Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1990, Qupperneq 17
FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 1990.
25
átta norsku liðanna Brann og Lyn um Ólaf Þórðarson enda:
»oð Lyn er betra
iur Þórðarson sem telur mjög líklegt að hann fari til Lyn
að tilboð Lyn sé mun betra og að
m reikni fastlega með að leika með
í á næsta keppnistímabiii.
Sg er með tilboð frá báðum liðunum
bæði eru mjög góð. Þetta er hins
ar ekki spurning um peninga í mín-
huga heldur íþróttalegu hliðina
ðstaðan er mun betri hjá Lyn og
i er alltaf gaman að breyta til,“ sagði
fur í gærkvöldi og það var auð-
heyrt á honum að tilboð Lyn freistaði
hans mjög.
Hjá Lyn myndi Ólafur æfa tvisvar á
dag, tvisvar eða þrisvar í hverri viku,
og einu sinni hina dagana. Hann
myndi þá starfa við eitthvað annað tvo
til þrjá hálfa daga í viku. Hjá Brann
vann hann hins vegar hálfan daginn
alla vikuna. Það gefur því auga leið
að hjá Lyn myndi Ólafur fá mun meiri
tíma fyrir knattspymuna: „Þetta yrði
allt arniað og er verulega freistandi,"
sagði Ólaíur um þennan þátt málsins.
- En hvert stefhir Ólafur? Að ein-
hveiju meiru en því besta í norsku
knattspymunni?
„ Já, það máttu bóka og metnaöurinn
er fyrir hendi. Mig dreymir um að
komast eitthvað lengra í Evrópu og
vonandi tekst það,“ sagði Ólafur Þórð-
arson.
• Það má búast viö miklum látum í
norsku „pressunni“ þegar það spyrst
út ef Ólafur fer til Lyn. Norska pressan
í Bergen brást hin versta við er Teitur
fór til Lyn og forráðamenn Brann voru
hundskammaðir fyrir að hafa ekki
getað haldið í Teit. Hvernig hta fyrir-
sagnir norsku blaðanna út ef fyrirliði
Brann fylgir þjálfaranum og bróður
sínum til Lyn?
-SK
L,- í> Vy,
: ■ \' :■ ;í : ■: '
V> í-' ' "/ -y.
■ .
'f 4s »t!
. í ‘
V>' >' i
i liði ÍR-inga, sýndi skemmtileg tilþrif í leiknum gegn Snæfelli i Seljaskóla i gær-
ivenjulegur enda er Douglas Shouse fyrrverandi hástökkvari.
DV-mynd Brynjar Gauti
„Graham heidur
mikið upp á
Michael Thomas“
- segir Sigurður Jónsson hjá ArsenáL
Sigurður Jónsson og félagar hans
hjá Arsenal eiga erfiðan leik á morg-
im en þá mæta þeir liöi Manchester
United á Old Trafford í 1. deild ensku
knattspymimnar. Sigurður mætti á
sína fyrstu æfingar á miðvikudag og
í gær, fimmtudag, frá því að hann lék
með íslenska landshðinu gegn Spán-
verjum.
Ég fann til í lærinu þegar líða tók
á leikinn gegn Spánveijum og baö
því um skiptingu. Ég hef því þurft
að taka það rólega, hef verið í léttu
nuddi en ég er oröinn góður núna
og er í toppformi. Ég á samt ekki von
á því að vera í byijunarliðinu gegn
Manchester United. Önnur ástæðan
er aö ég hef ekki æft sem skyldi en
hin er sú að Michael Thomas er orð-
inn heiil á.ný, hann leikur sömu
stöðu og ég og er í miklu uppáhaldi
hjá George Graham framkvæmda-
stjóra,“ sagði Sigurður Jónsson í
samtali við DV í gær.
Eins og kunnugt er lék Siguröur í
byijunarliði Arsenal gegn Norwich í
síðasta deiidarleik liðsins og átti þá
mjög góðan leik á miðjunni. Sigurður
gat síðan ekki leikið með Arsenal
þegar liðið vann stórsigur á Chester,
5-0, í ensku deildarbikarkeppninni
en hann fór fram kvöldið áður en
Spánn og ísland léku í Sevilla, en í
þeim leik skoraði Sigurður sitt 1.
mark fyrir A-landsliðið.
-GH
íslandsmótið í blaki:
íslandsmeistarar
töpuðu og töpuðu
Tveir leikir fóru fram í íslandsmót-
inu á miðvikudaginn var. Fyrri leik-
urinn hófst klukkan átta um kvöldið
en þeim seinni lauk ekki fyrr en um
hálftólf.
ÍS - Víkingur: 0-3
íslandsmeistarar stúdína höfðu tögl
og hagldir framan af í fyrstu hrinu
og gekk' valkyijunum úr Hæðargarði
þá heldur illa að svara fyrir sig. En
þegar staðan var 8-3, ÍS í vil, snerust
spilin í höndum þeirra og Víkingar
hófu hægfara en hiklausa siglingu
fram úr þeim. Stefnan var nú tekin
á sigur og skipun um meiri keyrslu
send niður í vélarrúm. Við þessu áttu
stúdínur dræm svör og lyktaði leikn-
um með 3-0-sigri Víkinga (15-11, -12
og-6).
