Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1990, Page 32
Veðriðámorgun:
Rigning um
allt land
Á morgun veröa skil á leiö yfir
landið meö austan- og suðaustan
strekkingi og rigningu á undan
en suðvestanátt og skúrum í kjöl-
farið. Rigna mun því um mestallt
land, þó minnst norðáustanlands.
Hlýnandi veður í bili.
LOKI
Það kemur sér vel ferða-
grillið!
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
krónur. Fullrannafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
Frjáist,óháÖ dagblað
MÁNUDAGUR 20. ÁGÚST 1990
Slagsmál 1 Keflavlk:
Þrírfluttir
á sjúkrahús
— MikilölvunvarímiðbæKeflavíkur
á föstudagskvöld. Mikið var um
slagsmál og þurfti að flytja þrjá á
sjúkrahúsið í Keflavík eftir líkams-
árásir. Þar af var einn lagður inn
með nefbrot og hugsanleg rifbrot.
Unglingar söfnuðust saman í Hafn-
argötunni og þar voru rúður brotnar
og skemmdir unnar. Fjórir fengu að
gista fangageymslur lögreglunnar og
alls voru þrír teknir fyrir ölvunar-
akstur yfir helgina. Að sögn lögreglu
koma upp vandamál í Hafnargötunni
í Keflavík um hverja helgi. Alltaf eru
einhverjar rúður brotnar og yfirleitt
er mikið um slagsmál.
Lögreglan á Keflavíkurflugvelli
hafði hendur í hári tveggja manna á
^tvítugsaldri sem grunaðir eru um að
hafa skorið á dekk bíla. Þegar þeir
náðust fannst á þeim stór veiðihníf-
ur, brúsi og slanga sem grunur leikur
á aö þeir hafi ætlað að nota við að
stela bensíni af bílum sem standa við
flugstöðinatilgeymslu. -BÓl
Vestmannaeyjar:
Próflausogfull-
urástolnumbíl
* Töluvert var um ölvun og pústra í
Vestmannaeyjum um helgina. Þrír
voru teknir við ölvunarakstur, þar
af einn sem bæði var réttindalaus og
hafði tekið bílinn ófrjálsri hendi.
Tveir voru sviptir ökuleyfi fyrir of
hraðan akstur innan bæjarins.
Að sögn lögreglu er venjulega rólegt
í Vestmannaeyjum í ágúst og kom það
því lögreglunni á óvart hversu erfl-
samtvarumhelgina. -BÓl
Bílvelta I
Staðarsveit
Um sjöleytið á laugardagskvöld
^valt bíll við bæinn Brautarholt í
Staðarsveit, vestan við Vegamót.
Þrennt var í bflnum og slapp fólkið
með minni háttar meiðsl. Bílhnn,
sem er af gerðinni Honda Civic, rann
til í lausamöl, fór nokkrar veltur og
hafnaði utan vegar. Hann er talinn
gjörónýtur. -BÓl
Skjaldarmerki Islands
á Alþingishúsið
Skjaldamerki Islands verður fest
upp fyrir ofan aðalinngang Alþingis-
hússins. Skjaldarmerkið, sem verður
1,2 m á breidd og hæð, verður úr
málmsteypu og landvættirnir úr
kopar. Stefnt er að því að merkið
~-»verði komið upp fyrir þingsetningu
í haust. -pj
• / / /
Bílstjóranum haldið
og tugum þúsunda rænt
Tveir menn um tvitugt réðust á
leigubílstjóra hjá Bæjarleiöum og
rændu hann tugum þúsunda króna
i bíl sínum um fjögurleytið í nótt.
Skömmu áður hafði bílstjórinn
tekið mennina upp í bíl sinn við
Skólavörðuholt, Oskuðu þeir eftir
að þeim yröi ekið út í Granda-
hverfi. Þegar bílstjórinn hafði ekið
mönnunum að Flyðrugranda tók
annar upp belti og herti um háls
bílstjórans og hélt honum fóstum.
Á meðan tók hinn veski bilstjór-
ans. Við svo búið hlupu mennirnir
eins og fætur toguðu í burtu. Að
sögn bílstjórans tapaði hann um
þrjátíu þúsund krónum. Hann slas-
aðist ekki í árásinni.
BOstjórinn telur að mennimir
séu um tvítugt. „Ég myndi örugg-
lega þekkja annan þeirra aftur,“
sagði hann við DV í morgun. Annar
mannanna er mjög grannur með
snöggklippt ljóst hár. Hinn er þybb-
inn. Þeir vom báðir klæddir ijós-
bláum gallafatnaöi. Þeir höfðu náð
að hverfa út í myrkrið þegar lög-
reglan kom á vettvang. Málið er
nú komið til RLR. Eftir því sem
DV komst næst í morgun hafði
enginn verið handtekinn vegna
málsins. -ÓTT
íslensku gíslamir:
Fara líklega
með Svíum
„Ef Svíar fara úr Kuwait þá gerum
við fastlega ráð fyrir því að Islend-
ingarnir far með þeim,“ sagði Finn-
bogi Rútur Arnarson, sendiráðsrit-
ari í íslenska utanríkisráðuneytinu,
en írakar hafa nefnt að þeir séu til-
búnir aö hleypa ríkisborgurum
nokkurra „góðviljaðra" þjóða úr
Kuwait.
Svíar eru þar á meðal og telur utan-
ríkisráöuneytið að íslendingarnir
fari með. Hins vegar hefur hvergi
komið fram að íslendingarnir verði
þar með. Átta íslenskir ríkisborgarar
eru nú í Kuwait, þar af fjögur börn.
Þá hafa Svíar sagt að þeir flytji ekki
ríkisborgara sína brott nema að það
sé án skilyrða og að öryggi þeirra sé
tryggt.
Utanríkisráðuneytið hefur ekki
heyrt neitt frá íslendingunum síðan
á föstudaginn en að sögn Finnboga
Rúts er talið að allt sé við það sama
oglíðanþeirragóð. -SMJ
Lambskotiðáfæri.
skoridogétið
Netaveiðar eru hafnar í Faxaflóa. Það var því mikið um að vera um borð í bátum
menn voru að gera klárt fyrir vertiðina.
Reykjavikurhöfn þegar sjó-
- DV-mynd S
Skammt frá bænum Teigarhorni
innan við þorp við Djúpavog fannst
um daginn dauður lambhrútur.
Hann hafði verið skotinn af færi með
stórum riffli, fleginn og skorin af
honum lærin og hryggurinn. Allt
bendir til þess að hann hafi verið
skotinn af 40-50 metra færi frá vegin-
um. Síðan var hann dreginn í hvarf
þar sem gert var að honum og hræið
skilið eftir. Málið er óupplýst og Sig-
urður Gíslason lögreglumaður segir
engan tilgang sjáanlegan með verkn-
aðinum nema ef vera skyldi aö aðil-
arnir hafi ætlað að fá sér að éta. -pj
CDþjiTesMMe
18
DAGAR