Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1990, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1990, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1990. 5 Fréttir Pétur og Páll grínuðust með leikfangabyssur: Standið gleiðir með hendur upp að veggnum skipaði lögreglan og færði þá niður á stöð „Þegar viö sáum lögregluþjóninn koma aö okkur meö kylfu í hendinni og skipa okkur aö standa gleiðir með hendur aö veggnum héldum við aö aö þetta væri eitthvert grín. Þetta var nánast eins og þriöja flokks hasar- mynd. En þegar lögi'egluþjónriinn ítrekaði skipunina sáum við að al- vara var á ferð og gerðum eins og hann sagði. Það var kannski í lagi en okkur óraði ekki fyrir að við yrð- um færðir niður á lögreglustöð hvor í sínum lögreglubílnum þar sem við yrðum yíirheyrðir, myndir teknar af leikfangabyssunum og ljósrit af skilríkjunum," sögðu þeir Pétur og Páll, átján ára menntskælingar, sem lögregla handtók og færði niður á lögreglustöð fyrr í vikunni fyrir það eitt, að því er virðist, að leika sér með leikfangabyssur. Þeir félagar segjast hafa verið á rölti í bænum eftir að Páll hafði feng- ið orlofið sitt útborgað. Þeir áttu leið um Skólavörðustíg og fóru „af rælni" inn í leikfangabúð sem Pétur segist oft hafa komið inn í þegar hann var yngri. Þar skoðuðu þeir sig um og komu auga á leikfangabyssur. „Við sáum þama mjög sniðugar byssur og í einhverju stundarflippi ákváðum við að fá okkur eina byssu hvor. Við fórum þá og borðuðum á kafHhúsi og síðan heim til Páls á Pétur og Páll með leikfangabyssurnar sem komu þeim i „biómyndaleg" viðskipti við lögregluna. DV-mynd Brynjar Gauti Laugaveginum. Þegar við komum skyndilega í hug að fara í „byssó" Skemmtum við okkur við það í um inníbakgarðinnviðhúsiðdattokkur eins og þegar við vorum litljr. tíu mínútur. Þegar við ætluðum að hætta og fara inn kom lögreglan síð- an að okkur." Pétur og Páll segja að lögreglan hafi nær strax séð að þeir voru með leikfangabyssur og áttu von á að málinu yrði því fljótt lokið. En íljót- lega voru sex lögregluþjónar komnir að þeim og ákveðiö var að færa þá á stöðina. Þar voru byssurnar og skil- ríki piltanna mynduð og þeir látnir tæma vasana. „Það var eins og að þeir væru allt- af að reyna að koma einhverju á okkur. Þannig vorum við spurðir hvort við hefðum nokkuð ætlað að ræna banka með byssunum og svo- leiðis. Þeim gat ómögulega dottið í hug að 18 ára strákar ættu til að ærslast eins og við og furðuðu sig á því að við skyldum eyða peningum í leikfangabyssur. Við þurftum að gera grein fyrir ferðum okkar þenn- an dag og eftir skamma stund var okkur sleppt. Við furðum okkur mjög á að hafa verið teknir fyrir akk- úrat ekki neitt. Við ógnuðum engum og skutum lengi hvor á annan án þess að skaðast. Þetta var bara létt grín og flipp af okkar hálfu. Hins vegar hlýtur einhver sem sá okkur að hafa hringt á lögguna og sagt ein- hverjar ógurlegar sögur af tveimur óðumbyssumönnum." -hlh 550króna bót Launanefnd ASÍ, VSÍ og VMSÍ er sammála um að bæta að fullu verðlagshækkun umíram við- miöunarmörk kjarasamninga í september. Verðlagsuppbót vegna október og nóvember greiðist í einu lagi með 550 krón- um í október. l. desember hækka laun síðan um 0,27 prósent. Verðlagsuppbótin í október greiðist með fyrstu launaútborg- un í mánuðinum, þeim sem eru í fóstu starfi viö útborgunhennar og hlutfallslega miðað við starfs- hlutfall. Verðlagsuppbót í októb- er skal þó ekki vera lægri en 275 krónur. -hlh Þessi tafla er byggð á upplýsingum frá Fasteignamati ríkisins og sýnir hvernig raunverð fjölbýlishúsaíbúða hefur fallið. Lækkunin frá 1. ársfjórð- ungi 1989 til 1. ársfjórðungs 1990 er upp á 7,4% en er mun meiri ef miðað er við það tímabil þegar verðið var hvað hæst, á 2. ársfjórðungi 1990. Fasteignaverð fer lækkandi: Raunverð íbúða lækkar um 7,4% á einu ári ÐNAÐAR Persnesk munstur með kínverskri áferð Aigjör nýjung - aðeins hjá okkur Fasteignaverð hefur lækkað und- anfarið ár en í Markaðsfréttum frá Fasteignamati ríkisins koma fram upplýsingar um lækkun á raunverði íbúða upp á 7,4% á einu ári. Þetta gerðist á tímabilinu frá 1. ársfjórð- ungi 1989 til 1. ársfjóröungs 1990. Á þessu tímabili hefur söluverð á fermetra hækkað um 15%, fram- reiknistuðullinn um rúm 12% og lánskjaravísitalan um 21,3%. Þetta gefur 7,4% lækkun að mati Fast- eignamatsins. Um helmingur þessarar lækkunar, eða 3,75%, kemur fram milli 4. árs- fjórðungs 1989 og 1. ársfjórðungs 1990. Erfitt er að finna einhlítar skýring- ar á þessari lækkun en á það hefur verið bent að við breytingar á hús- næðislánakerfi verði yfirleitt óvissu- ástand sem veldur lækkun á íbúðar- húsnæði. Þá hefur það sjálfsagt áhrif hve treglega hefur gengið að koma húsbréfakerfmu af stað en töluvert mun vera um það að seljendur hafni þeim. Hér kemur fram verð á fjölbýlis- húsaíbúðum en yfirleitt er talið að verð á þeim sé hvað stöðugast þann- ig að þessi verðsveifla segir sjálfsagt ýmislegt um hvað gerist með annað húsnæði. Það er að segja, gera má ráð fyrir að verð á því lækki einn- ig- Þá má geta þess að á miðju ári 1989 náöi raunverð fjölbýlishúsa í Reykja- vík hámarki. I lok þriðja ársfjórð- ungs, eða þremur mánuðum síðar, hafði það lækkað aftur í svipað verð og var í upphafi ársins. -SMJ Stærðir 70x110 70x200 120x170 170x240 200x300 Verð kr. 5.120 9.700 13.750 28.500 39.600 ^ Byggingarmarkaður Vesturbæjar teppadeild, Hringbraut 120, símar 28605 og 28600

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.