Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1990, Page 26
34
MÁNUDAGUR 24. SEPTEMBER 1990.
Afmæli
Garðar E. Cortes
Garöar E. Cortes, Háleitisbraut 103
Reykjavík, er fimmtugur í dag.'
Garðar er fæddur í Rvík, lauk gagn-
fræðaprófi í Hlíðardalsskóla í Olfusi
1957 og var í guðfræðinámi í New
bold College í Englandi 1959-1961.
Hann var í námi í Watford School
of Music í Englandi 1963-1969 og
lauk prófum frá Royal Academy of
Music í London (licentiant prófi) í
söngkennslu 1968 og Trinity College
of Music í London (associate prófi)
í einsöng 1969. Garðar var í söngn-
ámi hjá Linu Pagliughi í Gatteo
Mare á Ítalíu 1978 og 1979, Helenu
Karusso í Vínarborg 1980 og 1981 og
í námi í ljóðasöng hjá dr. Erik
Werba á árunum 1978-1984. Hann
var skólastjóri Tónlistarskólans á
Seyöisfirði 1969-1970 og var kennari
í ensku og tónlist í Réttarholtsskó-
lanum 1970-1972. Garðar stofnaði
söngskólann í Rvík 1973 og hefur
verið skólastjóri hans frá upphafi.
Hann stofnaði Sinfóníuhljómsveit-
ina í Rvík 1975 og var stjómandi
hennar frá upphafi þar til hún hætti
starfi 1979. Garðar hefur verið for-
maður Landssambands blandaðra
kóra frá 1977, stofnaði íslensku
óperuna 1979 og hefur verið óperu-
stjóri frá upphafi. Hann stofnaði kór
söngskólans 1974 sem nú er kór ís-
lensku óperunnar. Garðar stjórnaði
karlakómumFóstbræðrum 1970-
1972, Samkór Kópavogs 1970-1972
og var kórstjóri og stjórnandi söng-
sveitarinnar Fílharmoníu 1971 og
1973-1975. Hann var stjómandi
Fóstbræðra í alþjóðlegri söngkeppni
í Wales þar sem kórinn hlaut önnur
verölaun 1972 og var stjórnandi kórs
söngskólans í söngferð til Wales og
Englands 1977. í þeirri ferð var tekin
upp plata með söng kórsins. Garðar
hefur verið stjórnandi á öllum nor-
rænum kóramótum Nord Klang frá
1980 og hefur verið í aðalstjórn Nor-
diska Körkommitten (musikutval-
ged) frá 1981. Hann hefur verið að-
altenór við íslensku óperuna frá
upphafi og þar að auki sungið mikið
erlendis, m.a. á írlandi, Englandi,
Svíþjóð, Noregi, Danmörku, Banda-
ríkjunumogSuður-Ameríku. •
Helstu hlutverk Garðars eru m.a.:
Alfredo í La Traviata, Manrico í II
Trovatore, Radames í Aidu, Florist-
an í Fidelio, Hoffmann í Hoffmann,
Don Jose í Carmen, Pagliacci í Pagl-
iacci, Macduff í Macbeth og Cavara-
dossi í Toscu. Hann hefur stjórnað
söngleikjum, óperettum og óperum,
t.a.m.: Ég vil, Ég vfi, Oclahoma,
Cabaret, Zorba hjá Þjóðleikhúsinu,
Pagliacci, Mikado og Leöurblökunni
hjá íslensku óperunni. Þá stjórnaði
Garðar óperunni Nóaflóðinu eftir
Benjamín Britten á fyrstu Listahá-
tíð og hefur stjómað ýmsum kór-
verkum og óratoríum eins og Elía
eftir Mendelssohn, „Nelson“-mes-
sunni, Pákumessunni og Stríðsmes-
sunni eftir Haydn og Frið á jörðu
með Sinfóníuhljómsveitinni og
söngsveitinni Fílharmoníu.
