Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.1990, Page 27
LAUGARJp'MWR 181 •SEJH'KMBEK 1390. !
39®
LífsstHL
Dýrar og ódýr-
ar borgir
Feröa- og uppihaldskostnaður fyr-
ir mann í viðskiptaerindum eða fyrir
hinn almenna ferðamann er ekki
eins hár í New York og hingað til
hefur verið látið af.
Borgin hefur í mörg ár trónað á
toppinum ásamt Tokyo sem ein dýr-
asta borg heims en samkvæmt ný-
legri könnun er hún nú komin niður
í fimmta sæti, París, London og
Stokkhólmur tróna hins vegar í
þremur efstu sætunum.
Áðurnefnd könnunin birtist í rit-
inu Condé Nast Traveler og í henni
er miðað við meðaltals ferða- og uppi-
haldskostnað í einn sölarhring í við-
komandi borg. Reiknað er með að
búið sé á fyrsta flokks hóteli og
snæddar þrjár máltíðir á dag, auk
þess sem reiknað er með að viðkom-
andi eyði einhverri smáupphæð í
leigubíla og skemmtanir. Áð sjálf-
sögðu er hægt að lækka þennan
kostnað allverulega með því að búa
á ódýrari hótelum og snæða á ódýr-
um matsölustöðum eða kaupa
pakkaferðir þar sem allt er innifalið.
Hðest: Pans 18580 kr.
Lægst: Jóhannesarborg
5000 kr.
Slokkhólmur
^ O Moskva
^Kaupmannahöfn ■
Búdapest
Jerúsalem
Kairó%
Móntreal.
Chicagcr
Denever v
MxtíttCt.
Phoemx
Dubai
SKYRINGAR
O 5000 til 7700 kr.
O 7700 til 10400 kr.
© 10400 0113100 kr.
® 13100 0115800 kr.
© 15800 0118500 kr.
Siagapoœ
jÉS(Íttl§|§i|:
ipi
HMH
• -
■■'■ ■■.■,■■■■ 'J’r
' jC'- ~ -
- ------*rT‘
K. 1 j
'■■ '■■'■.. :
iwÍNI
aL •■ --.8
^ 'li!
fr
■
■ í
Það er dýrt að dvelja í París.
Ferðir
Ef borgir innan Bandaríkjanna eru
bornar saman kemur í ljós að borgir
eins og Dallas, Denver, Seattle, New
Orleans og Las Vegas eru með þeim
ódýrari í heiminum. Á meðan sólar-
hringurinnn í New York er á 15.800
krónur kostar ekki nema um helm-
ing þeirrar upphæðar að vera í áður-
nefndum borgum. Og enn ódýrara
er aö dvelja í Phoenix, þar kostar
sólarhringurinn ekki nema 6.100
krónur og er hún í næstneðsta sæt-
inu á listanum.
Það kemur nokkuð á óvart hversu
París er orðin dýr. Þó hún hafi raun-
ar alltaf verið með dýrari borgum
heims þá hefur hún ekki áður verið
í fyrsta sætinu. Þar hefur Tokyo haft
þann vafasama heiður að vera, en
nú er Tokyo fallin niður í fjórða sæt-
ið og búin að skjóta London og Stokk-
hólmi upp fyrir sig.
Raunar eru borgir á Norðurlönd-
unum dýrar. Það er ódýrast að dvelja
í Osló, þar leggur sólarhringurinn sig
á 14.900 krónur, sólarhringurinn er
800 krónum dýrari í Kaupmanna-
höfn en í Stokkhólmi er verðið kom-
ið upp í 17.500 krónur.
Glasgow:
Vímulaus ferð til
Ný tónlistarhöll verður vígö i
Glasgow þann 5. október næst-
komandi. Tónlistarhöllin tekur
um 2.500 manns í sæti og þar er
góð ráðstefnu- og sýningarað-
staða svo og veitingasalur. Höilin
er teiknuð af Sir Leslie Martin
og kostaði bygging hennar 27
milijónir punda.
