Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1990, Blaðsíða 24
32
FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1990.
Meiming
Guðrún Gísladóttir, Arni Pétur Guðjónsson og Guðmundur Ólafsson í hlutverkum sínum i Fló á skinni.
Borgarleikhúsið sýnir:
Fló á skinni
(La puce á l’oreille)
Höfundur: Georges Feydeau
Leikstjóri: Jón Sigurbjörnsson
Leikmynd og búningar: Helga Stefánsdóttir
Þýðing: Vigdís Finnbogadóttir
„Sumri hallar, hausta fer... “ og vetur konungur
gerir okkur glennu með því að berja að dyrum miklu
fyrr en við áttum von á honum.
Það snjóar á sumarblómin.
Fyrstu frumsýningar haustsins bjóða upp á aíþrey-
ingu. Á fjölum beggja „stóru“ leikhúsanna er haft
uppi gaman og grín, og það er kannske ekki svo illa
við hæfi til þess að þjóðin sökkvi nú ekki ofan í eitt-
hvert allsherjar þunglyndi.
Borgarleikhúsið reið á vaðið í gærkvöldi með frum-
sýningu á sígildum gamanleik, Fló á skinni, sem átti
miklum vinsældum að fagna í Iönó fyrir tæpum tutt-
ugu árum.
Þetta leiktrit er samið í byrjun aldarinnar og ber sem
slíkt aldurinn vel. Persónurnar eru ósköp mannlegar
og það er smá afbrýðisemi og tortryggni eiginkonu sem
hleypir allri flækjunni af stað. Slíkt gæti nú gerst hvar
og hvenær sem er en aðstæður í leikritinu eru bundn-
ar laufléttu Parísarandrúmslofti aldamótaáranna og
ekkert er átt við að staðfæra textann eöa sníða honum
annaö umhverfi. Þýðing Vigdísar Finnbogadóttur er
þægileg á að hlýða og tilsvör mörg ágætlega hnyttin
og hitta vel í mark.
Fyndnin í atburðarásinni er fólgin í allsherjar mis-
skilningi og ruglingi sem veldur hinum ótrúlegustu
uppákomum. Hraði og öryggi er frumskilyrði til þess
að allt gangi upp og við hönnun leikmyndar þarf að
sjá fyrir ótal imikomu- og undankomuleiðum.
Leikstjórinn Jón Sigurbjörnsson byggir þennan
flókna vef ágætlega upp þó að hraðinn eigi án efa eft-
ir að aukast þegar sýningin fer að slípast. Á frumsýn-
ingu vantaði meiri snerpu og einlægari leikgleði þegar
á heildina er htið en neistinn er þarna. Margir leikar-
anna sýndu óvænta takta og sanna hæfileika gaman-
leikarans sem þarf ekki að framkalla hlátur með ódýr-
um brögðum.
Helga Stefánsdóttir hannar búninga og leikmynd í
klassískum stfl. Litasamsetningar eru góðar og margir
fallegir hausthtir prýða búninga og sviðsbúnað. Leik-
myndin gegnir sínu hlutverld ágætlega, stofa
Chandebise hjónanna var hæfilega smáborgaraleg og
sviðið í „Hótel Kisulóru" bráðvel leyst.
Persónumar eru af öllum mögulegum manngerðum
og nokkrar þeirra jaðra við að vera algjörar farsaper-
sónur. Ein þeirra er Camihe. Þór Túhníus sneiddi vel
fram hjá helstu gryfjum og gerði hann fyndinn en um
leið harla mannlegan. Það er ætlast til að leikhús-
gestir hlæi sig máttlausa að málgalla Camihes sem
aðeins getur borið fram sérhljóða. Tal hans verður því
heldur eintóna þangað til hann fær silfurgóm, sem
hann óðara týnir (þó að hann eigi kannske ekki að
týnast alveg eins og lá við að gerðist á frumsýning-
unni).
Feydeau gerir líka óspart grín að útlendingum og
hefur það greinilega falhð í góðan jarðveg á sinni tíð.
Englendingur og Spánverji koma nokkuð við sögu og
eru algjörlega staðlaðar farsapersónur. Þeir Sigurður
Karlsson og Kristján Franklín Magnús draga hvergi
úr enda byggist tilvist þessara persóna í verkinu ein-
göngu á þessu.