Garðar kvæntist 21. nóvember
1970 Krystynu Cortes píanóleikara.
Foreldrar Krystynu em: Wladyslaw
Blasiak, myndhöggvara í Kings
Langley í Englandi, og kona hans,
Beryl Blasiak listmálari. Dóttir
Garðars og Rafnhildar Bjarkar Ei-
ríksdóttur, f. 1. janúar 1943, er: Sigr-
ún Björk, f. 21. desember 1963, rit-
ari, maður hennar er Björgvin Þór-
haUsson sagnfræöingur. Börn Garö-
ars og Krystynu em: Nanna María,
f. 3. janúar 1971, Garðar Thór f. 2.
maí 1974 og Aron Axel, f. 25. sept-
ember 1985. Bróðir Garðars er Jón
Kristinn, f. 6. febrúar 1947, tón-
menntakennari í Rvík, kvæntur
Álfrúnu Sigurðardóttur gjaldkera.
Foreldrar Garðars eru Axel Cort-
es, d. 1969, myndfaldari og verslun-
armaður í Rvík, og kona hans,
Kristjana Jónsdóttir. Axel var sonur
Emanuels Cortes, yfirprentara í
Gutenberg, Péturssonar Cortes,
koparsmiðs í Stokkhólmi. Móðir
Axels var Björg Jóhannesdóttir Zo-
ega, trésmiðs í Rvik, Jóhannessonar
Zoega, útgerðarmanns í Rvík, Jó-
hannessonar Zoega, glerskera í
Rvík, Jóhannessonar Zoega, fanga-
varðar í Rvík, frá Slesvík, af ættinni
Zuecca, höfðingjaætt gyðinga á eyj-
unni Giudecca í Feneyjum. Móðir
Bjargar var Guðrún Jónsdóttir, b. í
Starkaðarhúsum í Flóa, Ingimund-
arsonar, b. í Norðurkoti í Gríms-
nesi, Jónssonar. Móðir Ingimundar
var Guörún Snorradóttir, b. í Kakk-
arhjáleigu, Knútssonar, og konu
hans, Þóm Bergsdóttur, b. í Bratts-
holti, Sturlaugssonar, ættföður
Bergsættarinnar. Móðir Guðrúnar
var Sigríður Sigurðardóttir, skipa-
smiðs á Hjallalandi á Álftanesi, Sig-
urðssonar, og konu hans, Guðrúnar
Jónsdóttur, silfursmiðs á Bíldsfelli,
Sigurðssonar, ættföður Bíldsfells-
ættarinnar, föður Þorvarðar, lang-
afa Ingimundar, afa Jóhönnu Sig-
urðardóttur ráðherra.
Kristjana er dóttir Jóns, húsa-
smíðameistara í Rvík, Magnússon-
ar, b. á Lágum í Ölfusi, Jónssonar.
Móðir Magnúsar var Guörún, systir
Magnúsar, langafa Ellerts Schram
ritstjóra. Guðrún var dóttir Magn-
úsar, b. á Hrauni, Magnússonar, b.
í Þorlákshöfn, Beinteinssonar, lög-
réttumanns á Breiðabólstað, Ingi-
mundarsonar, b. í Hólum, Bergsson-
ar, bróður Þóm í Kakkarhjáleigu.
Móðir Guðrúnar var Guðrún Hall-
dórsdóttir, b. á Lágum í Ölfusi, Böð-
varssonar, og konu hans, Sigríðar
Eiríksdóttur, b. á Litlalandi í Ölfusi,
Ólafssonar. Móðir Sigríðar var
Helga Jónsdóttir, b. á Vindási á
Landi, Bjarnasonar, b. á Víkings-
Garðar E. Cortes.
læk, Halldórssonar, ættföður Vík-
ingslækj arættarinnar.
Móðir Kristjönu var Kristjana
Friðjónsdóttir, b. á Laugum í
Hvammssveit, Sæmundssonar.
