Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1990, Side 8
8
FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 1990.
Utlönd
Shamir forsætisráöherra ísraels segir Bandarikin hafa sýnt tsrael lítilsvirðingu með þvi að styðja fordæmingu
Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Simamynd Reuter
Blóðbaðið í Jerúsalem:
ísraelar bjóða
skýrslu eigin rann
sóknarnefndar
ísraelsk yfirvöld buöu í gærkvöldi
Sameinuöu þjóðunum skýrslu
sinnar eigin nefndar sem rannsakar
manndrápin á Musterishæðinni í
Jerúsalem í síöustu viku. Yfirvöld í
ísrael neita enn samvinnu viö nefnd
á vegum Sameinuðu þjóðanna.
Ekki er enn ljóst hvort fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna,
Perez de Cuellar, lætur verða af því
aö senda rannsóknarnefnd til ísraels.
Flestir fulitrúar í Öryggisráði Sam-
einuðu þjóðanna eru sagðir hafa
þrýst á framkvæmdastjórann um að
senda nefnd.þó svo að ísraelar hafni
samvinnu við hana.
Arababandalagið hefur fordæmt
ísrael vegna blóðbaðsins í Jerúsalem
en náð málamiðlunarsamkomulagi
um gagnrýni á Bandaríkin. Ályktun-
in var samþykkt í gærkvöldi eftir að
ágreiningur hafði risið milli hóf-
samra og harðlínumanna. Fulltrúar
Frelsissamtaka Palestínu, PLO, voru
í broddi fylkingar þeirra sem gengu
út þegar utanríkisráðherrar og full-
trúar greiddu atkvæði gegn ályktun
um gagnrýni á Bandaríkin vegna
linkindar þeiira gagnvart ísrael.
Ráðherrar frá írak, Súdan og Jemen
fylgdu á eftir PLO-mönnum.
Sendifulltrúar frá Norður-Afríku-
ríkjum töldu þá á að koma aftur inn
á fundinn og náðist samkomulag um
ályktun þar sem Bandaríkin voru
hvött til að virða réttindi Palestínu-
manna og araba og hætta aðstoð við
ísrael.
James Baker, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, kom fyrir utanríkis-
málanefnd fulltrúadeildarinnar í
gær. Hörð orðaskipti urðu á milli
hans og þingmanna sem hlynntir eru
ísrael. Baker sagði hins vegar að
blóðbaðiö í Jerúsalem væri óafsak-
anlegt. Leiðtogar bandarískra gyð-
inga hafa gagnrýnt sendiherra
Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóð-
unum fyrir að hafa stutt ályktun sem
fordæmdi ísraela.
Reuter
AUKABLAÐ
BÍLAR OG UMFERÐ
Miðvikudaginn 31. október nk. mun aukablað um bíla og
umferð fylgja DV.
í blaðinu verður Qallað um dekk og vetrarakstur, ljósabúnað
ogýmislegt annað sem tengist bílum og umferð. Einnig verð-
ur sagt í máli og myndum frá því nýjasta sem fram kom á
alþjóðlegu bílasýningunni í París í byijun október.
Þeir auglýsendur, sem hafa áhuga á að auglýsa í þessu auka-
blaði, vinsamlegast hafi samband við auglýsingadeild DV hið
fyrsta i síma 27022.
Vmsamlega athugið að skilaffestur auglýsinga er fyrir
fimmtudaginn 25. október.
Ath.! Telefaxnúmer okkar er 27079.
Eðlilegt ástand er nú að komast á í Austur-Beirút eftir bardagana þar fyrir
viku þegar sókn var gerð að Aoun, yfirmanni herafla kristinna.
Simamynd Reuter
Líbanon:
Finnar vondauf ir
um lausn gísla
Vonin um að fá látna lausa þá herinn var við völd í Grikklandi.
fiórtán finnsku gísla semieru i írak Fastafulltrúarnir fimm lijá Ör-
er sögð hafa minnkað. írösk yfir- yggisráði Sameinuðu þjóðanna
völd hafa í sanmingaviðræðum við voru í gærkvöldi að leggja síðustu
finnska sendinefnd, sem er í heim- hönd á sameiginlega tillögu Breta
sókn í írak, sett fram óbein skilyrði og Bandaríkjamanna að ályktun
sem sendinefndin hefur neitað að sem fæli í sér skaðabótakröfur á
fallast á. hendur írak vegna innrásarinnar í
Á þriðjudaginn hafði upplýsinga- Kúvæt. í ályktuninni er þó ekki
ráðherra íraks lofaö að Finnamir kveðiö á um hvernig írakar cigi að
fengju að fara frá írak. Síðan kom greiða bætur til þeirra sem telja sig
í Ijós að samningamaður íraka vildi hafa beðið tjón af innrásinni. Sega
að Finnar létu vinsamleg orö falla stjórnarerindrekar að Bandaríkin
í garð íraks sem þeir neituðu. viiji ekki núna styðja aðgerðir sem
Finnar voru samt sem áður beðnir gætu orðið til að arabaríkí myndu
um að útbúa lista með nöfnum krefiast hins sama vegna aðgerða
aldraðra ög sjúkra gísla sem fengju ísraela á herteknu svæðunum.
