Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1990, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1990, Blaðsíða 28
36 FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 1990. Meiuiing Metnaður á röngum stað Erling Blöndal Bengtsson var einleikari á selló á tón- leikum Sinfóníuhlómsveitar íslands í Háskólabíói í gærkvöldi. Stjórnandi var Petri Sakari. Á efnisskránni voru verk eftir Pál ísólfsson, Þorkel Sigurbjörnsson, C. Saint-Saens og S. Rachmaninoff. Lofsöngur Páls ísólfssonar er hluti Alþingishátíðar- kantötu sem samin var í tilefni af 1000 ára afmæh Alþingis íslendinga árið 1930. Tónamál Páls í þessu verki er að sönnu gamalt og kunnuglegt en það verður einnig sagt um ýmsa fleiri eins og t.d. bæði Sibelius og Rachmaninoff svo nefnd séu tvö tónskáld sem virð- ast njóta sérstakra vinsælda hjá Sinfóníuhljómsveit- inni um þessar mundir. Munurinn er þó sá að Páll sækir einkum í gamla Bach en hinir í Tsjækovskí og sýnir Páh þar mun betri smekk. í rauninni jaðrar við að kaha megi tónhst hans neoklassíska og væri gaman að vita hvað hann sjálfur hefur hugsaö um þau mál. Þá er að finna í verki Páls einlægni sem stafar af ást hans og djúpri þekkingu á þeirri hefð sem hann vinn- ur í. Langholtskór Jóns Stefánssonar tók þátt í flutn- ingi Lofsöngs með hljómsveitinni og komst ágætlega frá því verki. í heild var flutningur verksihs þolanleg- ur en ekki meir en það. Oft er svo um flutning á ís- lenskum verkum að þau virðast frekar lesin en flutt. Engin alúð er lögð við jafnvægi í styrk, mótum hend- inga eða túlkun yfirleitt og svo var hér. Ef einhver skyldi halda að gæði íslenskra verka væru ekki næg th að réttlæta vönduð vinnubrögð þá er það mikill misskilningur. Sinfóníuhljómsveitin mun í vetur flytja ýmis erlend verk sem eru töluvert undir gæðastaðli, t.d. þeirra tveggja íslenskra tónskálda sem áttu verk á þessum tónleikum, Páls ísólfssonar og Þorkels Sigur- bjömssonar. Það var einmitt verk Þorkels, Trífónía, sem fylgdi Lofsöng á efnisskránni. Verkið byggir að sögn höfund- ar á orðtækinu „Aht er þá er þrennt er“. í upphafi þess má heyra þrenns konar óhkan efnivið. Stórstígt lagrænt stef í fiðlum, hrynrænt frum í slagverki og stutta smástíga tónstiga í tréblæstri. Þetta andstæða efni fer síðan með ýmsum hætti um hljómsveitina, ^Tónlist Finnur Torfi Stefánsson tekst á og mótar hvað annað. Verkið er mjög skýrt í byggingu og fuht af þeirri skemmtilegu og frjóu hug- kvæmni sem einkennir þetta frábæra íslenska tón- skáld. Þetta var frumflutningur verksins og tókst hann prýðhega. Var tónskáldi; stjómanda og hljómsveit vel fagnað í lokin. Það var ekki að sjá neina þreytu á Erhng Blöndal Bengtssyni eftir átök hans við Bach og rokkhljómsveit- ina Sjálfsfróun í Bústaðakirkju í fyrrakvöld. Hann lék sellókonsert Saint-Saens af mikhli innlifun og öryggi. Ef einhver virki í salnum vom að því loknú ósigmö hlutu þau að falla í aukalaginu, Gavottu eftir Bach, sem Erling lék með yndislegri glaðværð og þokka. Eftir hlé var flutt Sinfónía no. 2 eftir Rachmaninoff. Þetta verk er ritað af fagmannlegri þekkingu en er einkennilega andhtslaust. Ef th vhl er betra að segja andlaust. Það byggir á röð af tutti hápunktum og inni- heldur flestar útsetnigarbrellur sem í