Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1990, Side 26
34
FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 1990.
Afmæli
Aðalsteinn Gíslason
Aðalsteinn Gíslason vélfræðingur,
Fomastekk 1, Reykjavík, er sextug-
urídag.
Starfsferill
Aðalsteinn fæddist á Seyðisfirði
og ólst þar upp. Hann lauk sveins-
prófi í rennismíði frá Vélsmiðju
Péturs Blöndals á Seyðisfirði 1950,
var í iðnskólanámi í Neskaupstað
og í Reykjavík, lauk vélskólaprófi
1954 og síðan prófi í vélfræði.
Aðalsteinn var vélstjóri á skipum
SÍS og öðrum skipum á árunum
1954-64 og starfaði síðan við raf-
orkuver á Keflavíkurflugvelli.
Aðalsteinn hefur átt sæti í stjórn
Vélstjórafélags íslands og verið
trúnaðarmaður þess á vinnustað.
Hann hefur skrifað greinar og frá-
sagnir fyrir Sjómannablaðið Víking
og Sjómannablaðið í Neskaupstað.
Fjölskylda
Aðalsteinnkvæntist 8.6.1957
Kristínu Jóhönnu Hólm, f. 17.7.1934,
húsmóður og bréfbera, en hún er
kjördóttir Jörgens Hólm, sem er enn
búsettur á Siglufirði, og Sigurbjarg-
ar Gunnarsdóttur sem nú er látin.
Móðir Jóhönnu var Anna Bjama-
dóttir frá Reyðarfirði en faðir henn-
ar var Páll Einarsson úr Fljótum.
Böm Aðalsteins og Jóhönnu eru
Rúnar Jörgen, f. 17.10.1957, flug-
virki í Reykjavík, en sambýliskona
hans er Sigríður Ásta Ámadóttir
flugfreyja; Bára, f. 24.2.1959, þroska-
þjálfi en börn hennar eru Eydís
Edda, f. 1985, og Oddur, f. 1987; Sig-
urbjörn Gísli, f. 25.9.1963, kvik-
myndagerðarmaður, og Gunnar
Kolbeinn, f. 11.4.1969, nemi.
Systkini Aðalsteins: Margrét, f.
30.10.1923, húsmóðir á Seyðisfirði,
gift Pétri Blöndal forstjóra og eiga
þau fimm börn; Guðmundur, f.
17.12.1926, bankafulltrúi á Seyðis-
firði, kvæntur Jónhildi Friðriks-
dóttur og eiga þau þrjú börn; Hólm-
fríður, f. 17.7.1928, talsímavörður í
Reykjavík, og á hún eitt barn.
Hálfsystkini Aðalsteins frá fyrra
hjónabandi eru Arnór, f. 9.1.1911,
fyrrv. skipstjóri í Reykjavík, kvænt-
ur Petru Asmundsdóttur og eiga þau
tvö börn; Stefán, f. 1912, d. 1942;
Gunnar, f. 5.4.1914, fyrrv. prófastur
í Glaumbæ í Skagafirði, kvæntur
Ragnheiði Ólafsdóttur og eiga þau
sex börn; Ragnar, f. 1916, d. 1936;
Hrefna, f. 4.6.1918, húsmóðir á Sel-
tjarnamesi, ekkja Birgis Thorodds-
en skipstjóra og á hún þijú böm.
Foreldrar Aðalsteins: Gísh Jóns-
son, f. 15.9.1882, d. 1964, verslunar-
maður á Seyðisfirði, og seinni kona
hans, Guðrún Guðmundsdóttir, f.
6.11.1898, d. 1980, húsmóðir.
