Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.1990, Side 2
2
LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 1990.
Fréttir
Aflamiðlun refsar fimm fiskútflytjendum:
Heimildir skornar niður
um meira en helming
Heimild fimm fiskútflytjenda til
útflutnings á ferskum fiski var skor-
in niður um rúman helming þegar
Aflamiðlun úthlutaði útflutnings-
leyfum. í gær. Samkvæmt fyrirmæl-
um stjómar Aflamiðlunar var út-
flutningsheimildin minnkuð hjá
Gámavinum og Skipaafgreiðlsu
Vestmannaeyja í Eyjum, Hrelli á
Höfn, Skipaþjónustu Suðurlands í
Þorlákshöfn og Jóni Ásbjörnssyni í
Reykjavík. Útflutningsheimildir
þessara aðiia voru minnkaðar þar
sem þeir munu hafa flutt út um 900
tonnum meira en Aflamiðlun heimil-
aði í júlí og fyrstu þrjár vikurnar í
ágúst.
í síðustu viku fengu Gámavinir alls
heimild fyrir útflutningi á 47 tonnum
en fá heimild til að flytja út 26 tonn
í næstu viku. Heimild Jóns Ásbjörns-
sonar minnkaði úr 26 tonnum í 13,
heimild Skipaafgreiðslu Vestmanna-
eyja úr 32 tonnum í 13, heimild Hrell-
is úr 45 tonnum í 13 og heimild Skipa-
þjónustunnar úr 46 tonnum í 13 tonn.
Allur þessi útflutningur er til Bret-
lands. Tveir síðastnefndu útflytjend-
urnir koma verst út.
Heildarúthlutun var verulega
minni nú en í síðustu viku og því
kemur niðurskurður heimilda þess-
ara fimm aðila ekki hinum sem fá
eðlilega úthlutun til góða í sama
mæli og menn áttu von á. Úthlutað
var leyfum til útflutnings á 195 tonn-
um af þorski og 251 tonni af ýsu. í
síðustu viku fengust hins vegar út-
flutningsheimildir fyrir 315 tonnum
af þorski og 303 tonnum af ýsu.
Stjórn Aflamiðlunar mun funda
um útflutning umfram heimildir á
fundi sínum á mánudag og taka
ákvaröanir um næstu skref í málinu.
Þá munu liggja fyrir greinargerðir
frá sjávarútvegsráðuneytinu og toll-
yfirvöldum, auk talna yfir úthlutun
heimilda á árinu.
-hlh
Útför Geirs Hallgrimssonar, fyrrverandi forsætisráðherra, var gerð frá Dómkirkjunni í gær að viðstöddu miklu fjöl-
menni. Séra Árni Bergur Sigurbjörnsson jarðsöng, Kammersveit Reykjavikur lék við athöfnina og félagar úr karla-
kórnum Fóstbræðrum sungu, organisti var Marteinn Hunger Friðriksson. Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæöis-
flokksins; Davíð Oddsson borgarstjóri, Haraldur Sveinsson, framkvæmdastjóri Árvakurs, Jóhannes Nordal seðla-
bankastjóri, Matthías Johannessen ritstjóri, Ólafur B. Thors, forstjóri Sjóvá-Almennra, Styrmir Gunnarsson rit-
stjóri og Björn Bjarnason aöstoðarritstjóri voru líkmenn. DV-mynd Brynjar Gauti
Matfiskeldið hefur stöðvað hafbeitina:
Höf um tapað sex millj-
örðum á strandeldinu
- segirdr.Bjöm Jóhannesson
„Því miður hafa allir peningamir
farið í matfiskeldið þannig að það
hefur gengiö mjög erfiðlega að fá
peninga í hafbeitarstarfsemi. í mat-
fiskeldinu er nú allt að rúlla, enda
skil ég ekki þá bjartsýni sem þar
hefur ríkt og hef reyndar margoft
varað við henni. Þaö er vægt til
oröa tekið að segja að stefnan hafi
verið óvenju glannaleg,“ sagði dr.
Bjöm Jóhannsson sem nýlega
sendi frá sér bækling sem heitir
„Aðstaða til laxahafbeitar á ís-
landi.“
Þaö sem vekur ef til vill hvað
mesta athygli við grein Björns er
gagnrýni hans á matfiskeldi í
strandstöðvum. Segir hann á ein-
um stað í bók sinni um þetta: „Það
er nú alkunna að þessi starfsemi
er í algerri rúst, fyrirtækin gjald-
þrota eöa á barmi gjaldþrota. Er
gróflega áætlað að heildartjón þjóð-
félagsins, sem að mestu skellur á
herðum varnarlausra skattborg-
ara, mun neipa um 6.000 milljónum
króna.“
Bjöm sagði að hann hefði ekki
notið vinsælda meðal fiskifræðinga
fyrir skoðanir sínar en hann er
með doktorspróf í jarðvegs- og
ræktunarfræðum. Hann sagði að
áhugi hans á fiskeldi hefði vaknaö
þegar hann vann í 13 ár á vegum
Sameinuðu þjóðanna við mat á
nýtingu náttúruauðæfa.
