Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1990, Blaðsíða 16
16
MÁNUDAGUR 24. SEPTEMBER 1990.
DV
Ekkertsjötíu
ogsjö
verkaverð-
launahæft
Sjötíu og sjö handrit bárust til
bókmenntasamkeppni sem Bóka-
klúbbur Almenna bókafélagsins
efndi til á síðasta ári. Skilafrestur
var til 1. júní og hefur dómnefnd,
sem skipuð var þeim Davíð Sch.
Thorsteinssyni, Einari Má Guð-
mundssyni, Eiríki Hreini Finn-
bogasyni, Helgu Guðninu Jo-
hnson og Kjartani Ámasyni,
komist að þeirri niðurstöðu, eftir
að hafa kannað rækilega öll þau
handrit sem bárust að, enda þótt
ýmis handritin séu athyghsverð,
skorti of mikið á í efnisvali, fram-
setningu eða úrvinnslu til þess
að nefndin telji unnt að veita bók-
menntaviðurkenningu. Með hhð-
sjón af þessari niðurstöðu fram-
lengir Almenna bókafélagið
skilafrest til bókmenntasam-
keppninnar til 1. mars 1991.
Nýrrokk-
söngleikur
íKeflavik
Æfingar em nú hafnar hjá
Leikfélagi Keflavíkur á nýjum
íslenskum rokksöngleik sem
nefnist Er tilgangur og er eftir
ungan Keflvíking, Júhus Guð-
mundsson. Leikfélagið hefur ráð-
ið til sín Halldór Guðmundsson
til að leikstýra verkinu en hann
leikstýrði Týndu teskeiðinni hjá
leikfélaginu á síðasta leikári.
Rúmlega 20 manns taka þátt í
sýningunni sem ráögert er að
frumsýna um mánaöamótin okt-
óber/nóvember. Sýningar verða í
Félagsbíói í Keflavík.
íslenski dansflokkurinn:
Nýrfram-
kvæmdastjóri
Ólöf Þórarinsdóttir hefur verið
ráðin framkvæmdastjóri ís-
lenska dansflokksins til eins árs
frá september að telja. Kemur það
til vegna fjarveru Salvarar Nord-
al. Ólöf lauk í ágústmánuði síð-
asthðnum meistaragráðu í
stjórnsýslufræðum á sviði stjórn-
unar opinberra stofnana og stofn-
ana sem ekki em reknar í fjár-
gróðaskyni frá Washington há-
skólanum í Seattle í Bandaríkj-
unum. í námi sínu innan þessa
sviðs lagði Ólöf sérstaka áherslu
á rekstur hstastofnana. Loka-
verkefni Ólafar er nú notað sem
kennsluefni í stjórnun hstastofn-
ana á meistarastigi við Washing-
ton háskólann.
Kvikmynda-
sýningará
vegum MÍR
hafnar
Eins og undanfarin ár mun fé-
lagið MIR standa fyrir reglu-
bundnum kvikmyndasýningum
á sunnudögum í vetur og var
fyrsta sýningin í gær. Sýndar
verða gamlar og nýjar sovéskar
kvikmyndir úr safni félagsins,
leiknar myndir, heimildarmynd-
ir og teiknimyndir. Meðal mynda,
sem sýndar verða í vetur, má
nefna Álexander Névskí eftir Ser-
gei Eisenstein, Solaris eftir Andr-
eri Tarkovskí, Hvit sól eyðimerk-
urinnar eftir Vladimir Motyl,
Sjötti júh eftir Júh Karssik og
óperumyndimar Evgeni Onegin
og Spaðadrottningin. Aögangur
að kvikmyndasýningum MÍR er
ókeypis.
Merming
dansara en kvendansara. Sæmilegur
karldansari getur ahtaf fengið vinnu
einhvers staðar meðan kvendansari,
sem getur verið mun betri, þarf að
hafa miklu meira fyrir því að fá
vinnu. Hjá okkur eru í mesta lagi
tveir til þrír piltar í flokki."
Erfitt að fá
píanóleikara
„Kennarar við skólann eru, auk
mín, María Gísladóttir, sem er ný-
komin heim, og Hlíf Svavarsdóttir,
sem einnig er nýkomin til okkar, og
Nanna Ólafsdóttir sem áður var hst-
dansstjóri íslenska dansflokksins en
er nú fastur kennari hjá okkur.
Við emm vel sett með kennara en
það er ekki hægt aö segja um píanó-
leikara. Það hefur ávallt verið erfitt
að fá píanóleikara við hstdansskól-
ann. Þetta er kvöldvinna og sérstök
tegund af vinnu fyrir píanóleikara.
Við þurfum að hafa þijá í gangi og
það em orðnir margir sem hafa kom-
ið við hjá okkur en aðeins einn píanó-
leikari hefur starfað lengi við skól-
ann. Þaö er Björg Guðnadóttir. Ég
hef oft sagt í gamni að þaö þyrfti að
setja hana í ljósritunarvélina og fjöl-
rita eintök af henni.“
Klassískur dans er aðalkennslu-
greinin við Listdansskóla Þjóðleik-
hússins en þar er einnig kenndur
nútímadans, spuni, djassdans og
danssaga. „Það era ekki alhr nem-
endur, þótt góðir séu, sem passa inn
í klassíska dansinn og svo era það
aðrir sem óska eftir að fá að dansa
nútímadans, sem býður upp á meiri
túlkunarmöguleika. Klassíski dans-
inn er samt sú undirstaða sem alhr
dansarar þurfa að hafa.“
Að lokum sagðist Ingibjörg vilja
hvetja ungu piltana til að koma í List-
dansskólann. „Þaö er ekkert hættu-
legt fyrir phta að stunda dansinn.