Ætt og frændgarður
Gísli var sonur Jóns eldri, b. í Flat-
ey á Mýrum, Hálfdánarsonar, b. í
Flatey á Mýrum, Jónssonar, b. í
Eskey, Hálfdánarsonar, b. í Eskey,
Jónssonar. Móðir Jóns í Eskey var
Guðríöur Jónsdóttir, b. í Árnanesi,
Sigurðssonar og konu hans, Herdís-
ar Pálsdóttur, systur Halldórs, lang-
afa Þorleifs, langafa Þórbergs Þórð-
arsonar. Móðir Hálfdánar var
Hólmfríður Gissurardóttir, b. í
Borgarhöfn. Móðir Gissurar var
Hólmfríður Ólafsdóttir, b. á Bakka
í Einholtssókn, Nikulássonar, b. á
Bakka, Guðmundssonar, bróður
Magnúsar, langafa Stefáns, langafa
Finns, afa Eysteins, fyrrv. ráöherra,
og Jakobs, prests og rithöfundar,
Jónssona. Móðir Jóns í Flatey var
Elín, systir Gísla, trésmiðs og bæjar-
fulltrúa á Akureyri. Elin var dóttir
Magnúsar, b. á Björgum í Hörgár-
dal, Mikaelssonar og konu hans,
Rósu, systur Lilju, móður Friðfinns
Gíslasonar leikara. Rósa var dóttir
Gísla, b. í Hátúni í Hörgárdal, Frið-
finnssonar og konu hans, Bjargar
Ámadóttur, b. í Hátúni, Jónssonar.
Móðir Gísla var Guðrún Sigurðar-
dóttirfráBorg.
Guðrún Guðmundsdóttir var dótt-
ir Guðmundar, verslunarmanns og
útvegsmanns á Búðum á Fáskrúðs-
Aðalsteinn Gíslason.
firöi, Jónssonar, hafnsögiunanns í
Dúkskoti í Reykjavík, Oddssonar.
Móðir Guðrúnar Guðmundsdóttur
var Hólmfríður Jónsdóttir, ættuð
úr Borgarfirði eystra, Ögmundsson-
ar.
Aðalsteinn verður að heiman á
afmælisdaginn.
Til hamingju með daginn
85 ára
70ára
Guðmunda Jónsdóttir,
Aðalstræti 29, Þingeyri.
80 ára
Laufey Sigurðardóttir,
Eyjaholti 9, Gerðahreppi.
Valgerður Jónsdóttir,
Garðaflöt5, Garðabæ,
Ragnheiður Eiriksdóttir,
Stangarholti 22, Reykjavik.
Margrét Guðmundsdóttir,
Iðu I, Biskupstungnahreppi.
Gunnlaug Hannesdóttii-,
Langholtsvegi 92, Reykjavík.
Friðrik Sigurðsson,
Efstasundi 89, Reykjavík.
ÞorgeirGíslason,
Hraunbraut 16, Kópavogi.
Theresa María Willem,
Austurgötu 7, Stykkishólmi.
Matthías L. Sigursteinsson,
Húnabraut l, Blönduósi.
Anna Káradóttir,
Reykási 27, Reykjavík.
Valdimar Ingibergur Þórarins-
son,
Gnoðarvogi 28, Reykjavík.
Einar Kristján Jónsson,
Austurgötu 45, Hafnarfirði.
Guðrún L. Erlendsdóttir,
Araliólum 2, Reykjavík.
Stefanía Björg Einarsdóttir,
Selsvöllum 7, Grindavík.
Sigurður Gunnarsson,
Kjarrholti3,ísafirði.
Guðrún Ögmundsdóttir,
Grundarstíg 2, Reykjavík.
Idda Wanjiru Jóhannesson,
Langagerði 92, Reykjavík.
Andlát
Valur Amþórsson
Valur Amþórsson, bankastjóri
Landsbankans, lést 13. október og
verður jarðaður í dag kl. 13.30 frá
Dómkirkjunni.,
Þórarinn Valur er fæddur 1. mars
1935áEskifirði.
Starfsferill
Valur lauk landsprófi frá Eiðum
1951 og samvinnuskólaprófi 1953.
