Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1990, Side 25

Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1990, Side 25
MÁNUDAGUR 24. SEPTEMBER 1990. 33 Sviðsljós Tímarit um Quayle Síöan Dan Quayle var settur inn í embætti varaforseta Bandaríkjanna hefur þaö orðið vinsælt sport meðal stjómmálamanna og blaðamanna að gera grín að mismælum hans og segja skemmtisögur af afglöpum hans. Nú hafa tveir ungir athafnamenn komið á laggirnar sérstöku tímariti sem fjallar eingöngu um Quayle. Blaðið nefnist Quayle Quarterly og er gefið út ársfjórðungslega og er 16 síður í hvert sinn. Blaðinu hafa þegar áskotnast 5.500 áskrifendur og er sagt að meðal þeirra séu margir háttsettir áhrifamenn í bandarísku þjóðlífi bæði í hópi flokksmanna Quayle og andstæðinga. Spurðir um framtíðarhorfur tíma- ritsins kjósa ritstjórar að vitna í Quayle sjálfan og segja: „Ef þetta tekst ekki, þá vex hættan á því að það mistakist." Forsíða fyrsta tölublaðsins af Quayle Quarterly. Pacino i hlutverki Big Boy í Dick Tracy. Pacino sem Don Corleone i þriðju myndinni um Guðföðurinn. Pacino leikur guðföður A1 Pacino leikur einn af höfuðóvin- um leynilögreglumannsins Dick Tracy en kvikmynd um kappann þann og baráttu hans við glæpahyski hefur nú litið dagsins ljós og er sýnd í tveimur bíóum í Reykjavik. Pacino er nær óþekkjanlegur í hlutverki sínu í Dick Tracy og mátti eyða klukkustundum í förðun fyrir hverja töku. Hann er líkari sjálfum sér í hlutverki Don Corleone en þriðja myndin um Guðfóðurinn verður frumsýnd vestra fyrir jól. Það er Francis Ford Coppola sem situr við stjórnvöhnn og er myndinni spáð talsverðum vinsældum. Prinsinn sýnir myndir frá íslandi Nú stendur yfir í Salisbury í Bret- landi sýning á 62 vatnslitamyndum eftir Karl Bretaprins. Myndirnar, sem eru aðallega landslagsmyndir, hefur prinsinn málað á ferðum sín- um víða um heim. Helstu staðirnir eru Saudi-Arabía, island, Spánn, Tyrkland og Skotland. Prinsinn, sem ekki gat verið við- staddur opnun sýningarinnar vegna meiðsla sem hann hlaut í pólóleik, segir í formála að sýningarskrá að hann vilji helst geta unnið að hverri mynd fimm daga í röð við svipuð birtuskilyröi. Prinsinn hefur nokkr- um sinnum komiö til íslands til lax- veiða bæði í Vopnafirði og Borgar- firði. Myndirnar á sýningunni eru ekki til sölu en aðgangseyrir rennur til viðgerða á turni dómkirkjunnar í Salisbury. Eftirprentanir verða seld- Karl Bretaprins. ar og rennur ágóðinn í sérstakan góðgerðarsjóð í nafni prinsins. Fmele KAFF! Þú sérð ekki muninn! HANN FINNST A BRAGÐINU.... HEILDSOLUB. JOHN LINDSAY HF.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.