Nýlega komu inn í skólann tveir
sautján ára pUtar sem höfðu veriö í
fimleikum og era þeir virkhega góð-
ir. Við bjóðum sértíma fyrir stóra
stráka og höldum þeim tímum þótt
það séu ekki nema einn eða tveir sem
sækjaþá. -HK
||0lll
Þessar ungu stúlkur voru í kennslustund hjá Maríu Gísladóttur sem nú miðlar af þekkingu sinni til upprennandi
dansmeyja.
Piltar eru fáir f Listdansskóla Þjóð-
leikhússins en þessi ungi piltur, sem
er hér á myndinni ásamt öðrum
nemanda, gaf stúlkunum ekkert eftir
í erfiðum dansæfingum.
Listdansskóh Þjóðleikhússins hóf
starfsemi sína í nýju húsnæði að
Engjateigi 1. Undanfarin ár hefur
skólinn búið við þröngan húsakost
og hefur getað tekið takmarkaðan
fjölda nýrra nemenda í skólann. í
fyrra voru til að mynda engir nýir
nemendur teknir inn í skólann vegna
óvissu í húsnæðismálum.
Nú hefur skóhnn til afnota þrjá
sah undir kennslu og æfingar og fast-
ráðnir hafa verið þrír kennarar að
skólanum. DV heimsótti skólann
einn daginn og fylgdist með kennslu
og tók skólastjórann, Ingibjörgu
Jónsdóttur, tah:
„Við höfum verið frá upphafi í
Þjóöleikhúsinu, í tveimur sölum
undanfarin ár, annar er æfingasalur
leikhússins. Viö höfðum hann ásamt
leikuram Þjóöleikhússins og þegar
íslenski dansflokkurinn var stofnað-
ur var hann þar einnig til húsa. Þar
var mjög þröngt um okkur. íslenski
dansflokkurinn var með æfingar til
klukkan fimm, þá gátum við fyrst
byrjað kennslu. Þegar svo sýningar
hófust kl. 8 þurftum við að hætta.
Viö fengum síðan inni í íþróttahúsi
Jóns Þorsteinssonar en þegar því var
breytt í „htla svið“ Þjóðleikhússins
kom aftur upp sama vandamáhð. Við
þurftum að hætta fyrir kl. 8. Þannig
að með þessu húsnæði sem við höf-
um nú fengið við Engjateig hefur
aðstaða okkar breyst heilmikið til
batnaðar og veitir það okkur mun
meira fijálsræði. Hér getum við verið
ahan daginn og það er ekkert sem
truflar starfsemina."
íslenski dansflokkurinn er einnig
hér til húsa, enda nátengdur List-
Ingibjorg Guðmundsdóttir, skólastjóri Listdansskóla Þjóðleikhússins.
dansskólanum. Allir dansararnir þar
era útskrifaðir úr Listdansskóla
Þjóðleikhússins: „íslenski dans-
flokkurinn hefur húsnæðið fyrir sig
fyrri hluta dagsins. Hann byrjar æf-
ingar á morgnana og er fram eftir
degi. í húsinu höfum við þrjá sah til
afnota og skóhnn byijar kl. hálffjög-
ur. Það hefur sýnt sig að það er er-
fitt að fá börnin til að mæta fyrr.
Nýja húsnæðið hefur gert okkur
kleift að fjölga nemendum til muna.
Við vorum með um níutíu nemendur
í skólanum í fyrra en þá tókum við
enga nýja nemendur inn í skólann.
í ár eram við aftur á mótí með um
eitt hundrað og fimmtíu nemendur,
fimmtíu þeirra era böm sem ekki
hafa áöur verið við skólann.
Húsnæðið gerir ekki aðeins það að
verkum að við getum tekið þennan
fjölda af nýjum nemendum inn í
skólann heldur getum við búið betur
að efnilegustu nemendunum sem
settir era í úrvalsflokka. Nú er hægt
að hafa þá mun lengur í tíma en áður
var. í stað þess að þessir flokkar voru
í kennslu einn tíma í einu er hún nú
tveir.“
Líkamsbygging ræður vali
á nemendum í byrjun
„Við val á nýjum nemendum í skól-
ann er eingöngu farið eftír líkams-
byggingu. Það er viss líkamsbygging
sem hæfir dansinum. Annað sem til
þarf, skapgerðareiginleikar og
hvemig tóneyra nemandinn hefur,
kemur síðar í ljós.
Hættulegasti tíminn er gelgju-
skeiðið þegar líkaminn er að þrosk-
ast, þá kemur í rauninni í ljós hvort
nemandinn hafi þá miklu löngun til
að dansa sem þarf til að verða góður
dansari.
Því miður era drengir alltaf í mikl-
um minnihluta. Þetta er einhver
gamaldags hræðsla við dansinn sem
er landlæg hér á landi. Auðvitað er
einnig minna um karldansara er-
lendis en það er sérstaklega slæmt
hér hvað fáir piltar fást til aö nema
listdans. Samt era atvinnumöguleik-
ar erlendis miklu meiri fyrir karl-
Listdansskóli Þjóðleikhússins:
Fimmtíu nýir nemendur
teknir inn í skólann