Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1990, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1990, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1990. Fréttir Maður sem réðst grímuklæddur með hnífi að konu 1 Kópavogi: Dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir nauðgun - var gert að greiða helming kostnaðar við DNA-rannsóknina 29 ára gamall maður, sem nauðg- aði konu í viöbyggingu íþróttahúss í Kópavogi 17. nóvember 1989, var dæmdur í fjögurra ára fangelsi í Sakadómi Reykjavíkur í gær. Hann var einnig dæmdur til að greiða konunni 500 þúsund krónur í skaðabætur með dráttarvöxtum frá gerningsdegi, helming óvenju mikils sakarkostnaðar sem nam um 2 milljónum króna, verjanda sínum 100 þúsund og 80 þúsund í saksóknaralaun. Til frádráttar refsingunni kemur gæsluvarö- haldsvist frá 25. ágúst. Arngrímur ísberg sakadómari kvaö upp dóm- inn í gær. Sakborningurinn, Gísli Þórarins- son, hefur áfrýjaö dómnum til Hæstaréttar. Fulltrúi ríkissak- sóknara krafðist þess að maöurinn sæti í gæsluvarðhaldi þar til dómur í Hæstarétti fellur, þó ekki lengur en til 14. júní 1991. Úrskuröur var síðan kveðinn upp í samræmi við kröfu fulltrúa ríkissaksóknara. Ákærði kærði ekki þann úrskurö. Þekkti rödd mannsins Verknaöurinn átti sér stað klukk- an hálftvö aðfaranótt föstudags. Árásarmaöurinn var grimuklædd- ur vopnaður hnífi. Hann neyddi konuna til samræðis við sig með hótunum um ofbeldi. Konan gat fljótlega lýst gemings- manninum nokkuð hjá lögreglu, hún taldi þetta vera rödd manns sem haföi komið til æfinga í íþróttahúsinu þar sem hún vann. 20. nóvember benti konan strax á ljósmynd af sakborningnum þegar henni voru sýndar myndir hjá lög- reglunni af 16 mönnum. Maðurinn fór þó ekki í formlega yfirheyrslu hjá lögregip fyrr en hann var hand- tekinn 24. ágúst síðasthðinn. Þá lágu niðurstöður fyrir hjá RLR úr DNA rannsókn sem gerð var í Bret- landi á erföasýnum úr 61 manni. Þeir gáfu fúsir blóðsýni til að að- stoða við rannsókn málsins, þar á meðal sakborningurinn. Hann hafði skihð eftir sig hkamsvessa við verknaðinn og því lá nánast óyggjandi sönnun fyrir. Hann ját- aði verknaðinn á sig 25. ágúst, þá nýkominn í gæsluvarðhald. DNA-rannsóknin of viöamikil? í niðurstööu dómsins segir m.a. að ákærði hafl „komið á staðinn grímuklæddur og með hníf, bein- línis í þeim tilgangi að nauðga henni.“ Dómurinn telur réttmætt og eðlilegt að blóðsýni væru send í DNArannsókn. „Hins vegar verð- ur ekki fram hjá því htið að konan hafði bent mjög ákveðiö á einn af mönnunum, þ.e. ákærða. Jafnvel þó rannsóknarlögreglan hafl ekki á þeim tíma tahð það nægja til að- gerða gagnvart honum, og það mat hafi vafalaust verið rétt eins og á stóð, verður ekki tahð réttlætanlegt að senda öh þessi blóðsýni til jafn- viðamikillar og kostnaðarsamrar rannsóknar. Samkvæmt framan- sögðu er ekki réttlátt að ákærði bera ahan kostnaðinn af rannsókn- inni,“ segir í dómnum. Skipaður verjandi sakbornings- ins er Öm Clausen hæstaréttarlög- maöur. -ÓTT Kona rænd 30 þúsund krónum: „Maðurinn sleit af mér töskuna“ - segir Dagmar Helgadóttir, 78 ára gömul „Ég var að koma frá Húsnæðis- stofnun á Suðurlandsbraut og var komin að strætisvagnabiðskýlinu, á móts við Bifreiðar og landbúnaðar- vélar, þegar ég sá mann koma hlaup- andi í áttina til mín. Ég veitti honum enga sérstaka athygli," sagði Dagm- ar Helgadóttir, 78 ára gömul kona, búsett í Reykjavík, en hún var rænd tugum þúsundum króna sjðdegis á mánudag. „Þetta var maður á milli þrítugs og fertugs. Hann var í grágrænni skítugri úlpu með hettuna á höfðinu. Hann kippti í töskuna sem ég hafði á öxhnni. Viö það shtnaði ólin og hann náði töskunni. Maðurinn hljóp niður að Laugardalshöll. Þar tók hann seðlaveskið úr henni. í henni voru um þrjátíu þúsund krónur og skilríki," sagði Dagmar við DV. Hún var að koma frá Húsnæðis- stofnun ríkisins þar sem hún fékk greidda peninga. Þegar hún var rænd ætlaði hún að taka strætisvagn núm- er 2 áleiðis í Landsbankann á Lauga- vegi 77 til að borga af láni. Dagmar segir að ellilaunin séu aöeins um 19 þúsund krónur. Þetta var því mikill missir fyrir hana. Hún segist