Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1990, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1990, Page 13
. FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 1990. 13 Lesendur Démgreindarieysi hjá stjómarformanni? Einar Ólafsson skrifar: Það hafa líklega fleiri en ég orðið undrandi, þegar fréttíst að stjórnar- formaður Flugleiða ásamt öðrum stjórnarmanni í félaginu hefði í hyggju að selja hlutabréf sín í félag- inu. - Það var því ofur eðlilegt að fjöl- miðlum fyndist það feitur biti að komast í að skýra frá þessum óvenju- legu hugmyndum stjómarformanns þessa umsvifamikla fyrirtækis. Ekkert annað en fyrirsjáanlegt gjaldþrot eða uppstokkun og endur- skipulagning fyrirtækis í nauðvörn getur valdið því að stórir hluthafar vilja skyndilega kanna sölumögu- leika hlutabréfa sinna. Það fór líka svo að forstjóri fyrirtækisins var spurður hvort rétt væri með farið og hvort þessi ákvörðun stjórnarfor- mannins teldist ekki ávirðing innan félagsins, sem sjálft væri að útbúa hlutafjárútboð upp á milljónir króna. Hann svaraði og sagði, að ekkert væri því til fyrirstöðu, aö sala hluta- bréfa stjórnarmanna stæði yflr á sama tíma og sala á nýjum bréfum í Flugleiðum því markaðurinn þyldi vel þetta útboð, jafnvel allt að einum milljarði króna. - Síðan þetta var sagt hefur eitthvað það gerst sem breytí hefur fyrirætlan stjórnar- formannsins því síðustu fréttir herma að hann hafi dregið söluna á hlutabréfunum til baka. Hinn stjórn- armaðurinn situr hins vegar fast við sinn keip og hefur ekki gefið út neina yfirlýsingu um að hann hafi dregið sín bréf til baka af sölumarkaði verö- bréfa. - Það hefur reyndar hvorugur þeirra stjórnarmanna gert opinber- lega ér þetta er ritað. Nú bíða menn, sem vilja spá frekar í kaup á hiutabréfum, spenntir eftir því hvernig þessu máli lyktar, því ef raunin verður sú að bréf helstu stjórnarmanna í Flugleiðum eru til sölu, þá hlýtur fólk að hugsa sig tvisvar um áður en það kaupir ný bréf úr þeim herbúðum. - Ætla verð- ur þó að allt sé með felldu og von- ancfi að upphlaup stjórnarformanns- ins sé bara mannlegt dómgreindar- leysi. Það er ekki á allra færi að spá í veðurhorfur á íslenskum fjár- magnsmarkaði þessa dagana. Svar Andrésar til ritstjóra Hestsins okkar: Eins gott að f ólk viti... Mér er alveg ljóst að enginn fengur er í því fyrir tvö tímarit af sama toga að birta greinar á líkum tíma með sams konar efni. Þó er það gert. Sam- anber ítarlega lýsingu á móti í hesta- íþróttum sem síðasti Eiðfaxi gerir góð skil. - Þetta er allt tuggið upp í „Hestinum“, nema hvað uppsetning- in á greininni þar er nánast hörmu- leg. Síðasta tölublað „Hestsins“ er næstum allt skrifað af Jens Einars- syni. Er það kannski ekki gagnrýni vert, nema ef menn vildu láta fleiri sjónarmið koma fram í slíku blaði. - En auðvitað er það algjör óþarfi. Aðalatriðið er að ritstjórarnir fái aö njóta sín. Ef sú staðhæfing Þráins Bertels- sonar er tekin gild, að grein mín hafi ekki verið keypt út úr blaðinu, stendur eftir að kyngja því, að sams konar grein hafi birst í Eiðfaxa rétt áður. En það er bara ekki hægt, vegna þess að greinarnar eru gjöró- líkar, eins og ég hef áður tekið fram. En út yfir allt tekur auðvitað að ekki skyldi vera haft samband við mig áður en greinin var tekin út úr blað- inu. - Sjálfsagt hefði mátt lagfæra eitthvað ef vilji hefði verið