Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1990, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1990, Page 14
14 FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 1990. Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsinaar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11.105 RVlK.SIMI (91 )27022- FAX: (91)27079 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Askriftarverð á mánuði 1000 kr. Verð í lausasölu virka daga 95 kr. - Helgarblað 115 kr. Ein málstofa Guðrún Helgadóttir, forseti Sameinaðs þings, hefur skýrt frá því að hún ásamt deildarforsetunum tveim hafi skrifað þingflokkunum bréf þess efnis að afnema skiptingu alþingis í deildir og sameina þær í eina mál- stofu. Þingflokkarnir munu þegar hafa skipað nefnd sem mun fjalla um þetta erindi. Hér er tímabær tillaga á ferðinni. Tvískipting al- þingis í efri og neðri deild á rætur sínar að rekja til konungsskipaðra þingmanna, sem sátu í efri deild, með- an þeir kjörnu sátu í hinni neðri. Þannig hafði konung- ur nokkurs konar neitunarvald í þinginu og gat hindrað framgang mála sem lýðkjörnir fulltrúar höfðu sam- þykkt. Þessi skipan mála hélst óbreytt eftir lýðveldistök- una, þótt konungur og þingmenn hans hefðu ekki leng- ur ítök á alþingi íslendinga. Rökin fyrir tveim deildum auk sameinaðs þings voru helst þau að málsmeðferð á þingi yrði vandaðri þegar frumvörp þurfa að fara í gegn- um þijár umferðir í hvorri deild. Hefð og íhaldssemi hefur ráðið mestu um að þinginu hefur ekki fyrir löngu verið breytt í eina málstofu, auk þess sem skipan alþingis er stjórnarskrárbundin og krefst samþykkis tveggja þinga og staðfestingar í þjóðar- atkvæðagreiðslu. í áranna rás hefur hugmyndinni um eina deild, eina málstofu, margoft skotið upp en jafnan verið kæfð í fæðingu ellegar mætt andstöðu þingmanna, sem telja sig missa spón úr aski sínum þegar nefndum og embætt- um innan þingsins fækkar sem þessu nemur. Rökin fyrir breytingunni eru mörg og gild. Tvíverkn- aður er úr sögunni, líkur eru á hraðari meðferð mála og hagræðing fyrir þingmennina jafnt sem starfsfólk þingsins er augljós. Alþingi íslendinga er ekki jafn þétt setið og þjóðþing flestra annarra og ástæðulaust að skipta hópnum í tvær sjálfstæðar deildir sem taka sömu mál á dagskrá. í framhaldinu mætti svo huga að enn frekari fækkun þingmanna. Guðrún Helgadóttir hefur réttilega bent á að hér er ekki um flokkspólitískt mál að ræða. í flestum ef ekki öllum þingflokkunum hafa áhrifamenn tjáð sig fylgjandi breytingunni. Hún hefur jafnframt bent á að þingmenn verði að afgreiða málið í tæka tíð svo það fái samþykki yfirstandandi þings og verði síðan lagt fyrir í komandi alþingiskosningum. Frumkvæði forseta Sameinaðs al- þingis og deildarforseta er ánægjulegt og mun vera í fyrsta skipti sem æðstu embættismenn alþingis hafa haft frumkvæði að þessari merku breytingu. Það gefur máhnu vigt, sem og það að nú hefur tillagan verið tekin til formlegrar meðferðar hjá fulltrúum allra þingflokk- anna. Hingað til hefur það oftast háð hugmyndum um breytingar á skipan alþingis að frumvörp hafa verið borin fram af