Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1990, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1990, Síða 24
32 FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 1990. „Vel þér veg þinn“ Ég á engan óvin. Séra Guðmund- ur Orn er ekki óvinur minn. Við erum á sama vegi og „allir jafnt eru fræðarar" mínir. „Óvinur þinn verður að leyndardómi, sem verð- ur að fá lausn á (jafnvel þótt það taki aldir), því að skilningur verður að fást á manninum.“ (Leiðarljós, ’37). Shirley MacLaine er ekki óvinur minn en hún fer pínulítið í taug- arnar á mér í augnablikinu. En við erum á sama vegi. Hún viU kenna mér. Séra Guðmundur Örn vill kenna mér. - Shirley er búin að sjá hvernig heimurinn og lífið varð til, en hvað svo? Hún gengur of hratt fyrir mig, ennþá. Þó kannast ég við margt úr bók hennar, „Leitin inn á við“, vegna námskeiða sem ég hef verið á í Heilunarskólanum. Þetta er mín leið Nýaldarhópar horfa til stjam- anna, pæla í kjarna hlutanna, finna orku steinsins, kíkja í orð sem skrifuð voru löngu áður en Biblían varð til, ráða í rúnir. Trúa á Jesúm. Hver með sínum skilningi. Ég tel mig ekki afbrigðilegt eintak af manneskju, en ég læt engan sem er á veginum segja mér hvemig ég á að haga mér á göngu minni. - Engan prest; ekki þann sem skammast yfir hálsmeni sem er tákn stjörnumerkis viðkomandi og KjaUaiinn Norma E. Samúelsdóttir rithöfundur því ég hef gengið á glóandi kolum. Þriðja sem telur mig á Satans veg- um, mig sem skoða er ég geng minn veg. Ég veit hvert ég er að fara, hvers ég leita, og ég, sú sama, veit aö ég fer til baka aftur, staldra við, ef ég ákveð það sjálf. Þetta er mín leið. íslenskur fræðimaður var útskúfaður fyrir 50-60 árum fyrir skoðanir sínar, visindatilraunir sínar um líf á öðmm hnöttum (stjörnum). Mottó hans var: Ultra rehgione, non contra, fram fyrir trúarbrögðin, ekki á móti þeim. (Dr. Helgi Pjeturss) Öll bræður og systur Það er einmitt þetta sem ég tel að sé að gerast í dag, hvort sem bókstafstrúarmönnum líkar betur „íslenskur fræðimaður var útskúfaður fyrir 50-60 árum fyrir skoðanir sínar, vísindatilraunir sínar um líf á öðrum hnöttum (stjörnum).“ Dr. Helgi Pjeturss. - „Mottó hans var: Fram fyrir trúarbrögðin, ekki á móti þeim,“ segir m.a. í grein Normu. vill fremur að krossinn prýði við- komandi háls (því ekki bæði?). Annan sem telur mig á villigötum Nauðungaruppboð Fyrra nauðungaruppboð á eftirtöldum eignum fer fram á skrifstofu embættisins, Aðalstræti 29, Patreksfirði, á neðangreindum tíma: Aðalstræti 7, Patreksfirði, þingl. eig- andi Hilmar Jónsson, miðvikudaginn 24. okt. 1990, kl. 13.00. Uppboðsbeið- andi er Byggingarsjóður ríkisins. Bmnnar 6, Patreksfirði, þingl. eigandi Eiður B. Thoroddsen, miðvikudaginn 24. okt. 1990, kl. 13.30. Uppboðsbeið- endur em Byggingarsjóður ríkisins og Guðmundur Oli Guðmundsson hdl. Jörðin Bijánslækur 2, Barðaströnd, þingl. eigandi Ragnar Guðmundsson, þriðjudaginn 23. okt. 1990, kl. 15.30. Uppboðsbeiðendur eru Byggingar- sjóður ríkisins og Búnaðarbanki ís- lands. Mýrar 13, Patreksfirði, þingl. eigandi Haraldur Aðalsteinsson, miðvikudag- inn 24. okt. 1990, kl. 15.00. Uppboðs- beiðandi er Guðjón Ármann Jónsson hdl. Sigtún 49, efrí hæð, Patreksfirði, þingl. eigandi Guðrún Samsonardóttir, mið- vikudaginn 24. okt. 1990, kl. 15.30. Uppboðsbeiðandi er Byggingarsjóður