fyrir hendi. Ef þeir menn sem stýra útgáfu „Hestsins" eru þeirrar skoðunar að engir aðrir séu færir um að skrifa skammlausar greinar er sjálfsagt lít- ið við því að segja. En það er þá eins gott að fólk viti það svo ekki sé verið að álpast til að senda inn greinar, sem eru aðeins til óþurftar fyrir rit- stjórana. Mér finnst sjálfsagt að benda fólki á þetta og eins það að „Hesturinn“ er ekki ætlaður hverj- um sem er. - Hann á að fá að fifa og deyja í friði án þess að lesendur séu að skipta sér af honum. Hvemig menn komast á „svartan lista“: Vanef ndir verktaka ollu vandanum Kristinn skrifar: Árið 1984 keypti ég íbúð í húsi sem var í byggingu í Reykjavík. Fyrstu mánuði byggingartímans gekk allt samkvæmt áætlun. Afhending íbúö- arinnar tilbúinnar undir tréverk átti að fara fram í des. 1984. Það dróst fram í janúar 1985 og þótti manni það ekki tiltökumál. - Sameign og lóð átti að vera tilbúin í júlí 1985. - En þá fór að síga á ógæfuhfiðina. Lítið var unnið um sumarið, en um haust- ið var bílaplanið steypt og sett teppi á stigagang og húsið málað að utan að hluta til. Svo ekki söguna meir. Sama haust var ráðinn lögfræðing- ur til þess aö taka málið að sér, þ.e. að innheimta skuld sem verktaki hafði veðsett húsið fyrir og til að freista þess að ná fram verklokum á húsi og lóð. - Síðan eru liðin fimm ár og máfið er enn hjá lögmanninum, sem er á fullu að vinna í því, en ár- angur enn sem komið er lítill. Snemma árs 1989 var ákveðið af okkur húseigendum að greiða upp þetta lán sem verktaki hafði veðsett húsið fyrir til þess að losa veðið af húsinu. Sömuleiðis að ljúka þeim framkvæmdum sem eftir voru utan- húss. - Samtals var upphæðin sem við þurftum að greiða á hverja íbúð hátt í 600 þús. krónur, umfram um- samið kaupverð. Að mér frátöldum eru fjórir aðrir hér í húsinu sem eru komnir á þann „svarta lista“ sem Reiknistofan hf. í Hafnarfirði gefur út yfir vanskila- menn - og allt vegna þessa máls. Þetta er þó allt traust og heiðarlegt fólk sem í hlut á. Og mér vitanlega hefi ég ekki svo mikið sem dregið greiðslu gíróseðils fram yfir gjald- daga. - Reyndar skulda ég lögmanni okkar einhverja tugi þúsunda vegna málsins en sé ekki ástæðu til þess að gera það upp fyrr en hann hefur náð einhverjum frekari árangri í máfinu. Upphaflega var þetta klúður hjá þeirri fasteignasölu sem sá um samn- inginn vð verktaka ásamt vanefnd- um þessa verktaka sem síðustu sum- ur virðist einna mestan áhuga hafa haft á að þræða dýrustu laxveiðiár landsins og sýnist mér hann að því leytinu til keppa við sjálfan forsætis- ráðherrann. - Þaö getur vel hugsast að ég taki til við að reifa þetta mál að nýju í fjölmiðlum ef mér þykir ástæða til. - Með þökk fyrir birting- una. PRÓFKJÖR SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS GUÐMUNDUR H. GARÐARSSON Kosningaskrifstofan er í Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7, jarðhæð (norðanverðu). Opin virka daga 14.00-21.00 og 10.00-16.00 um helgar. SÍMAR: 38730 - 38761 - 38765. Stuðningsmenn Tilbod vikunnar Rjómalöguð sjávarréttasúpa nautafílet m /púrtvínssveppajafningi, grœnmeti og bakaðri kartöflu kaffi kr. 980,- Saltkjöt og baunir alla jimmtudaga Opið frá kl. 11.30 til 23.30 Hamraborg 11 - sími 42166 azS U RVALSBÆKU RNAR FÁSTÁNÆSTA BÓKA- OG BLAÐSÖLUSTAÐ. ÚRVALSBÆKUR MÁNAÐARLEGA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.