einstökum þingmönnum sem ekki hafa náð fullri samstöðu um máhð af flokkspóhtískum ástæð- um. Það er margt gott um það að alþingi sé íhaldssamt um gamlar hefðir og vinnubrögð. Alþingi er kjölfesta lýðveldisins og shkri stofnun á ekki að breyta meira en góðu hófi gegnir. Þar þarf stöðugleika. En alþingi þarf að fylgjast með tímanum og má ekki daga uppi í forn- eskjunni. Nýir tímar kalla á ný vinnubrögð. Alþingis- menn verða að búa við vinnubrögð og vinnustað sem gerir þeim betur kleift að sinna starfi sínu. Enginn vafi er á því að ein málstofa á alþingi mun verða til mikilla bóta fyrir löggjafarstarfið og stjórnmáhn í landinu. Ehert B. Schram Mikhail Gorbatsjov, forseti Sovétríkjanna. - í þróuninni í Evrópu hefur allt frumkvæði komið frá Gorbatsjov, segir Gunnar í greininni. Verðugur verðlaunahafi Viðtakendur friðarverðlauna Nóbels í gegnum tíðina hafa verið misvel að þeim komnir en engum getur blandast hugur um að Mik- hail Gorbatsjov á þau skilin. Eng- inn einn maður á meiri þátt í því gjörbreytta andrúmslofti sem ríkir í samskiptum risaveldanna og hef- ur leitt til alveg nýrra viðhorfa í heimsmálum. Það skiptir ekki máli í þessu sam- bandi hvort allt það sem gerst hefur í Sovétríkjunum og Austur-Evrópu er beinlínis hans verk eða hefur orðið vegna sögulegrar, óstöðvandi framvindu, staðreyndin er sú að það var Gorbatsjov sem gerði þess- ar breytingar mögulegar. Fyrir að- eins íimm árum var kalda stríðiö kaldara en það hafði verið í áratugi með stórfelldri hemarðaruppbygg- ingu á báða bóga, öll Austur-Evr- ópa var undir járnhæl sovéska hersins, kjamorkustríð var fjar- lægur en samt hugsanlegur mögu- leiki. Minni maður en Gorbatsjov heíði hæglega getaö haldið áfram á sömu braut og Brésnéf og eftirmenn hans, Andropof og Sjornenko, það er alltaf áhættuminnst að fara troðnar slóðir. Ógnarjafnvægið AUt frá því ógnaijafnvægi risa- veldanna í kjarnorkuvígbúnaði komst á upp úr Kúbudeilunni 1962, hafði vígbúnaðarkapphlaupiö verði eina málið sem þau áttu sam- eiginlegra hagsmuna að gæta í, nefnilega að það raskaðist ekki. Hverju nýju flugskeyti Bandaríkj- anna var svarað með enn öflugra sovésku flugskeyti og gagnkvæmt. Fyrsti umtalsverði áfanginn í takmörkun kjarnorkuvígbúnaðar náðist með SALT samkomulagi Nixons og Brésnéfs 1972, síðan sömdu Ford og Brésnéf um frekari fækkun 1976. Andrúmsloftið miili risaveldanna lagaðist nokkuð á þessum tíma sem kenndur var við spennuslökun eða détente. En ailt sem áunnist hafði hvarf í einu vet- fangi á jóladag 1979 þegar Sovét- menn réðust inn í Afganistan. Árið 1981 voru síðan herlög sett í Póllandi, lýðræðishreyfingin kæfð og Samstaða bönnuð. Afleið- ingin varð meðal annars sú að Re- agan Bandaríkjaforseti og þingiö neituðu að staöfesta SALT 2 samn- inginn um enn frekari takmörkun gjöreyðingarvopna þótt ákvæði hans væru raunar virt í fram- kvæmd. Upp úr innrásinni í Afgan- istan og með valdatöku Reagans í Bandaríkjunum 1981 hófst nýr kafli í kalda stríðinu sem einkenndist af mestu hemaðaruppbyggingu Bandaríkjanna í áratugi og nær KjaUarinn Gunnar Eyþórsson fréttamaður algjöru sambandsleysi leiðtoga