ítrekað hafa reynt að fá pláss á elliheimili eða aðra umönnun samkvæmt læknisráði, en hún þjáist af brjósklosi í baki. Þær tilraunir hafa ekki borið árangur. -ÓTT Dagmar var með töskuna á öxlinni þegar þjófurinn kom að henni, þreif í töskuna þannig að ólin slitnaði. Síðan hvarf hann á braut. DV-mynd GVA Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra um Seðlabankastöðumar: Það er ég sem skipa banka- stjóra og f ormann bankaráðsins - Ólafur Ragnar segir að ganga verði frá öllum atriðum 1 einu Ekki hefur enn tekist að leysa deil- una um bankastjóra, bankaráð og bankaráðsformann Seðlabankans, milli stjórnarflokkanna. Inn í þetta mál blandast líka skipan bankastjóra Landsbankans með óbeinum hfetti þannig að hann verði ekki skipaður fyrr en gengið hefur veriö frá Seðla- bankamálinu. Jón Sigurðsson viöskiptaráðherra sagöi í samtali viö DV aö það stæði á Alþýðubandalaginu aö tilnefna fuhtrúa sinn í bankaráð. Hann viður- kenndi að það væri nokkuð þóf í kringum allt þetta mál. Aðspurður um kröfu Alþýðubandalagsins um aö fá stöðu bankastjóra Seölabank- ans sagöi Jón Sigurðsson: „Ég hef ekki fengið neina kröfu um bankastjóra frá Alþýðubandalaginu, enda er það ég, sem viðskiptaráð- herra, sem skipa bankastjóra og for- mann bankaráðsins. Aðrir skipa ekki í þær stöður." Ólafur Ragnar Grímsson, flármála- ráðherra og formaður Alþýðubanda- lagsins, vih heldur ekki kannast við að ílokkurinn hafi gert beinar kröfur til bankastjórastöðunnar eða nefnt ákveðinn mann úr sínum röðum í stöðuna. „Það sem viö viljum er að leysa málið allt í einu. Það er, að kosning í bankaráð, skipun formanns banka- ráðs og skipun bankastjóra verði gerð samtímis. Það hefur Jón Sig- urðsson ekki fallist á og á því strand- ar,“ sagði Ólafur Ragnar. Samkvæmt heimildum DV er máliö orðið meira en deha milli A-ílokk- anna, það er oröið ríkisstjórnarmál. Þá hefur DV skýrt frá því, og stend- ur við þaö, að Alþýðubandalagið hef- ur gert kröfu um að bankastjórastað- an falli í þess hlut og þar hafa menn Geir Gunnarsson alþingismann í huga. Það er einfaldlega á þessu, og því hver verði formaöur bankaráðs, sem strandar við að kjósa í banka- ráðiö á fundi sameinaðs Alþingis. Samkvæmt lögum átti að vera búið að kjósa nýtt bankaráö 1. nóvember síðastUðinn. -S.dór Skósólagjald til að gera Frumvarpiö um sérstakt gjald á hófflaðrir til reiðvegagerðar, sem lagt var fram á síðasta þingi en var ekki afgreitt, hefur nú verið endurfiutt á Alþmgi. Það hafa margir þingmenn brosað að hófijaðrafrumvarpinu. Nú hafa gárungar úr hópi þing- manna samiö annað lagafrum- varp sem er með sama orðalagi og hófflaðrafrumvarpið nema sett er inn skósóli og skósólagjald til gangstéttagerðar. Það hefm' enn ekki verið lagt fram og mun vanta flutningsmenn. Segir í greinargerð þessa nýja „ffumvarps“ meðal annars: Með frumvarpi til breytinga á vega- iögum er Vegagerð ríkisins ótvir- ætt falið það verkefhi að sjá um gerð gangstétta meöffam reiðveg- um samkvæmt gangstéttaáætlun sem samgönguráðherra lætur gera... Það frumvarp sem hér er flutt nær til tekjuöflunar vegna gangstétta meðfram reiðvegum. Gangstéttafé 1989 er ekki neitt og engan veginn nægjanlegt til framkvæmda þegar fótganga er svo vinsæl og vaxandi sem raun ber vitni... Með samþykkt þessa frv., sem og frv. á þingskj. 119, geta reiðhross og fótgöngumenn gengið eftirleiöis samhliða með- fram þjóðvegum „hokin í hnján- um og horft meö stillingu og festu áíslenskajörð.“ -S.dór á íslandi? „Ég veit ekki hvort hægt er að fá upplýsingar um það frá þýsk- um yfirvöldum nú, hvort a-þýska öryggislögreglan Stasi hafi verið í tengslum viö íslenska aöila, en vil að það sé athugaö. Ég veit að fyrirspurnin er óvenjuleg en tel þó fulla ástæðu til að bera hana fram,“ sagði Geir H. Haarde al- þingismaður í samtali við DV. Geir hefur borið fram fyrir- spurn til utanríkisráöherra á Al- þingi og spyr hvort ráöherrann ætli aö fara þess á leit viö þýsk stjórnvöld að þau veiti upplýsing- ar úr eða heimili aðgang að skjalasafni Stasi til að ganga úr skugga um hvort hún starfaði hér álandi. -S.dór

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.