Þær Guðrún S. Gísladóttir og Ragnheiður Tryggva-
dóttir fara vel með hlutverk vinkvennanna Raymonde
og Lucienne þó að framsögn þeirra beggja væri dálítið
þvinguð til að byria með. Þetta eru finar og fallegar
Leiklist
Auður Eydal
Parísarfrúr, sem rétt sleppa fyrir horn í öhum ósköp-
unum. Kvenfólkið í verkinu ber reyndar sigurorð af
körlunum, sem eru óhkt álappalegri og auðginntari
en þær.
Guðmundur Ólafsson hefur hlutverk Romain Tourn-
el, kvennabósa, alveg á valdi sínu, bæði fínn og sleipur
og Ása Hlín Svavarsdóttir nýtur hverrar mínútu í hlut-
verki hinnar léttlyndu Antoinette.
Gaman var að sjá þaulreynda leikara Borgarleik-
hússins, við hlið þeirra yngri. Þau Margrét Ólafsdótt-
ir, Jón Hjartarson og Steindór Hjörleifsson gátu leyft
sér töluverða tilburði í hlutverkum heimafólksins á
því vafasama kátínuhúsi „Hótel Kisulóru".
Pétur Einarsson leikur lækninn sem er ómissandi í
allri ringulreiðinni og fleiri persónur koma við sögu.
Eitt aðalatriðið í misskilningnum er að eiginmaöur-
inn, sá sem grunaður er um að vera ekki við eina fjö-
lina felldur, á sér tvífara. Þjóðfélagsstaða þessara
tveggja manna er eins ólík og hugsast getur og leikar-
inn, sem leikur bæði hlutverkin, þarf að hafa snör
handtök þegar hann vindur sér úr öðru hlutverkinu
í hitt.
Ami Pétur Guöjónsson leysir þetta með ágætum og
túlkar báða þessa karaktera á launfyndinn og úthugs-
aðan hátt. Poche og Victor Emmanuel verða í með-
fórum hans bráðóhkir menn enda þótt þeir séu nán-
ast eins í útliti og hamskiptin vekja ósvikna kátínu.
Fló á skinni er hreinræktaöur gamanleikur meö
„gamla laginu" og enn í fullu fiöri. Sýningin fer vel á
sviði Borgarleikhússins og á án efa eftir að stytta
mörgum stundir á næstunni.
AE
Já... en ég nota
yfirleitt beltið!
o
UMFERÐAR
RÁÐ
Afmæh dv
Jón Marinó Kristinsson
Jón Marinó Kristinsson, af-
greiðslumaður hjá Bifreiðaskoðun
Islands í Keflavík, Sólvahagötu 14,
Keflavík, er sextugur í dag.
Jón fæddist í Keflavík og ólst þar
upp. Eftir barnaskólanám stundaði
Jón ýmis almenn unglingastörf í
frystihúsum, við uppskipun og til
sjós. Hann var bifreiðastjóri hjá
SBK í sex ár og tækjamaður hjá
þungavinnudeild hersins á Kefla-
víkurflugvelh í þijú ár. Þá starfaði
Jón hjá Ohufélaginu hf. á Keflavík-
urflugvelh í níu ár, þar af verkstjóri
við viðhald og flutninga eldsneytis
á tankakerfi hersins í sjö ár. Hann
starfaði hjá Bifreiðaeftirliti ríkisins
í Keflavík í tæp fimmtán ár, var
skoðunnarmaður og prófdómari við
minnapróf ökumanna, kenndi við
meirapróf ökumanna og var próf-
dómari í akstri. Þá stundaði Jón
ökukennslu í aukavinnu í tíu ár.
Jón var gjaldkeri í Félagi bifreiða-
eftirhtsmanna í fimm ár. Hann hef-
ur verið félagi í Karlakór Keflavíkur
frá stofnun og ritari þar í fiögur ár.
Hann söng í Keflavíkurkvartettin-
um meðan hann starfaði og söng í
Kirkjukómum í Keflavík frá sextán
ára aldri og þar til fyrir tíu árum.
Kona Jóns er Sonja Ingibjörg
Kristensen, f. 9.3.1931, dóttir Arne
Kristensen frá Noregi, bifreiða-
stjóra hjá Alhance hf. á Þormóðs-
stöðum í Reykjavík, og Ingibjargar
Þórðardóttur húsmóður.