risaveldanna. Á þessum tíma var kjarnorkuvígbúnaðurinn enn auk- inn með meðaldrægum flugskeyt- um í Evrópu og þessi flugskeyti og deilur um þau settu svip sinn á þessi ár. Nýr tónn Með valdatöku Gorbatsjovs 1985 kvað viö nýjan tón og hann hóf þegar umleitanir við Vesturlönd um slökun spennu. Fyrsta mál á dagskrá Gorbatsjovs var að endur- reisa efnahag Sovétríkjanna og til að ná því markmiði var hann reiðubúinn til aö slaka mikið til í kapphlaupinu við Bandaríkin. Fyrsti meiriháttar áfanginn í þá átt var samkomulagið um að eyða öllum meðaldrægum kjarnavopn- um í Evrópu en drög að því sam- komuiagi voru lögð á fundi Reag- ans og Gorbatsjovs í Reykjavík 1986. Sá fundur braut ísinn, eftir Reykjavíkurfundinn gengu málin hratt fyrir sig. Eftir að afnám með- aldrægu flugskeytanna hafði verið staðfest komst enn frekari skriður á afvopnunarviðræður og þeim fleygir nú fram miðaö við þaö sem áður var. En það sem framar öllum öðrum sannaði friðarvilja Gorbatsjovs og eyddi tortryggni í hans garð á Vest- urlöndum var ákvörðun hans 1988 að hætta stríðsrekstri í Afganistan. Samhhða varð æ ljósara aö Gor- batsjov hafði varanlega breytt sov- ésku þjóðfélagi með glasnost stefnu sinni sem opnaði sovéskt þjóðfélag fyrir þjóðfélagsumræðu meira en nokkru sinni hafði þekkst og þegn- arnir fengu meira frelsi en þekkst hefur nokkru sinni fyrr innan Sov- étríkjanna. Jafnvel þótt perestrojkan, tilraun Gorbatsjovs til að endurreisa dauðadæmt hagkerfi kommúnism- ans, hafði mistekist, sem æ betur kemur í Ijós, hefur glasnostið rutt leiðina til raunverulegs lýðræðis og í þá átt stefnir þróunin nú í Sov- étríkjunum með tilheyrandi ólgu og hugsanlegum glundroða og upp- lausn. Austur-Evrópa Kommúnistastjórnirnar í Aust- ur-Evrópu héldu völdum í skjóli sovéska hersins, minnugar inn- rásarinnar í Tékkóslóvakíu 1968. Gorbatsjov ákvað að hætta afskipt- um af innanríkismálum þessara ríkja með þeim afleiðingum sem alkunnar eru. Síðast en ekki síst kippti hin nýja stefna Gorbatsjovs grundvellinum undan tilveru Austur-Þýskalands, sameining þýsku ríkjanna 2. októb- er og þar með endalok skiptingar Evrópu og þar með kalda stríðsins, er stefnu hans að þakka meira en nokkrum öðrum. Með sameiningu Þýskalands er grunnur lagður að alveg nýrri Evrópu, styrjöld milli risaveldanna vegna Evrópu er ekki lengur raunhæfur möguleiki, hætt- unni á kjamorkustríöi risaveld- anna hefur verið bægt frá, væntan- lega fyrir fullt og allt. I þessari þróun hafa Bandaríkin verið áhorfendur og samningsaðih, aht frumkvæði hefur komið frá Gorbatsjov, það hefur verið á hans valdi að láta málin þróast eins og þau gerðu. Þótt eftir á sé auðvelt að segja að svona hefði fariö hvort sem er, er það ekki rétt, það var Gorbatsjov sem stýröi þeim öflum sem að verki voru í þennan farveg. Fyrir þaö er hann verðugasti við- takandi friðarverðlauna Nóbels frá upphafi. Gunnar Eyþórsson „ ... það sem framar öllu öðru sannaði friðarvHja Gorbatsjovs og eyddi tor- tryggni 1 hans garð á Vesturlöndum var ákvörðun hans 1988 að hætta stríðs- rekstri 1 Afganistan.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.