Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1990, Qupperneq 11
FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1990.
11
í-
f
dv Útlönd
Fjöldamorðin í Flórída:
Morðinginn
enn ófundinn
Anna Bjamasora DV, Flórída;
Nýr þáttur er nú hafinn í leitinni
aö þeim sem myrti fimm skóla-
nema í háskólabænum GainesviUe
í Flórída í Bandaríkjunum í síðasta
mánuði á hrottafenginn hátt Bein-
ist nú rannsóknin að nokkrum
tjömum sem eru nálægt vettvangi
morðanna í þeirri von að morð-
vopnið eða morðvopnin finnist.
Fjöldi lögreglumanna hefur notið
aðstoðar þjóðvarðliða við leit að
sönnunargögnum í skóglendi og
fenjum.
Til þessa hefur athygli lögregl-
unnar einkum beinst að átta mönn-
um. Tveir þeirra þykja þó grun-
samlegastir, Edward Lewis Hump-
hrey, 18 ára gamall, og Stephen
Michael Bates sem er þrítugur.
Þeir eru báðir í varðhaldi en era
þó hvorugur enn ákærðir fyrir
morðin á stúdentunum. Humphrey
situr inni fyrir að hafe lúbariö
ömmu sína en Bates fyrir að hafa
ógnað konu og dóttur hennar.
Humphrey er nemandi á 1. ári í
Flórídaháskóla. Hann var úrskurö-
aður í gæsluvarðhald í kjölfar
morðanna fimm eftir að hann hafði
meðal annars kjálkabrotið öramu
sína. Hann á einnig yfir höfði sér
dóma í tveimur öðrum árásarmái-
um. Amman hefiir nu opinberlega
fyrírgefiö þessu bamabarni sínu
barsmíðina og er óþreytandi aö
lýsa fyrir fréttamönnum á hve
óréttmætan hátt, að hennar dómi,
lögreglan hefur lagt Humphrey i
einelti.
Humphrey er þannig lýst að hann
sé yfir sig hrifinn af hnífum og alls
kyns hermannabúningum. Sagt er
að hann hafi oft farið i ráns- og
rannsóknarferðir, í stíl viö ferðir
kvikmyndahetjunnar Rambós, um
skóglendið að baki hússins þar sem
hapn býr í Gainesville.
Á heimili Bates, sem situr inni
fyrir aö hafa ógnað konu og dóttur
hennar, fann iögreglan bööuis-
snöru, bækur um djöfladýrkun og
morðingja, kvennærfatnað, klám-
myndir og hnífa. Lögreglustjórinn
í þeirri sýsiu sem Bates býr telur
þó haria ólíklegt að hann sé viðrið-
inn stúdentamorðin óhugnanlegu i
Gainesville.
Kyrrt er að kalla í byggðum blökkumanna í Suður-Afríku. Hermenn eru þó hvarvetna á verði og hverfi andstæðra
dafylkinga hafa verið skilin að með gaddavírsgirðingum. Simamynd Reuter
Þokast í friðarátt í Suður-Afríku:
Mandela neyðist
til að gefa eftir
- verður að hitta Buthelezi við samningaborðið
„Ég lýsi fullri ábyrgð á hendur
suður-afrísku stjórninni en viðræður
um stjón allra kynþátta í Suður-
Afríku kunna að sigla í strand ef hún
grípur ekki til viðeigandi ráðstafana
og kemur lögum yfir þá menn sem
síðustu vikur hafa farið með morð-
um hér í landinu," sagði blökku-
mannaleiðtoginn Nelson Mandela í
yfirlýsingu eftir að hafa átt fund meö
Mangosuthu Buthelezi, höfuðand-
stæðingi sínum, í gær.
Fréttir um það að háttsettir menn
í hreyfingum blökkumanna heíðu átt
með sér fund í gær komu á óvart og
yfirlýsmg Mandela bendir ekki til að
viðræðurnar hafi aukið líkur á friði
í landinu. Mandela hefur sakað But-
helezi, leiðtoga zúlúmanna, um að
hafa staðið fyrir manndrápunum
undanfarið í Suöur-Afríku og sagt að
hann hafi notið til þess stuðnings
stjórnarinnar.
Mandela hefur til þessa neitað að
ræða við Buthelezi en hann hefur
nú fallist á viðræður. Buthelezi vill
að þeir tveir ræðist við en Mandela
þvertekur fyrir það og síðasta yfir-
lýsing hans bendir ekki til að miklir
mögulekar séu á smstarfi.
