Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.1990, Page 6
LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 1990.
Útlönd
Viðskiptabannið farið að segja illilega til sín í Irak:
Bandaríkjamenn haf na
öllum málamiðlunum
og vara þjóðir heims við að sýna íröskum þegnum samúð
Bandaríkjamenn hafa varað ríki
heims við að sýna írökum samúð
þegar viðskiptabannið á landið virð-
ist vera aö hafa tilætluð áhrif. Þeir
hafna einnig öllum tilraunum til að
miðla málum í deilunni við Saddam
Hussein.
Svo virtist í gær sem nokkur ríki
hefðu hug á að fara fram hjá við-
skiptabanninu af mannúðarástæð-
um vegna frétta um að írösk börn
sem og erlend lægju fyrir dauðanum
vegna matarskorts. Indverjar fóru
fyrir þessum þjóðum en um 170 þús-
und Indverjar eru nú innlyksa í írak
og Kúvæt.
Hjá Sameinuðu þjóðunum var
kröfu Indverja um að senda mat til
íraks hafnað. Indverjar sögðu að
Vesturlönd hefðu þegar brotið við-
skiptabannið með því að leigja írask-
ar flugvélar til að fytja flóttafólk frá
landinu. Þeir sögðu að í upphafr hefði
ekki verið gert ráð fyrir þeim hörm-
ungum sem saklaust fólk yröi fyrir
í írak og Kúvæt vegna viðskipta-
bannsins.
íranir og Kínverjar tóku undir
kröfur Indverja og Tyrkir sögðust í
gær ætla aö senda lyf til íraks ef
beðið yrði um það. James Baker, ut-
anríkisráðherra Bandaríkjanna,
áréttaöi hins vegar eftir fund með
ráðamönnum í Saudi-Arabíu að und-
anþágur frá viöskiptabanninu kæmu
ekki til greina.
„Við veröum að leita allra hugsan-
legra leiða til að Saddam Hussein
dragi her sinn frá Kúvæt og landið
verði sjálfstætt á ný,“ sagði Baker.
Bandaríkjamenn eru enn að efla her-
styrk sinni í Saudi-Arabíu og hefur
nú orðið verulega ágengt í að fá fleiri
ríki til að deila með sér herkostnað-
inum.
Saudi-Arabar hafa lofað Banda-
ríkjamönnum milljörðum dala til að
standa straum af kostnaði við herset-
una í Saudi-Arabíu. Bandaríkjamenn
ætla sér því að þrengja enn frekar
að írökum og allar tilraunir til mála-
miðlunar virðast tilgangslausar og
er ekki talið aö fundur Bush og Gor-
batsjovs breyti nokkru þar um.
Japanir hafa einnig ákveöið að
taka á sig hluta af herkostnaðinum.
Bandaríkjamenn hafa lagt fram
kostnaðaráætlun sem hljóðar upp á
28 milljarða Bandaríkjadala. Utan-
ríkisráðherrar ríkja Evrópubanda-
lagsins hafa einnig fallist á að greiða
hluta af kostnaöinum.
Reuter
Norður-írland:
Séra Paisley
rekinnúr
söf nuði sínum
Séra lan Paisley hefur veriö
rekinn úr einum valdamesta
söfnuöi sem mótmælendur á
Norður-irlandi hafa með sér.
Þetta var gert vegna deilna um
alþjóðlegan sjóð sem mótmæl-
endakirkjan hefur yfir að ráða.
Séra Paisley hefur um árabil
veriö fremstur í flokki öfgasinn-
aðra mótmælenda á Norður-ír-
landi og barist hatrammlega gegn
öllum tillögum um málamiðlanir
í deilum kaþólskra og mótmæl-
enda þar.
Fé úr sjóðnum átti að nota til
að reisa menningarmiðstöð í Lon-
donderry. Framlög í hann koma
frá ýmsum löndum heims, þar á
meöal Bandaríkjunum, Kanada,
Ástralíu og frá Evrópubandalag-
inu. Honum er ætlaö að fjár-
magna framkvæmdir bæði á
Norður-írlandi og í írska lýðveld-
inu.
Séra Paisley hefur kallað fé
sjóösins blóðpeninga og mótmælt
því kröftuglega að bæði mótmæl-
endur og kaþólskir verði aö deila
því með sér. Bræður séra Paisleys
í söfnuðinum segjast hafa rekið
hann vegna óvarlegra yfirlýsinga
í fjölmiðlum.
Reuter
Leiötogafundurinn í Helsinki á morgun:
Lætur Bush korn fyrir stuðning?