tísku vora í Evrópu undir lok síðustu aldar. Tónlist af þessu tagi var samin í metravís með færibandshraða um miðbik þessarar aldar th nota í Hollywood-kvikmyndum. Þessi tónhst er úrkynjuð eins og ofþroska banani. Hvemig á því stendur að einhveijum dettur í hug að flytja þetta á íslandi árið 1990 er hulin ráðgáta. Ennþá ein- kennhegra er að Sinfóníuhljómsveitin fór á kostum í flutningi á verkinu. Einar Jóhannesson sphaði eins og engill í hægum þætti sem er eins og útblásið dægur- lag. Brassið átti mjög góðan dag og sama má segja um stjórnandann og hljómsveitina í heild. Er hugsanlegt að hljómhstarfólkinu þyki þetta efni gott eða er at- vinnumennskan komin á svona hátt stig? Hvað sem því hður er það sorglegur misskhningur að láta ís- lensku verkin hða fyrir svo léttvægt efni. Fréttir Formaöur Vélstjórafélags íslands: „Ber vott um takmarkaða kurteisi í okkar garð“ - segirHelgiLaxdalumfulIyrðingarhagfræðmgsLÍÚ „Fullyrðing Sveins Hjartar, hag- fræðings LÍU, eru gersamlega út í hött og bera vott um takmarkaða kurteisi við vélstjórastéttina," segir Helgi Laxdal, formaður Vélstjórafé- lags íslands, vegna ummæla Sveins Hjartar Hjartarsonar í DV. Þar sagði hann meðal annars að rekstrar- kostnaður skipa, sem brenna svar- tolíu, væri hærri en þeirra sem brenna gasohu vegna hærri vél- stjóralauna og meira viðhalds. Að sögn Helga Laxdal sýna nýlegir útreikningar að launauppbót vél- stjóra á skipum, sem brenna svartol- íu, nemi einungis einum til tveimur hundraðshlutum af' hagnaði skip- anna vegna svartohunotkunar þeirra. „Beinn hagnaður þessara skipa nemur allt að 8 milljónupi á ári með- an launauppbót vélstjóranna er ein- ungis um 85 þúsund á ári, sem skipt- ist mhh ahra vélstjóranna á skipi. Ástæða uppbótarinnar er aukin vinna vegna svartohunnar og að mínu mati mættu útgerðarmenn vera vélstjóram þakklátir. Þeir mættu vera minnugir þess að það er fyrst og fremst vélstjómm að þakka hversu vel hefur tekist th með svart- ohuna,“ segir Helgi. -kaa Þýsk-islenska: Tvær athugasemdir Helgi Magnússon, löggiltur endur- skoðandi, var ekki endurskoðandi Þýsk-íslenska eins og mátti ætla af frétt DV um sakamálið á hendur forráðamönnum fyrirtækisins. Helgi kom að málinu eftir að rannsóknin var hafin. Helgi hafði það hlutverk að fara yfir reikningsskil sem endur- skoðandi á vegum skattrannsóknar- dehdar hafði gert. „Hlutverk mitt var að að gera athugasemdir og leiðrétta þau reikningsskil sem embættið hafði látið gera. Ég gætti hagsmuna Þýsk-íslenska. Ég var aldrei endur- skoðandi fyrirtækisins og sú vinna, sem ég innti af hendi fyrir fyrirtæk- ið, tók um hálft ár,“ sagði Helgi Magnússon, lögghtur endurskoð- andi. Garðar Valdimarsson ríkisskatt- stjóri hafði samband við DV vegna sömu fréttar. Hann sagði að mis- skhnings gætti í fyrirsögn þar sem stóð að hann hefði dregið fyrri fram- burð til baka. í fréttinni stóð að Garð- ar hefði dregið hluta fyrri framburð- ar til baka. Garðar sagði það rétt, h'ann hefði gert athugasemdir við tvær hnur af langri skýrslu sem tek- in var af honum hjá rannsóknarlög- reglu. -sme Góðtemplarareglan í Vinabæ Góðtemplarareglan keypti fyrir nokkm Tónabíó og hefur því verið gefið nafnið Vinabær. Húsið verður notað fyrir bingó og einnig verður hægt að vera