Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1990, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1990, Síða 2
Fréttir MÁNUMGUR.24. SEETEMBER 1990. 25 kílóum af dinamíti stolið af verkstæði í Kópavogi: Meira en nóg til að sprengja íbúðarblokk - dínamítið geymt á verkstæðinu frá 12. september 25 kílóum af dínamíti, hvellhettum sprengiþræði og hnalli til aö sper- engja meö var stoliö af verkstæöi við Auöbrekku 28 í Kópavogi aðfaranótt föstudags. Þaö var ekki fyrr en á laugardagskvöld aö þjófnaðurinn uppgötvaðist þegar sá sem rekur verkstæðiö, Stefán Þorbergsson, kom þar inn. Tilkynnti hann strax um þjófnaðinn til rannsóknarlög- reglunnar en gaf upp að einungis væri um 10 kíló af dínamíti að ræða. Þjófurinn eða þjófamir áttu greiða leið inn á verkstæðið þar sem þeir þurftu ekki annað en aö rífa hálfó- nýta krossviðarplötu frá gati á verk- stæðishurðinni til að komast inn. Engu öðru en sprengiefnunum var stolið. Leit að sprengiefnunum hófst þeg- ar í stað. Seinnipartinn í gær fundust 25 kíló af dínamíti undir skúr veiði- varðar við Hvaleyrarvatn hjá Hafn- arfirði sem að öllum líkindum eru úr innbrotinu um helgina. Hvell- hetturnar og sprengiþræðimir vom hins vegar enn ófundnir í gærkvöld. Þá er þjófurinn (eða þjófarnir) ekki fundinn en lögregla biður aUa sem sáu til mannaferða við Auðbrekku 28 aðfaranótt laugardags aö hafa samband. í samtali viö sprengjusérfræðing hjá Landhelgisgæslunni kom fram að gífurlegt tjón gæti hlotist af ef 25 kíló af dínamíti væru sprengd. Það færi eftir aðstæðum hvar dínamítið springi en til að gefa mönnum hug- mynd um sprengimáttinn sagði hann að 25 kíló væru meira en nóg til að sprengja heila íbúðarblokk í loft upp. „Maöur þyrfti ekki annað en að sópa venjulegu íbúðarhúsi upp í fægiskúffu eftir slíka sprengingu.“ Til samanburðar nefndi hann að í sprengingunni á Bergþómgötu í fyrra, þar sem um 60 rúður brotnuðu og tveir bílar stórskemmdust, hafi einungis 130 grömm af dínamíti verið sprengd. „Sprengiefni í þessu magni er auð- vitað stórhættulegt þeim sem ekki kunna með það að fara og ekki síður hættulegt ef menn hafa einhver ill- virki í huga. Það er náttúrlega alger óhæfa að geyma dínamít og hvell- hettur á sama stað. Með því er verið að brjóta lög og bjóöa stórslysum heim,“ sagöi sprengjusérfræðingur- inn. Rannsóknarlögreglumenn segja að maðurinn sem geymdi sprengiefnið í Auöbrekkunni reki þar einhvers konar viðgeröa- og bílapartastarf- semi. Þá væri hann í verktakastarf- semi þar sem sprengiefni koma við sögu. Maöurinn kom með sprengiefnið á verkstæðið 12. september. Það var því búið að vera þar í 10 daga þegar því var stolið. Með tilvísun í orð sprengjusérfræðingsins hefði viö sprengingu myndast ógurlegt skarö í húsaröðina í Auðbrekkunni þar sem ýmis fyrirtæki eru til húsa og bæði lögregla og rannsóknarlögregla öllu lengra frá. -hlh Léleg krossviðarplata var fyrir gati á hurð verkstæðisins við Auð- brekku. Þjófurinn eða þjófarnir þurftu ekki annað en að kippa henni af og þá var leiðin að sprengiefninu eins og beinn og breiður vegur. DV-mynd GVA Kristján Jónsson, fann dínamítiö: Brá hressilega þegar ég sá glitta í túburnar „Það hefði ekki orðiö mikið eftir af honum Stjána Jóns hefði þetta sprungið undir fótunum á honum og Hvaleyrarvatniö hefði líklega horfið til sjávar. Þetta var óskaplegt magn af dínamíti og mér brá óneitanlega hressilega þegar ég sá ghtta í túbum- ar í kassanum," sagði Kristján Jóns- son, 68 ára gamall veiðivörður við Hvaleyrarvatn, í samtali við DV. Það var Kristján sem um þijúleytið í gærdag fann