Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1990, Side 3
3
oée; aaaMaTías .ts HuoAautrso?
FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1990.
3
Fréttir
Þráinn Eggertsson hagfræðingur:
Island f átækasta ríki
Evrópu um næstu aldamót
„íslendingar standa á krossgötum.
Það eru töluverðar líkur á því að um
næstu aldamót verði ísland eitt fá-
tækasta ríki Evrópu og þótt víðar
væri leitað. Ástæðan felst í skipulagi
hagkerfisins sem ræðst öðru fremur
af stjórnkerfinu og hugmyndafræði
fólksins," segir dr. Þráinn Eggerts-
son hagfræðingur í viðtali við tíma-
ritið Þjóðlíf.
Hann heldur áfram:
„Hvemig stendur á því að snoturt
þjóðfélag eins og það íslenska er
komið langleiðina með að tortíma
sér? Sagan er uppfull af dæmum um
þjóðfélög sem höfðu öll efni til að
íslenska þjóðfélagið komið langleiðina með að tortíma sér
blómstra, en fölnuðu og liðu út af.“
Framtíðarsýn dr. Þráins er ekki
glæsileg. íslendingar, sem löngum
hafa staðið í þeirri trú að þeir séu
meðal ríkustu þjóða heims ef ekki sú
ríkasta, stefna hraöb' i aö því að
verða fátækasta þjóð Evrópu og fá-
tækari en margar þriðja heims þjóð-
ir. Dr. Þráinn horfir þó ekki langt
fram í tímann heldur einungis fram
til næstu aldamóta.
Eins og sérfræðingar OECD og
fjöldinn allur af hagfræðingum, telur
dr. Þráinn að ástæða þess að íslend-
ingar séu að dragast aftur úr sé af-
leiðing af ákvörðunum stjórnvalda.
íslendingar dragast langt
aftur úr iðnþjóðunum
ísland að dragast aftur úr
Pióöarframleiösla á mann á islandi og i OECD-rikjunum
Nokkuð hefur verið fjallað um dökkar horfur í efnahagsmálum íslendinga
í DV á undanförnum mánuðum og bent hefur verið á að allt stefni i að
ísland sé að verða eitt af fátækustu löndum Evröpu. Dr. Þráinn Eggertsson
hagfræðingur tekur í sama streng i nýlegu blaðaviðtali.
Um stefnu stjórnvalda í sjávarútvegi
segir hann:
„Á Nýfundnalandi, Grænlandi, ís-
landi, í Færeyjum og Noregi er verið
aö leggja hagkerfi í rúst sem staðið
gætu í blóma ef rétt væri haldið á
spilunum.
Hvers vegna leggja hagsýnir menn
hagkerfi sín í rúst fremur en að móta
skynsamar reglur? Þessi spurning
gerir stjórnmál áhugaverð í augum
hagfræðings sökum þess að reglurn-
ar verða til á sviði stjórnmála," segir
dr. Þráinn.
-gse