Þróttur - HK: 2-3
Það var auðséð strax í upphafi leiks-
ins að HK-drengimir ætluðu að selja
sig dýrt. Þróttarar áttu fiúlt í fangi
með að finna göt á vöm liðsins þrátt
fyrir að hávömin hefði ekki verið
upp á marga fiska enda liðið skipað
fremur lágvöxnum leikmönnum.
Leikurinn var jafh allan tímann og
æsispennandi, skemmtilegur á að
horfa oft á tíðum. Það var snerpa og
baráttugleði HK-inga sem gerði út
um leikinn. Snarpar og fastar sóknir
og bráðskemmtilegur varnarleikur
og á endanum stóð Kópavogsliðið
uppi sem sigurvegari (16-14, -12, -12,
8- og -11). Greinilegt er á öllu að
Skjöldur Vatnar Björnsson þjálfari
er á réttri leið með liðið.
-gje
Jón með á þriðjudag
- er Framarar mæta Barcelona á LaugardalsveUi kl. 15.30
Leikmenn spænska stórliðsins Barcelona koma til íslands síðdegis á sunnu-
dag en á þriðjudaginn mætir liðið Fram í fyrri leik liðanna í 2. umferð Evr-
ópukeppni bikarhafa. Leikurinn hefst kl. 15.30. Barcelona mun æfa á aðalleik-
vanginum í Laugardal á mánudaginn en liðið heldur af landi brott strax eft-
ir leikinn við Fram á þriðjudaginn. Jón Sveinsson, sem sfimdar nám í Banda-
ríkjunum, kemur gagngert til íslands til að taka þátt í leiknun en ekki er
ljóst ennþá hvort hann verður með í síðari leiknum í Barcelona.
-JKS
íþróttix
Guimar Svembjömsson, DV, Engtandí:
Paul McGrath mun að öllum
líkindum leika með Aston Villa á
laugardag þegar félagið heim-
sækir Wimbledon. McGrath gat
ekki leikið með írum gegn Tyrkj-
um á miðvikudagskvöld vegna
hnémeiðsla.
Norwich í erfidieikum með
framherja sína
Norwich á nú í miklum erfiöleik-
um meö að tefla fram sóknar-
mönnum gegn Liverpool um
helgina. Robert Fleck og Robert
Rosario eru ekki tilbúnir í slag-
inn og sömu sögu er að segja um
Henruk Mortensen og Dean Con-
ey.
Mike Hooper áfram
hjá Leicester
Mike Hooper, markvöröur Liver-
pool, mun aö öllum likindum
dvelja i mánuð til viðbótar sem
lánsmaður hjá Leieester og þar
með verður CarlMuggleton, leik-
maður síðarnefnda liðsins, áfram
á Anfield Road.
Bright og Saiako skrifa
undirhjáPaiace
Mark Bright og John Salako hafa
báðir skrifað undir nýja samn-
inga við Ci-ystal Palace. Samning-
arnir gilda til fi ögurra ára en þess
má geta að Salako hefur að und-
anförnu verið á sölulistanum l\já
Palace.
Dynamo Minsk leikur gegn
enskum félögum
Sovéska 1. deildar liðið Ilynamo
Minsk leikur tvo vináttuleiki í
Englandi siðar í þessum mánuði.
Minsk leikur fyrst gegn Brighton
og síðan gegn Bristol City.
Viila hefur enn áhuga
á Dean Yates
Aston Villa hefur enn augastað á
Dean Yates hjá Notts County.
Graham Taylor bauð 750 þúsund
pund í Yates í fyrra en því var
hafnað. Josef Venglos, sá sem tók
við af Taylor, hefur líka augastað
á leikmanninum og þykir líkleg-
ur til að hækka tiboðið.
Rogan vill yfirgefa
Glasgow Celtic
Anton Rogan. norður-írski bak-
vörðurinn hjá Celtic, vonast enn-
þá til að geta yfirgefið Glasgow-
liðið. Rogan var á leiðinni ti:
Portsmouth en snuröa hljóp á
þráðinn á síðustu stundu. Nú
hafa Middlesbrough og St. Mirr-
en bæst í hóp þeirra sem vilja
kaupa kappann.
60. íþróttaþing TSÍ verður haldið
á laugardag og sunnudag. Þingið
fer fram í félagsheimili Kópavogs,
Fannborg 2, og verður sett kl. 10
á laugardagsmorgni. Aö venju
hggur míkill fjöldi mála fyrir
íþróttaþingi.
Yfir 200 kjömir fulltrúar eiga
rétt til þingsetu með atkvæðis-
rétti, auk margra með málfrelsi
og tillögurétt.
Líkur eru á því að fjórir menn
gefi kost sér til varaforseta.
Hannes Þ. Sigiu’ðsson, núverandi
varaforseti, Ellert B. Schram,
Júlíus Hafstein og Guðmundur
Kr. Jónsson. -JKS