Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.1990, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.1990, Page 10
10 LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 1990. Myndbönd DV Steve Martin leikur aðalhlutverkið I vinsælustu mynd vikunnar, Parent- hood. DV-listinn Eina umtalsverða breytingin á vinsældalistanum þessa vikuna er sú að Road House verður að gefa eftir fyrsta sætið eftir að hafa verið þar í fjórar vikur, við tekur Parent- hood sem var í öðru sætinu í síð- ustu viku. Þaö er einnig merkilegt að engin ný mynd kemur inn á list- ann þessa vikuna en á því verður væntanlega breyting í næstu viku því út eru komnar myndir sem eiga örugglega greiða leið inn á list- ann. 1. (2) Parenthood 2. (1) Road House 3. (3) Worth Winning 4. (7) Blind Fury 5. (5) Action Jackson 6. (5) Lock up 7. (8) The Seventh Sign 8. (4) Honey, I Shrunk the Kids 9. (6) Back to the Future II 10. (10) Casualties of War ★★ #1 Kraftaverkalöggan ACTION JACKSON Útgelandi: Steinar hf. Leikstjóri: Craig R. Baxley. Aðalhlutverk: Carl Weathers, Craig T. Nelson, Vanity og Sharon Stone. Bandarisk, 1989-sýningartími 96 mín. Bönnuð börnum innan 16 ára. Það er greinilegt að aðstandendur Action Jackson hafa haft það að leiðarljósi að því meira ofbeldi því betri mynd. Myndin er sannkölluö hasarmynd frá upphafi til loka og í öllum látunum hefur gleymst að gera söguþráðinn þannig úr garði að einhverja glóru væri að finna í honum. Aöalpersónan er lögregluforingi sem kaUaður er Action Jackson og ber hann það nafn með réttu. Þegar myndin hefst hefur hann verið lækkaður í tign um stundarsakir vegna ofheldis en lætur það ekki á sig fá og heldur áfram fyrri iðju að lemja duglega á andstæðingum sín- um. Hans helsti óvinur er glæpafor- inginn Peter Dellaplane sem mun- ar ekki mikið um að myrða eigin- konu sína þegar hann telur að hún sé honum ekki nógu holl. Myndin snýst fljótlega upp í einvigi milh þessara hörkukarla og er þar ekk- ert sparað og hggja tugir manna og kvenna í valnum áður en yfir lýkur. Það besta sem hægt er að segja um Action Jackson er að ahtaf er eitthvað að gerast og fyrir þá sem vhja hafa slagsmálin sem mest er Action Jackson fundinn fiársjóður. Þaö er Carl Weathers sem leikur Jackson. Weathers þessi er þekkt- astur fyrir að hafa leikið hnefa- leikakappann sem Rocky barði sem mest í tveimur eða þremur Rocky myndanna. Weathers er stæðilegur og ber sig vel í þeim atriðum þar sem hnefarnir skipta máh. Hvort hann hefur einhverja leikhæfileika kemur aldrei í ljós. -HK Björgunarafrek THE RESCUE OF JESSICA MCCLURE Útgefandi: Háskólabió. Leikstjóri: Mel Damski. Handrit: David Eyre, jr. Framleióandi: Diana Kerew. Aöalhlutverk: Beau Bridges, Patty Duke, Pat Hingle, Roxana Zal. Bandarisk 1989. 