Bjöm segist hafa tröllatrú á haf-
beit og telur það hafa verið mistök
íslenskra fiskeldismanna að hafa
ekki sinnt henni betur. Hann segist
telja að með hafbeit á íslandi megi
framleiða lax í hæsta gæðaflokki
með minni tilkostnaöi en í öðrum
löndum við norðanvert Atlantshaf.
DV leitaöi áhts hjá einum fiskeld-
ismanni út af þeim tölum sem
Bjöm varpar fram og taldi hann
að talan 6.000 milljónir væri allt of
há. Hann staðfesti hins vegar að
tjónið væri mjög mikið án þess að
vilja nefna tölu í því sambandi en
þess má geta aö samanlagt gjald-
þrot stærstu strandeldisstöðvanna,
íslandslax og Lindalax, nálgast
helming þeirrar upphæðar sem
Björn nefnir.
Einnig benti þessi fiskeldismaöur
á að hafbeitin hefði átt við sín
vandamál að eiga eins og sannaöist
hjá Vogalaxi.
Þrátt fyrir þessa varnagla hlýtur
hver maður að sjá að margt er til
í oröum Bjöms, enda hafa gjald-
þrotin í matfiskeldinu verið meö
þeim stærri sem hafa dunið yfir
þjóðina.
-SMJ
íslandsfiskur hf.
Krefsttæpra
4,6 milljóna í
skaðabætur
Jón Oddsson hæstaréttarlögmaður fiskur var að láta pakka fyrir sig og
hefur nú krafist þess fyrir hönd selja á erlenda markaði stæðist ekki
umbjóðanda síns, Islandsfisks hf., að gæðastaðla og voru meðlimir LFH
Landssamband fiskeldis- og hafbeit- og laxakaupendur beðnir að snið-
arstöðva greiði fyrirtækinu 4,6 millj- ganga fyrirtækið. Síðar dró stjórn
ónir í skaðabætur vegna fjárhags- LFH hluta bréfsins til baka en vildi
tjóns sem hann telur að fyrirtækið ekki fallast á kröfur um-greiðslu
hafi oröið fyrir vegna bréfs sem skaðabóta. Enn hefur ekki náðst
gæðamatsmaöur Landssambandsins samkomulag í málinu þrátt fyrir
ritaði í sumar og sent var öllum mikil fundahöld og bréfaskriftir og
meðlimum sambandsins og laxa- er nú allt útlit fyrir að það endi fyrir
kaupendum. I bréfinu var meðal dómstólum.
annars sagt að fiskur sá sem íslands- -J.Mar
íslandsfiskur hf.:
Kaupir þrotabú
Faxalax
- gerir tilboö 1 þrotabú Vogalax
„Við gengum í gær frá samningi
um kaup íslandsfisks hf. á þrotabúi
Faxalax hf. Viö keytum reksturinn
og þann fisk sem er í stöðinni og svo
yfirtökum við kaupleigusamninga
fyrirtækisins," segir Guðni Bjöms-
son, annar tveggja eigenda íslands-
fisks hf.
„Við höfum einnig gert tilboö í
þrotabú Vogalax hf. en því hefur enn
ekki verið svarað.
Ástæðan fyrir þvi aö við viljum
kaupa þessi þrotabú er sú að við vilj-
um tryggja okkur nægan lax til að
flytja út til Bandaríkjanna og Japan.
I kjölfar bréfs sem gæðamatsmaður
Landssambands fiskeldis- og haf-
beitarstööva ritaði, en í því varaði
hann menn viö að skipta við íslands-
fisk þar sem hann taldi að sá lax sem
við værum að selja stæðist ekki
gæðakröfur, höfum við átt í nokkr-
um erfiðleikum með að fá þann lax
sem við þurfum á að halda. Með
kaupunum erum viö þvi aö tryggja
það að fyfirtækið hafi nægan lax á
boðstólum í framtíðinni," segir
Guðni. ,j.Mar
Mógilsarmálið að leysast?
Ekki reyndi á þann eindaga sem
forstöðumenn Mógilsár gáfu fyrrver-
andi starfsmönnum til að skila inn
þeim- rannsóknargögnum sem þeir
höfðu unnið að á Mógilsá. Ákveðið
var að reyna að semja um málið í gær
en þá rann út frestur sá sem starfs-
mönnunum var gefinn. Ekki er ljóst
hver niðurstaðan veröur en aðilar
deilunnar voru bjartsýnni en áður á
aö lausn fengist.
-SMJ
Fjöldi árekstra í Reykjavík
Alls urðu 19 árekstrar og 4 slys í
Reykjavík í gærdag og þurfti að flytja
fimm á slysadeild. í þremur tilvikum
var ekið á gangandi vegfarendur.
Strætisvagn ók á gangandi vegfar-
anda við Hlemm, ekið var á mann á
gatnamótum Lönguhlíðar og Miklu-
brautar og þriðja slysið af sama toga
varð þegar ekið var á gangandi veg-
faranda á gatnamótum Réttarholts-
vegar og Miklubrautar.
-J.Mar