verkamanna. Frystihús á lóð úr landi Bijánslækjar, Barðaströnd, þingl. eigandi Flóki h/f, þriðjudaginn 23. okt. 1990, kl. 16.00. Uppboðsbeiðendur em Fiskveiðasjóð- ur Islands og Byggðastofnun. Þórsgata 12, Patreksfirði, þingl. eig- andi Iðnverk h/f, miðvikudaginn 24. okt._ 1990, kl. 17.00. Uppboðsbeiðandi er Ásgeir Þór Ámason hdl. Kjarrholt 4, Barðaströnd, þingl. eig- andi Kristín Theodóra Ragnarsdóttir, þriðjudaginn 23. okt. 1990, kl. 16.30. Uppboðsbeiðandi er Byggingarsjóður verkamanna. Bensi BA46, þingl. eigandi Leifur Halldórsson, miðvikudaginn 24. okt. 1990, kl. 18.00. Uppboðsbeiðandi er Ásmundur S. Jóhannsson hdl. Sýslumaður Barðastrandarsýslu Nauðungaruppboð annað og síðara á eftirtöldum eignum fer fram á skrifstofu embættisins, Aðalstræti 92, Patreksfirði, á neðangreindum tíma: Jörðin Neðri-Rauðsdalur, Barða- strönd, þingl. eigandi Ragnar Guð- mundssón, þriðjudaginn 23. okt. 1990, kl. 17.00. Uppboðsbeiðendur eru Bygg- ingarsjóður ríkisins og Ami Pálsson hdl. Kjarrholt 1, Barðaströnd, þingl. eig- andi Guðrún Sigfríður Samúelsdóttir, þriðjudaginn 23. okt. 1990, kl. 17.30. Uppboðsbeiðandi er Byggingarsjóður verkamanna. Kjarrholt 3, Barðaströnd, þingl. eig- andi Kristján Sigurbrandsson, þriðju- daginn 23. okt. 1990, kl. 18.00. Upp- boðsbeiðandi er Byggingarsjóður verkamanna. Ingibjörg B. BA402, þingl. eigandi Hraðfiystihús Tálknafjarðar h/f, þriðjudaginn 23. okt. 1990, kl. 14.00. Uppboðsbeiðendur em Bjöm Jósef Amviðarson hdl., Lögheimtan h/f, Lífeyrissjóður Vestfirðinga og Vél- bátaábyrgðarfélag ísfirðinga. Lækjarbakki, Tálknafirði, þingl. eig- andi Herbert Guðbrandsson, þriðju- daginn 23. okt. 1990, kl. 14.30. Upp- boðsbeiðandi er Iðnlánasjóður. Gilsbakki 1, Bíldudal, þingl. eigandi Haukur Kristinsson, miðvikudaginn 24. okt. 1990, kl. 9.00. Uppboðsbeið- andi er Byggingarsjóður verkamanna. Gilsbakki 2, Bíldudal, þingl. eigandi Ágúst Sörlason, miðvíkudaginn 24. okt. .1990, kl. 10.00. Uppboðsbeiðandi er Byggingarsjóður verkamanna. Sæbakki 6, Bíldudal, þingl. eigandi Kristján H. Kristinsson, miðvikudag- inn 24. okt. 1990, kl. 11.00. Uppboðs- beiðandi er Byggingarsjóður verka- manna. Sýslumaður Barðastrandarsýslu Miðtún 2, Tálknafirði, þingl. eigandi Ólafur Gunnbjömsson, miðvikudag- inn 24. okt. 1990, kl. 11.30. Uppboðs- beiðendur em Landsbanki íslands og Gunnar Sæmundsson hrl. eða verr. Vísindi ofar trú, og aftur tU náttúrunnar. í Orðskviðunum, 11, 15, er þessi speki: „Hrapallega fer fyrir þeim er gengur í ábyrgð fyrir annan mann, en sá sem hatar handsöl er óhultur." (Ég skil fyrri hlutann betur en þann seinni). Þetta skil ég þannig að ég stjórni ekki lífi ann- arra, það sé mér ekki hollt. Það hafa alltaf verið ill öfl í heim- inum, jafnt hjá þeim sem kallaðir eru nýaldarhópar sem og í hópi sannkristinna. Hvert mannsharn berst við ill öfl ... í sjálfu sér. „Því innra með þér er ljós heimsins, hið eina ljós, er unnt er að varpa á veginn. Ef þér er ekki unnt að skynja það hið innra með þér, er þér þýðingarlaust að leita þess ann- ars staðar. (Leiðarljós (útg. af Guð- spekifél. íslands) í þýð. Grétars Fells). Mér þótti vænt um að heyra um einn fyrrverandi biskup okkar sem var að ræða við samferðamenn sína í heita pottinum á einum sund- stað nýlega í Reykjavík. Hann sagði: Ég lít ekki á sjálfan mig sem einhvern sem vísar veginn, ég