Hann var í námi í verslunarfræðum
og tryggingum í London 1955-1956
og í námi við sænska samvinnuskól-
ann 1965. Valur var fulltrúi í bif-
reiðadeild Samvinnutrygginga
1953-1956 og fulltrúi í endurtrygg-
ingadeild Samvinnutrygginga
1956-1958. Hann var deildarstjóri
þar 1958-1964 og deildarstjóri í
áhættudeild Samvinnutrygginga
1964- 1965. Valur var fulltrúi kaup-
félagsstjóra Kaupfélags Eyfirðinga
1965- 1970, aðstoðarkaupfélagsstjóri
1970- 1971 og kaupfélagsstjóri KEA
1971- 1989. Valur var í bæjarstjóm
Akureyrar 1970-1978 og forseti bæj-
arstjómar 1974-1978. Hann var for-
maður stjómar Laxárvirkjunár frá
1971, í Orkuráði frá 1975 og í stjóm
Landsvirkjunar frá 1981. Valur var
ritari stjómar SÍS1975-1978 og for-
maður 1978-1989. Valur hefur verið
stjómarformaður eða i stjóm
margra fyrirtækja á vegum KEA,
varaformaður stjómar Samvinnu-
trygginga hf., Endurtryggingafélags
Samvinnutrygginga hf. og Andvöku
frá 1977, varaformaður í stjóm Olíu-
félagsins hf. 1978-1989 og í stjórn
Vinnumálasambands samvinnufé-
laganna og Samvinnuferða hf. um
tíma. Valur var stjómarformaður
Plasteinangmnar hf. og stjómar-
formaður Kaffibrennslu Ákureyrar,
stjórnarformaður Útgerðarfélags
KEA hf., í stjórn Útgerðarfélags
Dalvíkinga hf. og varaformaður Iðn-
þróunarfélags Eyjafjarðar hf. frá
1982. Hann var bankastjóri Lands-
bankans frá ársbyrjun 1989.
Fjölskylda
Valur kvæntist 16. júlí 1955 Sigríði
Ólafsdóttur, f. 12. maí 1936. Foreldr-
ar Sigríðar eru: Ólafur Helgason,
fyrrv. tollvörður í Hafnarfirði, og
kona hans, Ólöf Ingimundardóttir.
Börn Vals og Sigriðar eru: Brynja
Dís, f. 7. desember 1955, sagnfræð-
ingur og menntaskólakennari í
Reykjavík; Ólafur, f. 25. júlí 1959,
dýralæknir í Danmörku, kvæntur
Jóhönnu Baldvinsdóttur lyfjafræð-
ingi; Arna Guðný, f. 3. júlí 1963,
myndlistarkona í Liége í Belgíu,
sambýhsmaður hennar er André
Niku MPeti viöskiptafraéðinemi;
Ólöf Sigríður, f. 7. apríl 1969, söng-
nemi, og Ambjörg Ífiíf, f. 8. febrúar
1976. Systkini Vals eru: Guðjón
Gauti, f. 20. febrúar 1933, yfirlæknir
á Akureyri, dósent í HÍ, kvæntur
Sólrúnu Sveinsdóttur hjúkrunar-
fræðingi; Sigfríður Hlíf, f. 2,ágúst
1940, dómtúlkur í Kaupmannahöfn,
gift Bent Christensen menntaskóla-
kennara, og Guðný Anna, f. 7. ágúst
1951, lektor í geðhjúkrunarfræöi í
HÍ og framkvæmdastjóri geðdeildar
Borgarspítalans, gift Hjálmari
Kjartanssyni viðskiptafræðinema.
Ætt
Foreldrar Vals eru Arnþór Jen-
sen, f. 22. mai 1906, fyrrv. pöntunar-
félagsstjóri á Eskifirði, nú á Hrafn-
istu í Hafnarfirði, og kona hans,
Guðný Anna Pétursdóttir, f. 8. mars
1911,-d. 30. júlí 1988. Föðurbróðir
Vals er Markús, faðir Elmars Jen-
sen, framkvæmdastjóra Sjóklæða-
gerðarinnar. Föðursystir Vals er
Jóhanna, móðir Jóns Þórs Hannes-
sonar kvikmyndagerðarmanns og
Sólveigar, deildarstjóra á DAS. Föð-
urbróðir Vals, samfeðra, er Þórir
Jensen, fyrrv. forstjóri Bílaborgar.