Móðir Friðjóns var Guðrún Guð-
mundsdóttir, skipasmiðs á Hóli,
Ormssonar, b. í Fremri-Langey, Sig-
urðssonar, ættföður Ormsættarinn-
ar, langafa Snæbjarnar í Hergilsey,
afa Snæbjarnar Jónassonar vega-
málastjóra. Ormur var einnig lang-
afi Þórhalls, afa Péturs Einarssonar
flugmálastjóra. Móðir Guðrúnar
var Margrét, systir Finns, afa Ás-
mundar Sveinssonar myndhöggv-
ara. Margrét var dóttir Sveins, b. í
Neðri-Hundadal, Finnssonar og
konu hans, Guðrúrfar Guðmunds-
dóttur, systur Þórdísar, langömmu
Ragnheiðar, móður Snorra Hjartar-
sonar skálds. íslenska óperan og
söngskóhnn í Reykjavík heiðra
Garðar á afmæli hans með því að
halda honum hóf á svölum íslensku
óperunnar frá kl. 20 í kvöld.
Þorvaldur Jóhannsson
Þorvaldur Jóhannsson bæjarstjóri,
Barmahlíð 33, Seyðisfirði, veröur
fimmtugur á morgun.
Þorvaldur er fæddur á Siglufirði
og ólst þar upp. Hann lauk lands-
prófi frá Héraösskólanum á Laug-
um 1955 og kennaraprófi frá Handa-
vinnudeild Kennaraskólans 1959.
Þorvaldur lauk íþróttakennaraprófi
frá Laugarvatni 1960 og var í ársor-
lofi viö nám og kennslu í Kaup-
mannahöfn 1971-1972. Hann var
íþrótta- og handavinnukennari
Seyðisfiarðarskóla 1960-1975 og
skólasfióri sama skóla 1975-1984.
Þorvaldur var bæjarfulltrúi í bæjar-
stjóm Seyðisfiarðar 1974-1984 og
hefur verið bæjarstjóri Seyðisfiarð-
ar frá 1. júní 1984. Hann var formað-
ur sfiórnar Sambands sveitarfélaga
á Austurlandi 1984-1986 og hefur
verið fulltrúi fyrir Austurland í
stjórn Sambands íslenskra sveitar-
félaga frá 1986. Þorvaldur var for-
maður fyrstu skólanefndar Verk-
menntaskóla Austurlands 1986-1987
og hefur verið í stjórn Hafnasam-
bands sveitarfélagafrá 1987. Hann
er í jarðganganefnd samgönguráöu-
neytisins fyrir Austurland, í stjórn-
sýslunefnd og orku- og stóriðju-
nefnd Sambands sveitarfélaga á
Austurlandi. Þorvaldur hefur gegnt
fiölda trúnaðarstarfa fyrir íþróttafé-
lagið Hugin og Ungmenna- og
íþróttasamband Austurlands. Hann
var m.a. formaður Hugins um skeiö
og formaður skíðaráðs í fiölda ára.
Þorvaldur kvæntist 2. september
1961 Dóru Sæmundsdóttur, f. 19.
desember 1935. Foreldrar Dóru voru
Sæmundur Guðmundsson og kona
hans, Ríkey Eiríksdóttir. Börn Þor-
valds og Dóru em: Friðþóra Ester,
f. 22. júní 1961, hjúkrunarfræðingur
á Höfn í Homafirði, gift Birni Sig-
finnssyni; Inga, f. 8. ágúst 1963, hús-
móðir á Seyðisfirði, gift Þorsteini
Arasyni og Jóhann, f. 10. október
1966, sjómaður á Seyöisfirði. Fóstur-
böm Þorvalds (frá fyrra hjónabandi
Dóm Sæmundsdóttur): Hafdís Bald-
vinsdóttir, f. 26. júní 1952, húsmóðir
á Neskaupstað, gift Gunnari Gunn-
laugssyni og Þorsteinn Þórir Bald-
vinsson, f. 23. ágúst 1957, búsettur í
Darvin í Ástralíu. Systkini Þorvalds
eru: Sigríöur, f. 16. júní 1939, sjúkra-
liði í Rvík, gift Henning Finnboga-
syni flugvirkja; Stefanía, f. 17. nóv-
ember 1941, fóstra í Rvík; Indriði, f.
27. janúar 1943, framkvæmdastjóri
starfsmannasviðs Verslunarbanka
íslands, kvæntur Kristjönu Björk
Leifsdóttur og Freysteinn, f. 25. júní
1946, fréttastjóri Morgunblaðsins,
kvæntur Sigríði Sólborgu Eyjólfs-
dóttur.