lít á mig sem þjón Guðs, reyni að vera umburðarlyndur á hveiju sem gengur, reyni aö aðstoða þá sem til mín leita á veginum. Ég segi það sama við þig nú, Guð- mundur Öm Ragnarsson, og ég sagði á Nýaldarmóti nú i ágúst sl. á Amarstapa, þar sem þú og félag- ar þínir úr „Orði lífsins" „radd- ust“ inn á mótið til að „bjarga“ okkur „villuráfandi“ - þó kynntir þú þér ekki neitt af því sem þarna fór fram svo ég viti. - „Við erum öll bræður og systur,“ sagði ég þá. Annar prestur var staddur á þessu móti af sjálfsdáðun, til að kynna sér, forvitnast. Hann hlust- aði vel, tók ég eftir, hugleiddi. Þög- uU. Að endingu langar mig til að vitna í bókina góðu, ekki þá einu þó - en þar stendur þetta um kær- leikann... Hann breiðir yfir allt, trúir öllu, vonar allt, úmber allt... Korintubréf 13,7. ... Vel þér veg þinn. (Leiðarljós, 17, bls. 16) Norma E. Samúelsdóttir Menning Háskólabíó - Krays-bræðumir XA Hrottaleg en heillandi Nú er verið að sýna í Háskólabíói sérkennilega kvik- mynd sem að mörgu leyti er hvalreki á fjörur kvik- myndaunnenda. Sérkennileg er myndin vegna þess að hún byggist á raunverulegum atburðum í lífshlaupi manna sem enn lifa. Hún er jafnframt heillandi vegna þess að þar fara saman öguð leikstjórn, góður leikur og markviss framsetning. Myndin er nokkurs konar ævisaga þeirra Ronalds og Reginalds Kray sem voru umsvifamiklir í skipu- lagðri glæpastarfsemi í London á sjötta áratugnum og ráku glæsilega næturklúbba þar sem filmstjörnur og þingmenn skáluðu og skemmtu sér. En bak við glæsi- lega framhliðina leyndist blóðug veröld ofbeldis, morða og sálsjúklinga. Hinir raunverulegu Krays- tvíburar afplána nú báðir lífstíðarfangelsi. Það eru þeir Gary og Martin Kemp sem leika tvíbur- ana og ferst það afar vel úr hendi. Þeir eru nauðalíkir eins og fyrirmyndirnar og draga upp mjög sannfær- andi mynd af mönnum sem svífast einskis en eru and- lega gallaðir og holir að innan. Móðir þeirra bræðra er afbragðsvel leikin af Bilhe Whitelaw. Hún og hópur frænkna, sem stýra mæðra- veldinu sem getur þá bræöur af sér og elur þá upp, eru á sinn hátt ekki síður hrollvekjandi en synimir. Faðir og afi eru sýndir sem drykkfelldir ónytjungar. „Karlmenn eru og verða börn. Þeir halda að þeir ráði öllu en vita ekkert," segir móðir bræðranna. Hún kæfir þá í ástúð og ráðríki og gerir þá að því sem.þeir em. Ronald er kynvilltur, sálsjúkur morðingi sem beitir taumlausu ofbeldi og grimmd í samskiptum við aðra. Reginald er upp á kvenhöndina og algjörlega ófær um að elska. Hann rænir konu sína, sem er eina persóna myndarinnar sem hægt er að hafa samúð með. öllu sjálfstæði og hún fremur að lokum sjálfs- morð. Það er ekki sérlega hugljúf saga sem hér er sögð en afar hreinskilin og beitt í óvæginni framsetningu. Sum ofbeldisatriðin em þau hrottalegustu sem sést hafa á hvíta tjaldinu lengi. Samt er ástæða til þess að hvetja þá sem unna góðum kvikmyndum og em orðnir þreytt- ir á öfgakenndri glansáferð Hollywood framleiðslunn- ar til þess að drífa sig nú í bíó. Krays-tvíburarnir sýndu andstæðingum sínum enga miskunn. Kvikmyndir Páll Asgeirsson The Krays - bresk Leikstjórn: Peter Medak Handrlt: Phllip Ridley Aðalhlutverk: Billie Whitelaw, Gary Kemp, Martin Kemp, Sus- an Fleetwood, Charlotte Cornwell og Jimmy Jewel.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.