Föðursystir Vals, samfeðra, er
Hrefna, móðir Erlings Þ. Jóhanns-
sonar, íþróttafulltrúa Reykjavíkur.
Amþór er sonur Peters Jensen,
kaupmanns og útgerðarmanns á
Eskifirði, bróður Kjartans, afa
Sveinbjarnar Rafnssonar prófess-
ors. Móðir Peters var Jóhanna Pét-
ursdóttir, systir Kjartans, afa Aðal-
steins Jónssonar, útvegsmanns á
Eskifirði. Móðir Árnþórs var Þór-
unn Markúsdóttir, systir Einars,
fóður Maríu Markan ópemsöng-
konu.
Móðursystir Vals er Sigríður,
móðir Péturs verkfræðings og
Magnúsar myndlistarmanns Páls-
sonar, fóður Páls sálfræöings og
Tuma myndlistarmanns. Sigríður
er móðir Ingibjargar innanhúss-
arkitekts, móður Þómnnar Sigríðar
Þorgrímsdóttur myndhstarmanns.
Önnur móðursystir Vals er Oddný,
móðir Bjarna verkfræðings og Hall-
gríms tæknifræðings Axelssona.
Guðný Anna var dóttir Péturs,
prests í Eydölum, bróður Guðnýjar,
ömmu Gísla píanóleikara, Þorbjarg-
ar læknis, Guðnýjar bókara og Jóns
Magnússonar, fyrrv. sýslumanns.
Pétur var sonur Þorsteins prests í
Eydölum, bróður Þrúðar, lang-
ömmu Davíðs Oddssonar borgar-
stjóra. Þorsteinn var sonur Þórar-
ins, prests á Hofi í Álftafirði, Er-
Valur Arnþórsson.
lendssonar, b. í Helhsfirði, Ámason-
ar. Móðir Erlendar var Guðrún Þór-
arinsdóttir, ættmóðir Helhsfiarðar-
ættarinnar. Bróðir Þórarins var
Einar, langafi Eysteins Jónssonar,
fyrrv. ráðherra. Móðir Péturs í Ey-
dölum var Sigríður Pétursdóttir,
systir Stefáns, afa Ragnars Hall-
dórssonar, stjórnarformanns ÍSALS
Móðir Guðnýjar Önnu var Hlíf,
systir Soffiu, ömmu Magnúsar
Thoroddsen, fyrrv. hæstaréttar-
dómara. Hlíf var dóttir Boga Smith,
b. og smiðs á Arnarbæh á Fehs-
strönd. Móðir Boga var Ragnheiður
Bogadóttir, fræðimanns á Staðar-
felh, Benediktssonar, ættföður Stað-
arfellsættarinnar, langafa Bryndís-
ar, ömmu Geirs Hallgrímssonar
seðlabankastjóra. Móðir Ragnheið-
ar var Jarþrúður Jónsdóttir, prests
í Holti í Önundarfirði, Sigurðssonar
og konu hans, Solveigar Ólafsdótt-
ur, lögsagnara áEyri í Skutulsfirði,
Jónssonar, ættföður Eyrarættar-
innar, langafa Jóns forseta.
Sviðsljós
í tísku
Hið mjúka og kvenlega er það
sem koma skal i tískuheiminum,
ef marka má sýningar á vor- og
sumartískuimi sem fóru fram í
París nýlega. Rómantik, mýkt og
munúð voru orð sem erlendir
gagnrýnendur notuöu til þess að
lýsa því sem fyrir augu bar og
fagna því.
Hálfgagnsæjar flíkur og fá-
klæddar fyrirsætur fengu þó
suma til þess að efast um að
nokkur kona eldri en 18 ára gæti
látið sjá sig í þessu nema hún
væri því betur á sig komin. Að
vera vel á sig komin virðist
reyndar þýða að vera horuð. En
hvað um það. Þær myndir, sem
hér fylgja, gleðja án efa hjarta
margra karlmanna.
Fáklæddar sýningarstúlkur sýna
sumartísku næsta árs.