Foreldrar Þorvalds eru Jóhann
Þorvaldsson, f. 16. maí 1910, fyrrv.
skólastjóri á Siglufirði, og kona
hans, Friðþóra Stefánsdóttir, f. 16.
maí 1909, kennari. Jóhann var sonur
Þorvalds, b. í Tungufelli, Baldvins-
sonar, b. á Böggvisstöðum, bróður
Snjólaugar, móður Jóhanns Sigur-
jónssonar rithöfundar. Bróðir Bald-
vins var Þorsteinn, afi Þorsteins
ópemsöngvara, föður Páls, útvarps-
stjóra Bylgjunnar, og Jóhanns
Hannessonar skólameistara, föður
Wincie, formanns Hins ísl. kennara-
félags, Þorsteinn var einnig langafi
Benedikts Ámasonar leikstjóra.
Baldvin var sonur Þorvalds, b. á
Sökku í Svarfaðardal, Gunnlaugs-
sonar. Móöir Baldvins var Snjólaug,
systir Hólmfríðar, langömmu
Björns Th. Bjömssonar listfræð-
ings. Bróðir Snjólaugar var Stefán,
faðir Filippíu, langömmu Guðjóns
B. Ólafssonar, forstjóra SÍS, og Hall-
dórs, föður Atía Rúnars og Jóns
Baldvins fréttamanna. Stefán var
einnig faðir Kristins, langafa Þor-
steins Sæmundssonar stjarnfræð-
ings. Spjólaug var dóttir Baldvins,
prests á Upsum í Svarfaðardal, Þor-
steinssonar, bróður Hallgríms, föð-
ur Jónasar skálds. Móðir Þorvalds
í Tungufelli var Þóra Sigurðardótt-
. ir, b. á Hellu, Jónssonar, og konu
hans, Sigríðar Gunnlaugsdóttur,
bróður Þorvalds á Krossum.
Móðir Jóhanns var Sigríður Sig-
urðardóttir, b. á Tungufelli í Svarf-
aðardal, Sigurðssonar, b. á Upsum,
Ólafssonar, ráðsmanns í Syðra-
Holti, Ólafssonar. Móðir Sigurðar á
Upsum var Hallfríður Jónsdóttir,
b. í Syðra-Holti, Bjömssonar, b. og
hreppstjóra í Syðra-Holti, Halldórs-
sonar, bróður Rögnvalds, langafa
Jóhannesar, langafa Valgerðar
Sverrisdóttur alþingismanns. Móðir
Sigurðar á Tungufelli var Guðlaug
Þorvaldur Jóhannsson.
Gunnlaugsdóttir, systir Þorvalds á
Krossum. Móðir Sigríðar var Rósa
Sveinsdóttir, b. á Hofi, Björnssonar,
b. á Hofi, Egilssonar, prestsí
Stærra-Árskógi, Þórarinssonar.
Móðir Rósu var Elín Sigurðardóttir,
prests á Bægisá, Sigurðssonar og
konu hans, Rósu Magnúsdóttur, b.
í Myrkárdal, Jónssonar, prests á
Myrká, Ketilssonar, föður Þor-
gríms, langafa Gríms Thomsen.
Friðþóra er dóttir Stefáns, b. á Nöf
á Hofsósi, Péturssonar, b. í Brekku-
koti, Guðmundssonar. Móöir Péturs
var Sigríður Ólafsdóttir, b. á Uppsöl-
um í Blönduhlíð, Jónssonar og konu
hans, Guðbjargar Semingsdóttur,
systur Marsibil, móður Bólu-Hjálm-
ars. Móðir Ólafs var Guðný Sigurð-
ardóttir Jónssonar og konu hans,
Bjargar Kráksdóttur, stúdents á
Ysta-Mói, Sveinssonar, bróður Páls,
langafa Sveins Pálssonar, læknis og
náttúrufræðings. Móðir Stefáns var
Hólmfríður Jónsdóttir, systir Þor-
bjargar, ömmu Barða Guömunds-
sonar þjóðskjalavarðar. Móðir Frið-
þóm var Dýrleif Einarsdóttir, b. á
Kletti í Reykholtsdal, Jónssonar.