þar með ráðstefnuhald. í Tónabíói verður spilað bingó þijú kvöld í viku en að auki er margs konar önnur starfsemi fyrirhuguð í húsinu. -Sþ. Andlát Ragnar Kristjánsson andaðist á Landakotsspítala að kvöldi 17. októ- ber. Jón Marteinn Stefánsson, Miðbraut 21, Seltjamamesi, lést á Landa- kotsspítala þann 17. október sl. Höfðaströnd í Skagafirði 2. ágúst 1917, sonur hjónanna Kristins Rögn- valdar Eghssonar og Kristínar Rutar Jóhannsdóttur. Síðustu 33 árin starf- aði hann á Keflavíkurflugvehi, lengst af hjá íslenskum aðalverktökum. Sigvaldi giftist ekki og átti ekki böm. Útfor hans verður gerð frá Keflavík- urkirkju í dag kl. 14. Jarðarfarir Iíjartan Bjö'rgvin Jónsson, Ásabraut 5, Keflavík, verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 20. október kl. 10.30. Valur Gíslason leikari verður jarð- sunginn frá Dómkirkjunni þriðju- daginn 23. október kl. 13.30. Árni Ragnar Lúðvíksson Melbraut 17, Garði, verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 20. október kl. 13.30. Anna K. Vilhjálmsdóttir lést 11. okt- óber. Hún var fædd 10. september 1918 í Skáholti í Reykjavík, dóttir hjónanna Margrétar Guðmundsdótt- ur og Vhhjálms Kristjánssonar. Anna gekk í Verslunarskóla íslands of lauk þaðan verslunarprófi 1935. Hún giftist Kristjáni Þórðarsyni, en hann lést árið 1959. Þau hjónin eign- uðust fjögur börn. Útfór Önnu verð- ur gerð frá Háteigskirkju í dag kl. 13.30. Sigvaldi Kristinsson lést 9. október. Hann var fæddur aö Syðra-Ósi á TiBcyimingar Um það fer tvennum sögum, eftir Gunnar Hersvein „Um það fer tvennum sögum,“ heitir ný bók mn heimspeki etir Gunnar Hersvein. Vegna útfarar VALS ARNÞÓRSSONAR bankastjóra, verður lokað í aðalbanka og höfuðstöðvum í dag, föstudaginn 19. október. milli kl. 13.00 og 15.00 síðdegis. Landsbanki íslands. Bókin skiptist í tvær hugleiðingar og sjö kafla, sem nefnast m.a. „Hugsað um dauðann", og „Hugsað um guð“. Hún er ætluð almennum lesendum og glímir höfundur viö ýmis vandamál eins og: Hvað er dauðinn? Hvað er guð? Er guð til? Hvað er hamingja? Hvað er vilji? hvað er ábyrgð? Eru siðareglur algildar eða úreltar? Hvað er mannssálin? Hvað er heimspeki? Hver er tilgangurinn? Hvað er ofbeldi? Hver er sannleikurinn? Hvar ber að leita sannleikans?. Bókin er 80 bls. og kostar kr. 1500. Höfundur gefur bókina út sjálfur, en íslensk bókadreifing hf, Suðurlandsbraut 4, sími 686862 dreifir bókinni í bókabúðir í Reykjavík og úti á landi. „Um það fer tvennum sögum“ er þriðja bók höfundar, sem er ljóðskáld.og heimspekingur. Húnvetningafélagið Félagsvist á laugardag kl. 14 í Húnabúð, Skeifunni 17. Allir velkomnir. Haustmót Taflfélags Reykjavíkur1990 hefst sunnudaginn 21. október kl. 14. í aöalkeppninni verður þátttakendum skipt í flokka með hliðsjón af Eló-stigum. Tefldar verða ellefu umferðir í öllum flokkum. Umferðir verða þrisvar í viku, á sunnudögum kl. 14 og á miðvikudögutn og fóstudögum kl. 19.30. Biðskákdagar verða inn á milli á mánudögum og fimmtudögum. Hægt er að skrá sig í keppnma á skrifstofutíma og á kvöldin í síma 83540. Lokaskráning fer fram laug- ardaginn 20. október, kl. 14-20, í síma 83540. Keppni í flokki 14 ára og yngri hefst laugardaginn 27. október, kl. 14. Tefldar verða níu umferðir eftir Monrad- kerfi og