dínamítið sem talið er að stoliö hafi verið af verkstæðinu við Auðbrekku aðfaranótt laugar- dagsins. Hafði dínamítinu verið komið fyrir undir veiðiskúr sem hann hefur haft aðsetur í sem veiði- vörður. „Ég hef veriö veiöivörður viö Hval- eyrarvatn í sumar en hætti um síö- ustu mánaðamót. Ég hef þó farið reglulega til að gá að skúmum sem ég hef haft til afnota og var í einni slíkri ferð um miðjan dag í gær. Ég fór inn í skúrinn eins og ég er vanur og síðan út á pallinn til að kíkja að- eins í kring um mig. Við endann á skúrnum er smágjóta og þar sá ég pappakassa sem vakti athygli mína. Ég teygði mig eftir kassanum, sem reyndar var tómur, og við það var mér litiö innundir skúrinn. Þá sá ég annan kassa sem troðið hafði verið undir skúrinn. Ég náði honum fram undan skúrnum og þegar ég tók lok- ið frá blasti við mér fullur kassi af dínamíti." Kristján segist strax hafa séð að hér var alvara á ferð. Hann hljóp að veginum, sem liggur umhverfis vatn- ið, stöövaði þar konu á sunnudags- rúntinum og bað hana að aka í dauð- aps ofboði niður á lögreglustöð. Stuttu seinna var lögreglan komin á staðinn. Kristján þekkir umhverfið við vatnið mjög vel og aðstoðaði lögregl- una við aö leita ofan í gjótur og sprungur í næsta nágrenni ef vera skyldi að hvellhetturnar eða sprengivírinn fyndist þar. Sú leit bar þó engan árangur. Tómi kassinn, sem Kristján fann fyrst, er talinn vera undan hvellhettunum en báðir kassarnir voru kirfilega merktir sem kassarutanafsprengiefni. -hlh Sprengisérfræðingur hjá Landhelgisgæslunni: Meðferð sprengief na í algerum ólestri „Þetta mál um helgina er ekkert einsdæmi hér á landi. Meðferð sprengiefnis eins og hún tíðkast á íslandi þekkist hvergi nokkurs stað- ar í heiminum," sagði sprengisér- fræðingur hjá Landhelgisgæslunni í samtali við DV. „Meðferð sprengiefna er í algerum ólestri hér á landi. Hér er það frekar reglan en hitt að sprengiefni og hvell- hettur séu geymdar á sama staö en það er kolólöglegt. Oftar en ekki er þetta geymt 1 ónýtum skúrum hingað og þangað og menn eru líka að flytja sprengiefni og hvellhettur milli staöa í sama bílnum. Ef árekstur verður þarf ekki að spyrja að leikslokum. Ástandið í þessum efnum er mjög bagalegt og nánast ekkert gert til aö koma reglu. á þessa hluti,“ sagði sprengisérfræðingurinn. Hann var ómyrkur í máli varðandi þá meðferð á sprengiefnum sem við- gengst hér og eins því tómlæti sem virtist ríkja þegar sprengiefnum væri stolið eins og gerðist um helg- ina. „Víöast hvar í Evrópu er tekið mjög hart á sams konar málum og þau talin stórmál. Sá sem verður uppvís af að stela sprengiefni í Englandi á yfir höfði sér margra ára fangelsi." -? -hlh Kristjan Jonsson við skurinn þar sem kassanum með 25 kiloum af dinamíti hafði verið troðið undir. DV-mynd S SkagaQörður: Riðuveiki í enn einum hreppnum Þórhallur Asmundsson, DV, Sauðárkróki: Riðuveiki hefur nú sfimgið sér nið- ur í einum hreppnum í Skagafirði, Skefilsstaðahreppi á Skaga. Riða var staðfest fyrir nokkru í tveggja vetra kind á bænum Ketu. Eru nú einungis tveir hreppar í Skagafirði þar sem riða hefur ekki verið staðfest, Fells- og Rípur- hreppur. Björn Halldórsson, bóndi í Ketu, sagði menn aö sjálfsögðu hafa velt fyrir sér hvernig kindin, sem riða fannst í, hefði smitast. Erfitt er að gera sér grein fyrir því en nokkuö langt er á annaö riðusvæði. Þó er stutt síöan riða var staðfest á bæn- um Efri-Lækjardal í Engihlíðar- hreppi í Austur-Hún. Fé á Efri-Lækjardal hefur verið lógað en enn er ósamið um förgun Ketuíjárins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.