Með yfirlýsignu sinni er Mandela
að ögra Buthelezi því væntanlega eru
það fylgismenn hans sem stjórnin á
að koma lögum yfir. Mandela segir
að Buthelezi vilji berjast að samn-
ingaborðinu og viðræður viö hann
feli í sér viðurkenningu á Buthelezi
sem einum af leiðtogum blökku-
manna í viðræðunum við stjórnina.
Afríska þjóðarráðið, sem Mandela
er nú helsti talsmaður fyrir, hefur
hafnað áætlun ríkisstjórnarinnar
um að koma á friði í landinu. Áætl-
unin fól í sér að stjórnin ætlað að
beita her og lögreglu af vaxandi afli
en margir fylgismenn Mandela saka
einmitt herinn og lögregluna um
hlutdrægni í átökum blökkumanna.
Talið er að Mandela sé nú nauðug-
ur einn kostur að hitta Buthelezi að
máli. Átökin í landinu hafa kostað
um 760 menn lífíð og svo er að sjá
sem ekkert lát verði á blóðsúthelling-
um. Því er ljóst að friöur kemst ekki
á nema leiðtogar fylkinganna komi
sé saman um málamiðlun.
í yfirlýsingu sinni segir Mandela
að allir aöilár verði að koma sér sam-
an um leiðir til að koma á friði þótt
hann falli ekki frá kröfu sinni um
að yfirvöld hegni zúlúmönnum fyrir
þátt þeirra í átökunum.
Mandela er hins vegar ljóst að án
friðar milli blökkumanna verða eng-
ar viðræður um stjórn allra kynþátta
í landinu. Honum er nú aö skiljast
að Afríska þjóðarráðið mun ekki
kotna fram sem eini málsvari
blökkumanna í þeim viðræðum held-
ur verður Buthelezi einnig ætlaður
staöur við samningaborðið þegar
viðræður við stjórnina hefjast.
Reuter
ARCTIC CAT
MIÐSTÖÐ
S LEÐ AVIÐS KIPTA NN A
Wifd Cat
Wild Cat
Prowler
Cheetah
EITigre
EITigre
Jag
Arg. Verð
’89 640.000
’88 520.000
’90 580.000
’87 450.000
’85 350.000
’89 550.000
’89 470.000
ÓSKUM EFTIR SLEÐUM
I UMBOÐSSÖLU
MIKIL EFTIRSPURW
Friðarviðræöumar í Kambódíu:
Noradom Sihanouk
býður óvænt sættir
Noradom Sihanouk prins kom óvænt
í morgun með tillögu til að leysa
hnútinn sem friðarviðræðurnar í
Kambódíu eru komnar í. Prinsinn
bauð að andstæðingar stjórnarinnar
gæfu eftir eitt sæti í Þjóðarráðinu og
fengi þar með meirihluta gegn því
að stjórnarandstæðingar skipi for-
seta ráðsins.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
hefur skorað á stríðandi fylkingar í
Kambódiu að setjast aftur að samn-
ingaborðinu til að ræða friðaráætl-
unina sem ráðiö hefur gert fyrir
landið. Fulltrúar fylkinganna voru
komnir til fundar um málið í Bang-
kok fyrr í vikunni en hittust aldrei
og fóru heim í fússi í gær.
Fylkingarnar hafa hver í sínu lagi
fallist á friðaráætlunina en geta ekki
komið sér saman um hvernig henni
skuli komið í framkvæmd. Aöilar
hafa komið sér saman um að skipa
Þjóöarráð en það er óstaríhæft vegna
þess að enginn vill unna öðrum að
vera þar í forsæti.
Nú síðast strandaði á að stjórn Hun
Sen í Kambódíu gat ekki sætt sig við
Noradom Sihanouk prins sem for-
seta Þjóöarráðsins sem á að ráða
Kambódíunæstumánuði.. Rcuter
Höfum opnað
nýjan matsal
i vesturenda
hússins
m/ölkrá.
Allar veitingar.
Matseðill föstudaginn 21.9.
Rjómalöguð spergilkálssúpa
Ávaxtafylltur grísahryggur
með sinnepssósu og smjörsteiktum kartöflum
Pönnusteiktur steinbítur
með gráðostasósu og grænmeti
Opið
föstudaga
18-01
laugardaga
18-01
Þjónað til borðs, þú heyrir bara Ijúfa, lága tónlist
Sundakaffi - ölkrá - bar - Sundahöfn