umhugsunartími er 40 mínútur á skák. Keppnin tekur þrjá laugardaga, þijár umferðir í senn. Bókaverðlaun verða fyrir a.m.k. fimm efstu sætin. Framkvæmdastjóri kvennavettvangs Lúterska heimssambandsins í heimsókn Musimbi Kanyora, framkvæmdastjóri kvennavettvangs Lúterska heimssam- bandsins, kemur til íslands 20. október og mun dvelja hér á landi í vikutíma. Þessi heimsókn er í tilefni kvennaáratug- ar Alkirkjuráðsins 1988-1998 og tilgangur hennar er að hitta konur í kirkjunni og styrkja þær í starfl. Til þess gefast nokk- ur tækifæri. Sunnudaginn 21. október mun hún verða viö messu í Grindavíkur- kirkju kl. 14 og ávarpa söfnuðinn en sóknarprestur þar er sr. Jóna Kristín Þorvaldsdóttir. Það sama kvöld, sunnu- dagskvöld, verður opinn fundur í Lang- holtskirkju þar sem Musimbi mun halda erindi en einnig gefst timi til almennra umræðna. 23.-25. okt. mun hún funda með samstarfshópi um kvennaguðfræði á Löngumýri en samstarfshópnum hefur verið falin umsjá með kvennaáratugnum hér á landi. Föstudagskvöldið 26. okt. verður síöan kvennamessa í Seljakirkju þar sem Musimbi predikar en íslenskir kvenprestar þjóna fyrir altari. Hvít sól eyðimerkurinnar íMÍR Nk. sunnudag, 21. október, kl. 16, verður sovéska kvikmyndin Hvit sól eyðimerk- urinnar sýnd í bíósal MÍR, Vatnsstig 10. í myndinni segir frá ævintýrum Fjodors Súkhovs hermanns í sandauðnum Mið- Asíu og hvemig honum tekst með góðra manna hjálp að frelsa 9 konur úr ánauö Abdúlla hins blóðþyrsta. Leikstjóri er Vladimir Motyl en aðalleikendur Ánatólý Kúznetsov, Raisa Kúrkina, Sartak Mis- húlin og Pavel Lúspekaév. Myndin er talsett á ensku. Aðgangur ókeypis. Fjölmiðlar Einu sinni á ári birtir tímaritið Frjáls verslun lista yfir eitt hundrað stærstu fyrirtæki landsins. Það er ósennilegtað nokkurt blað sem gef- ið er út hér á landi hafi að geyma annaneins aragrúa upplýsinga óg ; það töíublað Ftjálsrar verslunar sem hefur aö geynia Ustann yfir stærstu fyrirtæki landsins. Það er ekki nóg að birta mikið af upplýsingum. Það þarf að vanda alla uppsetningu og frágang svo þær komi að bestu gagni. Það hefur Helga Magnússyni ritsfjóra og hans fólki tekist með miklum sóma. Blað- iö er einstaklega þægilegt aflestrar og auövelt er aö fimia þar hinar margvíslegustu upplýsingar. Það er greinilegt að beöiö er eftir að Fijáls verslun birti listann yfir stærstu fyrirtæki landsins þar sém allflestirijöliniölar hafa ítrekað vitnað í Frjálsa verslun. Þar sem í blaöinu er aö finna þúsundir upp- lýsinga er alls ekki um veiu'ulegt timarit aö ræða. Óhætt er að segja aö nýjasta tölublað Frjálsrar versl- unar sé langtímarit. Ritstjóm blaðs- ins tekst að koma miklu af upplýs- ingum til skíla á þægilegan og skemmtileganhátt. Það fer ekki framhjá lesendum Moggans að prófkjör er á næsta leíti. Þegar má sjá margar fram- boðsauglýsingar, á siðum Moggans, dagiega. Flestar em auglýsingamar svipaöar, þaö er frambjóðendumir virðast tilbúnir til stórátaka, meö uppbrettar ermar og svo framvegis. Dyggur sjálfstæðismaöur fullyrti við undirritaðan að einn frambjóö- endanna, Éyjólfur Konráð Jónsson, birti nú sömu Ijósmynd af sér og hann gerði þegar hann tók þátt í prófkjöri fyrir fjórum árum. Siguijón M. Égilsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.