- Gorbatsjov þarf nauösynlega á því að halda
Á fundi leiðtoga stórveldanna í
Helsinki á morgun verður hefð-
bundnum deilumálum þeirra vikið
til hliðar og Persaflóadeilan sett efst
á dagskrána. Menn þykjast líka vita
að fleiri mál komi þar upp, þar á
meðal að Gorbatsjov falist eftir komi
frá Bandaríkjunum. Kornkaup
kunna líka að verða eina niðurstaðan
af fundinum.
Embættismenn í Bandaríkjunum
telja víst að Gorbatsjov beri sig upp
við Bush vegna matarskortsins í Sov-
étríkjunum. Kornverð fer þar hækk-
andi og skortur er á brauði í Moskvu
og fleiri borgum.
Því er spáð að Bush taki vel í mála-
leitan Gorbatsjovs og vilji launa hon-
um stuðninginn við Bandaríkin í
deilunni við Saddam Hussein. Sovét-
menn hafa hingaö til látið orðin ein
duga en Bandaríkjamenn vilja að
Sovétmenn taki meiri beinan þátt.
Þannig mælti Les Aspin, forseti
fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, í
gær með því að Bandaríkin og Sovét-
ríkin hefðu nánari samvinnu um að
framfylgja viðskiptabanninu á írak.
Aspin sagði að þetta væri eitt mikil-
vægasta málið sem leiðtogamir
hefðu að ræða í Helsinki.
Sovétmenn láta hka að því hggja
aö þeir muni taka ákveönari afstöðu
gegn írak. Gennady Gerasimov, tals-
Gorbatsjov i augum Luries. Hann
hefði ekkert á móti því að ræða
kornkaup við Bush.
maður sovéska utanríkisráðuneytis-
ins, sagöi að fundurinn í Helsinki
væri sögulegur vegna þess að nú
væm leiðtogar stórveldanna að ræða
svæðisbundna deilu þar sem þeir
væm á sama máli. Til þessa hafi
þeir alltaf verið á öndverðum meiði
hvert svo sem tilefnið væri.
Bush i augum Luries. Hann kann
að koma færandi hendi til Helsinki.
Þetta þykir benda til að Sovétmenn
geti hugsað sér að beita sér af meiri
hörku við að framfylgja viðskipta-
banninu á írak, ekki hvað síst ef eitt-
hvað rofar th í erfiðustu vandamál-
unum heima fyrir.
Reuter/NTB
Japanir vilja ekki enn
vináttu Sovétríkjanna
- þrátt fyrir fagurgala Eduards Sévardnadzes viö þá
Stjón Japans treystir sér ekki til
að taka undir yfirlýsingar Eduards
Sévardnadze, utanríkisráðherra
Sovétríkjanna, um að sambúð ríkj-
anna fari mjög batnandi. Þetta var
niðurstaða utanríkisráðherrans
eftir fundaferð um Japan þar sem
hann hitti helstu ráðamenn að
máh.
Kazuhiko Togo, yfirmaður Sovét-
deildarinnar hjá utanríkisráðu-
neyti Japans, sagði að staöan væri
óbreytt og yrði það þangað til Sov-
étmenn breyttu afstöðu sinni í
deilu ríkjanna um yfirráð yfir fjór-
um eyjum norður af Japan.
„Ráöherrann haíði ekkert nýtt
fram aö færa,“ sagði Togo.
Sévardnadze haföi þó látið að því
hggja að samkomulag kynni aö
vera á næsta leiti. Sovétmenn hafa
sótt fast á Japani að gera samning
á sviði efnahagsmála þar sem Jap-
anir gætu stutt við uppbyggingu á
sovéskum iðnaði.
Japanir hafa ekki ljáö máls á
þessu meðan Sovétmenn neita að
láta af hendi eyjarnar fjórar í Kúr-
ileyjaklasanum. Sovétmenn hafa
ráðið eyjunum allt frá stríðslokum
og vilja ekki gefa þær eftir.
Togo sagði að yfirlýsingar
Sévardnadzes gætu haft þýöingu í
framtíðinni en ekki fyrr en Sovét-
menn hefðu breytt stefnu sinni.
Það kann hka að gerast því Sovét-
menn biðla nú ákaft til iðnríkjanna
í Austu-Asíu um aöstoð við upp-
byggingu iðnaöar.
Sévardnadze hefur þegar lýst
áhuga á að semja við Suður-Kóreu-
menn um viðskipti og látið sér fátt
um aövaranir Norður-Kóreu-
manna finnast, að allt makk með
Suður-Kóreu væru svik við heims-
kommúnismann.