Börn Jóns og Sonju Ingibjargar:
Kamilla, f. 8.8.1950, húsmóðir við
Waltan Beach í Bandaríkjunum, var
gift Josep Alan Williams en þau slitu
samvistum og eiga þau tvo syni;
Arne Ingibjöm, f. 15.8.1953, bifreiða-
stjóri, var áður kvæntur Bergljótu
Grímsdóttur og eignuðust þau tvö
böm, en þau slitu samvistum, er nú
kvæntur Elínu M. Hárlaugsdóttur
og eiga þau eitt barn; Ingibjörg Jóna,
f. 14.-1.1958, skrifstofustúlka ogá
hún einn son; María, f. 22.9.1960,
skrifstofustúlka í Laurendale í
Jón Marinó Kristinsson.
Bandaríkjunum; Kristín Valgerður,
f. 11.8.1962, húsmóðir í Njarðvík,
gift Böðvari Snorrasyni og eiga þau
tvö börn, og Jón Marinó, f. 11.1.1964,
húsasmíðameistari í Njarövík,
kvæntur Jónu Björk Guðnadóttur.
Systkini Jóns: Jóhanna, f. 11.10.
1929, húsmóðir, gift Jakobi Árna-
syni og eiga þau fimm börn; Júlíus
Friðrik, f. 26.9.1932, d. 7.4.1986, var
tvíkvæntur og átti sex börn; Sigurö-
ur Birkir, f. 28.11.1939, var kvæntur
Hhf Káradóttur en þau slitu sam-
vistum og eignuðust þau þijú börn;
Eggert Valur, f. 7.8.1943 og á hann
eitt barn; Sólveig María, f. 28.5.1947,
húsmóðir í Bandaríkjunum, gift J.
Nipper og eiga þau tvö börn, og Ingi-
bergur Þór, f. 18.12.1949, smiður,
kvæntur Guðrúnu Júlíusdóttur og
eigaþautvöbörn.
Foreldrar Jóns vora Kristinn
Jónsson, f. 3.3.1897, d. 11.10.1981,
innheimtumaður hjá Rafveitu
Keflavíkur og meðhjálpari í Kefla-
víkurkirkju í tuttugu og þrjú ár, og
konahans, Kamilla Jónsdóttir, f.
11.10.1904, d. 18.10.1958, húsmóðir.
Jón verður að heiman á afmælis-
daginn.
Guðmunda Magnea
Pálsdóttir
Guðmunda Magnea Pálsdóttir,
lengst af húsmóðir í Bolungarvík,
nú búsett á Skólagötu 8, ísafirði, er
níræð í dag. Guðmunda fæddist í
Bolungarvík og ólst þar upp. Hún
var einn af stofnendum Kvenfélags-
ins Brautarinnar og er heiðursfélagi
sjálfstæöisfélags kvenna í Bolung-
arvík.
Guðmunda hefur verið mikilvirk
hannyröakona frá ungaaldri.
Maður Guðmundu er Ebenezer
G. Benediktsson frá Skálavík ytri.
Guðmunda og Ebenezer eignuðust
fiögur börn, þtjár dætur og einn
son, og eru tvær dætur þeirra á lífi.
Börn þeirra: Herdís, húsmóðir á
Akranesi, nú látin, var gift Hall-
steini Tómassyni en hún eignaðist
fiögur börn og eru þrjú þeirra á lífi;
Helga, kaupmaður á ísafirði, gift
Pétri Bjamasyni skipstjóra og eiga
þau þijár daetur; Flóra Sigríður,
húsmóðir á ísafirði en hún missti
tvo fyrri menn sína, nú gift Hahdóri
Sigurgeirssyni sjómanni og á Flóra
þijú stjúpböm; Halldór sem lést í
frumbernsku.
Guðmunda átti eina hálfsystur
sem nú er látin, Guðrúnu Pálsdótt-
Guðmunda Magnea Pálsdóttir.
ur, húsfreyju í Bolungarvík. Þá átti
hún alsystkini sem létust í fram-
bernsku.
Foreldrar Guðmundu voru Páll
Árnason, smiður og útgerðarmaður
frá Hóli við Bolungarvík, og kona
hans, Berglína Þorsteinsdóttir hús-
móðir.
Leikfimi
Nú hefst nýtt námskeið í
hinni vinsælu þrek- og
teygjuleikfimi á vegum
Fimleikadeildar Ármanns í
Breiðagerðisskóla. Nám-
skeiðin eru á þriðjudögum
og fimmtudögum og hefj-
ast 25. sept.
Upplýsingar í síma 40089
eftir kl. 19.
Rósa Ólafsdóttir
íþróttakennari