Viö opnunarhátíðina, sem verð-
ur mjög glæsileg, mun Skoska ffl-
harmoníuhljómsveítin meðal
annars leika tvö ný verk eftir
skosk tónskáld, þau Thea Mus-
grave og Thomas Wilson.
Röð tónleika er svo fyrirhuguð
í október. Þann 9. og 10. mun Fíi-
harmoníuhijómsveit Berlínar
leika, þann 12. veröur það Bolshoi
hljómsveitin, Orchestra of the
Age og Enligthenment kemur
fram þann 15. og Fílharmoníu-
hljómsveit Lundúna mun leika i
höllinni þann 30.
Bandarí kj anna
„Það er talsvert stór hópur af fólki
sem vill fara í vímulausa utanlands-
ferð,“ segir Óli Jón Ólason, fram-
kvæmdastjóri Lands og sögu, en
ferðaskrifstofan býður nú í fyrsta
sinn upp á rúmlega þriggja vikna
vímulausa ferð til Bandaríkjanna.
„Það hefur verið spurt mikið um
ferðina og það hefur bókast vel í
hana. Það er talsvert af AA-fólki sem
ætlar sér að fara svo og ýmisir aðrir
sem vilja ferðast án vímuefna." Það
verður lagt upp í ferðina þann 3.
nóvember og komiö heim þann 26.
sama mánaðar. Héðan verður flogið
til Orlando og gist þar og svo haldið
áfram til Flórída þar sem búið verður
á íbúðahóteli í 18 sólarhringa. Á
heimleiðinni verður aftur gist í Or-
lando.
Ferðin kostar frá 87.220 krónum
fyrir manninn miðað við að fjórir
Farvís:
Tímarit um ferðamál
Sjötta tölublað tímaritsins Farvís
er komið út en blaðið fagnar um
þessar mundir tveggja ára afmæli
sínu.
Blaðið er sérrit um ferðamál og
þar er að finna margs konar fróð-
leik um ferðalög, áhugaverða staði
og ferðaþjónustu. Meðal efnis í
þessu tölublaði eru greinar um ítal-
íu, Eiríksjökul, Afríku, Mallorca,
Bretland, hótel um víða veröld,
Hornstrandir og Kverkfjöll og
ýmislegt íleira.
Ritstjóri og útgefandi tímaritsins
Farvís er Þórunn Gestsdóttir.
deili með sér eins svefnherbergis
íbúð og upp í 110.535 krónur miðað
við að tveir séu í sams konar íbúð.
Fyrir hvert barn, sem deilir íbúð með
foreldrum sínum, greiðast 38.900
krónur.
Land og saga mun einnig bjóða upp
á allóvenjulega ferð í nóvember, en
þá verður haldið í tveggja vikna
ævintýraferð til Afríku. Ferðin hefst
í París og þaðan verður flogið beint
til Nairobi í Kenýa. Ekki verður höfð
viðdvöl í borginni heldur haldið
beint áfram meö flugvél til Turkana
og gist á hóteli við vatn þar sem
krókódílar svamla um. Boðið verður
upp á veiðiferðir við vatnið og safa-
ri-skoðunarferðir.
Þá verður haldið af stað á jeppa að
næsta áfangastað, sem ber nafnið
Marala, áður en komið er til vinjar-
innar Nakuru. Þar er dvalið næstu
tvo daga innan um villt dýr í óspjall-
aðria náttúru.
Þjóðgarðurinn Masai Mara er
næsti áfangastaður og verður dvalið
þar í tjaldbúðum. Loks er haldið til
strandar við Indlandshafið. Þá verð-
ur ekið til Nairobi og síðan haldið til
Mombasa þaðan sem flogið er aftur
til Parísar.
Ferðin kostar um 240 þúsund krón-
ur og er flug, flugvallarskattur, allur
matur nema í París, fararstjórn og
þjónusta innifalin í verðinu.
Boðið verður upp á vímulausa ferð til Bandaríkjanna i haust.