan 17.00.
70 ára
Sigrún Runólfsdóttir,
Engihjaila25, Kópavogi.
60ára
Ally Aldís Lárusdóttir,
Munkaþverárstræti 35, Akureyri.
Guðmundur Jónsson,
Þorvaldsstöðum, Breiðdalshreppi.
PéturÁrnason,
Baröaströnd 14, Seltjamarnesi.
Jón Adolf Páisson,
Hrauntungu 105, Kópavogi. Hann
verður aö heiman á afmælisdaginn.
Guðbjörg Eyjólfsdóttir,
Garði 1, Skútustaðahreppi.
50ára_______________________
Ólöf Ragna Pétursdóttir,
Grundargötu 64, Grundarfirði.
40ára
Helga Gréta Ingimundardóttir,
Furugrund 56, Kópavogi.
Þór Jóhannsson,
Álfhólsvegi 114, Kópavogi.
BáraJensdóttir,
Flúðaseii 95, Réykjavík.
Valgerður Magnúsdóttir,
Kvíabala 1, Kaldrananeshreppi.
Þorgeir Gunnlaugsson,
Hjallabrekku 31, Kópavogi.
Frímann Ingólfsson,
Bylgjubyggð 11, Ólafsfirði.
Hörður Hafsteinn Bjarnason,
Lyngheiði 10, Hveragerði.
Þorvaldur Aðalsteinsson,
Stekkjarbrekku 18, Reyðarfirði.
Pétur Ingibergsson,
Ölduslóð 19, Hafnarfirði.