forgang. Fínnska sendinefndiri Eftir að írakar buðust til þess í
kraföist þess aö allir finnsku gísl- gærmorgun að selja umheiminum
arnir fengju að fara þar sem ekki ódýra olíu lækkaði verð á hráolíu
væm neinir aldraðir eða sjúkir á mörkuðum í gær. Samkvæmt ir-
meðal þeirra. ' ösku fréttastofunni INA lofuðu ír-
Níutíu Svíar eru í Bagdad. Sendi- ösk yfnvöld að selja hveijum sem
maður sænska utanríkisráðuneyt- væri, þar með töldum Bandarikj-
isins lagði af stað x gær til að semja unurn, oliu á því verði sem samtök
um lausn þeirra en auk þess ráö- olíuútflutningsríkja, OPEC, komu
gera sænskir þingmenn og múha- sér síðast saman um, það er tunn-
meðstrúarmenn í Svíþjóð ferð til una á 21 dollara. Fór veröið á Norð-
íraks. Gríska tónskáldið Theodor- ursjávarolíuniðurf>TÍr34dollara.
akis hefur einnig lofað aðstoð sinni Reutcr, FNB og TT
í þakklætisskyni fyrir þá hjálp sem
Sviar veittu Grikkjum ..
Hrawi segir
stríðinu lokið
EUas Hrawi, forseti Líbanons, seg-
ir frið vera kominn á í landinu og
lofar að leysa upp liðssveitir trúar-
hópa og stjómmálahópa sem átt hafa
í stríði í fimmtán ár. Hersveitir for-
setans og sýrlenskir hermenn hröktu
Aoun, yfirmann herafla kristinna,
úr forsetahöllinni síðastliðinn laug-
ardag og dvelur hann nú í franska
sendiráðinu í Beirút.
Frakkar, sem lengi hafa stutt
kristna í Líbanon, hafa nú beðið
Sameinuðu þjóðirnar að kanna hvað
hæft sé í fregnum um aftökur og
önnur ódæðisverk í árásinni á laug-
ardaginn. Líbanskir heimildarmenn
segja að sýrlenskir hermenn hafi
myrt tugi kristinna fanga í hefndar-
skyni fyrir mikið mannfall í sókninni
gegn Aoun. Samkvæmt frásögnum
þjóðvarðliða hliðhollum Sýrlending-
um þóttust menn Aouns gefast upp
en hóíú síðan skothríð þegar sýr-
lensku hermennirnir birtust.
Sýrlenskir og líbanskir hermenn
hafa þessa viku fiarlægt víggirðingar
sem skiptu höfuðborginni Beirút í
hluta kristinna og múhameðstrúar-
manna skömmu eftir aö borgara-
stríðið byrjaði. Eftiriit var hert í
Austur-Beirút, borgarhluta krist-
inna, til að koma í veg fyrir grip-
deildir og morð- múhameðskra
byssumanna sem komu í kjölfar her-
manna Hrawis og Sýrlendinga.
Heimildarmenn hhðhollir Irönum
segjast gera ráð fyrir að stjórnar-
hermenn sæki næst inn í úthverfin
í suðurhluta Beirút þar sem shita
múhameðstrúarmenn og mannræn-
ingjar halda til. Sagt er að alhr gísl-
ar, sem verið hafa í haldi í úthverfun-
um, hafi verið fluttir fyrr í þessari
viku. Sumir eru sagðir hafa verið
fluttir til Bekaa dalsins í austurhluta
landsins.
Heimhdarmenn innan öryggislög-
reglunnar segja að hryðjuverkamað-
urinn Habib al-Chartouni, sem stóð
á bak við sprengjutilræðið gegn
Gemayel forseta og fiölda manna
hans 1982, hafi verið sleppt á þriðju-
daginn úr fangelsi í borgarhluta
kristinna í Beirút. Hann er sagður
hafa verið látinn laus af samtökum
þeirra þjóðvarðhða sem hann th-
heyrði.
Reuter