96 min. Öllum leyfð. Frásagnir af björgun htíllar stúlku í Texas flugu um heims- byggðina fyrir örfáum árum enda atburðarásin í meira lagi drama- tísk. Þegar hin 18 mánaða gamla Jessica datt niður um 8 tommu rör hafði sjálfsagt enginn trú á að hægt væri að bjarga henni. Þessi mynd segir frá baráttu björgunarmannanna sem höfðu aldrei kynnst öðru eins. Þá fylgdust öh Bandaríkin með þessu og máhð vakti feikilega athygh. Það er kannski ekki mikið um þessa heimildarmynd að segja enda koma slíkar myndir sjaldan á óvart. Myndin er þokkalega gerö þó aö hún innihaldi flesta þá ann- marka sem slíkar heimhdamyndir hafa - ófullkoma persónusköpun og slæma dramatík. Atburðurinn sjálfur er hins vegar með þeim ein- dæmum að það eitt sér dugar vel í mynd. -SMJ ★★ Með þrjár í takinu WORTH WINNING Útgefandi: Steinar hf. Lelkstjóri: Will MacKenzie. Aóathlutverk: Mark Harmon, Madeleine Stowe, Lesley Ann Warren og Maria Hoivöe. Bandarísk, 1989-sýningartími 98 mín. Leyfð öllum aldurshópum. Það getur stundum verið hættu- legt að hafa of mikla kvenhylh eins og aðalpersónan í Worth Winning, Taylor Worth, kemst að raun um. Hann er sjálfumglaður piparsveinn sem skhur eftir brostin hjörtu hvar sem hann fer án þess að blikna. Vinum hans þykir nóg um og þegar einn þeirra lofar honum Pic- asso málverki ef hann geti á stutt- um tíma fengiö þrjár konur, sem vinurinn thnefnir, til að lofa því að giftast honum stenst Wort-ekki freistinguna og lætur til skarar skríða. Og eins og að drekka vatn heillar ★★ Sambúðar raunir HEARTBREAKER Útgefandi: Arnarborg Leikstjóri og framleiðandi: Robert Gre- enwald. Handrit: Ernest Thompson. Aðalhlutverk: Don Johnson, Jeff Dani- els, Susan Sarandon og Elizabeth Perk- ins. Bandarisk 1988. 97 min. ölium leyfð. Bandaríkjamenn eru dáhtiö upp- teknir við að kryfia fiölskyldulífið þessi árin og hafa íslenskir sjón- varpsáhorfendur fengiö smjörþef- inn af því í raunaþáttunum um unga fallega fólkið sem er komið á fertugsaldurinn. Það er gefið í skyn að þessi mynd dragi dám af Hrollinum mikla (The Big Chih) en sú samlíking er ekki fuhkomlega heiðarleg. Að sönnu er sagt frá sambúöar- raunum nokkurra gamaha skóla- félaga sem eiga í dálitlum brösum með að átta sig á því hvort stefna eigi áfram eða til baka. Það er al- kunnugt vandamál þeirra sem komnir eru á fertugsaldurinn. Handrit myndarinnar býr því miður ekki yfir þeirri kjarnyrtu spennu sem til þarf og samtöl eru th dæmis ekki krydduð þeirri fyndni né visku sem er svo nauð- synleg í verkum sem segja frá venjulegu fólki. Það, ásamt fremur sviphtlum leik, verður fyrst og fremst til þess að draga myndina niður. Hún væri sjálfsagt einnar kvöldstundar virði fyrir framan sjónvarpsskjáinn en ég veit ekki hvort það tekur því að leggja lykkju á leið sína eftir myndinni. Leikarar eru kunnir en frammi- staða þeirra veldur vonbrigðum. Johnson er greinilega aö reyna að bijótast út úr viðjum Miami Vice, sem er virðingarvert, en hann hefði getaö verið heppnari með handrit. -SMJ Aö *n*ja$ n% ixtm&y nhmi a hwA irlur ami ihm* itcar Mrs. hann konurnar þrjár, sem áttu þó ekki að vera auðveld bráö, upp úr skónum og áður en vinur hans get- ur áttað sig á hlutunum er Taylor Worth búinn að fá allar þrjár kon- urnar th að lofa aö giftast sér. En kvennabósinn reiknaði ekki með að hann yrði hrifinn af einni þeirra og er hann nú thbúinn að giftast þeirri en ekki þremur... Worth Winniung er létt og sak- laust gaman þótt kvenfólki þyki kannski aö kynsystur þeirra séu of auðveld bráð fyrir