Móðir Einars var Kristín, systir
Bjarna, afa Bjarna Þorsteinssonar,
prests og tónskálds á Siglufirði.
Móðir Dýrleifar var Þórdís Jóns-
dóttir, b. í Vík í Héðinsfirði, Jónas-
sonar, prests í Reykholti, Jónsson-
ar, föður Þórðar dómstjóra.
Þorvaldur tekur á móti gestum í
húsnæði Austfars hf. á Fjaröarhöfn
í Seyðisfiröi á afmælisdaginn kl.
17-20.
afmælið 24. september
90 ára
85 ára
Guðmundur Valdimar
Dynskógum 9
Hendrik Stcinsson,
Akurgerði 2 Akranesi
75 ára
70 ára
Sóley T. Hansen,
Einilundi 10C Akureyri
Nikoiína Sverrisdóttir,
Skólavegi 34 Keflavík
Oddur Örnólfsson,
Sundstræti 30 Ísafíröí
60 ára
Friðrik Sigurbjörnsson,
Mávabraut 6A Keflavik
Fanney Magnúsdóttir,
Fossheiði 48 Selfossi
Ólafur Jón Þórðarson,
Einigrund 8 Akranesi
Gíslina Sæmundsdóttir,
Gunnarsbraut 8 Hafnarftrðí
Guðmundur Guðnason,
Höfðagrund 20 Akranesi
50 ára
Ásbjörnsson,
Sveinar Rósantsson,
Ægisgötu 13 Akureyri
Sigríður Ólöf Sigurðardóttir,
Heiðargerðí 21 Akranesi
Jóhanna Dagbjartsdóttir,
Ásabraut 13 Grindavík
Lars Hans S. Blaasvær,
Hátúni 10
Sigurrós Gísladóttir,
Hlíðargötu 45 Búðarhreppi
Fjóla Guðmannsdóttir,
Hásteinsvegi 55 Vestmannaeyjum
Páll Ingólfsson,
Gnoðarvogi 56 Reykjavík
Sigurberg Árnason,
Stórateigi 9 Mosfellsbæ
Ívar Árnason,
Fagurhólstúni 15 Eyrarsveit
Marin Ingibjörg Guðveigsdóttir
Asparfelli 10
Óli Pétur Friðþjófsson,
Laugarásvegi 6
Magnús Ingólfsson,
Selási 16 Egilsstöðum
40 ára
Ragnheiður Friðsteinsdóttir,
Noröurvör 3 Grindavík
Guðmundur Friðrik Kristjánsson,
Laufási 1 Egilstööum
Guðrún Jóhannesdóttir,
Vesturbergi 118
Arngrimur Magnússon,
Höíðavegi 49 Vestraannaeyjum
Guðrún Guðmundsdóttir,
Vesturgötu 151 Akranesi
Jón S Baldursson,
Bieiksárhlíö 32 Eskiftrði
Guöbjörg Ólafsdóttir,
Smyrlaharuni 41 Hafnarfiröi
Þórunn Halldórsdóttir,
Langholti 9 Keflavik
Runólfur Þorláksson,
Silungakvisl 5
Reykjavík
Leiðrétting
Jón Sigurdsson
Andlátsgrein um Jón Sigurðsson,
birtist 6. september. Jóhanna Guð-
mundsdóttir, var Margrét Vigfús-
dóttir, systir Ófeigs, föður Grétars
FeUs.
Gissur
Símonarson
Gissur Símonarson varð sjötugur
15. september. Gunnar Levý, er
kvæntur Huldu Kristinsdóttur,
nema í klæðskerasaumi og eiga þau
fjögur þöm. Sonur Gissurar er einn-
ig Símon Már, f. 9. febrúar 1953,
tæknifræðingur, kvæntur Margréti
Ágústsdóttur, nema í fjölmiðla-
fræöi, og eiga þau einn son
Sigríður
Kolbeinsdóttir
Sigríður Kolbeinsdóttir varð níræð
10. ágúst Sigríður var í námi í
Heymleysingjaskólanum 1909-1916.
Systir Sigríðar heitir Sigurlína.