Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1990, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1990, Side 11
FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 1990. 11 Utlönd Kaff i er gott fyrir hjartað Vilji menn lifa lengi er síst af öllu ástæða til að óttast kaffi nema það sé koffinlaust. Svo virðist sem læknar hafi haft kaffið fyrir rangri sök þegar þeir leituðu skýringa á hjartasjúkdómum. Kafíið hefur nú verið sýknaö af öllum ákærum um að valda hjarta- sjúkdómum. Læknar hafa komist að þessari niðurstöðu eftir rannsóknir á 45.589 Bandaríkjamönnum. Rannsóknin fór fram við Harvard- háskóla og sýndi að því fylgir lítil sem engiri hætta að drekka allt að sex bolla af kafíi á dag og er þá átt við verijulegt kaffi. Prófessor Walter Willett, sem stjómaði rannsókninni, segir að hættan á að fá hjartasjúkdóma vegna kaffidrykkju verði að teljast hverf- andi borið saman við reykingar eða offitu. Um langt árabil hafa læknar staðið í þeirri meiningu að kaffidrykkja yki verulega hættuna á kransæðasjúk- dómum og fleiri hjartasjúkdómum. Tengshn þarna á niilli hafa þó aldrei verið sönnuð og engar umfangsmikl- ar kannanir verið gerðar á áhrifum kaffidrykkju. Nú fyrst var ráðist í að kanna áhrif- in hjá stómm hópi fólks. Niðurstöð- umar erukynntar í nýjasta tölublaði New England Journal of Medicine. Þar fullyrðir Willett að niðurstöð- urnar sýni ekkert samband milh hjartasjúkdóma og kaffidrykkju. Hann segir að læknar hafi metið kaffið ranglega til þessa vegna þess að miklir kaffimenn reykja oft líka. Þannig hafi menn kennt kaffinu um það sem var reykingunum aö kenna. Willett segir einnig að svo virðist sem kaffimenn borði margir óhollari mat en þeir sem hafna kaffinu. Þetta eigi líka sinn þátt í að kaffinu er kennt um sjúkdóma sem stafa af slæmu mataræði. Það þykir líka merkilegt við rann- sóknina að hún sýndi að koffinlaust kaffi er óhollara en þetta venjulega. Meiri líkur eru á að þeir sem drekka koffínlaust kaffi fái hjartasjúkdóma en hinir sem drekka kaffi með koff- íni. Þarna munar þó ekki miklu. Willett segir að óhófleg kaffi- drykkja geti verið hættuleg en fjórir til sex bollar á dag geri engum mein. Það er ekki fyrr en bollamir eru farnir að skipta tugum sem heilsa manna er í hættu. Með í könnuninni voru nokkrir tedrykkjumenn. Hvaö þá varðar var niðurstaðan ótvírætt sú að te er hinn mesti heilsudrykkur og ekkert sam- band fannst milli tedrykkju og hjartasjúkdóma. NýskýrslaíNoregi: kennarastöðum um þriðjung Hægt væri að fækka kennara- stöðum i grunnskólanum í Nor- egi um þriðjung, eðá fimmtán þúsund stöður, án þess að það kæmi að sök. Þetta er fullyrt í skýrslu sem norska atvinnu- málaráðuneytið hefur látið gera. 10 nemendur á kennara í skýrslunni kemur fram aö aö meðaltali séu tíu nemendur á kennara í Noregi en fimmtán til sextán nemendur á kennara í Evrópubandalagslöndunum. Sagt er að engar vísindalegar kannanir sýni fram á að gæði kennslunnar veröi betri séu nem- endur fáir. Tekið er fram í skýrsl- unni að líklega gæti kennslan orðið betri ef kennurum yröi fækkaö því þá væri hægt að veita umpemnga meira fé til kennslubóka og ann- arra námsgagna. Kennarar mótmæla harðlega Atvinnumálaráðuneytið í Nor- egi hefur fengið ýmsa sérfræð- inga tp að kanna leiöir til sparn- aðar. í skýrslu um landbúnaðar- mál var fullyrt að hægt yrði að spara mikiö með þvi að fækka bændum. Þegar sú skýrsla var birt brugðust bændur harkalega við en kennarar bregðast ekki við af minni hörku nú. Samtök kennara saka yfirvöld um „að hugsa bara um peninga" og spurt er að því hvers vegna Noregur eigi að taka mið af Evr- ópu. Evrópa geti allt eins vel tek- iðmiðafNoregi. ntb Tölvupappír llll.-O RtUL-^NT Hverfisgotu 78, simar 25960 25566 ... alla daga áf*’ ARNARFLUG INNANLANDS hf. Reykjavíkurflugvelli - sirai 29577 NÚERAÐ HTITA Á RÉITU KÚWRNAR Efþú hittirfœrðu milljónir Sími 685111. Upplýsingasímsvari 681511.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.