kvennabós- ann. Mark Harmon leikur pipar- sveininn síkáta og gerir það vel, hefur nægan sjarma til að gera kvenhyhina trúlega. Þá eru kon- urnar hans ahar augnayndi hver á sinn hátt. í heild er Worth Winning saklaust grín og gaman sem heppn- ast ágætlega. ____ -HK ★ i4 MM Lífríkinu ógnað AGENT ORANGE Útgefandi: Laugarásbíó. Leikstjóri: Robert Davies. Aðalhlutverk: Phillip Brown og Michelle Bestbler. Bandarisk 1989 - sýningartími 96 min. Bönnuö börnum innan 16 ára. Þótt Agent Orange sé fyrst og fremst sakamálamynd þá er boð- skapurinn alvarlegur, sem' sagt eyðing lífrænna efna með hættu- legum efnum og er í myndinni lögð áhersla á að koma því á framfæri að lífríkið þurfi að hafa sinn gang th að mannkynið getir lifað sæmi- legu lífi. Bandaríska leyniþjónustan hefur uppgötvað að eiturefnum, sem not- uð voru í Vietnam, hefur verið stol- ið og tekst að rekja slóðina th Afr- iku. Maður er sendur til að grafast fyrir um hvað gert sé viö þau. Hann kemst fljótt aö því að ríkur landeigandi hefur efnin undir höndum og lætur dreifa þeim yfir akra smábænda til að eyðileggja uppskeruna hjá þeim svo hann geti fengið jarðirnar ódýrt. Eiturefnin hafa samt meiri áhrif því að bam fæðist vanskapað og telur Wood- man engan vafa á því að þaö megi rekja th eiturefnanna. Agent Orange er frekar róleg kvikmynd og greinilega gerð fyrir lítinn pening en metnaðurinn er fyrir hendi og er handritið ágæt- lega skrifað þótt tæplega geti myndin talist mikil skemmtun. Leikarar, sem allir eru óþekktir, eru stirðir og of augljósar sviðsetn- ingar eyðileggja nokkuð fyrir myndinni sem hefur þó þann kost aðveraheiðarleg. -HK ★★ Skrímsli upp á grín JABBERWOCKY Útgefandi: Steinar Leikstjóri og framleiðandi: Terry Gillam. Aðalhlutverk: Michael Palin, Max Wall, Harry H. Corbett, John Le Mesurier, Warren Mitchell. Bresk 1977. 95 mín. Bönnuö yngri en 12 ára. Monthy Python hópurinn hefur lengi verið í forystu breskra spaug- ara og hefur þeim félögum tekist með ágætum að nýta sér farsahefð Breta. Þessir bresku Spaugstofu- menn hafa gert nokkrar myndir í gegnum tíðina en þessi mun vera gerð á mihi Holy Grah (1974) og Life of Brian (1979). Myndin er í sama óþekktartónin- um en kannski ekki eins lífleg og þegar þeim félögum tekst sem best upp. Mér finnst eins og þessi sé meira fyrir hina hörðustu í stuðn- ingsmannaliði þeirra félaga. Nú, svo þola auðvitað sumir ekki þetta spaug eins og gengur og gerist. Auðvitað er hinn gráglettni húmor ekki langt undan og sem fyrr eru það breskir fornmenn sem fá að finna til tevatsins. Fáránlegt væri að ætla að fá ein- hveija mynd í söguþráðinn en þess má geta aö hann segir frá ægilegu skrímsh sem herjar á almenning á meðan kóngurinn er að hugsa ráð sitt. Því miður eru þeir félagar hættir að vinna saman í Monthy Python hópnum en mýndir þeirra hafa haft mikil áhrif á gamanmynda- gerð. Auðvitað skjóta þeir oft yfir markiö og þá er töluvert um endur- tekningar í leik og uppsetningu. Th að halda uppi merki þeirra væri að sjálfsögðu thvahð fyrir hina ís- lensku Spaugstofumenn að gera eina slíka mynd. -SMJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.