Sévardnadze virðist líka hafa
áhuga á að söðla um í málefnum
Suðaustur-Asíu og hætta aö styðja
stjómina í Kambódíu. Stjómin hef-
ur notið stuðnings Sovétmanna og
Víetnama en nú hafa Víetnamar
lýst því yfir að stjóm Kambódíu
verði aö standa á eigin fótum. Slík
skilaboð koma ekki nema Sovét-
mennséumeðíráðum. Reutcr
Leiðtogafundurinn:
Finnarætlaað
flaggaveloglengi
Fixmar ætla að slaka á annars
ströngum reglum um notkun
þjóðfánans meðan þeir Georeg
Bush og Mikhail Gorbatsjov
funda í Helsinki. Þegar er búið
að útnefna daginn í dag og morg-
undaginn sem löglega fánadaga.
Þetta er gert til að sýna hve
Finnar meta það mikils að fá að
hýsa leiðtoga stórveldanna á
meðan þeir ræðast við á einum
mikilvægasta fundi sem æðstu
menn ríkjanna hafa haldið með
sér.
Finnar era yfirleitt mjög sparir
á að nota fána þjóðar sinnar og
yfírvöld leggjast gegn því að
flaggað sé á öðram dögum en lög-
skipuðum fánadögum. Því er
sjaldgæft að sjá finnska fanann
við hún nema þegar mikið stend-
ur til.
Finnar hafa ákveðið aö vikja
einnig frá reglum um afgreiðslu-
tíma verslana í tilefni af leið-
togafundinum. Kaupmenn í höf-
uðborginni mega hafa verslanir
sínar opnar á morgun á sama
tíma og Bush og Gorbatsjov taka
tal saman í forsetahöhinni.
Reuter
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækurób. 3,0 Allir
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 3-4 Ib.Sp
6mán. uppsogn 4-5 Ib.Sb
12mán.uppsögn 5-5.5 Ib
18mán. uppsögn 11 Ib
Tékkareikningar, alm. 0,5-1 Allir nema Ib
Sértékkareikningar 3.0 Allir
Innlán verðtryggð ’ Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1.5 Allir
6 mán. uppsögn 2.5-3.0 Allir nema Ib
Innlán meðsérkjörum 3-3,25 Ib.Bb
Innlángengistryggð
Bandaríkjadalir 6,6-7 lb
Sterlingspund 13-13,6 Sp
Vestur-þýsk mörk 6,75-7.1 Sp
Danskarkrónur 8,5-9,2 Sp
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvixlar(forv.) 13,75 Allir
Viðskiptavixlar(fon/.) (1) kaupgeng.
Almenn skuldabréf 12,25-14,25 ib
Viðskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir
. Hlaupareikningar(vfirdr.) 16.5-17.5 Bb
Utlán verðtryggö
. Skuldabréf 6.5-8.75 Ib
Utlántilframleiðslu
Isl. krónur 14-14.25 Sp
SDR 11-11.25 Ib
Ðandaríkjadalir 9,75-10 Ib
Sterlingspund 16,5-16,7 Sp
Vestur-þýsk mörk 10-10,2 Sp
Húsnæðislán 4,0
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 23,0
MEÐALVEXTIR
Överðtr. ágúst 90 14,2
Verðtr. ágúst 90 8.2
VÍSITÖLUR
Lánskjaravisitala sept. 2932 stig
Lánskjaravisitala ágúst 2925 stig
Byggingavisitala sept. 551 stig
Byggingavisitala sept. 172,2 stig'
Framfærsluvisitala júlí 146,8 stig
Húsaleiguvisitala hækkaði 1,5% l.júll.
VEROBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Einingabréf 1 5,071
Einingabréf 2 2.758
Einingabréf 3 3,340
Skammtimabréf 1.711
Lífeyrisbréf
Kjarabréf 5.026
Markbréf 2.674
Tekjubréf 2.021
Skyndibréf 1,499
Fjölþjóðabréf 1.270
Sjóðsbréf 1 2,438
Sjóðsbréf 2 1,766
Sjóðsbréf 3 1,700
Sjóðsbréf 4 1,454
Sjóðsbréf 5 1,025
Vaxtarbréf 1.7205
Valbréf 1,6165
Islandsbréf 1,052
Fjóröungsbréf 1,052
Þingbréf 1,051
öndvegisbréf 1,047
Sýslubréf 1,055
Reiöubréf 1,038
HLUTABRÉF
• Söluverð aö lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Sjóvá-Almennar hf. 650 kr.
Eimskip 525 kr.
Flugleiðir 205 kr.
Hampiðjan 171 kr.
Hlutabréfasjóður 167 kr.
Eignfél. lönaðarb. 164 kr.
Eignfél. Alþýðub. 126 kr.
Skagstrendingur hf. 367 kr.
Islandsbanki hf. 162 kr.
Eignfél. Verslunarb. 140 kr.
Olíufélagið hf. 536 kr.
Grandi hf. 184 kr.
Tollvörugeymslan hf. 107 kr.
Skeljungur hf. 546 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge.